Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Rótlaus verkalýðshreyfing gerði stórmistök

26.10.2009

stodugleikasattmali

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness segir verkalýðshreyfinguna hafa gert stórmistök þegar hún frestaði hækkun kjarasamninga með samningi við Samtök atvinnulífsins. Þessi hækkun sem fjöldi fyrirtækja beri að hans mati hafi þegar orðið til þess að fjöldi fólks á lægstu töxtum hafi orðið af hundrað þúsund krónum á mann á hálfu ári.

Forysta ASÍ átti lögum samkvæmt að bera frestun kjarasamningsbundinna hækkana undir félagsmenn sína, rétt eins og samningana sjálfa fyrir tveimur árum. Þetta sagði Vilhjálmur Birgisson í Kastljósi í kvöld. Vilhjálmur var harðorður í garð forystusveitar Alþýðusambandsins og sagði sambandið fjarlægjast félagsmenn sína æ meir og fyrir vikið þyrfti ekki að koma á óvart þó traust á verkalýðshreyfingunni mældist nú einungis um 25%.

Vilhjálmur sagði jafnframt að stöðugleikasáttmálinn væri lítið annað en fögur loforð og svo tilfinnanlegt tekjutap fyrir þá lægst launuðu í landinu; fólk sem ætti enga sök á ástandinu sem leiddu til aðgerða í ætt við stöðugleikasáttmálann. Til viðbótar þessu bæru svo fjárlög næsta árs í sér uppsagnir yfir 5000 einstaklinga. Verkalýðshreyfingin og forysta ASÍ hefði gert alvarleg mistök með þátttöku í þessum aðgerðum. Og nú þegar lægi fyrir að samningnum við ríkisstjórnina yrði sagt upp stæði eftir frestun kjarasamningsbundinna launahækkana um næstu mánaðarmót.

Vilhjálmur var einnig spurður út í umdeildar tillögur sínar á Ársfundi ASÍ í liðinni viku. Þær fela í sér róttækar breytingar á skattlagningu lífeyrisgreiðslna, þar sem skattur yrði greiddur af inngreiðslum í stað þess að leggja á skatta við útgreiðslur úr sjóðunum. Jafnframt þessu vildi Vilhjálmur tryggja aukna aðkomu sjóðsfélaga sjálfra að Lífeyrissjóðunum með beinni kosningu þar sem atvinnurekendur ættu ekki lengur fulltrúa í stjórnum sjóðanna. Báðar tillögur voru felldar með miklum meirihluta atkvæða.

Vilhjálmur sagðist einungis hafa viljað fá fram umræður um kosti og galla skattabreytinganna, enda væri ljóst að slík breyting myndi hafa í för með sér umtalsverðar tekjur í ríkissjóð, sem myndu þá koma í stað skattahækkana og niðurskurðar.

Senda grein

Athugasemdir (2)

  1. Arnþór Sig skrifar:

    Athugasemd varðandi traust verkalýðsforystunnar, hún er ekki 25% heldur 0.25%.
    Stöðuleikasáttmálinn er undarlegur gjörningur þar sem stöðuleikinn er enginn í samfélaginu, hvorki í orði né á borði og er því andvana fæddur. Hann virðist eingöngu vera verkfæri atvinnurekenda og notaður sem grýla á ríkisstjórn vegna vitlausar virkjanaframkvæmda. Bullið hérna tekur engan enda.

    Ef eitthvað bein væri í nefi verkalýðsforystunnar(sem er ekki) þá væri hún mun harðari í horni að taka. Því miður eru verkalýðsforyngjar velflestir kontóristar á fínum launum og það skiptir þá engu máli hvernig atvinnurekendur haga sínum málum gagnvart launafólki í dag.

    Af hverju er verkalýðsforystan ekki búinn að reikna út fyrir okkur sem borgum launin þeirra út hvaða leið er skynsamleg varðandi niðurfærsluleiðir lána bankanna eða ríkisins?

    Verkalýðsforystan hefur ekkert til málanna að leggja í umræðunni, því miður.

    27.10.2009, kl. 12:34 | #

  2. Vésteinn Valgarðsson skrifar:

    Gylfi Arnbjörnsson hefur víst eitthvað til málanna að leggja: Stuðning við auðvaldið. Vandræðalegan, auðmjúkan, gapandi stuðning við auðvaldið. Það er leitun að verri verkalýðsleiðtoga en honum.

    27.10.2009, kl. 16:56 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica