Vefrit um pólitík og mannlíf
3. september 2010

Aðstaða framleiðenda á landsbyggðinni jöfnuð

Fjármálaráðherra segir að um sanngirnismál sé að ræðs

27.2.2009

steingrimur-j-sigfusson-stefnuraeda-040209

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra segir að nú sé unnið að því í ráðuneytinu ásamt ÁTVR að breyta reglum áfengissölunnar um móttöku og dreifingu til þess að jafna stöðu að framleiðenda á landsbyggðinni við að koma vörunni á markað.

Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði í vikunni fram þingsályktunartillögu um að fela fjármálaráðherra að taka til endurskoðunar reglur um móttöku og dreifingu ÁTVR í þeim tilgangi að jafna stöðu fyrirtækja á landsbyggðinni. Steingrímur segir hana seint á ferðinni hjá honum.

„Hann hefur haft ærinn tíma með sína menn í fjármálaráðuneytinu til að gera eitthvað í málinu. Það hefur verið mikill þrýstingur á þetta mál, sérstaklega  af norðan, í nokkur ár, en það hefur ekkert gerst,“ segir Steingrímur og bætir við: „En nú kemur hann með þingsályktunartillögu þegar hann er kominn í minnihluta. Af hverju beitti hann sér ekki fyrir þessu þegar hann var í fjárlaganefnd og flokksbróður sinn í ráðuneytinu?“

Hann segir það af málinu að frétta að það hefði jafnvel staðið til að ganga frá því í dag, en forstjóri ÁTVR komst ekki til fundar. „Þetta er bara spurning um fyrirkomulag sem við þurfum að leysa í samráði við þau.“

Steingrímur segir málið snúa að því að jafna stöðu framleiðenda. „Það er ekki sanngjarnt að sum framleiðslufyrirtæki geti keyrt þessu á lyfturum á milli húsa sem kostar nánast ekki neitt, en önnur þurfi að borga stórar fjárhæðir til að koma vörunni inn í dreifingarkerfi ÁTVR.“

Steingrímur segir að farið verði í málið strax eftir helgi og hann segist hafa fullan hug á því að leysa þetta mál og geti gert það hjálparlaust.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica