Fjárhagsaðstoð verði hækkuð um 18.000
Nái tillaga VG í velferðarráði fram að ganga
Fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar verður hækkuð að lágmarki um 18.000 krónur nái tillaga Drífu Snædal, fulltrúa VG í velferðarráði, fram að ganga. Heimildagreiðslur munu einnig hækka í hlutfalli við það.
Tillagan er í takt við hugmyndir Þorleifs Gunnlaugssonar borgarfulltrúa VG sem hann tíundaði í grein sinni í hér í Smugunni í gær. Hún verður tekin fyrir á næsta fundi ráðsins.
Í greinargerð sem fylgir tillögunni kemur fram að þeim fjölgi nú í hlutfalli við atvinnuleysið sem þurfa að treysta á fjárhagsaðstoðina til þess að draga björg í bú.
Í greinargerðinni er settur fram rökstuðningur fyrir því hvers vegna þessi hækkun er eðlileg í ljósi aðstæðna. Þar segir:
„Atvinnuleysisbætur eru um 150.000 krónur á mánuði en um síðustu áramót var fjárhagsaðstoðin hækkuð upp í rúmar 115.000 krónur. Hjón eða fólk í sambúð verður að láta sér duga eina og hálfa fjárhagsaðstoð eða rúmar 170.000 krónur. Þá eru heimildargreiðslur með barni um 11.500 krónur og meðlagið er 21.657 krónur.
Þannig hefur einstæð móðir með tvö börn sem lifir á fjárhagsaðstoð rúmar 180.000 krónur á mánuði í samanlagðar tekjur, en þetta eru lægstu tekjur sem um getur.
Almenn laun hækkuðu um rúmar 20.000 krónur um síðustu mánaðarmót, aftur um 6.750 krónur í júlí og verða hækkuð enn um 6.750 krónur í nóvember. Það hlýtur því að vera eðlilegt að fjárhagsaðstoðin taki mið af þessu og hækki um 18.000 krónur. Þannig tekur Reykjavíkurborg ábyrgð á því að færri lifi undir fátæktarmörkum í borginni. Kostnaður við þessa breytingu yrði um helmingur af þeirri heimild sem ónýtt er af útsvarinu.“


Skrifa athugasemd