Fátækustu íbúarnir sviptir lífsviðurværinu
Fulltrúi VG í borgarráði gagnrýnir félagsmálaráðherra
Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG í borgarráði, lagði fram tillögu í morgun þess efnis að ráðið legðist gegn fyrirhuguðum lagabreytingum félagsmálaráðherra. Lagabreytingarnar fela í sér að fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna verði skilyrt. Tillögunni var hafnað.
Í tillögu Þorleifs sagði að ekki væri hægt að skilja lagabreytinguna öðruvísi en að heimilað verði að taka fjárhagsaðstoðina af viðkomandi að nokkru leyti eða öllu, verði ákveðin skilyrði ekki uppfyllt.
Eftir að tillögunni hafði verið hafnað lagði Þorleifur fram eftirfarandi bókun þar sem hann gagnrýnir félagsmálaráðherra harðlega:
„Félagsmálaráðherra hefur að áeggjan meirihluta velferðarráðs Reykjavíkurborgar lagt fram frumvarp sem inniber heimild til sveitarfélaga til að svipta fátækustu íbúa sína, lífsviðurværinu. Með því að vísa frá tillögu VG þar sem 28. grein frumvarpsins er hafnað, heldur meirihluti borgarráðs áfram vegferð fulltrúa sinna í velferðarráði þar sem ráðherra er hvattur til að heimila alvarlega aðför að þeim sem verst standa.“

