Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Stjórnarandstaðan sýndi spilin

9.3.2010

Icesave_fundur1

Ríkisstjórnin hitti stjórnarandstöðuna núna í hádeginu ásamt formanni samninganefndarinnar í Icesave-málinu og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra var bjartsýn á framhald málsins.

„Ég lít svo á að stjórn og stjórnarandstaða sé tilbúin í það að vinda sér í þetta verkefni að ljúka Icesavemálinu. Það sé viðfangsefnið á næstu dögum, að koma hreyfingu á það mál og fara yfir stöðuna þannig að okkar samninganefndarmenn geti  hitt samninganefndamenn í London og Hollandi sem allra fyrst. Sú niðurstaða er alveg klár að forsvarsmenn í London og Hollandi eru reiðubúnir að setjast að samningaborðinu með okkur og við verðum bara að vona að það verði sem fyrst.“

Hún reiknar með áframhaldandi samvinnu við stjórnarandstöðuna í þessu máli. „Ég sé nú ekki að það sé neinn þungi í því hjá stjórnarandstöðunni að boða hér til kosninga þótt hún segist vera tilbúin í það ef ég myndi tilkynna slíkt,“ sagði Jóhanna og bætti við „Hver myndi líka græða á stjórnarkreppu núna ofan í öll málin sem þarf að leysa? Ég hef ekki fundið það að stjórnarandstaðan sé tilbúin í slíkt eða tilbúin að taka hér við stjórnartaumunum.“

En hvernig hefur samstarfið við stjórnarandstöðuna gengið hingað til? Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra er beggja blands í þeim málum. „Ég tel það hafa gengið vel í þeim skilningi að samninganefndin hefur verið samstæð og unnið vel saman og flokkarnir líka í sjálfu sér, við fundum auðvitað fyrir óróa þegar það fór að nálgast þjóðaratkvæðagreiðslu og kannski minnkandi áhuga sumra á að við næðum niðurstöðu fyrir kosningarnar. Ég tel að í því sem stjórnarandstaðan hefur sagt og gert eftir kosningarnar þá hafi hún nú svolítið sýnt á spilin. En við viljum að okkar hálfu halda áfram og fara í það verkefni að klára þetta. Aðalatriðið er einfaldlega það að veita samninganefndinni umboð og ná að landa þeim besta samningi sem völ er á.“

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica