Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Hafna hugmyndum um sameiningu

25.1.2010

peningar02

Bæjarfulltrúar Á-lista á Álftanesi gerðu í dag bókun vegna tillögu meirihluta bæjarstjórnar um lausn á fjárhagsvanda Álftaness.

Á-listinn segir meirihlutann ekki hafa í huga að endurskipuleggja sjálfstætt sveitarfélag heldur hafi uppi pólitíska áætlun um að knýja fram sameiningu sveitarfélagsins við Garðabæ.

Á listinn hefur ennfremur komið með tillögur að lausn á fjárhagsvanda sveitarfélagsins.  Tillögurnar gera ráð fyrir því að ríkissjóður kaupi hlutafé sveitarfélagsins í Fasteign ehf. og lóð undir menningar og náttúrufræðisetur og andvirði sölunnar verði nýtt til þess að sveitarfélagið kaupi íþróttamannvirkin af Fasteign ehf. Ef tillögurnar verða samþykktar mun rekstrarkostnaður lækka verulega og eiginfjárstaðan verður aftur jákvæð eins og fyrir efnahagshrunið.

Bókun Á-lista í heild:

Bókun vegna tillögu bæjarstjórnar um fjárhagslegar aðgerðir.

Tilögum meirihluta bæjarstjórnar er ekki ætlað að endurskipuleggja sjálfstætt sveitarfélag heldur eru þær pólitísk áætlun D-listans sem Margrét Jónsdóttir styður, að knýja fram sameiningu sveitarfélagsins við Garðabæ. Skýringar og fylgigögn með tillögunum eru um margt ónákvæmar og villandi og hlutdrægar enda eru skýrsluhöfundar endurskoðendur Garðabæjar og framsetningin öll miðuð við sameiningu. Í þessu skini eru t.d. skuldbindingar bæjarsjæóða tengdar uppbyggingu aðeins nefndar sem skuldir en aldrei vikið að þeim nýju tekjustofnum og hagræðingu sem skapast með uppbyggingu miðsvæðisins.

Ég ítreka afstöðu bæjarfulltrúa Á-lista að hafna stórfelldri  skattlagningu á íbúana og miklum niðurskurði sem aðallega bitnar á þjónustu við börn og unglinga. Samtals eru þessar álögur og niðurskurður um 300 milljónir þegar allar aðgerðirnar hafa allar komið til framkvæmda. Þessar aðgerðir munu strax leiða til flótta úr samfélaginu, draga niður verð eigna og þegar til lengri tíma er litið lækka skatttekjur. Með áformum um frestun eða stöðvun uppbyggingar í miðbænum verður bæjarsjóður af hagnaði vegna lóðasölu upp á hundruði milljóna og lokar um leið á framtíðar vöxt og framtíðar tekjur bæjarsjóðs sem búið var að undirbúa. Á sama tíma og allar íþyngjandi aðgerðir meirihlutans bitna á íbúunum er ekki haldið fram kröfum á ríkisjóð um leiðréttingu á jöfnunargreiðslum eða aðkomu að því tjóni, u.þ.b. 1000 milljónir, sem efnahagshrunið hefur valdið bæjarsjóði.

Á-listinn mun við fyrri umræðu við fjárhagsáætlun kynna bæjarstjórn sínar tillögur sem miða að því að bæjarsjóður verði endurskipulagður með aðkomu ríkisjóðs og með framtíðarsýn um hæga en markvissa uppbyggingu sveitarfélagsins. Tillögur Á-lista sem hér hafa verið kynntar í bæjarráði í dag um sölu hlutafjár í Fasteign og lóðasölu til ríkisjóðs gætu auðveldað  sveitarstjórn og ríkisvaldi að leysa álitamál vegna eflingar jöfnunartekna sveitarfélagsins og álitamál vegna áhrifa efnahagshrunsins á fjárhag bæjarsjóðs.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica