Áfram Svandís!
Ung Vinstri græn hafa sent frá sér ályktun þar sem þau lýsa yfir stuðningi við Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra:
„Stundum er erfitt að þora að standa við það sem maður veit að er rétt. Stundum er það alveg hreint ómögulega erfitt. Stundum er það svo ótrúlega erfitt að það þarf heljarmenni til að standa við sannfæringu sína. Undanfarna daga hefur Svandís Svavarsdóttir sýnt svo um munar að hún er slíkt heljarmenni.
Það er auðvelt að missa sjónar á stóra samhenginu og langtímahagsmunum þegar heil þjóð stendur frammi fyrir jafnslæmu efnahagsástandi og Íslendingar. Þá er auðvelt að stíga bensínið á stóriðjutrukknum í botn – virkja, bræða, reyna að græða. „Í þessum ólgusjó, þá gengur ekkert að hugsa um smámál,“ segja stóru karlarnir og eiga þar við smælkið sem má hunsa: umhverfi Íslands, lofthjúp heimsins – já, og þá litlu spurningu hvort sé yfir höfuð til næg orka í landinu til að seðja stóriðjulosta þeirra gráðugustu.
Vandamál Íslands verða ekki leyst með botnlausri stóriðjustefnu. Slík stefna var rekin í 18 ára stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins, náði ekki að forða landinu frá kreppu – og gerði skellinn raunar harðari en hann ella hefði orðið. Slík stefna krefst þess að horfið sé frá heilbrigðri skynsemi; stórframkvæmdir séu hlutaðar sundur til að svindla þeim í smáskömmtum í gegnum umhverfismat, allri framtíðarorku landsins sé troðið í örfáar mengandi verksmiðjur og öllum árum róið að einni einustu lausn út úr ólgusjónum.
Nú þarf ríkið að taka á honum stóra sínum og styðja sem flest það sem getur reist íslenskt efnahagslíf við. Í því starfi er ekki skynsamlegt að einblína á stóriðjuna, sem þegar hefur brugðist. Skynsamlegt er að hugsa til framtíðar, líkt og umhverfisráðherra gerir. Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir fullum stuðningi sínum við Svandísi Svavarsdóttur og treystir henni til að fylgja sannfæringu sinni nú sem endranær.“
Athugasemdir (2)
-
Hlynur Hallsson skrifar:
Mjög góð ályktun frá UVG. Einmitt þörf á að þakka fyrir það sem vel er gert og Svandís er að standa sig.
-
Trausti Jónsson skrifar:
Svandís er sannarlega að standa sig í umhverfisráðuneytinu sem annars staðar! Hefur alltaf verið óhrædd við að standa með sínum og gerir það sannarlega sem ráðherra í Ríkisstjórn!


Skrifa athugasemd