Skjóta undan fé
Lilja Mósesdóttir þingmaður segir að grunur leiki á að fé sem er fengið gegnum skuldsettar yfirtökur á útrásartímanum sé notað til að bjóða í tæknilega gjaldþrota rekstrarfélög.
Lilja bendir á að enn hafi skiptastjórar ekki sett einkahlutafélög eins og Gaum og FI í þrot og eigendur þeirra hafa því haft rúman tíma til að sýsla með fjármagnið sem rann til þeirra. Þetta kemur fram í pistli Lilju Mósesdóttur á Smugunni í dag. Ríkisútvarpið greindi frá því í gær að tvö eignarhaldsfélög sem tengjast Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Pálma Haraldssyni og Hannesi Smárasyni séu nánast eignalaus en skuldi á annað hundrað milljarða króna.

