Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Fréttir

lokun

Smugan fer í sumarfrí! - 30.6.2010 Fréttir

Smugan er á leiðinni í sumarfrí eins og þorri landsmanna. Hún er lokuð á tímabilinu fyrsta júlí til tíunda ágúst og fetar þar með í fótspor Ríkissjónvarpsins á árum áður. Landsmenn eru hvattir til að eyða sem mestum tíma úti í guðsgrænni náttúrunni, vera góðir við menn og dýr og njóta sólar meðan hennar nýtur við. Efni Smugunnar á að vera aðgengilegt meðan á sumarleyfinu stendur en slökkt verður á athugasemdakerfinu.

Lesa meira
 
sedlabanki

Miða skal við lægstu vexti Seðlabankans - 30.6.2010 Fréttir

Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa sent fjármálafyrirtækjum tilmæli vegna tveggja hæstaréttardóma um gengislánin. Eins og kunnugt er komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að slík lán væru ólögleg og telur Seðlabankinn eðlilegt að miða við lægstu vexti Seðlabankans nema samið sé um annað.

Lesa meira
 
arnithor

Alrangt að hætta viðræðum við ESB - 30.6.2010 Fréttir

,,Hvað ætla menn að gera ef þeir draga þessa umsókn til baka og næsta könnun leiðir í ljós yfirgnæfandi stuðning við ESB? Það er til mikils að vinna fyrir Íslendinga og orðspor okkar sem þjóðar að við sýnum staðfestu í samskiptum við aðrar þjóðir," segir Árni Þór Sigurðsson þingmaður VG sem segist þó enn þeirrar skoðunar að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan ESB.

Lesa meira
 
haegrigraen

Hægri-grænir hyggja á framboð - 29.6.2010 Fréttir

Hægri-grænir eru nýr stjórnmálaflokkur sem stofnaður var 17. júní síðastliðinn og leggur áherslu á hægri sinnaða umhverfisstefnu og leggur auk þess mikla áherslu á að Ísland dragi sig úr samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og ESB. Lesa meira
 
Ferðamenn

Verðbólgan minnkar - 29.6.2010 Fréttir

Verðbólgan er nú fimm komma sjö prósent og hefur ekki verið lægri í tvö og hálft ár, eða frá síðustu mánuðum ársins 2007. Þetta kemur fram í nýrri mælingu Hagstofunnar. Lækkun á bensíni og olíu ásamt lækkun á mat- og drykkjarvörum hafa mest áhrif til lækkunar á verðlagi í júní en hækkanir á fötum og skóm og húsnæði vega á móti. Lesa meira
 
magma1

Magma, orkusjóður Landsbankans - 29.6.2010 Fréttir

Fjárfestingarsjóður Landsbankans í orkuiðnaði sem var stofnaður árið 2001 undir nafninu Magma hefur engin tengsl við Magma Energy í Kanada að sögn Þorsteins Inga Sigfússonar sem sat í stjórn sjóðsins og lagði honum til nafnið. Hann segist sverja og sárt við leggja að honum sé ekki kunnugt um nein tengsl þar á milli en honum hafi þó dottið í hug að Halldór J. Kristjánsson hafi látið Magma Energy hafa nafnið

Lesa meira
 
ogmundur-jonasson1

Maður málamiðlanna - 29.6.2010 Fréttir

„Alla mína tíð í pólitík og verkalýðshreyfingu hef ég átt auðvelt með að miðla málum og komast að samkomulagi,“ segir Ögmundur Jónasson sem fagnar gagnrýni á flokksráðsfundi VG og er ánægður með málefnavinnu á fundinum.

Lesa meira
 
heradsdomur9

Skríllinn gegn ákæruvaldinu - 29.6.2010 Fréttir

Ragnar Aðalsteinsson lögmaður krefst þess að Lára V. Júlíusdóttir settur saksóknari víki vegna vanhæfis, í máli níumenninganna sem eru ákærðir fyrir þátttöku sina i Búsáhaldabyltingunni, þar sem hún gegni trúnaðarstörfum fyrir Alþingi á öðrum vettvangi. Lára V.er skipuð af Alþingi í bankaráð Seðlabankans.  Sextíu manns voru fyrir utan Héraðsdóm og fylgdust með þegar taka átti mál níumenninganna fyrir í morgun klukkan hálf níu.

Ragnar Aðalsteinsson mótmælti því ennfremur að þinghaldið væri lokað að hluta, en ekki er fleirum hleypt í þingsalinn en geta setið eða staðið þar með góðu móti og lögregla stæði vörð um dómhúsið og stjórnaði ferðum fólks þangað inn.

Lesa meira
 
katrin-jakobsdottir-frett

Tugmilljóna arður af framhaldsskóla, þrátt fyrir taprekstur - 28.6.2010 Fréttir

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að nemendur Menntaskólans Hraðbrautar hafi hringt í ráðuneytið í dag vegna frétta af fjármálum skólans. Þjónustusamningur Menntamálaráðuneytisins og skólans rennur út um áramót og óttast nemendur að detta úr skóla. Katrín segir hinsvegar að öllum nemendum skólans verði tryggð skólavist. Ríkisendurskoðun hefur verið beðinn um úttekt á fjármálum skólans en hluthafar hafa tekið sér um 230 milljónir í arð frá stofnun hans 2003.
Lesa meira
 
range-rover

Vilja frysta fé bílánafyrirtækja - 28.6.2010 Fréttir

Hagsmunasamtök heimilanna óttast að bílánafyrirtæki verði sett í gjaldþrotameðferð til að eigendur þeirra komist hjá því að endurgreiða að fullu ofreiknaða vexti vegna ólöglegra lána. Þau skora á stjórnvöld að frysta tafarlaust nægar eignir og fé til að standa undir skaðabótaábyrgð.

Lesa meira
 
Lilja_Mosesdottir2

Að halda vinstri stjórninni til vinstri - 28.6.2010 Fréttir

Lilja Mósesdóttir varð fyrir vonbrigðum með ræður margra flokksfélaga á flokkráðsfundi VG um helgina og þótti of rík áhersla á uppgjör við einstaklinga frekar en málefni. Hún segir VG hafa gefið of mikið eftir í stjórnarsamstarfinu og það sé mikil vinna að halda Samfylkingunni vinstra megin við miðju. Hún studdi tillögu að ályktun um að hætta stjórnarsamstarfinu ef það væri ekki nógu vinstrisinnað. Tillagan var ekki samþykkt.

Lesa meira
 
sol

Meira álag - minni laun - 28.6.2010 Fréttir

Álag á vinnustað er meðal helstu áhyggjuefna BHM um þessar mundir.  Hvarvetna er verið að draga saman seglin og víðast hvar undir þeim formerkjum að viðhalda þjónustustigi.  Ríkið hefur sett fram leiðarljós um viðmið í aðhaldi á opinberum stofnunum, þar sem meðal annars er mælt fyrir um ráðningarbann. Lesa meira
 
hommar

Hjúskaparlögum fagnað - 27.6.2010 Fréttir

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er á meðal þeirra fyrstu sem ganga í hjónaband á grundvelli nýrra hjúskaparlaga, sem leyfa hjónavígslur fólks af sama kyni.

Samtökin 78 boða til Regnbogamessu í Fríkirkjunni í Reykjavík á sunnudagskvöldið til fagna nýum lögum en í dag er alþjóðlegur baráttudagur samkynhneigðra. Sérstakur gestur verður Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra.

Lesa meira
 
orka9

Vilja lög sem tryggja að orkuauðlindir verði í eigu hins opinbera - 26.6.2010 Fréttir

Flokksráðsfundur Vg samþykkti ályktun í dag þar sem lagst er eindregið gegn sölu eða langtímaframsali á orkuauðlindum og orkufyrirtækjum. Flokksráðið vill að nefnd um erlendar fjárfestingar taki máli aftur til skoðunar. Setja eigi lög sem tryggi óskoruð yfirráð opinberra aðila á orkuauðlindum.

Lesa meira
 
Bjarniben250610

Bjarni áfram formaður - 26.6.2010 Fréttir

Bjarni Benediktsson var endurkjörinn í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins á Landsfundi flokksins í dag. Pétur Blöndal alþingismaður sem bauð sig fram til formanns á síðustu stundu fékk 281 atkvæði en Bjarni fékk 573 atkvæði. 50 skiluðu auðu.

Lesa meira
 
FLOKKSRADS

ESB tillaga líklega á ís - 26.6.2010 Fréttir

,,Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs haldinn í Reykjavík 25. -26. júní 2010 skorar á þingflokk VG að standa að því að draga aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka.” Þannig hljómar tillaga að ályktun sem liggur fyrir flokksráðsfundi VG. Árni Þór Sigurðsson þingmaður VG hefur bent á að slík tillaga myndi setja ríkisstjórnarsamstarfið í uppnám yrði hún samþykkt. Steinunn Rögnvaldsdóttir lagði fram breytingartillögu um að ríkisstjórnarsamstarfinu yrði slitið, enda myndi hin ályktunin jafngilda því. Líklegt þykir hinsvegar að tillaga Ásmundar Einars Daðasonar þingmanns um að vísa málinu til málefnaþings sem halda á í haust, verði samþykkt. Lesa meira
 
bjaben

Samviska mín er hrein - 25.6.2010 Fréttir

,,Samviska mín er hrein,” sagði Bjarni Benediktsson meðal annars í setningarræðu sinni við upphaf Landsfundar Sjálfstæðisflokksins sem hófst á fimmta tímanum. Hann sagði auðvelt að gera allt tortryggilegt í því andrúmslofti sem ríkti í þjóðfélaginu. Hann sagði Sjálfstæðisflokkinn bera ábyrgð á því að ríkisbáknið hefði þanist út og ekki hefði verið nægilega sterkur rammi um viðskiptalífið. Flokkurinn hefði hinsvegar ekki gert sig sekan um glannaskap, siðleysi eða lögbrot. Hann ítrekaði að Sjálfstæðisflokkurinn teldi hagsmunum Íslands best borgið utan ESB en umsóknin hefði aldrei verið í boði Sjálfstæðismanna heldur VG og Steingríms J:

Lesa meira
 
gylfim

Ríkissjóður gæti tapað eitthundrað milljörðum - 25.6.2010 Fréttir

,,Það var ekki ætlunin að hræða neinn  að óþörfu" sagði Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra eftir ríkisstjórnarfund í dag þar sem gengislánin voru til umræðu. ,,Við erum bara að benda á staðreyndir málsins, ríkið á þriðjung í bönkunum og á því verulegra hagsmuna að gæta." Gylfi segir að það verði þungt högg fyrir sameiginlega sjóði landsmanna ef  Hæstiréttur úrskurðar að gengisbundin lán eigi að bera erlenda samningsvexti eftir að ólögmætt var að miða við gengi erlendra gjaldmiðla. Tjónið nemur um eitthundrað milljörðum króna.

Lesa meira
 
Háskóli Íslands

Pabbi þarf að vinna... - 25.6.2010 Fréttir

,,Verðmætamat starfa á Íslandi er karllægt og litað ákveðinni þrældómsdýrkun.  Því lengur sem menn eru í vinnu, því mikilvægari hljóta þeir að vera, eða hvað,“ spyr Guðlaug Kristjánsdóttir formaður BHM í nýrri grein. ,,Kjarasamningar endurspegla verkleg störf, þar sem framlag er mælt í tímaeiningum og „uppmælingu“ almennt. Framgangur í starfi fæst með því að gerast verkstjóri, bera ábyrgð á fjármunum og bæta má við sig kaupi með auknu vinnuframlagi, aukavöktum eða yfirvinnu."

Lesa meira
 
hofrungahrae6

Lítill höfrungur deyr í burðarliðnum - 25.6.2010 Fréttir

Þessi sorglega sjón blasti við þátttakendum í Hvalaskoðunarferð frá Húsavík á dögunum. Ung höfrungakýr, flaut dauð á sjónum með kálfinn úti. Ingólfur Júlíusson ljósmyndari var með í för og smellti af þessari mynd. Hann sagði að það hefðu verið áverkar á kúnni og í fyrstu hefði hann talið að hún hefði flækst í neti og drepist en við nánari skoðun virðast áverkarnir vera gamlir. Droplaug Ólafsdóttir líffræðingur hjá Hafró segir að þetta sé ekki óþekkt og áður hafi komið tilkynningar um dauðar höfrungakýr með kálfana hálfa úti.

Lesa meira
 
gylfi240610

Stjórnvöld sökuð um hræðsluáróður - 24.6.2010 Fréttir

Jóhanna Sigurðardóttir segist vonast til þess að heildarhagsmunum þjóðarinnar verði ekki teflt í tvísýnu þegar mál vegna dóma Hæstaréttar um gengislánin verði leidd til lykta. Enn og aftur sé verið að horfast í augu við alvarlegar veilur í eftirliti með fjármálafyrirtækjum í aðdraganda hrunsins. Þetta kom fram í umræðum á þinginu um dóma Hæstaréttar í gengislánamálunum. Ráðherrann sagði að stjórnvöld aðhafist ekki fyrr en dómstólar hafi skorið úr um óvissuþætti eins og vexti. Bjarni Benediktsson segir óheppilegt og óásættanlegt að það komi misvísandi skilaboð frá stjórnvöldum og fjármálafyrirtækjum um hvort bankarnir ráði við afleiðingarnar. 

Lesa meira
 
ThrosturMannlif

„Lesbókin er dauð“ - 24.6.2010 Fréttir

Þröstur Helgason telur það brjálæðislega hugmynd að ráða einn versta stjórnmálamann Íslandssögunnar sem ritstjóra Morgunblaðsins. Í viðtali við Mannlíf ræðir hann samskiptin við ritstjórana Styrmi og Ólaf Stephensen og hnignun íslenskra fjölmiðla.

Lesa meira
 
orka

Starfandi stjórnarformaður OR á gráu svæði - 24.6.2010 Fréttir

Borgarfulltrúar VG og Sjálfstæðisflokks mótmæltu harðlega á borgarráðsfundi í dag þeirri ráðstöfun að setja starfandi stjórnarformann yfir Orkuveituna. ,,Þetta er algjört einsdæmi og í miklu ósamræmi við það eftirlitshlutverk sem stjórnarformanni ber að sinna gagnvart stjórnendum fyrirtækisins, segir í bókun minnihlutans.  ,,Það vekur einnig furðu að á tímum hagræðingar og sparnaðar, skuli meirihlutinn ákveða að bæta við manni í annars fjölmenna yfirstjórn Orkuveitunnar sem fær þá greitt kr. 920.000,- mánaðarlega."

Fulltrúi VG telur ráðninguna hugsanlega stangast á við lög.

Lesa meira
 
sumarsol2

Bankarnir segjast ráða við afleiðingar hæstaréttardóma - 24.6.2010 Fréttir

Arion banki og Íslandsbanki ráða við afleiðingar hæstaréttardóma um gengislánin. Berghildur Erla Bernharðsdóttir talsmaður Arion banka segir að þetta eigi við um öll þeu vaxtakjör sem hafa verið í umræðunni, hvort sem miðað verði við samningsvexti eða stýrivexti Seðlabankans.

Lesa meira
 
Ásta Ragnheiður Jóhannsdóttir Ragnheiður Ásta Pétursdóttir

„Var greinilega búin að dæma okkur“ - 24.6.2010 Fréttir

Ragnheiður Ásta Pétursdóttir afhenti í morgun Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur forseta Alþingis stuðningsyfirlýsingu við nímenningana sem kærðir eru fyrir árás á Alþingi. Þar er þess krafist að málið verði látið niður falla, ella verði allir 700 sem undir skrifa ákærðir.

Lesa meira
 
nidurrifshus

Ekki hlutverk lánþega að leggja bönkum til rekstrarfé - 24.6.2010 Fréttir

 Lánþegar hafa mátt þola nóg vegna framgöngu eigenda og stjórnenda bankanna í aðdraganda og kjölfar hrunsins - þó ekki eigi að bæta á herðar þeim þeirri kvöð að endurfjármagna fjármálastofnanir landsins að nýju, segir í sameiginlegri yfirlýsingu Hagsmunasamtaka heimilanna, Samtaka lánþega og talsmanns neytenda. Lýst er furðu á þeim ummælum seðlabankastjóra, að nauðsynlegt sé að breyta vaxtaákvæðum gengistryggðra lánasamninga svo eigendur bankanna þurfi ekki að leggja þeim til aukið fé.  Það á ekki að vera hlutverk lánþega að leggja einkafyrirtækjum til aukið rekstrarfé þegar hæfni stjórnenda þrýtur og rekstur stefnir niður á við.

Lesa meira
 
gylfim

Samningsvextir, segir ASÍ. Alvarlegt, segir seðlabankastjóri. - 23.6.2010 Fréttir

Alþýðusambandið telur ótvírætt að gengisbundin lán eigi einungis að bera samningsvexti nú þegar Hæstiréttur hefur dæmt þau ólögmæt. Þetta segir í áliti lögfræðings ASÍ sem Viðskiptaráðuneytið óskaði eftir. Seðlabankastjóri sagði fyrr í dag að afleiðingarnar gætu orðið alvarlegar fyrir bankakerfið verði það niðurstaðan.

Lesa meira
 
radhus1

Borgarmálahópur Samfylkingarinnar í víking til Akureyrar - 23.6.2010 Fréttir

Tugir manna sóttu um stöðu bæjarstjóra á Akureyri sem auglýst var laus til umsóknar, meðal þeirra tveir borgarfulltrúar Samfylkingarinnar í Reykjavík, Sigrún Elsa Smáradóttir borgarfulltrúi og Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi. Þau drógu sig í hlé frá borgarmálahópi Samfylkingarinnar á dögunum. Listinn yfir umsækjendur er afar skrautlegur en þar má finna fólk úr öllum helstu atvinnugreinum, poppara, fréttamenn, sjómenn, sjúkraþjálfara, nema, forstjóra svo eitthvað sé nefnt.

Lesa meira
 
mar

Alvarlegar afleiðingar fyrir bankakerfið - 23.6.2010 Fréttir

Már Guðmundsson seðlabankastjóri  segir að ef dómstólar komast að þeirri niðurstöðu að greiða beri gengislánin með samningsvöxtum hafi það mjög alvarlegar afleiðingar fyrir bankakerfið. Þegar frá líði valdi þetta samdrætti í hagkerfinu,  bankakerfið verði mun veikara og vextir verði þá einnig lægri en ella. Þar til dómstólar aflétti óvissunni og ásættanleg niðurstaða fáist sé hætt við því að hægt gangi að sigla íslenska hagkerfinu út úr keppunni. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Seðlabankanum þar sem skýrt var frá ákvörðun um að lækka stýrivexti um 0.5 prósent. Vextirnir hefðu lækkað meira ef dómarnir hefðu ekki valdið óvissu.

Lesa meira
 
verdlagASI

Sterkari króna en engar verðlækkanir - 23.6.2010 Fréttir

Verðlag á innfluttum vörum hefur ýmist haldið áfram að hækka eða staðið í stað þrátt fyrir sterkari stöðu krónunnar, að því er fram kemur á vef ASÍ.

Lesa meira
 
verdlagASI

Sterkari króna en engar verðlækkanir - 23.6.2010 Fréttir

Verðlag á innfluttum vörum hefur ýmist haldið áfram að hækka eða staðið í stað þrátt fyrir sterkari stöðu krónunnar, að því er fram kemur á vef ASÍ.

Lesa meira
 
hjalpraedis

Hjólamenn kveðja herforingja - 23.6.2010 Fréttir

,,Anne Marie var sterkur foringi en um leið mikill vinur mannsins á götunni og vildi heldur vera á vettvangi en á bak við skrifborð,” sagði séra María Ágústsdóttir í minningarorðum sínum í Dómkirkjunni um Anne Marie Reinholdtsen yfirforingja Hjálpræðishersins á Íslandi sem fórst á vofveiflegan hátt í mótorhjólaslysi á dögunum. Hjólamenn fjölmenntu í erfidrykkjuna sem og fólkið á hernum. Þá mátti sjá ýmsa þekkta götumenn og konur enda var Anne Marie stofnandi Dagsetursins. Anna Marie sem varð sextug á þessu ári var líka einn stofnenda Bifhjólasamtaka Hjálpræðishersins, Salvation Army Riders.

Lesa meira
 
thor_Vilhjalmsson

Verða 700 manns ákærðir fyrir árás á Alþingi? - 23.6.2010 Fréttir

Stuðningsyfirlýsing til handa nímenningunum sem kærðir eru fyrir árás á Alþingi verður afhent forseta Alþingis á fimmtudagsmorgun. Um 700 manns hafa skrifað undir yfirlýsinguna sem Ragnheiður Ásta Pétursdóttir fyrrverandi þula mun afhenda Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur forseta þingsins áskorunina.

Lesa meira
 
alftanes170609

Gæti breytt skuldastöðu Álftaness - 22.6.2010 Fréttir

Leiðrétting á lánum sveitarfélagsins Álftaness frá árunum 2005 og 2006 sem voru bundin við gengi erlendrar myntar gæti numið áttahundruð milljónum króna og jafnframt hefur gengishrunið hækkað leigusamninga um tugmilljónir árlega. Bæjarfulltrúi Á-listans vill að bærinn feli lögmanni að kanna réttarstöðu sveitarfélagsins vegna gengistryggðra lána sem tekin voru á árunum 2005 og 2006 og í framhaldi að gera kröfu um endurgreiðslu og leiðréttingar lánadrottna.

Lesa meira
 
Birgitta_Jonsdottir

Birgitta á CNN - 22.6.2010 Fréttir

Birgitta Jónsdóttir verður í viðtali á CNN í kvöld að ræða um áætlanir um að skapa Íslandi sérstöðu varðandi tjáningafrelsi, málfrelsi og upplýsingafrelsi – eða nokkurs konar fjölmiðlaparadís, þar sem lögmálum um upplýsingaleynd skattaparadísanna er snúið á hvolf.

Lesa meira
 
Gylfimagn

Ríkisvaldið sker ekki úr réttarágreiningi - 22.6.2010 Fréttir

,,Það verður ekki þannig til lengdar að menn bendi hver á annan, segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra en í máli hans eftir ríkisstjórnarfund í dag kom fram að ríkisstjórnin myndi ekki skera úr þeim réttarágreiningi sem væri uppi varðandi  gengislánin eftir dóma Hæstaréttar. Ríkisstjórnin gæti hlutast til um lausn málsins. Hún myndi hinsvegar ekki grípa fram fyrir hendurnar á fjármálastofnunum og dómstólar yrðu að skera úr um hvaða vaxtakjör hæfðu lánunum.

Lesa meira
 
Alfheidur_Ingadottur

Stoppa af hættulega lækna - 22.6.2010 Fréttir

Til að koma í veg fyrir að „hættulegir“ læknar séu að störfum, hafa norrænu heilbrigðisráðherrarnir ákveðið að greiða fyrir aðgangi að upplýsingum um fyrri starfsemi lækna sem sækja um læknisleyfi í öðru norrænu ríki. Hingað til hafa löndin ekki miðlað upplýsingum reglulega um gagnrýni og aukið eftirlit, heimildir, rekstrarhömlur og annað sem varðar læknisþjónustu.

Lesa meira
 
heilbrigdisogtryggingarraduneytid

Mótmæla fjárfrekum framkvæmdum - 22.6.2010 Fréttir

,Fyrirhugaðar fjárfrekar framkvæmdir á vegum hins opinbera, meðal annars heilbrigðiskerfisins, skjóta skökku við þegar ekki virðist vera hægt að reka það sem fyrir er í óbreyttri mynd,“ segir í ályktun frá Félagi ráðgjafa og stuðningsfulltrúa. Félagið ætlar ekki taka því þegjandi ef til stendur að ganga frekar á kjör heilbrigðisstarfsfólks en orðið er.

Lesa meira
 
hordur

Magma rennir hýru auga til Kínverja - 21.6.2010 Fréttir

Ross Beaty eigandi Magma Energy tjáir sig um Kínverja í netmiðlinum Stockhouse í janúar og segist vilja eiga auðlindir í jarðvarma næstu tuttugu árin vegna áhuga Kínverja á að eignast þær

Lára Hanna Einarsdóttir bendir á þetta á bloggi sínu og segist hafa spáð því í ágúst í fyrra að Ross Beaty væri ekki að kaupa HS Orku til að vera á Íslandi heldur til að braska með fyrirtækið. Hún segir að Ross Beaty ætti að gleðjast í ljósi áhuga Kínverja á Íslandi og samninga við íslensk stjórnvöld og fyrirtæki.

Lesa meira
 
nidurrifshus

Dómsmál vegna verðtryggðra lána - 21.6.2010 Fréttir

Marinó G. Njálsson hjá Hagsmunasamtökum heimilanna segir allar forsendur hafa brugðist vegna verðtryggðra  lána og vísar til þess að bæði Reykjavíkurborg og Orkuveita Reykjavíkur hafi viðurkennt þennan forsendubrest  í samningum við verktaka og bætt þeim hann. Þá segir Marinó að markaðsmisnotkun fjármálafyrirtækja og stöðutakan gegn krónunni hafi átt ríkan þátt í að halda uppi verðbólgu og breyta þeim forsendum sem lántakendur lögðu upp með í viðskiptum sínum við bankanna. Hann er hissa á að dómsmál vegna verðtryggðu lánanna séu fyrst að koma fram núna.

Lesa meira
 
VilhjalmurEgilsson

Bleiku steinarnir afhentir - 21.6.2010 Fréttir

Þeir Egill Helgason, Páll Magnússon, Vilhjálmur Egilsson og Gylfi Arnbjörnsson fengu í dag afhenta bleika steina. Steinarnir eru hvatningarverðlaun Femínistafélags Íslands til þeirra sem eru í lykilstöðu til þess að hafa áhrif á gang jafnréttismála í þjóðfélaginu í dag. Lesa meira
 
althingi9

Ekki sjálfgefið að ríkisvaldið grípi til aðgerða - 21.6.2010 Fréttir

Ólína Þorvarðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir ekki sjálfgefið að ríkisvaldið eigi að grípa inn í eða reyna að hafa áhrif á þá stöðu sem komin sé upp í kjölfar dóma hæstaréttar um gengislánin. ,,Það eru lög í landinu og nú reynir á þau,“ segir Ólína. ,,Það kann þó að verða of sársaukafullt ef fjöldi Íslendinga þarf að leita til dómstóla meðan þessi óvissa er uppi.“

Viðskiptanefnd og Efnahags og skattanefnd þingsins hittu fulltrúa Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins á fundi í morgun.

Lesa meira
 
halldor_blondal

Blöndalskenningin um jafnrétti - 21.6.2010 Fréttir

Þórunn Sveinbjarnardóttir setur fram kenningu á bloggi sínum um hvenær fullu jafnrétti er náð. Kenningin er reyndar gömul, eða frá árinu 1993, meðan Þórunn starfaði enn innan Kvennalistans, en stendur að mati þingkonunnar fyrir sínu. Við látum hana flakka hér til gamans: ,, Fullu jafnrétti stjórnmálakvenna- og karla verður náð þegar konur mega og geta verið jafn viðskotaillar, krumpnar og uppstökkar í störfum sínum og Halldór Blöndal (var)  – Lesa meira
 
gylfi

Óttast aðra þjóðaratkvæðagreiðslu - 21.6.2010 Forsíðugreinar

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segist ekki vita hvort ríkisstjórnin lifi af ef kjósendur hafni Icesave öðru sinni í þjóðaratkvæðagreiðslu  Það yrði mjög slæmt fyrir efnahag landsins ef það gerðist. Hann segir í viðtali við austurríska blaðið Der Standard að það sé vonast eftir samkomulagi í deilunni eftir að ný ríkisstjórn tekur við í Hollandi. Lesa meira
 
WilterNyabate

Kenýsk baráttukona í Norræna húsinu - 21.6.2010 Fréttir

Wilter Nyabate flytur fyrirlestur um mannréttindi í Norræna húsinu í dag þar sem hún mun fjalla um mannréttindabaráttu sína í Kíbera í Naíróbí, Kenýa. Nyabate er einn liðsmanna í Stand Up United, liði ellefu baráttumanna sem Amnesty International hefur sett saman og ver mannréttindi í veröldinni.

Lesa meira
 
brussel

Rokdýr hálftími í Brussel - 19.6.2010 Fréttir

Kostnaður Finnmerkurfylkis vegna fundarferðar til í Brussel í júní nam um 15.000 norskum krónur á mann, (300 þúsund íslenskum) en fjórtán voru sendir á fund um Barentsmálefni frá Finnmörku. Fundurinn stóð í hálftíma og reiknast Finnmerkingum til að hver mínúta hafi því verið afar dýr.
Norski stjórnmálamaðurinn Mona Jensen, frá Sósíalíska Vinstri flokknum í Vardø,  gerdi grein fyrir kostnaðinum á fylkisþinginu í Kautókeinó í fyrradag, og var hvorki sátt vid tilkostnað fylkisins, né árangur fundarins.

Lesa meira
 
range-rover

Dómarnir ýta undir reiði og óánægju - 18.6.2010 Fréttir

Lilja Mósesdóttir  segir að dómar Hæstaréttar í gengislánamálunum komi til með auka ójafnræði milli skuldara og ýta undir óánægju og reiði. Í stað þess að það sé tekið heildstætt á skuldavanda heimilanna fái nú hluti skuldara meiri afslátt af skuldum sínum en kreppan gefi tilefni til. Hinir fái ekki neitt. Hún segist harma það að fólki sé mismunað eftir því hvaða banka það átti viðskipti við, hvað standi í lánasamningum og hvort lánið var bundið við erlenda mynt eða verðtryggt. ,,Stjórnvöld hefðu ekki átt að hvetja til þess að fólk færi í dómsmál á einstaklingsgrunni gegn lánastofnunum heldur taka af skarið og finna lausn í anda jafnræðis, það hefði verið mun farsælla fyrir alla.“

Lesa meira
 
heradsdomur

Hæstaréttardómarar ósammála um kærumál vegna lokaðs þinghalds - 18.6.2010 Fréttir

Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu Höllu Gunnarsdóttur blaðamanns um opið þinghald í máli ellefu manna sem eru ákærðir fyrir kaup á vændi.

Halla kærði ákvörðun Héraðsdóms um að hafa þinghaldið lokað til Hæstaréttar  en Hæstiréttur hefur nú vísað málinu frá á þeim forsendum að hún eigi ekki lögvarða hagsmuni.

Hæstiréttur klofnaði í málinu, Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson kváðu upp úrskurðinn en Hjördís Hákonardóttir hæstaréttardómari skilaði séráliti og taldi að Hæstiréttur ætti að taka afstöðu til málsins.

Lesa meira
 
icesave

Aðeins útfærslan eftir - 17.6.2010 Fréttir

Íslenska þjóðin hefur ákveðið að axla ábyrgð á Icesave skuldbindingunum og miðað við þá staðreynd er aðeins eftir að komast að nidurstöðu um útfærsluna, þjóðanna á milli, sagði Diana Wallis varaforseti Evrópuþingsins á fundi um íslenskuna kreppuna í Kristjánsborgarhöll í dag.  Diana var spurð um Icesave og hvort David Cameron fortsætisráðherra Breta yrði jafnmikill "bully" og Gordon Brown, í Icesave málinu. Lesa meira
 
Diana_Wallis

Íslendingar boðnir velkomnir í ESB - 17.6.2010 Fréttir

Íslendingar fjölmenntu á fund um íslensku kreppuna í Kristjánsborgarhöll í dag, en helsti gesturinn var Diana Wallis. einn af höfundum bókar sem miðjuflokkarnir á Norðurlöndum gefa út og nefnist einfaldlega Kreppa. Diana sagði staðfestingu á aðildarviðræðum góða gjöf til Íslendinga á þjóðhátíðardaginn.

Lesa meira
 
LeMonde

New York Times, fyrst í Reykjavík - 17.6.2010 Fréttir

Eymundsson í Austurstræti getur boðið viðskiptavinum upp á flest erlend dagblöð samdægurs, útprentuð á 2-3 mínútum. Hvert blað kostar 870 krónur, óháð lengd, og er oft hægt að fá útprentaða útgáfu þar áður en hin hefðbundna útgáfa blaðsins er borin út í heimalandinu. Lesa meira
 
steingrimur10

Gengislánin ólögleg - stórtíðindi segja ráðherrar! - 16.6.2010 Fréttir

Hæstiréttur Íslands hefur kveðið upp þann dóm að Lýsingu hf. og SP-fjármögnun hafi verið óheimilt að binda lán í íslenskum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla.

Mikill titringur hefur verið vegna málsins innan bankakerfisins Bæði Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segja dóminn stórfréttir fyrir bankakerfið en reynt hafi verið að undirbúa málið með tilliti til þess að dómur gæti fallið á hvorn veginn sem er.

Lesa meira
 
SofiOksanen

Sofi Oksanen rekin frá forlagi sínu - 16.6.2010 Fréttir

Sofi Oksanen handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs hefur verið rekin frá forlaginu sem gefur út bækur hennar. Hún fékk tilkynningu um þetta í tölvupósti en ástæðan sem gefin er upp er trúnaðarbrestur. Sofi Oksanen hefur gagnrýnt forlagið fyrir það hvernig það hagar markaðsstarfi sínu og fyrir að gera lítið úr skoðunum höfunda sinna.

Lesa meira
 
landsbanki

Gjaldþrot sem mótmælaaðgerð - 16.6.2010 Fréttir

Agnes Arnardóttir segist vera venjulegur Íslendingur sem Landsbankinn sé að reyna að kúga í gjaldþrot. Í aðsendri grein í dag hvetur hún skuldara til að lýsa sig gjaldþrota í stórum hópum, stærri hópum en bankakerfið ræður við.

,,Ég sjálf er búin að vera í marga mánuði að reyna að ná einhverju vitrænu samkomulagi við minn banka, ríkisbankann Landsbanka Ísland, skrifar Agnes.,, Nú stend ég frammi fyrir því að láta kúga mig í þrot eða taka til minna ráða."

Lesa meira
 
hvalur3

Tekjur af hvalveiðum voru 5000 krónur - 16.6.2010 Fréttir

Einar K,. Guðfinnsson fagnar því að Þjóðverjar leggi stein í götu ESB aðildar  Íslands og sýni þar með sitt rétta andlit." Staðgengill þýska sendiherrrans gerði íslenskum stjórnvöldum grein fyrir því í gær að Þjóðverjar styddu umsókn Íslendinga um aðild að ESB en lýsti því samtímis yfir að Íslendingar yrði að taka sig varðandi hvalveiðar. ,,Þetta er álíka gáfulegt og við færum í aðildarviðræður á þeim forsendum að Þjóðverjar hættu að framleiða bíla."

Lesa meira
 
timarit

Ísland verður fríríki upplýsinga og fjölmiðla - 16.6.2010 Fréttir

Samþykkt var á Alþingi í nótt þingsályktunartillaga um að Ísland skapi sér sérstöðu meðal þjóða og verði nokkurs konar fríríki upplýsinga. Skerpt verður á lögum um tjáningarfrelsi og upplýsingafrelsi. Tillagan var samþykkt með 50 greiddum atkvæðum en einn sat hjá.

Lesa meira
 
godafoss2

8000 manns á facebook vilja afnema vatnalögin - 16.6.2010 Fréttir

8000 manns skráðu sig í facebook-grúppuna "Vatnið er eign okkar allra!" á tveimur og hálfum sólarhring. Meðlimir hópsins krefjast þess að allt, ALLT, verði gert til þess að Vatnalögin frá 2006 taki ekki gildi og að vatn landsins verði áfram í eigu almennings.

Lesa meira
 
mavar

Bólivía norðursins? - 16.6.2010 Fréttir

Þurfa Íslendingar að borga fyrir rigninguna í framtíðinni eins og Bólivíumenn. Því veltir Jakobína Ingunn Ólafsdóttir fyrir sér í aðsendri grein og segir: Postular nýfrjálshyggjunar munu bera við einhverri nýfrjálshyggjukenningu til þess að réttlæta að útvaldir einkaaðilar græði á því að fólk fái sér vatnssopa.”

Lesa meira
 
Gunnar_Helga

Morgunblaðið áhugalaust um AGS - 16.6.2010 Fréttir

Helga Þórðardóttir tók þátt í tjaldborginni sem var fyrir utan Alþingi fyrir síðustu helgi. Þar var hún tekin tali af blaðamanni Morgunblaðsins og talaði nær eingöngu um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Eina setningin sem endaði inni í blaðinu var hins vegar skot á Jóhönnu Sigurðardóttur.
Lesa meira
 
althingis

Þingfundi lauk í býtið - 16.6.2010 Fréttir

Þingfundi á Alþingi lauk klukkan kortér yfir sex í morgun. Sátt er um að ljúka þingstörfum í dag og hefst þingfundur aftur klukkan 11. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mælir þar frumvarpi um sameiningu ráðuneyta. Sátt er um að afgreiða það í nefnd en það bíður síðan haustsins. Alþingi kemur svo aftur saman einn dag í næstu viku til að ljúka afgreiðslu svokallaðs heimilispakka, sem felur í sér aðgerðir í þágu heimila.

Lesa meira
 
kristjanmöller

Telur starfsemi herþjónustufyrirtækisins rúmast innan stjórnarsáttmálans - 15.6.2010 Fréttir

Kristján Möller samgönguráðherra telur starfsemi herþjónustufyrirtækisins ECA sem vill setja upp aðstöðu á Keflavíkurflugvelli vel rúmast innan ríkisstjórnarsáttmálans ef marka má svar hans við spurningu á Alþingi um hvar málið sé statt. Kristján segir í svarinu að stjórnarsáttámálinn  geri ráð fyrir endurreisn efnahagslífsins, verndun starfa og sköpun nýrra, auk nýrra leiða í tekjuöflun ríkisins. Starfsemi eins og sú sem ECA hefur áhuga á hér á landi skapi störf, þar með talin sérhæfð hálaunastörf og sé verðug viðbót við þá efnahagsstarfsemi sem fyrir sé á Íslandi og skapi auk þess tekjur fyrir Keflavíkurflugvöll. Lesa meira
 
jongnarr20

Jón Gnarr orðinn borgarstjóri - 15.6.2010 Fréttir

Jón Gnarr tók við borgarstjóraembætti í Reykjavík fyrir stundu. Hann sagðist hafa gert margt skemmtilegt um ævina en ekkert kæmist í hálfkvisti við Besta Flokkinn. Hann sagði að kennarinn sinn í barnaskóla hefði sagt sér að hann kæmist aldrei langt á fíflagangi. Það hefði reynst rangt. Hann væri nú borgarstjórinn í Reykjavík. Hanna Birna Kristjánsdóttir verður forseti borgarstjórnar þrátt fyrir varnaðarorð ritstjóra Morgunblaðsins sem taldi að hún  yrði verktaki til að koma drykkjuhrútum á herðablöðunum úr móttökum í Höfða og halda uppi aga á borgarstjórnarfundum.

Lesa meira
 
ulfarsfell

Engar almennar afskriftir á dagskrá - 15.6.2010 Fréttir

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir afstöðu sína til almennra afskrifta skulda óbreytta enda yrði það afar dýr aðgerð fyrir Íbúðalánasjóð. Jóhanna segir að miklu skynsamlegra sé að finna leið að greiðsluaðlögun sem gagnast þeim sem verst eru settir í skuldabaslinu og býður upp á hærri afskriftir þar sem þörfin er mest

Helgi Hjörvar samflokksmaður Jóhönnu vill nýta svigrúm vegna samninga við Seðlabankann í Lúxemburg, um eitthundrað milljarða króna, til afskrifta á lánum Lífeyrissjóðanna  Þá vill hann almennar niðurfellingar af lánum Íbúðalánasjóðs og segir að án almennra aðgerða sé einkum komið til móts við þá sem hafi stofnað til mestra skulda.

Lesa meira
 
diana2

Varaforseti Evrópuþingsins skrifar bók um Icesave-málið - 15.6.2010 Fréttir

Hvaða þýðingu hefur efnahagskreppan fyrir samband Íslands við önnur Norðurlönd og Evrópusambandið? Þetta er meðal þess sem Diana Wallis varaformaður Evrópuþingsins ætlar að ræða á umræðufundi um málefni Ísland í Kristjánsborg, danska þjóðþinginu á fimmtudag. Diana er búin að skrifa bók um Icesave-málið sem nefnist einfaldlega Kreppa.

Lesa meira
 
sjavarmengun

Drekasvæðið okkar Mexíkóflói? - 15.6.2010 Fréttir

Gæti svipað mengunarslys orðið á Drekasvæðinu ef þar yrði borað fyrir olíu og átt hefur sér stað á Mexíkóflóa? Þessu veltir Hjörleifur Guttormsson upp í grein hér á Smugunni og rifjar upp hvernig Kolbrún Halldórsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra, var harðlega gagnrýnd fyrir að benda á hættuna, meira að segja af eigin flokki.

Lesa meira
 
birkir-jon-jonsson-frett

Þingmenn deila um þinglok - 14.6.2010 Fréttir

Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins mótmælir því að þingmenn séu sendir heim í sumarleyfi áður en dómur er fallinn í Hæstarétti um lögmæti gengistryggðra lána. Hún segir líklegt að háar upphæðir falli á ríkissjóð vegna málsins og hún treysti ekki ríkisstjórninni til að setja bráðabirgðalög.

Þingmenn ræddu þingstörfin undir dagskráliðnum fundarstjórn forseta við upphaf þingfundar í morgun. Bjarni Benediktsson Sjálfstæðisflokki sagði óþarft að nota dýrmæta lokadaga þingsins í til að mynda vatnalögin, gildistöku þeirra væri hægt að fresta. Hann sagði ennfremur að það væri fullkomið glapræði að henda lögunum í ruslatunnuna út af ágreiningi um eitt atriði.

Lesa meira
 
stjornarrad

Breytingar á stjórnarráðinu frestast - 14.6.2010 Fréttir

Nær útilokað er að breytingar á stjórnráðinu verði afgreiddar á þessu þingi en frumvarpið sem kveður á um fækkun ráðuneyta úr tólf í níu  var samþykkt í þingflokkum stjórnarflokkanna fyrir helgi.

Samkomulag um þinglok liggur ekki fyrir en stefnt er að því að þingið ljúki störfum á morgun. Þá er næsta öruggt að frumvarp sem fellir úr gildi vatnalögin frá 2006 verður látið bíða og gildistökunni verður frestað eitthvað áfram. Hvorugt þessara mála er á dagskrá þeirra þingfunda sem eru fyrirhugaðir í dag en í kvöld verða svo almennar stjórnmálaumræður á Alþingi.

Lesa meira
 
JonGnarr

Netið fjallar meira um stjórnmál - 14.6.2010 Fréttir

Í nýlegri úttekt á umfjöllun fjölmiðla í aðdraganda síðustu sveitastjórnakosninga kom í ljós að dagblöð og ljósvakamiðlar fjölluðu mest um Sjálfstæðisflokkinn af þeim stjórnmálaflokkum sem buðu fram til borgarstjórnarkosninga.Skoðun fjölmiðlagreiningarþjónustunnar Vaktarans leiðir hinsvegar í ljós að þetta var aðeins lítill hluti af heildarumfjöllun um kosningarnar. Mesta umræðan var á netinu og þar var Besti flokkurinn umtalaðasti flokkurinn.

Besti flokkurinn er því að mati Vaktarans ótvíræður sigurvegari umræðunnar sem og kosninganna.

Lesa meira
 
sumarsol2

Neytendur borga fyrir sólarhringsbúðir - 14.6.2010 Fréttir

,,Vitleysisgangur undanfarinna ára er vonandi á undanhaldi því við höfum hreinlega ekki efni á því að skuldsett eða illa rekin fyrirtæki velti kostnaði út í verðlagið," skrifar Brynhildur Pétursdóttir lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum á heimasíðu samtakanna og bendir á að furðu margar verslanir séu með opið allan sólarhringinn og það sé látið eins og þetta sé háværasta krafa neytenda.  ,,Kannski var einhver forsenda fyrir þessum opnunartíma í uppgangi síðustu ára en ég stórefast um að hún sé enn til staðar."

Lesa meira
 
aska3

Bílaleigur hræða ferðamenn frá ferðum um Suðurland - 12.6.2010 Fréttir

,,Það er mjög alvarlegt mál ef ferðamenn þora ekki inn á svæðið þar sem þeir óttast skaða og kostnað,“ segir Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri  en bílaleigur vara ferðamenn við að ferðast um á stóru svæði  umhverfis gosstöðvarnar í Eyjafjallajökli. Sagt er að askan geti skemmt lakk bílsins og ferðamennirnir þurfi að kosta upp á viðgerð.

Lesa meira
 
kirkjugardur

Þurrfrysting-ný aðferð við greftrun - 12.6.2010 Fréttir

Ný umhverfisvæn aðferð við greftrun sem nefnist þurrfrysting hefur vakið athygli Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Enn sem komið er hefur aðferðin ekki náð almennri útbreiðslu en tilraunir standa yfir í Kanada og Svíþjóð. Líkin eru fryst niður í -18 gráður og þvínæst sökkt í fljótandi köfnunarefni og hrist, þar til þau verða nánast að dufti. Amalgam og aðrir málmar eru sigtaðir frá með sérstakri aðferð og duftið er að lokum jarðsett í kistu úr maís eða kartöflusterkju.

Lesa meira
 
hvalur3

Svona skítkast er til skammar - 12.6.2010 Fréttir

„Einu myndi gilda þótt fyrir lægi að málamiðlun fæli í sér aukna hvalavernd og minni hvalveiðar en ella. Mörg þessara samtaka eru öfgafull, stjórnast af peningalegum hagsmunum og þrífast á deilu áðurnefndra ríkja og ófriði innan ráðsins,“ segir Tómas H. Heiðar fulltrúi Íslands í Hvalveiðiráðinu við Morgunblaðið í morgun.  Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands er æfareiður yfir ummælunum en Tómas er talsmaður sjávarútvegsráðherra í málum sem varða hvalveiðar. Árni Finnsson  segir svona skítkast  flokki ráðherrans til skammar.

Lesa meira
 
gay13

Ein hjúskaparlög fyrir alla - 11.6.2010 Fréttir

Alþingi samþykkti í dag frumvarp um breytingar á hjúskaparlögum með öllum greiddum atkvæðum. Ein og sömu hjúskaparlög taka samkvæmt frumvarpinu  bæði til gagnkynhneigðra og samkynhneigðra en í dag gilda þau eingöngu um hjónaband karls og konu. Lögin öðlast gildi 27. júní en það er alþjóðlegur baráttudagur samkynhneigðra. Prestar geta eftir sem áður neitað að gifta einstaklinga af sama kyni stríði það gegn trúarsannfæringu þeirra.

Lesa meira
 
steingrimur10

Samstaða um stjórnlagaþing í sjónmáli - 11.6.2010 Fréttir

Þinglok verða fyrir þjóðhátíðardaginn 17. júní  ef allt fer að óskum, segir Steingrímur J. Sigfússon en hann reiknar með að fyrir þann tíma verði ákvarðanir um stjórnlagaþing afgreiddar úr þinginu. Hann telur samstöðu í sjónmáli á milli flokkana.

Lesa meira
 
Ossur_Skarphedinnsson9

Illræmd og vitlaus vatnalög - 11.6.2010 Fréttir

Össur Skarphéðinsson segir vatnalögin frá 2006 illræmd og vitlaus, þar hafi verið reynt að slá einkaeignarétti á allt vatn í landinu. Bjarni Benediktsson óttast eignaupptöku verði lögin afnumin og segir að menn eigi að halda sig við lögin nema ríkisstjórnin sé að boða algera þjóðnýtingu.. Frumvarp um afnám vatnalaga var afgreitt úr Iðnaðarnefnd í morgun gegn atkvæðum Sjálfstæðismanna og framsóknarmanna. Verði vatnalögin ekki afnumin nú á síðustu dögum þingsins taka þau gildi fyrsta júlí.

Lesa meira
 
danmork

Villa í spurningu um Norðurlandaráð í dönsku innflytjendaprófi - 11.6.2010 Fréttir

 Danskt dagblað hefur bent á villu í prófi sem lagt er fyrir umsækjendur um danskan ríkisborgararétt. Við spurningu um Norðurlandaráð eru þrír rangir svarmöguleikar en enginn réttur. Neyðarlegt að mati margra stjórnmálamanna en fjölmiðlar hafa rætt við innflytjendur sem hafa fallið á prófinu vegna einnar villu.

Lesa meira
 
New-York-229

Ömurleg lífsreynsla með Iceland Express - 10.6.2010 Fréttir

,,Brúðarkjóllinn liggur í hrúgu á stól á flugvellinum. Brúðurin verðandi situr við hliðina á honum á óþægilegum stól, ósofin. Brúðguminn er svangur. Ég sjálf er glorsoltin, þyrst og þreytt. Við erum stödd í leikhúsi fáranleikans og Iceland Express er um það bil að missa allt niður um sig.“ Þannig lýsir Sigríður Víðis Jónsdóttir fjórtán tíma seinkunn vélar félagsins frá New York. Farþegar fengu hvorki vott né þurrt í tólf tíma í köldu aflokuðu rými og lengst af engar skýringar heldur.

Lesa meira
 
forseti

Frú forseti. - 10.6.2010 Fréttir

Þingmenn rifust í klukkutíma um styrkjamál í upphafi þingfundar í dag og var forseti hvattur af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins til að víta Björn Val Gíslason VG sem vildi vita hvort Sigurður Kári Kristjánsson hefði þegið greiðslur frá erlendri lögfræðistofu sem hefði verið fengin til ráðgjafar þinginu fyrir atbeina Sjálfstæðisflokksins. Þórunni Sveinbjarnardóttir Samfylkingu var svo mikið niðri fyrir í umræðunni að hún kallaði Árna Þór Sigurðsson sem sat á forsetastóli, frú forseta, fjórum sinnum

Lesa meira
 
stjornarad

Pólitísk hýðing, segir sálgæslumaður þingflokks VG - 10.6.2010 Fréttir

Hirtingin er algjör á samstarfsflokknum. Þetta er pólitísk hýðing; og það ofan á allt annað sem á undan er gengið, segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins um frumvarp forsætisráðherra um fækkun ráðuneyta úr tólf í níu sem var lagt fram á Alþingi í gær. Þórunn Sveinbjarnardóttir Samfylkingu kallaði Einar, tilsjónarmann með sálarheill þíngflokks Vinstri grænna í umræðum á Alþingi í dag.

Lesa meira
 
JulianAssange

Bönker á Grettisgötu - 10.6.2010 Fréttir

Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, notaði hús á Grettisgötunni sem höfuðstöðvar þegar WikiLeaks vann að því að koma myndefni frá Írak í sýningarhæft ástand. Í ítarlegri grein í The New Yorker er þessi saga rakin sem og bakgrunnur Assange, eins virkasta hakkara veraldar.

Lesa meira
 
Aldraðir

Stríð við sjúkraliða og aðrar kvennastéttir - 10.6.2010 Fréttir

Sjúkraliðar segja að félagsmálaráðherra sé að lýsa yfir stríði við kvennastéttir með hugmyndum sínum um að frysta laun opinberra starfsmanna í þrjú ár,,Á meðan hægri hönd félagsmálaráðherra skrifar upp á að farið sé í byggingu stórhýsa, meðal annars byggingu nýs sjúkrahúss og hjúkrunarheimila og skapa með því hefðbundin karlastörf , skrifar sú vinstri undir yfirlýsingu um að  konur í opinberum störfum, þar á meðal sjúkraliðar, greiði það með frystingu launa og gríðarlegri kjaraskerðingu. Ekki leggst nú mikið fyrir kappann .“

Lesa meira
 
HallaGunnarsdottir2

Stórstjörnur í mannréttindabolta - 10.6.2010 Fréttir

Lið þjóðþekktra Íslendinga mætir Íþróttafélaginu Styrmi í fótboltaleik á sunnudaginn til stuðnings mannréttindum. „Fótboltinn á að sameina en ekki sundra,“ segir Halla Gunnarsdóttir, fyrirliði þessa nýja liðs – sem hún fullyrðir að geymi framtíðarlandsliðskonu.

Lesa meira
 
landsbanki

Skuldabaggi hvers Íslendings af bankahruninu - 9.6.2010 Fréttir

Kostnaður hvers Íslendings vegna 345 milljarða sem Seðlabankinn tapaði vegna lána til gömlu bankana nemur 551 þúsundi.  Kostnaður hvers Íslendings vegna eiginfjárframlags ríkisins og víkjandi lána til nýju bankanna, Arion banka, NBI og Íslandsbanka nemur um 617 þúsundum fyrir hvern Íslending.

Erlendar skuldir þjóðarbúsins voru rúmlega 600% af vergri landsframleiðslu fyrir hrun bankanna en standa nú í um 300% af vergri landsframleiðslu og eiga eftir að lækka enn meira þegar frekari afskriftir skulda eiga sér stað.

Lesa meira
 
kossinn

Valdhæðni - 9.6.2010 Fréttir

Varastu spjátur, hæðni og hlátur nefnist leiðarinn í nýjasta tölublaði Róstra en þar er fjallað um úrslit sveitarstjórnarkosninganna. Þar segir að þegar almenningur hafi misst trúna á núverandi lýðræðisfyrirkomulag og atvinnustjórnmál hafi ný hæðni komið til sögunnar, valdhæðnin. Valdhæðnir einstaklingar ögra þó ekki kerfinu í reynd að mati leiðarahöfundar, aðgerðarleysið veldur því að róttæknin siglir í strand og valdhafar geta andað léttar. Lesa meira
 
farandverkamenn

Kínverskir verkamenn í virkjunarframkvæmdir - 9.6.2010 Fréttir

Gylfi Arnbjörnsson segir að það komi ekki til greina að ríkisfyrirtækið Landsvirkjun fái að flytja inn vinnuafl utan EES svæðisins vegna hugsanlegra framkvæmda við Búðarhálsvirkjun, Stefán Pálsson sagnfræðingur segir að viljayfirlýsing Landsvirkjunar, kínversks banka og verktakafyrirtækis þýði væntanlega að Kínverjar reddi pening í næstu stórframkvæmdir ef tryggt sé að þeir fái verkið. Hann rifjar upp aðdraganda Ljósafossvirkjunar fyrir 75 árum sem hann segir af sama toga.

Lesa meira
 
amnesty

Mannréttindi nauðsynleg í baráttunni gegn fátækt - 9.6.2010 Fréttir

Amnesty International leggur í nýrri skýrslu áherslu á að ríki heims hafi mannréttindi í huga um leið og þau framfylgja Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, en þau markmið snúast um að berjast gegn fátækt í heiminum. Samtökin telja Þúsaldarmarkmiðin ganga mun skemur en gildandi mannréttindasáttmálar.

Lesa meira
 
steingr12

Tekið á „ofurlaunum“ í Landsbankanum - 9.6.2010 Fréttir

Steingrímur J. Sigfússon ætlar að fela Bankasýslu ríkisins að grípa til ráðstafanna gagnvart dótturfélagi Landsbankans NBI sem var stofnað til að halda utan um öll dótturfélög bankans. Lög um kjararáð ná því ekki lengur til dótturfélaganna en þau gera ráð fyrir því að stjórnendur fyrirtækja í eigu ríkisins hafi ekki hærri laun en forsætisráðherra. Ráðherrann segir að það verði ekki setið undir því þegjandi að menn finni sér hjáleið frá stefnu ríkisins um hófsemi í launamálum. Lesa meira
 
mar_kina

Samningar við Kínverja - 9.6.2010 Fréttir

Seðlabanki Íslands og Seðlabanki Kína hafa gert með sér gjaldeyrisskiptasamning til þriggja ára. Fjárhæð samningsins er 66 milljarðar króna eða 3,5 milljarðar kínverskra júan en Íslendingar þurfa ekki lengur að nota erlenda mynt í viðskiptum við Kínverja.  Þetta er liður í heimsókn He Guoqiang, flokksritara í stjórnmálanefnd miðstjórnar kínverska kommúnistaflokksins en viljayfirlýsing um samstarf við Landsvirkjun var einnig undirrituð í morgun. Lesa meira
 
afram

Smjörlíki, bylting, slagorð og Guð - 9.6.2010 Fréttir

Áfram með smjörlíkið! er yfirskrift þriggja sýninga sem þau Hlynur Hallsson og Jóna Hlíf Halldórsdóttir standa að saman í Reykjavík, Djúpavík og Berlín. Þær bera hver sinn undirtitil, Innantóm slagorð,  „... og tilbiður guð sinn sem deyr.“ Og Byltingin er rétt að byrja.

Lesa meira
 
vantruglaera

Vantrú deilir við guðfræðiprófessor í HÍ - 8.6.2010 Fréttir

Félagið Vantrú hefur kvartað við Háskóla Íslands og sakar guðfræðikennara um áróður og óhróður gegn félaginu og trúleysingjum í tímum í guðfræði- og trúarbragðadeild. Erindið hefur velkst um í kerfinu nokkuð lengi og óljóst er um niðurstöðu. Siðanefnd Háskólans reyndi sættir í málinu en sáttatillagan var felld á kennarafundi guðfræði- og trúarbragðadeildar.

Lesa meira
 
godafoss2

Afnám vatnalaga má ekki verða útundan - 8.6.2010 Fréttir

Gunnar Skúli Ármannsson læknir hvetur þingmenn til að hraða afgreiðslu frumvarps sem fellir vatnalögin frá 2006 úr gildi. Frumvarpið á eftir aðra og þriðju umræðu en þrjár vikur eru eftir af þingi. Verði frumvarpið ekki afgreitt fyrir þinglok taka lögin frá 2006 gildi sem skilgreina vatn sem einkaeign. Gömlu lögin frá 1923 sem enn eru í gildi skilgreina hinsvegar vatnið sem eign almennings nema annað sé ákveðið.

Lesa meira
 
valholl1

Endurgreiðir ofurstyrki á 7 árum - 8.6.2010 Fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn endurgreiðir ofurstyrkina frá FL Group og Landsbankanum á sjö árum en fyrsta greiðslan hefur þegar verið innt af hendi. Þetta kom fram í máli Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins  á Alþingi  í svari við fyrirspurn í umræðum um störf þingsins frá Birni Vali Gíslasyni þingmanni VG. Björn Valur spurði ennfremur hver tæki við greiðslum í ljósi stöðu þessara fyrirtækja en því var ekki svarað.

Lesa meira
 
aska5

Bílaleigur vara við ferðalögum í nágrenni gosstöðva - 8.6.2010 Fréttir

Arndís Soffía Sigurðardóttir ferðaþjónustubóndi í Fljótshlíð  segir bílaleigur beina fólki frá ferðamannastöðum í nágrenni gostöðvanna þar sem tryggingafélögin tryggi ekki skemmdir á lakki vegna ösku. Það sama eigi við um fyrirtæki sem leigi fellihýsi og hjólhýsi. Það sé óásættanlegt ef allir eigi að leggjast á eitt til að bjarga sumrinu í ferðaþjónustu. Hún segir neikvæðan fréttaflutning af öskufjúki fæla Íslendinga frá ferðalögum í nágrenni gosstöðvanna. Þá segir hún þögnina um eldgosið í nýju myndbandi Iðnaðarráðuneytisins, vera æpandi.

Lesa meira
 
Aldraðir

,,Óttalegt gaspur í ráðherranum" - 8.6.2010 Fréttir

Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB segir hugmyndir Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra um að frysta laun opinberra starfsmanna í þrjú ár óttalegt gaspur. Árni Páll segir í grein í Fréttablaðinu í dag að engin innistæða sé fyrir kauphækkunum hjá hinu opinbera næstu þrjú árin. Kauphækkanir myndu einfaldlega kalla á fækkun starfa. ,,Kemur ekki til greina," segir Árni Stefán.

Lesa meira
 
Hafnarfjordur2

Guðrún Ágústa verður bæjarstjóri í Hafnarfirði 2012 - 7.6.2010 Forsíðugreinar

Búið er að mynda nýjan meirihluta Samfylkingarinnar og VG í Hafnarfirði og var málefnasamningur staðfestur í kvöld. Yfirskrift hans er: Velferð, lýðræði, atvinna og umhverfi fyrir fólkið í Firðinum. Núverandi bæjarstjóri Lúðvík Geirsson mun gegna því embætti fram til júní 2012, en þá mun oddviti Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir taka við embætti bæjarstjóra út kjörtímabilið.

Lesa meira
 
flugskyli

Samþykktu fjárfestingasamning um gagnaver á Suðurnesjum - 7.6.2010 Fréttir

Alþingi hefur samþykkt frumvarp sem veitir Iðnaðarráðherra heimild til að semja um byggingu gagnavers Verne Holding í Reykjanesbæ en einn eigenda félagsins er Novator, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar. 36 þingmenn greiddu frumvarpinu atkvæði sitt, fimm voru á móti, Margrét Tryggvadóttir, Vigdís Hauksdóttir, Birgitta Jónsdóttir, Þór Saari og Þráinn Bertelsson og sjö sátu hjá.

Lesa meira
 
david1

Ekki sakamál! - 7.6.2010 Forsíðugreinar

Ekki verður höfðað sakamál á hendur seðlabankastjórnum Davíð Oddssyni, Eiríki Guðnasyni og Ingimundi Sigfússyni, né heldur Jónasi Fr. Jónssyni fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Þeir voru allir taldir hafa gert mistök eða sýnt af sér vanrækslu í starfi í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis en grun um saknæmt athæfi á að vísa áfram til þar til bærra yfirvalda. Í yfirlýsingu frá Birni L. Bergssyni settum ríkissaksóknara kemur fram að ekki sé tilefni til að rannsaka málið sem sakamál. Það var Þingmannanefndin undir forystu Atla Gíslasonar sem vísaði málinu til hans.

Lesa meira
 
Johanna

Forsætisráðherra sakar Moggann um einelti - 7.6.2010 Forsíðugreinar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á Alþingi fyrir stundu að Morgunblaðið undir foyrystu Davíðs Oddssonar fyrrverandi seðlabankastjóra leggði forsætisráðherraembættið í einelti en hennar flokkur og hún sjálf hefði átt þátt í að koma honum frá embætti.

Lesa meira
 
Soley_Tomasdottir1103a

Sóley skoðar meiðyrðamál - 7.6.2010 Fréttir

Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi VG ætlar að skoða réttarstöðu sína vegna meiðandi ummæla sem féllu um hana í kosningabaráttunni fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Hún segist hafa rætt við lögfræðinga vegna málsins og þeir hafa ráðlagt henni að fara alla leið með málið. Sóley upplýsti þetta í viðtali á Rás 2 í morgun en ummælin sem koma til álita féllu bæði í dagblöðum, á netmiðlum og á blogginu. Lesa meira
 
isbjorn

Ísbirnir í útrýmingarhættu - 7.6.2010 Fréttir

Nokkrar tegundir ísbjarna eru í útrýmingarhættu vegna loftslagsbreytinga og hlýnunar á norðlægum slóðum. Ahrif loftslagsbreytinga á hegðun, atferli og afkomu ísbjarna hafa nú verið rannsakaðar. Niðurstöðurnar leiða í ljós versnandi lífsskilyrði ísbjarna og bendir margt til þess að nokkrir stofnar hverfi alvegi, af því að íslausi tíminn lengist og erfiðara er að afla fæðu. Flestum Íslendingum er í fersku minni ástandið á ísbjörnunum sem komu á land hér um árið, en þeir voru einmitt svangir, magrir og illa til reika.

Lesa meira
 
JonGnarr

Jón Gnarr nýr borgarstjóri - 4.6.2010 Fréttir

„Mér veitist sá heiður að kynna næsta borgarstjóra í Reykjavík: Jón Gnarr.“ Þetta tilkynnti Dagur B. Eggertsson fjölmiðlamönnum á þaki blokkar Æsufelli 4 í Breiðholti í dag. Málefnasamningur er enn í vinnslu, en flokkarnir fullyrða að þeir muni ekki steyta á neinu skeri sem valdið geti því að þessi meirihliti verði ekki til.

Lesa meira
 
BillStill

Afleiðingar einangrunar - 4.6.2010 Fréttir

Dofri Hermannsson gagnrýnir harðlega málflutning Bandaríkjamannsins Bill Still, sem í viðtali hér á Smugunni um daginn lagði til að Íslendingar myndu prenta nýja peninga, jafnvel þótt það myndi þýða einangrun frá umheiminum í nokkur ár.

Lesa meira
 
SteingrimurJ110310a

Persónukjör og hagsmunir kynjanna - 4.6.2010 Fréttir

VG styður persónukjör en vill tryggja hlut kvenna eftir sem áður að sögn Steingríms J. Sigfússonar, formanns flokksins. Hann er bjartsýnn á að það takist að koma lögum um stjórnlagaþing í umfjöllun í þinginu fyrir sumarfrí.
Lesa meira
 
jongnarr3

„Kæri Jón Gnarr“ - 4.6.2010 Fréttir

Helga Þórðardóttir, oddviti Frjálslynda flokksins, skrifar Jóni Gnarr, borgarstjóraefni Besta flokksins, opið bréf hér á Smugunni í dag þar sem hún hvetur hann að selja aldrei Orkuveitu Reykjavíkur ef hann verður borgarstjóri.

Lesa meira
 
Hafnarfjordur2

Málefnavinnu að ljúka í Hafnarfirði - 3.6.2010 Fréttir

Reiknað er með að málefnavinnu fyrir væntanlegan meirihluta Samfylkingar og VG í Hafnarfirði ljúki fyrir helgi, enn á þó alveg eftir að ræða bæjarstjóra og aðra verkaskiptingu í bænum.

Lesa meira
 
kopavogur

Nýr bæjarstjóri Kópavogs ákveðinn í kvöld - 3.6.2010 Fréttir

Ólafur Þór Gunnarsson oddviti VG í Kópavogi reiknar með að verkaskipting í bæjarstjórn Kópavogs, þar á meðal staða bæjarstjóra, verði endanlega ákveðinn á fundi í kvöld. Þessi verkaskipting og málefnasamningur flokkanna verður svo kynntur öðrum hvorum megin við helgina.

Lesa meira
 
henning-mankell

Mankell kallar Ísraela sjóræningja - 3.6.2010 Fréttir

Sænski glæpasöguhöfundurinn Henning Mankell er laus úr höndum Ísraela og kallar þá sjóræningja í kjölfar árásar þeirra á skipaflota, þar sem Mankell var um borð í einum bátnum. Lesa meira
 
motmaelibleikt

Kynjuð hagstjórn ogstjórnarsáttmálinn - 3.6.2010 Forsíðugreinar

Björn Valur Gíslason þingmaður VG telur stjórnarsáttmálann kalla á kynjaða hagstjórn. Ásbjörn Óttarsson, einn fulltrúa Sjálfstæðisflokks í fjárlaganefnd, kallar kynjaða hagstjórn hins vegar „helvítis rugl.“

Lesa meira
 
akureyri

Auglýst eftir „nærri-því“ Súpermann - 3.6.2010 Fréttir

Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra á Akureyri um helgina. Umsækjendur hafa tíma fram í miðjan júní til að senda inn umsókn en Oddur Helgi Halldórsson hjá L-lista reiknar ekki með að fleiri störf á vegum Akureyrarbæjar verði auglýst á næstunni.

Lesa meira
 
HallgrimurHelgason

Minningarorð Baugspenna - 3.6.2010 Fréttir

Hallgrímur Helgason lýsir frægri heimsókn til Davíðs Oddssonar í nýrri grein í Tímariti Máls og menningar sem kallast „Draugur Group: Minningarorð frá Baugspenna“, og gerir einnig upp við þetta einkennilega stríð Sjálfstæðisflokksins við auðhring og hvernig hans þáttur í því var.

Lesa meira
 
BillStill

Að prenta peninga og banna ríkisskuldir - 2.6.2010 Fréttir

Bill Still hefur róttækar hugmyndir um hvernig leysa megi heimskreppuna. Hann telur að gera eigi ólöglegt að ríkissjóðir skuldi peninga, telur hverju ríki frjálst að prenta peninga og varar Íslendinga við að ganga í Evrópusambandið.

Lesa meira
 
soley6

Faðir til varnar dóttur sinni-deilt um femínisma - 2.6.2010 Fréttir

,,Sóley hefur með málflutningi um jafnrétti verið að fylgja eftir stefnu Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í kvenfrelsismálum, en ekki á einka flippi eins og halda mætti,“  skrifar Tómas Jónsson sem faðir Sóleyjar Tómasdóttur í grein á Smugunni og svarar Þorleifi Gunnlaugssyni sem sagði í Morgunblaðinu að margir kjósendur hefðu sett femínisma Sóleyjar fyrir sig.  Jón Torfason segir að einhliða málflutningur femínista geri lítið til að byggja upp traust á flokknum. Halla Gunnarsdóttir talskona femínistafélagsins segir stuðningsmenn Þorleifs hafa notað Fésbók til að níða skóinn af Sóleyju.

Lesa meira
 
ossur12

Allir þurfa að íhuga stöðu sína - 2.6.2010 Fréttir

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir ekki hægt að kenna Degi B. Eggertssyni oddvita flokksins í Reykjavík um slæmt gengi flokksins í borgarstjórnarkosningum. Samfylkingin hafi tapað fylgi víðar en í Reykjavík. Flokkurinn þurfi að taka sjálfan sig og framgöngu sína  til gagngerrar endurskoðunar og allir forystumenn hans þurfi að hugleiða stöðu sína, þar á meðal hann sjálfur. Lesa meira
 
heradsdomur

Mál gegn vændiskörlum þingfest - 2.6.2010 Fréttir

Í dag er í fyrsta skipti þingfest mál fyrir héraðsdómi yfir vændiskaupendum en lög sem banna kaup á vændi tóku gildi í fyrra. Um ellefu karlar eru ákærðir og hefur dómarinn, Arngrímur Ísberg, kveðið á um að réttarhaldið fari fram fyrir luktum dyrum. Hann mun úrskurða um það formlega í dag.

Lesa meira
 
althingis

Lítil breyting á fylgi flokkanna á landsvísu - 1.6.2010 Forsíðugreinar

Baráttan fyrir sveitarstjórnarkosningarnar um helgina virðist lítil áhrif hafa haft á fylgi stjórnmálaflokkanna á landsvísu samkvæmt stórri könnun Gallup fyrir Fréttastofu RUV sem gerð var fyrir kosningar. Sjálfstæðisflokkurinn sækir lítillega í sig veðrið miðað við síðustu könnun, þrjátíu prósent myndu kjósa hann í þingkosningum nú en tuttugu og átta prósent samkvæmt síðustu könnun. Tuttugu og sjö prósent myndu kjósa Vinstri græn, -sem er lítilsháttar tap og tuttugu og tvö prósent Samfylkinguna sem einnig dalar aðeins. Framsókn stendur í stað milli kannana og samanlagður stuðningur við aðra minnkar lítillega.

Lesa meira
 
Ossur

Utanríkisráðherra til Gaza - 1.6.2010 Fréttir

Meirihluti utanríkismálanefndar ályktar að fela utanríkisráðherra, í samráði við utanríkismálanefnd, að skipuleggja ferð til Gaza svæðisins og að Ísland standi að því að senda hjálpargögn til að aðstoða heimamenn og sýna þannig andstöðu við herkvína sem Ísraelsmenn hafa sett á Gaza í trássi við alþjóðalög. Allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkurinn standa að áliti meirihlutans.

Lesa meira
 
Bjarni

Bláa þráablóðið og sértrúarsöfnuðurinn - 1.6.2010 Forsíðugreinar

Þráinn Bertelsson telur leiðtoga flokkanna ekki skilja úrslit kosninganna, Hann segir að Bjarna Benediktssyni sem stýri sértrúarsöfnuði sé þó vorkunn. Ofsatrúin eigi sér djúpar rætur og safnaðarmeðlimir geti enn verið áskrifendur að því dásamlega kraftaverki að sjá Davíð Oddsson ganga á Rauðavatni – daglega – og kraftaverkið sé sponsorerað af fátækri ekkju í Vestmannaeyjum. Þráinn telur stjórnarmyndunarviðræður í Reykjavík enn eitt dæmi um fíkn fjórflokksins í völd og meirihluta.

Lesa meira
 
motmaeli010610

Engin ákvörðun um aðgerðir gegn Ísrael - 1.6.2010 Fréttir

,,Þessir atburðir kalla á hörð viðbrögð og Ísland á að vera þar í fararbroddi,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra en ríkisstjórnin ræddi mögulegar þvingunaraðgerðir gagnvart Ísrael í morgun í kjölfar þess að skotið var á skipalest sem flutti hjálpargögn til Gaza. Össur Skarphéðinsson. utanríkisráðherra segir  að PLO hvetji ekki til þess á þessu stigi að Evrópuríki slíti stjórnmálasambandi við Ísrael eða setji á viðskiptabann.

Lesa meira
 
Ogmundur_Jonasson090310b

Ögmundur vill að stjórnmálasambandi verði slitið við Ísrael - 1.6.2010 Fréttir

Ögmundur Jónasson settur formaður Utanríkismálanefndar Alþingis segist persónulega á þeirri skoðun að það sé löngu tímabært að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Það sé hinsvegar verkefnið núna að ná þverpólitíkri samstöðu um með hvaða hætti rödd Íslands heyrist sem best. Stjórnmálaslit séu ekki markmið heldur tæki til að hafa áhrif. Ef hægt sé  að gera það með öðrum hætti sé hann tilbúinn að hlusta á þau sjónarmið. Utanríkismálanefnd fundar með utanríkisráðherra í hádeginu.

Lesa meira
 
mankell

Henning Mankell í haldi Ísraela - 1.6.2010 Forsíðugreinar

Sænski rithöfundurinn Henning Mankell er meðal níu Svía sem eru í haldi ísraela eftir að Ísraelski herinn skaut á skipalest sem var á leið með hjálpargögn til Gaza. Rithöfundurinn hefur verið virkur í baráttu fyrir frjálsri Palestínu og sagðist hafa farið í ferðina af því menn ættu að sýna samstöðu í verki en ekki bara í orðum. Í gærkvöldi fór á kreik flökkusaga um að Mankell hefði verið skotinn í árásinni en níu baráttumenn féllu. Samkvæmt sænskum miðlum eru einhverjir Svíanna særðir.

Lesa meira
 



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica