Bærinn undirlagður af trukkum
Um það bil hundrað vinnuvélum hefur verið ekið saman um borgina þvera og endilanga nú eftir hádegið. Þar er á ferðinni verktakalestin - mótmælaaðgerð til þess að krefjast þess að ríkisstjórnin einbeiti sér að því að stuðla að mannaflsfrekum framkvæmdum.
Nú fyrir stundu var Verktakalestin fyrir framan Alþingi og ætluðu þeir sem fyrir mómælunum standa að afhenda fjárlaganefnd áskorun um að auka fjárheimildir og ráðast þegar í stað í arðbærar framkvæmdir. Má segja að Austurvöllur hafi verið undirlagður af vinnuvélunum og máttu vegfarendur fótum fjör að launa þegar þær þutu hver af annarri Kirkjustrætið og sem leið liggur upp Suðurgötuna.

