Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Opinn fundur um mansal

28.10.2009

Á föstudaginn verður haldinn opinn morgunverðarfundur á vegum utanríkisráðuneytisins í samstarfi við dómsmála- og mannréttindaráðuneytið um hina alþjóðlegu baráttu gegn mansali. Morgunverðarfundurinn er haldinn í gyllta salnum á Hótel Borg kl. 9:00. Fundurinn fer fram á ensku, er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Fundurinn hefst með ávarpi Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Síðan er dagskráin svohljóðandi:

Aðgerðir Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í baráttunni gegn mansali

Eva Biaudet, mansalsfulltrúi ÖSE

Mikilvægi aðgerða gegn mansali

Þórunn J. Hafstein, settur ráðuneytisstjóri dómsmála - og mannréttindaráðuneytis

För yfir landamæri

Sigríður Björk Guðjónsóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum og Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri á Suðurnesjum

Aðgerðaáætlun Íslands gegn mansali

Hildur Jónsdóttir, forsætisráðuneytinu og formaður sérfræði- og samhæfingarteymis um mansalsmál

Aðstoð við fórnarlömb mansals, hindranir fjarlægðar

Margrét Steinarsdóttir, Alþjóðahúsi

Í framhaldi verður opnað fyrir fyrirspurnir og umræður.

Fundarstjóri: Gréta Gunnarsdóttir, sendiherra, sviðsstjóri alþjóða og öryggissviðs utanríkisráðuneytisins


Senda grein

Athugasemdir (3)

  1. tverhaus skrifar:

    Hverskonar fréttavefur er þetta, hér er ekkert skrifað um það sem er raunverulega í gangi í þjóðfélaginu?????

    hrunið, spillinguna og frumvarpið þar sem VG og Samfó gáfu kúlulánaþegum hundruðir milljóna????

    Er þetta fréttavefur eða bara morgunblað VG

    28.10.2009, kl. 12:54 | #

  2. Sóley Tómasdóttir skrifar:

    Þverhaus. Mansal er raunverulega í gangi í þjóðfélaginu og verður að uppræta.

    28.10.2009, kl. 12:58 | #

  3. tverhaus skrifar:

    Ég er ekki að segja að mannsal sé ekki vandmál.

    En þessi vefur hann er orðin ægilegur, þetta byrjaði ágætlega en það að ekki skuli hafa verið fengið álit lögfræðings á nýju lögunum, það að smugan hafi ekki svo mikið sem skrifað um þessi lög er bara ægilega ótrúleg blaðamennska og ýtir undir grunsemdir fólks að VG sé fallið í gryfju spillingar Samfylkingar, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.

    Mansal er að sjálfsögðu vandamál, en þegar það á að taka til í þjóðfélagi skal byrja á toppunum og vinna sig niður.

    Það að 20 manns skuli vera rannsaka þetta mansalsmál, á meðan 14 manns eru að rannsaka stærsta efnahagshrun veraldar þá er eitthvað mikið að í stjórnkerfinu og forgangsröðuninn er algjörlega röng.

    28.10.2009, kl. 13:05 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica