Fjárhagsaðstoð verði ekki skilyrt
Fulltrúi Vinstri grænna í velferðarráði, Drífa Snædal, getur ekki samþykkt tillögu meirihluta velferðarráðs um að sveitarfélög fái leyfi til þess að skilyrða fjárhagsaðstoð.
Nú stendur í lögum að sveitarfélögum sé skylt að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og sínum. Þessum lögum vill meirihlutinn breyta, með öðrum orðum minnka skyldur sveitarfélaganna til framfærslu.
Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar er nú 115.000 krónur og er það vandséð að mati Drífu að hægt sé að skilyrða þá greiðslu án þess að það komi niður á möguleika íbúa til að sjá fyrir sér.
Fyrir stuttu lagði Drífa til að grunnfjárhæðin yrði hækkuð um sem samsvarar almennri hækkun launa en þeirri tillögu var hafnað.
Hún óskaði eftir því að bókun sem hún gerði gegn meirihlutabókuninni yrði einnig send félagsmálaráðherra.
„Fjárhagsaðstoð er síðasta öryggisnet samfélagsins og tengist lögbundinni skyldu sveitarfélaga að veita einstaklingum og fjölskyldum sem ekki geta séð sér og sínum farborða aðstoð,“ segir í bókun Drífu.
Hún styður hins vegar hugmyndir um að virkja þá einstaklinga sem fá fjárhagsaðstoð. „Markmiðið hlýtur að vera að aðstoða fólk til að komast á vinnumarkaðinn aftur og vera virkir borgarar. Því hlýtur nálgunin að vera hvatning frekar en skilyrðing. Það getur ekki verið óskastaða neins að vera háður fjárhagsaðstoð og alltaf um neyðarúrræði að ræða,“ segir ennfremur í bókuninni.


Skrifa athugasemd