Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Fréttir

landsbanki

Vandasamt að ráða bankastjóra - 30.4.2010 Fréttir

Nýr bankastjóri verður ráðinn að Landsbankanum um miðjan næsta mánuð en Ásmundur Stefánsson hættir í lok maí. Gunnar Helgi Hálfdánarson formaður bankaráðs segir að sagan eigi eftir að dæma frammistöðu bankaráðsins út frá því hvernig til tekst við ráðninguna.

Lesa meira
 
1mai

Skorað á launþegasamtök að styðja heimilin í landinu - 30.4.2010 Fréttir

Hagsmunasamtök heimilanna skora á launþega landsins að rísa upp 1.maí og krefja forystu sína um

afdráttarlausa hagsmunagæslu með að taka stöðu með launþegum og heimilunum í landinu gegn

óviðunandi aðgerðum stjórnvalda og taumlausri óbilgirni fjármálafyrirtækja. Krafist er þess að lán verði leiðrétt tafarlaust.

Lesa meira
 
foto

Mótmælt á Lögreglustöðinni - 30.4.2010 Fréttir

Fólk sem varð vitni að handtöku tveggja mótmælenda í Héraðsdómi fylkti liði á Lögreglustöðina við Hverfisgötuna til að mótmæla. Frávísunartillögu Ragnars Aðalsteinsonar í máli níumenninganna sem hafa verið ákærðir fyrir þátt sinn í Búsáhaldabyltingunni var vísað frá dómi. Stefán Eiríksson lögreglustjóri hitti fólkið að máli á Lögreglustöðinni.

Lesa meira
 
heradsdomur1

Mótmæli í Héraðsdómi - 30.4.2010 Fréttir

Tveir voru handteknir og fluttir burt í Héraðsdómi fyrir stundu þegar verið var að taka fyrir frávísunartillögu Ragnars Aðalsteinssonar lögmanns í máli níumenninganna sem hafa verið ákærðir fyrir þátt sinn í Búsáhaldabyltingunni. Frávísunarkröfunni var vísað frá dómi en málflutningur hefst 12.maí.  Einungis 25 máttu vera í dómsal en fleiri vildu inn og vísuðu til þess að hafa fengið að standa síðast þegar málið var tekið fyrir. Fimmtán lögreglumenn eru í héraðsdómi.

Lesa meira
 
kindur

„Ekkert upp á bankana að klaga“ - 29.4.2010 Fréttir

Formaður bændasamtakanna segir ekkert upp á bankana að klaga. Lilja Mósesdóttir er harðorð og spyr hvort leyfa eigi hrægömmum að hirða upp sveitabýli landsins.

Lesa meira
 
gunna

Gunnhildur Arna kvöldfréttastjóri sagði upp - 29.4.2010 Fréttir

Umfjöllun Morgunblaðsins um efnahagshrunið og sannleiksskýrsluna, er samkvæmt heimildum Smugunnar,  ástæðan fyrir því að enn hefur bæst í uppsagnir á Mogga.   Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri 24 stunda og einn af fréttastjórnendum Morgunblaðsins, hefur nú sagt upp störfum. 

Lesa meira
 
kvennafri

Kvennafrídagurinn 2010 - 28.4.2010 Fréttir

Blásið verður til kvennafrídags á ný 25. október næstkomandi, en þá verða 35 ár (og einn dagur) frá hinum upprunalega kvennafrídegi. Konur um allt land leggja þá niður störf og halda baráttufundi. Sérstök áhersla verður á baráttu gegn ofbeldi gegn konum.

Lesa meira
 
radhus3

Ellefu milljónir í auglýsingar - 28.4.2010 Fréttir

Stjórnmálaflokkarnir hafa náð samkomulagi um að hvert framboð í borgarstjórnarkosningunum megi ekki verja meira en ellefu milljónum króna í auglýsingar fyrir kosningarnar í vor.  Ekkert slíkt samkomulag var gert fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Lesa meira
 
valholl1

Framlög einstaklinga opinber. - 28.4.2010 Fréttir

Samkvæmt frumvarpi sem nú liggur fyrir um fjármál stjórnmálaflokka þarf í fyrsta sinn  að upplýsa um nöfn sem einstaklinga sem styrkja frambjóðendur og stjórnmálaflokka um meira en 200 þúsund. Heimilt er að taka við 400 þúsund krónum frá hverjum og einum.  Fyrirtæki mega taka við allt að fjögur hundruð þúsund króna framlagi frá fyrirtækjum , séu nöfnin gerð opinber. Lesa meira
 
thora-kristin

Læknir, læknaðu sjálfan þig - 27.4.2010 Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Það er því hressandi að það hvarfli ekki að einum manni að biðjast afsökunar, nefnilega Halldóri Ásgrímssyni sem hvílir nú lúin stjórnmálabein í hárri stöðu í útlöndum. Hann hefur nú að lítillæti ávarpað þjóð sína sem á í raunum og staðfest það sem við öll hin vissum ekki að engin pólitísk helmingaskipti eða afskipti voru af einkavæðingu bankanna. Lesa meira
 
eldgos-hestar

Stefnir í tugmilljarða tap vegna eldgossins - 27.4.2010 Fréttir

Búist er við að ferðamönnum geti fækkað um eitthundrað þúsund vegna áhrifa frá eldgosinu í Eykjafjallajökli. Með þeim myndu tapast tekjur sem nema 25 til 30 milljörðum króna. Gert er ráð fyrir því að 700 milljónum króna verði varið í sérstakt markaðasátak til að kynna landið og vega upp á móti neikvæðum áhrifum.

Lesa meira
 
amnesty

Viðskipti á kostnað mannréttinda - 27.4.2010 Fréttir

Fyrirtæki eru gjörn á að styrkja góð málefni á einum stað á meðan þau menga og fremja mannréttindabrot annars staðar. Þá virtist á köflum sem ekkert mætti gera á Íslandi árin fyrir hrun án þess að það væri styrkt af einhverjum banka. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir ræddi ítarlega við Smuguna um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja – og skort þar á.

Lesa meira
 
JohannaSigurdardottir

Jóhanna telur að svipta eigi forseta málskotsrétti - 27.4.2010 Fréttir

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur að taka eigi af forseta málskotsréttinn, og víkka þess í stað mjög reglur um þjóðaratkvæðagreiðslur og möguleika þjóðarinnar til að skjóta málum í þjóðaratkvæði. Unnið er að því að setja forsetanum siðareglur.

Lesa meira
 
althingi

Komu sér saman um stórfé til stjórnmálaflokka - 26.4.2010 Fréttir

Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi þingmaður segir stjórnmálaflokkana hafa komið sér saman um að seinka því vísvitandi að setja reglur um fjármál stjórnmálaflokkanna og frambjóðendur. Lögin hafi ekki verið sett fyrr en í desember 2006, þegar öll stóru prófkjörin voru afstaðin. Sá þingmaður sem mest fékk hafi átt sæti í nefndinni sem samdi reglurnar.

Lesa meira
 
radhus1

Nýtt framboð stígur fram í Reykjavík - 26.4.2010 Fréttir

,,Við erum hópur fólks sem að finnst skelfilegt upp á að horfa að einu lausnirnar sem að eigi að bjóða okkur fjölskyldufólki í Reykjavík upp á á komandi kjörtímabili, séu skattahækkanir og mikil skerðing á þjónustu,“ segir Baldvin Jónsson einn aðstandenda Reykjavíkurframboðsins sem ætlar að bjóða fram við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík en frambjóðendur munu kynna sig og málefni sín í Iðnó klukkan átta í kvöld. Baldvin var einn stofnenda Borgarahreyfingarinnar í sínum tíma.

Lesa meira
 
mannlif2

Áhyggjur af stöðu innflytjenda - 26.4.2010 Fréttir

Nefnd Sameinuðu þjóðanna lýsir áhyggjum af stöðu innflytjendamála á Íslandi. Hlutfallslega eru mun fleiri útlendingar á atvinnuleysisskrá en Íslendingar og það kann að auka á andúð gegn innflytjendum, að mati nefndarinnar. Þá er bent á að erfitt sé að fá íslenskan ríkisborgararétt nema standast próf í íslensku og óljósar reglur séu um réttindi hælisleitenda.

Lesa meira
 
bonus

Hægt að rifta málamyndagerningum í 4 ár - 26.4.2010 Fréttir

Alþingi hefur samþykkt lög þar sem frestur til að rifta málamyndagerningum vegna gjaldþrotamála sem eru höfðuð fyrir árslok 2012 er lengdur í fjögur ár en hann var tvö ár áður. Fjöldi stórskuldugra eignarhaldsfélaga fær að þrauka áfram og hefur ekki verið settur í gjaldþrotameðferð þótt engar eignir finnist fyrir skuldum. Lesa meira
 
reynir

Þurfa að búa við Kötlu - 24.4.2010 Fréttir

Reynir Ragnarsson fyrrverandi lögreglumaður í Vík segir fólk þar um slóðir hafa lært að eiga eldfjallið Kötlu  yfir höfði sér. Fólk reyni að búa sig undir það versta eins og hægt er en því fari fjarri að það sé hrætt. Hann segist ekki dæma forseta Íslands fyrir að segja sannleikann. ,,Það er í lagi að segja frá hlutunum eins og þeir eru þótt menn eigi ekki að segja meira en það. Auðvitað snúa einhverjir ferðamenn við eða hætta við að koma hingað til lands,” segir Reynir. ,,Það verður bara að hafa það. Það koma aðrir í staðinn."

Lesa meira
 
steingrimurskyrsla

Moody‘s segir horfur Íslands betri - 23.4.2010 Fréttir

Moody‘s breytti nýlega horfum Íslands úr neikvæðum í stöðugar. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gleðst yfir fréttunum og segir þetta eðlilegt framhald af því að hafa náð endurskoðuðum samningum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Lesa meira
 
landbunadur

Ný sumarstörf - 23.4.2010 Fréttir

Um 1200 ný sumarstörf verða til í sumar við umhverfismál, ferðaþjónustu og fleira á vegum ríkisins. Því til viðbótar verður ráðist í viðhalds- og endurbótaverkefni sem líklegt er að skapi um 200 ný ársverk, sem að stórum hluta falla yfir á sumartímann.

Lesa meira
 
Fjarmalaraduneytid1

Sparisjóður Keflavíkur og Byr til ríkisins - 23.4.2010 Fréttir

Fjármálaráðherra stofnaði tvö fjármálafyrirtæki í gær sem tóku við rekstri Sparisjóðsins í Keflavík, annars vegar, og Byrs sparisjóðs, hins vegar. Það var gert í kjölfar þess að stjórnir sparisjóðanna óskuðu eftir því við Fjármálaeftirlitið að það tæki yfir starfsemi sparisjóðanna, eftir að samningaviðræður sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði leiddu ekki til niðurstöðu. Lesa meira
 
korinn2

Nýsköpunarframhaldsskóli í Kórnum? - 22.4.2010 Fréttir

,,Við viljum semja við Menntamálaráðuneytið um að setja upp nýsköpunarframhaldsskóla í Kórnum fyrir þann stóra hóp ungs fólks sem hefur flosnað upp úr framhaldsskólum,“ segir Ólafur Þór Gunnarsson, fulltrúi VG í bæjarstjórn Kópavogi. „Mjög stór hluti þeirra sem eru nú atvinnulausir er einmitt fólk á aldrinum 18-24 ára. Þessu þarf að bregðast við og ég tel að þarna sé kjörið tækifæri til þess. Ég sé fyrir mér að sveitarfélagið geti liðkað fyrir verkefninu með því að afhenda menntamálaráðuneytinu húsið fyrir sanngjarna leigu." Lesa meira
 
eldfjallamengun2

Umhverfisvænt eldgos - 21.4.2010 Fréttir

Eyjafjallajökull er talinn senda 15000 tonn af koltvísýringi út í andrúmsloftið á sólarhring. Flugumferð yfir Evrópu sendir hins vegar 344.109 tonn á sólarhring út í andrúmsloftið við eðlilegar aðstæður. Miðað við 60% samdrátt hefur Eyjafjallajökull þannig sparað andrúmsloftinu 206.465 tonn á sólarhring undanfarna daga.

Lesa meira
 
flugskyli

Samningi um gagnaver frestað vegna Björgólfs Thors - 21.4.2010 Fréttir

Iðnaðarnefnd Alþingis frestaði því að fjalla um fjárfestingasamning vegna gagnavers Verne - Holding á Keflavíkurflugvelli þar til nefndarmenn hefðu kynnt sér rannsóknarskýrslu Alþingis og hlut Björgólfs Thors Björgólfssonar í bankahruninu. Formaður nefndarinnar segir að það hafi verið talið rétt að skoða það enda væri þau viðhorf rík í samfélaginu að óeðlilegt væri að stjórnvöld stæðu að fyrirgreiðslu til manna sem hefðu leikið stórt hlutverk í bankahruninu.

Lesa meira
 
Ogmundur_Jonasson090310b

Rannsóknarskýrslan æpir á lýðræðisleg vinnubrögð - 21.4.2010 Fréttir

Í framtíðinni verður vonandi óhugsandi að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum séu gefnar skuldbindingar um íslensk innanríkismál, skipulag Íbúðalánasjóðs, aðkomu að skuldavanda heimila og milliríkjasamninga,“ skrifar Ögmundur Jónasson á heimasíðu sína. Lesa meira
 
hafmey

Danir vísa fátækum úr landi og brjóta norræna samninga - 21.4.2010 Fréttir

Danir brjóta  norræna samstarfssaminga með því að vísa norrænum ríkisborgurum út landi, þurfi þeir á félagsaðstoð að halda. Þetta hafa dönsk stjórnvöld stundað síðustu misserin, því þau telja sig ekki hafa framfærsluskyldu nema gagnvart Dönum. Í fyrra vísuðu Danir tíu manns úr landi. Í þeim hópi var ófrísk norsk kona, í sambúð með dönskum manni.

Lesa meira
 
skogur

Malbikaður skógarlundur - 20.4.2010 Fréttir

Viðar Ágústsson vitjaði um skógrækt sína hjá Seljalandi í dag og brá heldur í brún því engu líkara var en það væri búið að malbika yfir skóginn. Einungis efstu trjátopparnir skörtuðu grænum lit, annað var þakið drullu. Skógarlundurinn hjá Seljalandsfossi á þrítugsafmæli á næsta ári. Lesa meira
 
bedid-eftir-straeto

Atvinnulausir synda og lesa ókeypis - 20.4.2010 Fréttir

Borgarstjórn samþykkti í dag að atvinnnulausir og þeir sem þiggja fjárhagsaðstoð hjá borginni mættu það sem af er ári nýta sér sundstaði og bókasöfn borgarinnar án endurgjalds. Borgarfulltrúar VG áréttuðu að borgarstjórn hlyti að setja það í forgang að allir íbúar borgarinnar hefðu nægilegar tekjur til að framfleyta sér og sínum. Samfélag sem sætti sig við fátækt íbúa sinna, væri ekki gott samfélag.

Lesa meira
 
forsetigos1

Steingrímur snuprar forsetann - 20.4.2010 Fréttir

,,Það er með öllu óþarft og mjög óheppilegt að skapaður sé viðbótar órói og hræðsla með til dæmis vangaveltum um mögulegt Kötlugos,"  sagði Steingrímur J. Sigfússon í upphafi þingfundar þar sem hann gerði grein fyrir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um viðbúnað vegna eldgossins.  Ferðaþjónustan hefur brugðist harkalega við ummælum forsetans í viðtali við breska fjölmiðla um að þetta gos væri einungis æfing fyrir það sem myndi gerast þegar Katla gysi.

Lesa meira
 
hestar

Ástandið grafalvarlegt hjá bændum - 20.4.2010 Fréttir

Tjón bænda undir Eyjafjöllum veltur á mörg hundruðum milljóna og margir þeirra munu neyðast til að bregða búi ef svo fer fram sem horfir. Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að efla Bjargráðasjóð til að koma til móts við bændur undir Eyjafjöllum sem hafi orðið fyrir búsifjum vegna eldgossins. Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra segir ástandið grafalvarlegt og öskufallið hafi valdið miklu tjóni.

Lesa meira
 
gylfi

Fulltrúar fjölmargra erlendra ríkja studdu málstað Íslands - 20.4.2010 Fréttir

Fulltrúar fjölmargra erlendra ríkja töldu mjög óeðlilegt að það væri blandað saman endurskoðun efnahagsáætlunar vegna AGS og Icesave-málinu og létu það í ljós við íslenska ráðamenn,“ segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra um ástæður þess að endurskoðunin náðist loksins í gegn án þess að Icesave-deilan hefði verið leidd til lykta. Hann segir þetta sjónarmið eiga sívaxandi fylgi en segist ekki telja að útspil forseta Íslands hafi ráðið þar neinu og það hafi verið tilviljun að tilkynnt var um lánið í skugga eldgossins.
Lesa meira
 
SteingrimurJ

Engin innistæða fyrir gagnrýni - 20.4.2010 Fréttir

Fjármálaráðherra segir enga innistæðu fyrir gagnrýni stjórnarandstöðu á viljayfirlýsingu vegna Icesave sem var gefin í tengslum við lán AGS..  Hún skuldbindi Íslendinga minna en yfirlýsingin frá því í nóvember 2008 og hafi verið borin undir formann íslensku samninganefndarinnar. Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks segja yfirlýsinguna ganga mun lengra. Lesa meira
 
Slokkvilid

Hætta á verkfalli hjá slökkviliði og sjúkraflutningamönnum - 20.4.2010 Fréttir

Ársþing LSS, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, styður það að kjararáð félagsins afli sér verkfallsheimildar. Samningar við félagsmenn runnu út þann 31. ágúst í fyrra og lítill áhugi virðist vera að semja við félagið á ný.

Lesa meira
 
fridrik-palsson

Berja sökudólginn augum - 20.4.2010 Fréttir

Friðrik Pálsson hótelhaldari á Hótel Rangá telur að gosið í Eyjafjallajökli hafi komið Íslandi á landakortið meira en nokkur annar atburður í sögu landsins. Fullt er út úr dyrum á hótelinu en þar er boðið upp á þyrluflug á gosstöðvarnar fyrir fimmtíu þúsund krónur. ,,Þó nokkrir ferðamenn frá Evrópu sem voru strandaglópar í Bandaríkjunum breyttu miðum sínum til að fara til Íslands og berja sökudólginn augum,” segir Friðrik.

Lesa meira
 
bilar

Í ævintýraleit á hættusvæði - 19.4.2010 Fréttir

Nokkuð er um að venjulegt ferðafólk reyni að komast inn á hættusvæði undir Eyjafjöllum og hefur lögregla þurft að stöðva ferðalanga í ævintýraleit í dag og í kvöld. Adolf Árnason varðstjóri í lögreglunni á Hvolsvelli segir enn talsvert öskufall og slíkt sé ákaflega misráðið og geti verið hættulegt.

Lesa meira
 
gosid

Litlar líkur á öskufalli í Reykjavík - 19.4.2010 Fréttir

Hverfandi líkur eru á öskufalli á höfuðborgarsvæðinu að mati Veðurstofu Íslands. Reykjavíkurborg og almannavarnir hafa engu að síður virkjað viðbragðsáætlanir sínar. Ingólfur Júlíusson ljósmyndari Smugunnar og Reuters flaug yfir gosstöðvarnar í dag ásamt Ómari Ragnarssyni.

Lesa meira
 
gogoboy

Stór hluti ungra karla vill leyfa nektardans - 19.4.2010 Fréttir

Rúmur helmingur Íslendinga er fylgjandi lögum um bann við nektardansi, eða fimmtíu og fjögur prósent. Mikill munur er á afstöðu kynjanna en sjötíu og sex prósent kvenna eru hlynntar því að banna nektardans en einungis þrjátíu og þrjú prósent karla. Karlar undir þrítugu skera sig einnig úr. Sjötíu prósent þeirra eru andvígir nýju lögunum. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. Áttahundruð sextíu fimm voru spurðir á aldrinum átján til sextíu og sjö ára.

Lesa meira
 
LaugarnestangiKrumma

Hrafninn reiður - 19.4.2010 Fréttir

Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri fékk frest til klukkan níu á föstudag til að taka til í kringum lóð sína í Lauganestanga. Fyrirhugað var að framkvæmdir hæfust í dag en því hefur Hrafn mótmælt harðlega. Áralangt stríð hefur staðið um framkvæmdir Hrafns á Lauganestanga en borgaryfirvöld hafa verið gagnrýnd fyrir linkind í málinu.

Lesa meira
 
KristinIngolfs

Háskólarektor með erindi á kosningafundi - 19.4.2010 Fréttir

Opinn fundur um Háskólaborgina Reykjavík var haldin í Háskóla Íslands í hádeginu með þátttöku Kristínar Ingólfsdóttur háskólarektors. Fyrir utan rektor og einn nemanda voru allir sem tóku til máls á fundinum meðlimir í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Hvergi er þó getið um tengsl flokksins við málþingið í auglýsingum á vef Háskólans. „Ekkert óvenjulegt,“ að sögn rektors.

Lesa meira
 
korinn2

Hálfbyggð íþróttahöll og risaskuldir - 19.4.2010 Fréttir

Kópavogsbær greiðir að minnsta kosti 350 milljónir á ári í vexti og verðbætur næstu 25 árin vegna íþróttahallar sem bærinn réðist í að láta reisa með mörgum frægustu knattspyrnumönnum landsins. Þetta er nær tvöföld sú upphæð sem bærinn ver til fjárhagsaðstoðar á ári. Knattspyrnumennirnir hurfu frá verkinu og skildu bæinn eftir með hálfklárað mannvirki og allar skuldirnar.

 

Lesa meira
 
Jon-Gudumundsson-Drangshlid

Ferðamenn afbóka ferðir - 18.4.2010 Fréttir

Jón Guðmundsson ferðabóndi í  Drangshlíð segist hafa heyrt að margir hafi afbókað ferðir til Íslands í vor. ,,Það sagði mér framkvæmdastjóri ferðaþjónustu í Reykjavík að hann væri allan daginn að róa fólk sem ætti pantaðar ferðir til landsins. Hann sagðist hafa miklar áhyggjur ef þetta drægist á langinn."

Hann segir að margir heimamenn hafi fengið áfall þegar þeir voru fluttir burt frá heimilum sínum í brynvörðum trukk.

Lesa meira
 
Mótmælt á Austurvelli

Byltingarfeðgin - 18.4.2010 Fréttir

Jón Múli Árnason var meðal þeirra sem mótmæltu inngöngu Íslands í NATO á Austurvelli árið 1949. Tæpum sextíu árum síðar var Sólveig Jónsdóttir, dóttir hans og Ragnheiðar Ástu Pétursdóttur, í hópi þeirra sem mótmæltu í Búsáhaldabyltingunni á þessum sama Austurvelli og seinna inni í Alþingi sjálfu. Bæði voru þau ákærð fyrir mótmæli sín, Jón Múli fékk dóm en Sólveig er enn að bíða niðurstöðu.

Lesa meira
 
hvolpur

Gosi hvílir sig undir Eyjafjöllum - 17.4.2010 Fréttir

Þórarinn Ólafsson íbúi í Drangshlíð 2, vestan við Skóga segist ekki hafa fundið til hræðslu vegna hamfaranna í Eyjafjallajökli enda hafi hann reynt að dreifa huganum í stað þess að sitja og glápa út um gluggann og mikla þetta fyrir sér. Hópur kvenna og barna úr sveitinni fór til Reykjavíkur í dag til að flýja öskufallið en þessi litli hvolpur varð eftir, Ekki fylgir sögunni hvort hann heitir Gosi.

Lesa meira
 
Johanna

Svikamyllur bankanna - 17.4.2010 Fréttir

Jóhanna Sigurðardóttir segir ekki nóg að dæma þá sem hefðu getað dregið úr skaða ef þeir sem hefðu getað bjargað fjármálakerfinu slyppu. Hún spurði í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag hvað yrði með þá sem  skýrslan segði að hefðu látið pólitík ráða í einkavæðingu bankanna. Þá sagði hún: ,,Samfylkingin var hluti af því samfélagi sem lét það líðast að viðskiptablokkir tefldu þjóðarhag í stórkostlega hættu og töpuðu taflinu með hrikalegum afleiðingum fyrir landsmenn alla.” 

Lesa meira
 
haraldur

Massívur áróður gegn lögreglu og ákæruvaldi - 17.4.2010 Fréttir

,,Margir segjast í dag hafa séð á undan öllum öðrum hvernig í pottinn var búið varðandi Baugsmálið. Ég ætla ekki í þær stellingar,“  sagði Haraldur Jóhannessen ríkislögreglustjóri um niðurstöður rannsóknarskýrslu Alþingis um Jón Ásgeir Jóhannesson og fyrirtæki tengd honum. Því væri þó ekki að neita að ýmsar vísbendingar í Baugsmálinu hefðu bent til þess sem núna sé komið á daginn.

Lesa meira
 
valholl1

Þorgerður hættir sem varaformaður - 17.4.2010 Fréttir

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ætlar að segja af sér varaformennsku í Sjálfstæðisflokksins.Hún tekur sér einnig leyfi frá þingstörfum meðan þingmannanefndin undir forystu Atla Gíslasonar fjallar um rannsóknarskýrsluna með tilliti til ábyrgðar stjórnmálamanna. Þorgerður Katrín er þriðji þingmaðurinn sem fer í leyfi vegna rannsóknarskýrslunnar.

Lesa meira
 
eldgos2

Askan eins og skafrenningur - 17.4.2010 Fréttir

,,Fólk er rólegt og ber sig almennt vel,” sagði Ingólfur Júlíusson ljósmyndari Smugunnar og Reuters en hann er staddur á Vík í Mýrdal. ,,Það er allt grátt af ösku en snarpar vindhviður sjá til þess að hún fýkur jafnhraðan aftur eins og skafrenningur.

Lesa meira
 
radhus1

Vill rannsaka spillingu meðal borgarfulltrúa - 16.4.2010 Fréttir

,,Nálægðin við höfuðpaura hrunsins hefur verið yfirþyrmandi hjá Reykjavíkurborg á þessu kjörtímabili,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson sem vill að þáttur sveitarstjórnarfólks  verði tekinn sérstaklega út í kjölfar bankaskýrslunnar. ,,Ákvarðanir í skipulagsmálum, úthutun lóða, sala almannaeigna, styrkir og boðsferðir til borgarfulltrúa,“ kalla á sérstaka rannsókn að mati Þorleifs.

Lesa meira
 
lava

Aska íslenska bankakerfisins - 16.4.2010 Fréttir

Öskufall frá Íslandi hefur lamað allt flug í norðanverðri Evrópu og víðar í hartnær tvo sólarhringa og tjónið hleypur á mörg hundruð milljónum evra.  Ímynd Ísland í kjölfar bankahrunsins var ekki góð meðal granna okkar í Evrópu og enn veldur Ísland vandræðum. Alþýðuskýringar hafa verið margar en Smugan rak augun í eina á Facebook sem snýr beint að öskufallinu. ,,Íslenska bankakerfið dó, líkið var brennt og eigendur bankanna kröfðust þess að öskunni yrði dreift um alla Evrópu.“

Lesa meira
 
ogmundur

Ögmundur vill hlífa heimilum sakborninga - 16.4.2010 Fréttir

Krafa fólks sem er að missa heimil sín er að þau verði friðhelg, að ekki sé hægt að ganga að þeim. Þetta er krafa um mannréttindi. Og það eru mannréttindin sem eiga alltaf að verða okkur efst í huga. Líka mannréttindi þeirra sem verða nú fyrir gagnrýni í þjóðfélaginu vegna tengsla við orsakir hrunsins, beinna eða óbeinna. Þetta segir Ögmundur Jónasson þingmaður VG á heimasíðu sinni.

Lesa meira
 
Gylfi_Magnusson

Áætlun AGS samþykkt seinna í dag? - 16.4.2010 Fréttir

Allar líkur eru á að áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði samþykkt seinna í dag. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn féllst á að engar sérstakar kvaðir yrðu í samningunum um lok Icesave í viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

Lesa meira
 
althingi9

Illugi í leyfi til að skaða ekki flokkinn - 16.4.2010 Fréttir

Illugi Gunnarsson hefur ákveðið að taka sér leyfi frá þingstörfum en Rannsóknarnefnd Alþingis vísaði málefnum peningamarkaðssjóða til athugunar hjá sérstökum saksóknara. Illugi segir að sérfræðingar telji ekki að það séu dæmi um brot á ábyrgð stjórnarinnar í skýrslunni, en ýmislegt hefði betur mátt fara. Sigurður Kári Kristjánsson tekur sæti hans á meðan.

Lesa meira
 
haraldur

Viðbúnaður vegna öskufalls í Reykjavík - 16.4.2010 Fréttir

Áframhaldandi hætta er á skyndihlaupum í ám og öskufalli sem geta haft umtalsverð áhrif á landbúnað og mannvirki. Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Víðir Reynisson deildarstjóri almannavarna funduðu í morgun. Verið er að undirbúa ráðstafanir vegna mögulegs öskufalls í Reykjavík og nágrenni.

Lesa meira
 
Tyrkjaranid

Tyrkjaránið og bankahrunið - 16.4.2010 Fréttir

Tyrkjaránið á margt sameiginlegt með bankahruninu, til að mynda meðvirkni Bessastaðavaldsins með ræningjunum og það að Íslendingar voru ekki tilbúnir að greiða lausnargjaldið fyrir fangana. Þá má segja að Alsír sé afland frá Tyrklandi. Stefán Pálsson bendir á að Einar Már Guðmundsson sé Hallgrímur Pétursson okkar tíma.

Lesa meira
 
Leidtogafundur2

Leiðtogafundur og ímyndarsköpun - 16.4.2010 Fréttir

Hófí, Reagan og Gorbatsjoff, álfar, draugar og íslensk þjóðremba. Allt þetta kemur við sögu í fyrirlestri Heiðu Jóhannsdóttur nú í hádeginu, „Sjálfsmynd í kastjósi fjölmiðla: Sviðsetning þjóðar í tengslum við leiðtogafundinn 1986.“

Lesa meira
 
matador2

Norrænt sjónvarp og sambandsríki - 16.4.2010 Fréttir

Hugmyndir um sameiginlega norræna sjónvarpsstöð hafa verið endurvaktar í norrænu samstarfi. Mennta og menningarmálanefnd Norðurlandaráðs ræddi þær á fundi í Ósló í vikunni. Fyrirmyndin nú er frönsk-þýsk menningarsjónvarpsstöð sem notið hefur vinsælda síðustu tvo áratugi.

Lesa meira
 
stjornstod2

Rýming vegna stórflóðs - 15.4.2010 Fréttir

Stórt vatnsflóð er að koma niður Gígjökul og verið er að rýma áhrifasvæði Eyjafjallajökuls. Vatnið hefur þegar rofið varnargarða við Þórólfsfell. Íbúar eru farnir að flýja upp í hlíðarnar. Fréttir herma að risastórir jakar berist með fljótinu.

Lesa meira
 
Eldgos2

Bjargaði eldgosið Björgólfi? - 15.4.2010 Fréttir

Eldgosið, rannsóknarskýrslan og Icesave eru efni greinar Öldu Sigmundsdóttur á The Guardian þar sem hún veltir fyrir sér hvort eldgosið hafi bjargað Björgólfi Thor Guðmundssyni frá reiði bloggara.

Lesa meira
 
bjorgvin G. Sigurðsson

Björgvin hættir á þingi - 15.4.2010 Fréttir

Björgvin G. Sigurðsson hefur ákveðið að láta tímabundið af þingmennsku vegna vinnu þingsins við rannsóknarskýrslu Alþingis um bankahrunið. Hann segist telja rétt að gefa þinginu ráðrúm til að komast að niðurstöðu í þessu vandasama máli.

Lesa meira
 
aska

Öskufall frá Íslandi spillir afmæli Margrétar Þórhildar - 15.4.2010 Fréttir

Danir óttast nú að aska frá eldgosinu í Eyjafjallajökli spilli fyrir afmæli drottningarinnar. Líkt og hér hefur flugumferð að mestu legið niðri í Danaveldi og ef ástandið er viðvarandi á morgun getur það komið í veg fyrir að mikilvægir tiginbornir gestir geti fagnað sjötugsafmæli Margrétar Þórhildar.

Lesa meira
 
domkirkja

Reiðir kirkjugestir - 15.4.2010 Fréttir

Reiðiguðsþjónusta verður í Grafarvogskirkju á föstudagskvöld. Prestar telja sig finna fyrir mikilli reiði í þjóðfélaginu, en hún hafi þó minnkað eftir að rannsóknarskýrslan kom fram.

Lesa meira
 
Alfheidur_Ingadottur

Trúnaður endurheimtur - 15.4.2010 Forsíðugreinar

Deilumáli Heilbrigðisráðuneytisins og Sjúkratrygginga Íslands er lokið og heilbrigðisráðherra telur ekki lengur ástæðu til þess að veita forstjóra Sjúkratrygginga áminningu.

Lesa meira
 
SteingrimurJ

Icesave í rannsóknarskýrslunni - 15.4.2010 Fréttir

„Það verður kannski hætt að berja á þeim sem eru að reyna að leysa málið og horft til þeirra sem ollu því,“ segir Steingrímur J. Sigfússon um hverju rannsóknarskýrslan kann að breyta varðandi Icesave. Lesa meira
 
SteingrimurJ

Icesave í rannsóknarskýrslunni - 15.4.2010 Fréttir

„Það verður kannski hætt að berja á þeim sem eru að reyna að leysa málið og horft til þeirra sem ollu því,“ segir Steingrímur J. Sigfússon um hverju rannsóknarskýrslan kann að breyta varðandi Icesave. Lesa meira
 
rannsoknarskyrsla

Pótemkímtjöld einkavinavæðingar - 14.4.2010 Fréttir

Valgerður Sverrisdóttir sagði við rannsóknarnefnd Alþingis að ástæðan fyrir því að Samson hópurinn hefði verið valinn til að kaupa Landsbankann hefði verið sá að breski bankinn HSBC sem var ráðgjafi stjórnvalda við söluna hefði metið hann hæfastan. Bréf frá starfsmanni HSBC til einkavæðingarnefndar staðfestir hinsvegar að fyrirtækið hagræddi matinu vísvitandi til að afhenda bankann, ,,réttum aðila."

Lesa meira
 
olafur ragnar

Ólafur Ragnar Grímsson segist sitja áfram - 14.4.2010 Fréttir

Ólafur Ragnar Grímsson segir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis ekki gefa tilefni til að hann segi af sér embætti. Hann segir siðahluta skýrslunnar byggja á rangfærslum. Hann hafi lagt sín verk í dóm þjóðarinnar, til að mynda þegar hann vísaði fjölmiðlafrumvarpinu til þjóðarinnar skömmu fyrir forsetakosningar.Þetta kom fram í viðtali við forsetann á Rás 2 fyrir stundu.

Lesa meira
 
heradsdomur

Söguleg réttarhöld? - 14.4.2010 Fréttir

Um hundrað manns voru mættir í héraðsdóm til þess að fylgjast með umræðum um frávísunarkröfu vegna ákæru á hendur níu mótmælendum. „Við lifum á sögulegum tímum,“ sagði Ragnar Aðalsteinsson lögmaður í upphafi ræðu sinnar í Héraðsdómi.

Lesa meira
 
Svandis_Svavarsdottir

Ábyrgðarlausir foreldrar bankanna - 14.4.2010 Fréttir

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að Sjálfstæðismenn láti eins og foreldar sem beri ekki ábyrgð á því að börnin fari sér að voða með leikföngum sem eru þeim hættuleg.Það væri meiri bragur á því að þeir viðurkenndu  að vandinn lægi í hugmyndafræði sem þeir hefðu endurtekið boðað fyrir kosningar. Þingmenn hafa rætt um skýrsluna um bankahrunið frá því á hádegi.

Lesa meira
 
stjornstod

Það stefnir í stórtjón - 14.4.2010 Fréttir

Gamla Markarfljótsbrúin er undir vatni og stór vatnsbylgja á leiðinni niður.Fólk erekki talið í hættu en búið er að rýma hættusvæðið. Mikill viðbúnaður er vegna eldgossins í Eyjafjallajökli en um sjöhundruð manns þurftu að yfirgefa heimili sín í nótt.

Lesa meira
 
sysli

Gengið á ábyrgðarmenn skuldara - 14.4.2010 Fréttir

Ábyrgðarmenn konu sem fékk greiðsluaðlögun í fyrrasumar verða látnir greiða skuldirnar samkvæmt  tveimur dómum Héraðsdóms Suðurlands í gær. Dómarinn segir lög um ábyrgðarmenn ganga gegn stjórnarskrá. Þessir dómar varða afar marga ábyrgðarmenn í sambærilegri stöðu og setja framkvæmd greiðsluaðlögunar í algert uppnám. Á annað hundrað manns hafa fengið greiðsluaðlögun en bak við þá gætu verið um fimmhundruð ábyrgðarmenn.

Lesa meira
 
Bessastaðir

Hvatti forsetann til að segja af sér - 13.4.2010 Fréttir

Björn Valur Gíslason þingmaður VG var beðinn að gæta orða sinna um forsetann í umræðum um bankahrunið á Alþingi nú fyrir stundu. Björn Valur fór hörðum orðum um vinfengi og stuðning Ólafs Ragnars við útrásarvíkinga og hvatti hann til að segja af sér

Lesa meira
 
SteingrimurJ

Capone-aðferðinni beitt á útrásarvíkinga? - 13.4.2010 Forsíðugreinar

Það mun taka langan tíma að ljúka rannsókn og málaferlum tengdum bankahruninu. Steingrímur J. segir þó líklegt að kyrrsetja megi eigur margra í kjölfar skattarannsókna..

Lesa meira
 
worldclasslogosml

World Class vill stefna vegna skoðanakönnunar - 13.4.2010 Fréttir

Eigendur World Class hóta að stefna fyrirtækinu MMR vegna skoðanakönnunar þar sem spurt var um afstöðu almennings til áframhaldandi aðkomu fyrri eigenda að fyrirtækjum sem hafa átt í rekstrarerfiðleikum. Könnunin var gerð fyrir viðskiptavin fyrirtækisins. Ólafur Þór Gylfason framkvæmdastjóri MMR segist harma að lögmaðurinn  beiti hótunum um lögsókn til að hindra eðlilegar viðhorfskannanir meðal almennings.

Lesa meira
 
bjarniben

Sjálfstæðisflokkurinn tekur ekki ábyrgð á bönkunum - 13.4.2010 Fréttir

Bjarni Benediktsson segir að Sjálfstæðisflokkurinn geti ekki tekið á sig ábyrgð á hlutum sem hann hefur engin tök á að stýra. Hann segist hafa greitt sínar skuldir að fullu, fyrir utan húsnæðislán.

Lesa meira
 
motmaelendur130410

Jón og séra Jón - 13.4.2010 Fréttir

Brot þeirra ráðherra sem taldir eru hafa vanrækt ráðherraskyldur sínar í aðdraganda og eftirleik bankahrunsins varða allt að tveggja ára fangelsi. Brot níumenningana sem ætlaðu  á þingpalla Alþingis 8.desember ásamt 20 öðrum mótmælendum en lentu  í átökum við þingverði og lögreglu, geta hinsvegar varðað allt að sextán ára fangelsi.

Lesa meira
 
einargudfinns

Eiga ekki að segja af sér - 13.4.2010 Fréttir

Einar K. Guðfinnsson þingmaður og fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins segir forystumenn flokksins alls ekki þurfa að segja af sér þrátt fyrir að þeir hafi tekið stór lán í bönkunum til hlutabréfakaupa. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og eiginmaður hennar skulduðu 1700 milljónir í Kaupþingi. Einar segir ekki rétt að draga þann lærdóm af skýrslunni að stjórnmálamenn eigi ekki að koma nálægt atvinnulífi.

Lesa meira
 
ossir1

Samfylkingin enginn aðalleikari - 13.4.2010 Fréttir

Össur Skarphéðinsson segir fjarri lagi að Samfylkingin sé einhver aðalleikari í efnahagshruninu. Hann telji þó að flokkurinn þurfi að skoða hugmyndafræði sína og hann og aðrir hafi gert mistök þegar þeir gengu ekki harðar eftir því að efnahagsmálin væru rædd í ríkisstjórn.

Lesa meira
 
steing

Skýrslan gerir mig reiðan - 13.4.2010 Fréttir

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir  viðbrögð Sjálfstæðismanna við skýrslunni um bankahrunið ekki rismikil. Það sé merkilegt að formaður flokksins hafi getað flutt ræðu um málið í þinginu án þess að nefna ábyrgð Sjálfstæðisflokksins einu orði. Hann segir að skýrslan hafi reitt sig til reiði og það sé dapurlegt ef enginn ætli að hafa frumkvæði að því að taka ábyrgð í málinu.
Lesa meira
 
steingrimurskyrsla

Samfylkingin hefur axlað ábyrgð, segir Jóhanna - 12.4.2010 Fréttir

Björgvin G. Sigurðsson formaður þingflokks Samfylkingarinnar hefur ákveðið að hætta formennsku í kjölfar niðurstöðu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Björgvin var einn þeirra sjö sem Rannsóknarnefnd Alþingis telur að hafi gerst sekur um vanrækslu í starfi í aðdraganda bankahrunsins. Þingmenn ræða nú skýrsluna. Forsætisráðherra segir Samfylkinguna þegar hafa axlað ábyrgð með því að rjúfa samstarf fyrrverandi ríkisstjórnar.

Lesa meira
 
radhus1

Laxveiðin sem gleymdist - 12.4.2010 Fréttir

Björn Ingi Hrafnsson er hættur tímabundið sem ritstjóri Pressunar en frá því er greint í Rannsóknarskýrslu Alþingis að hann hafi skuldað meira en hálfan milljarð í Kaupþingi. Björn Ingi segist aldrei hafa þegið boð frá stórfyrirtækjum um utanlandsferðir eða laxveiði. Blaðamál varð á sínum tíma þegar hann og fleiri fóru til veiða í laxveiðiá sem Baugur hafði á leigu skömmu áður en vinna hófst við samruna REI og Geysis Green.

Lesa meira
 
Bjarni_Ben

Landsbankinn styrkti SUS um 25 milljónir - 12.4.2010 Fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn fékk langmest fé frá stóru bönkunum þremur á árunum 2003-2008 eða  rúmlega 52 milljónir króna. Athygli vekur að af þessari  upphæð fékk Samband ungra sjálfstæðismanna tæpar 34 millljónir eða krónur eða sextíu og fimm prósent allra framlaga til flokksins og félaga innan hans.

Lesa meira
 
landsbanki

Eigendur völsuðu um bankana - 12.4.2010 Fréttir

Eigendur allra stóru bankanna fengu óeðlilegan aðgang að lánsfé í skjóli eignarhaldsins samkvæmt niðurstöðum Rannsóknarnefndar Alþingis. Stærstu áhættuskuldbindingar bankanna tengdust eigendum þeirra og ástandið versnaði þegar fór að þrengja að bönkunum á árunum 2007 og 2008. Í bankahruninu töpuðust verðmæti í bönkunum sem nema fimmfaldri landsframleiðslu.

Lesa meira
 
david-oddsson

Valdaránstilburðir Davíðs Oddssonar á ríkisstjórnarfundi - 12.4.2010 Fréttir

Hugmyndir Davíðs Oddssonar um þjóðstjórn á ríkisstjórnarfundi í kringum hrunið olli miklum titringi í ríkisstjórninni. Hálfgerð valdaránstilraun að sögn Björgvins G. Sigurðssonar.

Lesa meira
 
geir-er-bloraboggull

Þrír ráðherrar vanræktu ráðherraábyrgð - 12.4.2010 Fréttir

Þrír ráðherrar gerðu sig seka um vanrækslu og eru brotlegir við lög um ráðherraábyrgð samkvæmt Rannsóknarnefnd Alþingis. Þetta eru þeir, Geir H. Haarde forsætisráðherra, Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherrra. Allir þessir ráðherrar höfðu nægar upplýsingar til að bregðast við hættumerkjum í íslensku efnahagslífi en gerðu það ekki.

Lesa meira
 
AstaRagnheidur

Fagnaðartíðindi - 12.4.2010 Fréttir

Rannsóknarskýrsla Alþingis var gerð opinber klukkan 10.06 í morgun. Hún telur um 2300 síður, tæplega 500 síðum lengri en Biblían.

Lesa meira
 
MartenKokk

Reynsla Eista af ESB - 12.4.2010 Fréttir

Hvernig er reynsla Eistlands af tiltöluega nýlegri aðild sinni að Evrópusambandinu? Það mun Marten Kokk ræða á erindi á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands á morgun. Lesa meira
 
MartenKokk

Reynsla Eista af ESB - 12.4.2010 Fréttir

Hvernig er reynsla Eistlands af tiltöluega nýlegri aðild sinni að Evrópusambandinu? Það mun Marten Kokk ræða á erindi á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands á morgun. Lesa meira
 
ogmundur

Miðstýrð múgsefjun og rannsóknarrétturinn - 11.4.2010 Fréttir

,,Rannsóknarrétturinn hefur ítrekað komið fram til að skýra frá því að hann hafi í allan vetur grátið sig í svefn yfir þeirri óhamingju sem skýrslan  boðar," segir Ögmundur Jónasson á heimasíðu sinni um viðbúnað í þjóðfélaginu vegna rannsóknarskýrslu Alþingis. ,,Skýrir þetta kannski spenninginn? Svona einsog þegar fólk safnaðist saman til að fylgjast með því þegar fólk var hálshoggið eða brennt á báli? Hópmúgsefjun. Hverju er verið að fullnægja? Réttlætinu? Er þjóðin kannski að ná sér í syndaaflausn?

Lesa meira
 
Birgitta

Ólesnir þingmenn ræða skýrslu - 10.4.2010 Fréttir

Þingmenn Hreyfingarinnar, þau Margrét Tryggvadóttir, Þór Saari og Birgitta Jónsdóttir segja það algjörlega óásættanlegt að þingheimi sé ekki gefið tækifæri á að kynna sér efni rannsóknarskýrslu Alþingis í þaula áður en þingið lýkur umræðu um hana. Skýrslan verður rædd á mánudag, þriðjudag og miðvikudag en rannsóknarnefndin áætlar að það taki 95 klukkustundir að lesa hana. Lesa meira
 
motmaelendur

Afhverju við? - 9.4.2010 Fréttir

Krafist var frávísunar á máli níu mótmælenda í Héraðsdómi í dag, vegna þess að málið hefði verið sótt af vanhæfum ríkissaksóknara. Fólkið ætlaði á þingpalla Alþingis 8.desember ásamt 20 öðrum mótmælendum en lenti í átökum við þingverði og lögreglu sem meinuðu þeim inngöngu. Ragnar Aðalsteinsson lögmaður sagði að ríkissaksóknari hefði verið vanhæfur til að fara með málið og þar af leiðandi væri lögreglurannsóknin ónýt.

Lesa meira
 
ossur090410

Menn eiga ekki að fara á taugum - 9.4.2010 Fréttir

Össur Skarphéðinsson segir að menn megi ekki fara á taugum í Evrópumálunum þótt á móti blási um stund. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur lýst því yfir að fresta beri aðildarviðræðum við ESB vegna ástandsins í þjóðfélaginu enda sýnt að aðild yrði felld í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessu segist Össur vera fullkomlega ósammála. Hann telur afskipti Ingibjargar ekki veikja stöðu forsætisráðherra en menn eigi að gæta orða sina.

Lesa meira
 
jogrimur

Tilkynna skal strax um brot - 9.4.2010 Fréttir

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að það hvíli fortakslaus lagaskylda á skilanefndum að vísa málum til sérstaks saksóknara sé grunur um refsivert athæfi. Glitnismálið kunni að benda til þess að það hafi orðið misbrestur þar á.

Lesa meira
 
dómkirkjan

Rannsóknarskýrslan liggur frammi í kirkjum - 9.4.2010 Fréttir

Karl Sigurbjörnsson biskup skrifaði prestum og djáknum bréf þar sem hann hvetur til þess að söfnuðir kaupi eintak af skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og láti liggja frammi í safnaðarheimilum þar boðið verði uppá samverustundir þar sem unnt verði að ræða skýrsluna. Þegar hafa leikarar Þjóðleikhússins lýst því yfir að þeir ætli að lesa skýrsluna í heild sinni fyrir gesti og gangandi.

Lesa meira
 
bonus

Beinagrindurnar sem mæta afgangi - 8.4.2010 Fréttir

Eignarhaldsfélög útrásarvíkinga skulda samanlagt meira en nemur Icesave-skuldinni en félögin eiga nær ekkert nema skuldir, Skuldir þessara félaga koma til viðbótar stóru gjaldþrotunum sem mest er fjallað um í fréttum. Fái þessi félög að þrauka fram í október 2010 eru allar aðgerðir eigendanna fyrir hrun fyrndar og ekki hægt að rifta þeim.

Lesa meira
 
jon_asgeir2

Hlýtur að vera sakamál - 8.4.2010 Fréttir

,,Maður bara nuddar augun og trúir þessu varla,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um mál sexmenninganna sem skilanefnd Glitnis stefndi  í gær.

Þetta tiltekna mál er ekki til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Ráðherrann segir málið þó hljóta að vera sakamál ef það komi á daginn að menn hafi misnotað bankana með þessum hætti.

Lesa meira
 
dagbladet

Svartsýnir Íslendingar til Noregs - 8.4.2010 Fréttir

Norska Dagblaðið ræðir í dag við Íslendinga sem hafa gefist upp á kreppunni og flytja til Noregs í leit að betra lífi. „Ég sé enga framtíð hérna, næstu 20 árin,“ segir Anna Margrét Bjarnadóttir, 46 ára, sem starfaði sem fasteignasali fyrir hrun, en missti vinnuna í upphafi kreppu.

Lesa meira
 
Rikisendurskodun-3

Sjálfstæði ríkisendurskoðanda í uppnámi - 8.4.2010 Fréttir

,,Yfirlýsing ríkisenduskoðanda ber ekki aðeins vott um skort á góðri stjórnsýslu, heldur staðfestir hún hversu útbreidd óvönduð stjórnsýsla er á Íslandi," segir Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur. Hún fjallar á bloggsíðu sinni um harða gagnrýni ríkisendurskoðanda í gær á heilbrigðisráðherra.  Sigurbjörg segir yfirlýsinguna setja hugmyndina um sjálfstæði stofnunarinnar í uppnám.

Lesa meira
 
Kindur3

Sauðfjárbændur segjast gjalda fyrir ESB andstöðu - 8.4.2010 Fréttir

Formaður Landssamtaka sauðfjárbænda veltir fyrir sér hvort bændur séu að súpa seyðið af því að vera óþægir  í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.Hann nefnir sem dæmi áform um að sameina landbúnaðar og sjávarútvegsráðuneyti en þetta séu þeir málaflokkar sem séu erfiðastir.

Lesa meira
 
Kindur3

Sauðfjárbændur segjast gjalda fyrir ESB andstöðu - 8.4.2010 Fréttir

Formaður Landssamtaka sauðfjárbænda veltir fyrir sér hvort bændur séu að súpa seyðið af því að vera óþægir  í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.Hann nefnir sem dæmi áform um að sameina landbúnaðar og sjávarútvegsráðuneyti en þetta séu þeir málaflokkar sem séu erfiðastir.

Lesa meira
 
einar

Einar í köldum sjó - 8.4.2010 Fréttir

Einar Skúlason oddviti framsóknarmanna í kosningunum til borgarstjórnar í vor mun synda yfir Fossvoginn, frá Kópavogi yfir í Nauthólsvík til að safna fé í kosningasjóð Framsóknarflokksins í  hádeginu föstudaginn 23. apríl.

Vegalengdin er um 600 metrar og menn leggja ýmislegt á sig í pólitíkinni en það er búist við að hitastig sjávar verði ekki hærra en ca. 5-7°C.

Lesa meira
 
einar

Einar í köldum sjó - 8.4.2010 Fréttir

Einar Skúlason oddviti framsóknarmanna í kosningunum til borgarstjórnar í vor mun synda yfir Fossvoginn, frá Kópavogi yfir í Nauthólsvík til að safna fé í kosningasjóð Framsóknarflokksins í  hádeginu föstudaginn 23. apríl.

Vegalengdin er um 600 metrar og menn leggja ýmislegt á sig í pólitíkinni en það er búist við að hitastig sjávar verði ekki hærra en ca. 5-7°C.

Lesa meira
 
KariusBaktus

Ódýrari bros - 7.4.2010 Fréttir

Ný reglugerð heilbrigðisráðuneytisins tryggir foreldrum barna með skarð í vör eða góm og/eða alvarlega tannvöntun 95 % endurgreiðslu sem er í raun um tvöföldun á því sem var.

Lesa meira
 
bensinstod

Dýrir dropar - 7.4.2010 Fréttir

Bensínverð hefur hækkað úr 151 krónu í 210 á einu ári. Álagning olíufélaganna hefur þó lækkað en heimsmarkaðsverð og skattar rokið upp. Gæti þó verið vísbending um að heimskreppan sé í rénum.

Lesa meira
 
alfheidur-ingadottir-i-thingsal

Ríkisendurskoðandi misskilur málið - 7.4.2010 Fréttir

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra segir viðbrögð ríkisendurskoðanda byggjast á misskilningi. Hann hefur sent forseta Alþingis bréf í tilefni af tilkynningu Álfheiðar um að hún ætli að áminna forstjóra Sjúkratrygginga fyrir brot á almennum starfsskyldum ríkisstarfsmanna. Álfheiður segist ekki hafa neinar athugasemdir við að menn leiti til ríkisendurskoðanda en forstjóranum hafi borið að leita fyrst til ráðuneytisins.

Lesa meira
 
gylfi

Læknir sem nennir ekki að lækna - 6.4.2010 Fréttir

,,Hann minnir mig helst á lækni sem kann að koma vel og kurteislega fram við sjúklinga sína án þess að hafa metnað eða getu til að lækna þá.“ segir Þráinn Bertelsson um Gylfa Magnússon viðskiptaráðherra í nýjasta pistli sínum og á erfitt með að botna í vinsældum hans í nýjustu könnun Gallups á vinsældum ráðherra. Þráinn telur ánægju með óflokksbundna ráðherra benda til óánægju með stjórnmálaflokka.

Lesa meira
 
makril

Ósáttir við að ekki sé hægt að framselja kvótann - 6.4.2010 Fréttir

Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ segir spurningar hafa vaknað um hvort ný reglugerð um makrílveiðar standist lög. Sjávarútvegsráðherra hefur úthlutað 130 þúsund tonnum af makríl til eins árs. Heimildirnar eru til bráðabirgða og því ekki um aflahlutdeild að ræða sem  er varanleg. Lesa meira
 
makril

Ósáttir við að ekki sé hægt að framselja kvótann - 6.4.2010 Fréttir

Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ segir spurningar hafa vaknað um hvort ný reglugerð um makrílveiðar standist lög. Sjávarútvegsráðherra hefur úthlutað 130 þúsund tonnum af makríl til eins árs. Heimildirnar eru til bráðabirgða og því ekki um aflahlutdeild að ræða sem  er varanleg. Lesa meira
 
Alfheidur_Ingadottur

Vill fund um áminningu í heilbrigðisnefnd - 6.4.2010 Fréttir

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur farið fram á fund í heilbrigðisnefnd Alþingis fyrir hönd sjálfstæðismanna í framhaldi af fréttum þess efnis að Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra ætli að áminna forstjóra Sjúkratryggingastofnunar.

Lesa meira
 
intrum1

Herör gegn Intrum í Færeyjum - 6.4.2010 Fréttir

Færeyskur lögfræðingur hvetur fólk til að henda rukkunarbréfum frá innheimtufyrirtækinu Intrum í ruslið, þar sem fyrirtækið eigi ekki rétt á að rukka sérstakt innheimtugjald frá skuldurum heldur megi það aðeins krefjast greiðslu skuldarinnar. Færeyska Intrum er að hluta í eigu Íslendinga.

Lesa meira
 
intrum1

Herör gegn Intrum í Færeyjum - 6.4.2010 Fréttir

Færeyskur lögfræðingur hvetur fólk til að henda rukkunarbréfum frá innheimtufyrirtækinu Intrum í ruslið, þar sem fyrirtækið eigi ekki rétt á að rukka sérstakt innheimtugjald frá skuldurum heldur megi það aðeins krefjast greiðslu skuldarinnar. Færeyska Intrum er að hluta í eigu Íslendinga.

Lesa meira
 
skip

Þjóðaratkvæðagreiðsla um kvótakerfið - 6.4.2010 Fréttir

Tólf stjórnarþingmenn með Ólínu Þorvarðardóttur í  broddi fylkingar standa að þingsályktunartillögu um að efnt skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarskipan íslenskrar fiskveiðistjórnunar. Lesa meira
 



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica