Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Óforsvaranleg meðferð

Mannréttindaráðuneyti standi undir nafni

20.10.2009

uvg-logo
Ung vinstri græn hafa sent frá sér eftirfarandi ályktun varðandi mál flóttamannanna sem vísað var úr landi í síðustu viku:
 
„Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Útlendingastofnunar og Rögnu Árnadóttur, dóms- og mannréttindamálaráðherra, frá 14, október síðastliðnum, þess efnis að vísa fjórum flóttamönnum úr landi og senda þá til Grikklands. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ítrekað bent á að aðstæður flóttamanna í Grikklandi séu skelfilegar.
 
Flóttamennirnir þrír frá Íran og Afganistan sem þegar hafa verið sendir til Grikklands fengu ekki faglega málsmeðferð. Sá fjórði, Afganinn Wali Safi, sem heldur sig í felum til þess að verða ekki sendur sömu leið, hefur lýst því yfir að skárra sé að lifa í felum en deyja og rotna í grískum útrýmingarbúðum. Hann hryllir við þeirri tilhugsun að vera rifinn burt frá unnustu sinni, stjúpbörnum, vinum og vandamönnum.
 
Það er með engu móti forsvaranlegt að flóttamenn sem hingað sækja í neyð vegna ofsókna sæti jafn ómannúðlegri meðferð og hér er um að ræða. Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum staðið sig afleitlega í málefnum flóttamanna og telur stjórn Ungra vinstri grænna það verkefni þeirrar félagshyggjustjórnar sem nú er við völd að móta aðra stefnu í þessum málaflokki en viðhafðist í stjórnartíð hægriflokka.
 
Þá skorar stjórn Ungra vinstri grænna á Rögnu Árnadóttur að draga úrskurð sinn til baka og standa þannig undir nafni sem ráðherra mannréttindamála á Íslandi.“

Senda grein

Athugasemdir (2)

  1. Viðar Þorsteinsson skrifar:

    Nú vill svo vel til að Ragna svo að segja "vinnur hjá" ríkisstjórninni sem ykkar flokkur stjórnar; hvernig væri að þið bentuð Steingrími og hinum ráðherrum VG á að reka Rögnu?

    20.10.2009, kl. 17:19 | #

  2. Hörður Harðarson skrifar:

    Skattborgarar Íslands eiga ekki að þurfa hjálpa öllum heiminum. Hvað ef 10000 manns koma hingað ólöglega? eiga þeir allir að fá "faglega meðferð"?

    21.10.2009, kl. 3:26 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica