Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Róstur-samur nýr miðill

1.3.2010

rostur

„Hér á landi eru flestir fjölmiðlar ýmist dulin áróðstæki eigenda sinna eða í eigu hlutafélaga sem krefjast gróða umfram góðrar fréttamennsku og því reynist fjölmiðlum það ómögulegt að gagnrýna fyrirtæki sem auglýsa í blöðum þeirra. Fjölmiðlar sem ekki þora að vera með gagnrýna fréttamennsku gagnvart stórfyrirtækjum og stórum auglýsendum eru ekki einungis vandamál hér á landi heldur víðar um heimsbyggðina. Við lifum nú orðið í heimi þar sem velta margra stórfyrirtækja er mun meiri en flestra þjóðríkja. Slíkum fjármunum fylgja gríðarleg völd, ekki bara til þess að kaupa löggjöf hjá stjórnvöldum eins og víða hefur átt sér stað, heldur líka til þess að kaupa almenningsálit sem bæði er gert með áróðri hagsmunaaðilum í vil, en líka með því að forðast að gagnrýna þá.“ Eftirfarandi er brot úr stefnuyfirlýsingu Rósturs, nýs prentmiðils sem mun koma út í fyrsta skipti þann 4. mars næstkomandi.

Helga Katrín Tryggvadóttir er einn forsprakka Rósturs. Hvernig kviknaði þessi hugmynd? „Okkur finnst ekki farið nógu djúpt í málin, alltaf farið í sömu hlutina. Við viljum horfa svolítið meira á erlendar fréttir og láta raddir minnihlutahópa skína í gegn.“ Við þá gagnaöflun verður netið aðalfréttaöflunartækið en „við viljum horfa á fjölbreyttari síður en bara Reuters og sambærilegar síður.“

Til þess að lenda ekki í sömu gryfju og Róstur telur aðra fjölmiðla lenta í mun Róstur ekki safna auglýsendum, heldur verður blaðið rekið á frjálsum fjárframlögum og engin mun þiggja laun fyrir vinnu sína – ef einhver hagnaður verður af útgáfu blaðsins mun sá hagnaður renna til góðgerðarmála.

„Það verður dreift í götublaðadreifingu um miðbæinn fyrst, við verðum í því sjálf – og svo getur fólk beðið um að fá það sent – en þá þarf fólk þó að greiða 190 krónur í póstburðargjald. Ef vel gengur fer það víðar og svo vonumst við til þess að koma því á valda staði úti á landi,“ segir Helga um dreifingu blaðsins. En hvað verður í fyrsta tölublaðinu? „Það verður viðtal við hælisleitendur sem hafa farið huldu höfði og sömuleiðis almenn greining á stöðu Íslands.“

Kjarninn að baki Róstri segir Helga vera um 10-15 manns en auk þess komi fjöldi manns að blaðinu með ýmislegt smálegt. Ætlunin er að blaðið komi út mánaðarlega og nánar má kynna sér málið á rostur.org, en þar kemur meðal annars þetta fram um breytta orðræðu í kreppunni:

„Svo virðist sem ríkjandi hugmyndafræði snúist nú um það að lágmarka tapið og stefna aftur í sömu átt og áður, en fara kannski aðeins hægar i þetta skiptið. Ef við viljum raunverulegar breytingar hlýtur það að fela í sér algjöra endurskoðun þeirrar hugmyndafræði sem við samþykkjum og viljum lifa eftir. Með áherslu á samvinnu og afneitun gróðahugsjónar vonast Róstur til þess að verða liður í að stuðla að slíkum breytingum.“


Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica