Keikir hjólreiðakappar á COP15
Ekki bara umhverfissóðar á loftslagsráðstefnunni
Þrátt fyrir að sumir gestir COP15 í Kaupmannahöfn kjósi að ferðast um á eðalvögnum eru aðrir sem nýta sér mun umhverfisvænni ferðamáta; nefnilega reiðhjól.
Um það bil tvöhundruð hjól voru í boði án endurgjalds fyrir utan Bella Center þar sem ráðstefnan fer fram en þau eru nú nær öll komin í notkun. Einnig er hægt að prófa rafmagnshjól sem hafa vakið gríðarmikla lukku og áhuga þeirra sem ekki höfðu kynnst þess lags hjólum fyrr.
Kaupmannahafnarbúar eru þekktir fyrir að hjóla mikið enda borgin tilvalin til hjólreiða vegna sléttlendis. Þeir ráðstefnugestir sem kjósa hjólhestinn til samganga láta það ekki á sig fá að í borginni er hitinn rétt yfir frostmarki - búa sig bara þeim mun betur.
