Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Köben heitari en Tiger

Meiri áhugi á loftslagsráðstefnu en framhjáhaldara

10.12.2009

kobenhavn

Kaupmannahöfn (Copenhagen) hefur tekið við Tiger Woods sem vinsælasta leitarorðið á Google. Tiger Woods hefur í nokkurn tíma átt metið vegna vandræða í einkalífinu sem ekki nokkur maður hefur eflaust farið varhuga af.

Þrátt fyrir marga góða kosti Kaupmannahafnar má að öllum líkindum skrifa þessar vinsældir á COP15 ráðstefnuna sem nú stendur yfir.

Vefsíðan treehugger.com gleðst yfir þessum fregnum og segir þær sýna að alþjóðasamfélagið hafi gríðarlegan áhuga á loftslagsmálum. Auk Kaupmannahafnar eru orðin loftslagsbreytingar (climate change) og hlýnun jarðar (global warming) mjög vinsæl leitarorð um þessar mundir.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica