Beinar skattgreiðslur Alcoa ekki 4 milljarðar
Tómas fór ekki rétt með
Í þeim fjórum milljörðum sem Tómas Már Sigurðsson sagði að Alcoa greiddi í skatt á ári eru meðal annars innifaldir skattar og aðrar greiðslur sem fyrirtækið dregur af starfsfólki. Því er um bæði beinar og óbeinar greiðslur að ræða. Þetta staðfestir Erna Indriðadóttir upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaráls.
Tómas sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að beinar skattgreiðslur Alcoa í ríkissjóð væru rúmir fjórir milljarðar. Það er því ekki rétt. Beinar skattgreiðslur allra álfyrirtækja á Íslandi nema rétt tæpum tveimur milljörðum 2009.
Tenglar
Athugasemdir (4)
-
Rósa skrifar:
Af hverju er hann að ljúga?
-
Benedikt Sigurðsson skrifar:
Veit einhver hve marga dollara álfyrirtækin hafa grætt síðastliðið ár á lækkun íslensku krónunnar. Eða borga þau starfsmönnum sínum kaup í dollurum eða evrum? Ætli þau þoli ekki smáskatt á raforkuna?
-
Natan skrifar:
Alcoa virðist tilbúið til að greiða 4 milljarða í skatta á árinu. Fjármálaráðuneytið á að taka forstjórann á orðinu.
Hitt er annað mál að það þarf einhver að reikna út hvað þessi álver skila í þjóðarbúið, þegar tekið er tillit til mengunar og aukins lántökukostnaðar fyrir íslenska ríkið vegna skuldastöðu álveranna. Miðað við allt það sem lagt er undir, þ.e. orku og óhemju kostnað fyrir almenning, virðist þetta ekki skila miklu. -
Jóhanna Jóhanns skrifar:
Umgengni Tómasar um staðreyndir er samkvæmt hefð orku- og álfyrirtækja síðustu mörg ár. Talsmenn þeirra hafa sem reglu að uppfæra sannleikann eftir því sem hentar stefnu fyrirtækjanna. Þessvegna eiga þau heima í ruslflokki á fleiri sviðum en fjármálasviðinu. Það er ekki hægt að treysta upplýsingum þeirra.


Skrifa athugasemd