Sakar Óskar um að hafa stoppað útboð
Óskar neitar enn að upplýsa um styrki frá Eykt
Óskar Bergsson beitti sér fyrir því að lokað útboð sem þegar var hafið yrði stöðvað og annað útboð með öðrum reglum tæki við vegna brunareitsins, svokallaða, á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Þetta sagði Stefán Jóhann Stefánsson varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fulltrúi í Innkauparáði Reykjavíkur í Kastljósi í kvöld.
Þar kom einnig fram að í fyrra útboðinu hafi verið búið að velja fimm fyrirtæki til að taka þátt í forvali og að fyirirtækið Eykt, sem nú hafi fengið verkið í gegnum síðara útboðið, hafi ekki verið meðal þeirra sem þóttu hæf til að taka þátt í forvali.
Óskar Bergsson sagði ástæðuna fyrir því að fallið var frá fyrra útboðinu vera þá að mistök hafi verið í fyrra útboðinu. Hann hafnar þeim fullyrðingum Stefáns að hafa beitt bæði kjörna fulltrúa og embættismenn þrýstingi með það fyrir augum að fallið yrði frá fyrra tilboðinu. Kastljós segist hins vegar hafa heimildir fyrir því að embættismenn hafi orðið varir við þrýsting vegna þessa.
Stefán vísaði því á bug að galli í útboðinu hefði verið ástæðan og fullyrðir að Óskar hafi áður en gallinn kom í ljós verið farinn að þrýsta á um að frá útboðinu yrði fallið.
Stöð 2 sagði frá því í fréttum sínunm í gær að forsvarsmenn fyrirtækisins Fonsa sökuðu Framsóknarmenn í borginni um spillingu þegar tilboði Fons ehf var ekki tekið þrátt fyrir að það væri lægst í seinna útboðinu sem farið var í vegna brunareitsins. Telja þeir að tengsl Framsóknarflokksins og Eyktar séu slík að það vekji spurningar um vinnubrögð í málinu. Eykt styrkti Framsóknarflokkinn um 5 milljónir króna árið 2006, en það var hæsta framlagið sem Framsókn fékk það ár. Það var jafnframt hæsta framlag Eyktar til stjórnmálaflokks það árið. Ennfremur eru vinatengsl á milli Óskars Bergssonar og eiganda Eyktar en Óskar var starfsmaður fyrirtækisins um margra ára skeið.
Óskar hefur sjálfur ekki viljað upplýsa um hvort hann hafi fengið styrki frá Eykt í prófkjörsbaráttu sinni. Engin breyting varð á því í Kastljósi í kvöld þrátt fyrir að í dag hafi borgarstjórn samþykkt nýjar siðareglur fyrir borgarfulltrúa þar sem þeir undirgangast þær skyldur að gera grein fyrir hagsmunatengslum sínum.
Athugasemdir (1)
-
Pétur skrifar:
Framsóknarflokkurinn er óbreyttur eins og Sjálfstæðisflokkurinn. Svindlið á borgarbúum heldur áfram. Nú reynir á Nýja Ísland. Það verður að stöðva svona mafíustarfssemi.


Skrifa athugasemd