Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Fjárfestingasamningur til þriggja nefnda

Fari einnig til efnahags- og skattanefndar og umhverfisnefndar

12.3.2009

alfheidur-ingadottir-frett

Álheiður Ingadóttir, þingkona Vinstri grænna og varformaður Iðnaðarnefndar Alþingis, segir mikla vinnu eftir áður en hægt verður að afgreiða fjárfestingasamning iðnaðarráðherra til annarrar umræðu í þinginu. Hún segir að efnahags- og skattanefnd og umhverfisnefnd þurfi einnig að fjalla um málið.

„Það er verulega mikil vinna eftir í þinginu við að athuga forsendur þessa máls,“ segir Álfheiður um lagafrumvarp um heimild til iðnaðarráðherra um að gera fjárfestingasamning við Century Norðurál vegna álversuppbyggingar í Helguvík.

Álfheiður segir það hafa komið fram í umræðum um málið á Alþingi í gærkvöldi að málið snúi ekki bara snúa að iðnaðarnefnd og hennar málaflokkum heldur líka að málum sem varða efnahags- og skattanefnd og umhverfisnefnd. „Þau skattalega fríðindi sem samningurinn á að veita eru  auðvitað eitthvað sem efnahags- og skattanefnd þar og fjalla um.  Svo þarf umhverfisnefnd að fjalla um áhrif þessa mál á loftslagskvótann okkar, hvernig orkuöflunin verður og hvernig línulögninni verður háttað.“ Hún býst við að málið fari einnig til meðferðar þessum tveim nefndum og segir að mikil gagnaöflun muni þurfa að fara fram áður en málið kemur til annarrar umræðu í þinginu.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica