Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Veldur munntóbak Íslandi vandræðum?

„Stóru“ málin í deiglunni á Norðurlandaráðsþingi

29.10.2009

Snus

Landamærahindranir voru eitt af umræðuefnum Norðurlandaráðsþings í Stokkhólmi eins og venja er til þegar norrænir stjórnmálamenn þinga. Helst er þá rætt um frjálsa för og jafna stöðu launþega, stúdenta og þeirra sem þurfa ad þiggja aðstoð norræna velferðarkerfisins.

Paavo Arinmaaki, formaður vinstri sósíalista í Finnlandi hafði aðrar áhyggjur og benti hann á að ekki ríkir jafnræði í munntóbaksmálum á Norðurlöndum. Meðan menn gætu óhindrað sett í vörina víðast hvar á Norðurlöndum, þá væru í gildi allt önnur lög á Íslandi, sem gætu hreinlega dregið úr löngun norrænna munntóbaksneytenda í samstarfi við Íslendinga, að minnsta kosti ef það samstarf ætti að fara fram á Íslandi.

Ekki bárust nein viðbrögð við ástandslýsingu Paavos af hálfu Íslendinga sem nú eru að taka við formennsku í Norðurlandaráði, þar sem Helgi Hjörvar verður forseti og Illugi Gunnarsson, varaforseti. Ýmislegt bendir þó til þess að munntóbakslausir norrænir fundir verði áfram haldnir á Íslandi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica