Vefrit um pólitík og mannlíf
3. september 2010

Háskólastúdentar í setuverkfalli

Heimspekistúdentar mótmæla ólýðræðislegum ákvörðunum

25.11.2008

haskoli_islands

Heimspekistúdentar við Háskóla Íslands hófu setuverkfall í Soffíubúð, félagsaðstöðu þeirra á þriðju hæð í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, í morgun. Með þessu vilja stúdentarnir varna því að Soffíubúð verð rýmd og þar sett upp skrifstofa. Þeir segja ákvörðun stjórnar hugvísindasviðs að leggja Soffíubúð undir skrifstofu hafa verið einhliða og án alls samráðs við stúdenta. Sama ákvörðun  hefur verið tekin varðandi félagsaðstöðu Guðfræðistúdenta sem handan gangsins á þriðju hæð í Aðalbyggingu Háskóla Íslands.

Ólýðræðisleg ákvörðun háskólayfirvalda

"Það á að svipta okkur heimspekistúdenta því aðsetri sem við höfum haft innan háskólasamfélagsins og breyta því í skrifstofu. Þessi ákvörðun var tekin án vitneskju nemenda og án nokkurs samráðs við þá," segir Þórhildur Halla Jónsdóttir sem situr í stjórn Soffíu, félags heimspekistúdenta við Háskóla Ísland.  Hún segir rökin fyrir þessu vera þau að ósanngjarnt sé að nemendur í heimspeki og guðfræði hafi séraðstöðu þegar aðrar deildir hafi slíkt ekki. "Slík réttlæting, að svipa fólk því sem það hafa í stað þess að bæta úr hjá öðrum, hrekkur skammt. Af svo ólýðræðislegum vinnubrögðum getur Háskóli Íslands tæplega vera stoltur af," segir Þórhildur Halla.

Þórhildur Halla segir að þau hafi fyrir helgi sent bréf ásamt guðfræðistúdentum til forseta og sviðsstjóra Hugvísindasvið auk Kristínar Ingólfsdóttur rektors Háskólans þar sem þau fóru fram á fund til þess að ræða málið. "Við höfum engin viðbrögð fengið við því nema það að verktakar tilkynntu okkur í gærmorgun að við ættum að rýma Soffíubúð innan sólarhrings," segir Þórhildur og bætir við: "Við ætluðum að bíða fundarins, en ósk um hann hefur ekki verið svarað nema með útburðarhótunum. Nú getum við beðið lengur og grípum því til þessa setuverkfalls og hvetjum alla núverandi og fyrrverandi heimspekistúdenta, jafnt sem aðra, að taka þátt í því með okkur."

Mikilvægur vettvangur heimspekinámsins

Þórhildur segir að fyrir þeim sem undanfarin ár hafi lagt stund á nám í heimspeki við Háskóla Íslands sé Soffíubúð ekki bara lítið herbergi heldur einnig traustur grunnur að samfélagi sem nær langt út fyrir Háskólann. "Það er ekki sjálfsagður hlutur að slíkt samfélag verði til heldur þarf að hlúa að því. Þetta litla herbergi hefur orði að athvarfi fyrir umræður, þekkingarleit, samvinnu, og vináttu." Hún segir að stór hluti heimspekinámsins, að margra dómi mikilvægasti hluti heimspekinámsins, eigi sér stað í Soffíubúð

Arfleið Þorsteins Gylfasonar

Þórhildur segir einnig að Soffíubúð hafi á sínum tíma verið hugleikið baráttumál Þorsteins heitins Gylfasonar prófessors. "Þegar Þorsteinn átti sextugs afmæli bað hann sérstaklega um að í staðinn fyrir gjafir fyrir sjálfan sig myndi fólk frekar leggja til húsgögn, bækur, listaverk eða aðra muni í Soffíubúð," tekur hún sem dæmi um hversu hugleikin Soffíubúð var Þorsteini.  "Af því marga sem Þorsteinn vann sem fræðimaður og kennari í þágu heimspekinnar þá er Soffíubúð ekki sísta arfleið hans," segir hún að lokum.

Hér er bréfið sem heimspeki- og guðfræðistúdentar sendu fyrir helgi.






Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. Ásgeir Valur Sigurðsson skrifar:

    Sem nemandi í heimspeki í HÍ fordæmi ég allar tilraunir til þess að svipta Soffíu starfsgetu sinni , og tel að nóg sé komið af framkvæmdum í Reykjavík gjörvallri í bili.
    Ég tel að betra sé fyrir HÍ að höfuðstöðvar skólans verði fluttar vegna jarðskjálfta - og flóðahættu í útjaðar höfuðborgarsvæðisins eða jafnvel rifnar og endurbyggðar á lóð sem yrði úthlutuð skólanum þar.
    Ég tel það að öðrum kosti óðs manns æði að efna til breytingartillagna á aðalskipulagi Aðalbyggingar HÍ án samráðs við nemendur , og að slíkt feli í sér snert eða vott af geðveiki í andlegu ástandi eða hugarástandi þess sem lætur sér detta annað eins fáránlegt bull í hug.
    Sérstaklega á tímum sem þessum þar sem verðbólga geisar í samfélaginu og þar sem allir verða að starfa saman hefur HÍ einfaldlega ekki efni á frekari framkvæmdum og alls ekki framkvæmdum af tagi sem gæti skaðað ímynd Háskólans erlendis. Ef okkar stofnun á að vera ein af 100 bestu háskólum heims þá segi ég að við höfum ekki náð nógu langt því að raunverulegt markmið okkar sé að vera besti háskóli í heiminum. Til þess að við getum komist sem nálægast því markmiði getum við ekki verið að traðka hvort ofan á öðru og standa ekki saman bæði nemendur , kennarar og skólastjórn.
    Það gengur nefnilega ekki að einn sitji út í horni með allt framkvæmdavaldið í hendurnar og segi ´ég ætla að hafa þetta svona´og allir hinir séu á móti en ekki sé hlustað á þá , eins og gerðist með Landsvirkjun og í Þjórsárverum vegna tíðra heimsókna yfirmanna Landsvirkjunar þar til þess að vera með ómerkilegar og svívirðilegar hótanir gagnvart bændum sem bjuggu nálægt Þjórsá. Ég hef þekkt stjórn og félagsmenn Soffíu í rúmt ár núna , og treysti þeim 100% , og vona að við nemendur getum risið upp og staðið með Soffíu í baráttu þeirra gegn stjörnuvitlausri , geldri og úreltri hugmyndafræði þess efnis að þar verði sett upp einhver skrifstofa.

    bestu kveðjur,

    Ásgeir Valur Sigurðsson.

    25.11.2008, kl. 20:59 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica