Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Norðmenn heimsmeistarar í jafnrétti

Engar hrakspár gengið eftir

20.10.2009

oslo

Norsku lögin um kynjajafnrétti í stjórnum fyrirtækja hafa leitt til þess að á aðeins fáum árum hefur hlutfall kvenna aukist úr 7% í 40,2% og hið víðfræga glerþak er þar með rofið. Lögin voru vægast sagt umdeild á sínum tíma og gagnrýnisraddir sögðu þau koma niður á samkeppnishæfni fyrirtækja, hrekja fjárfesta á flótta og verða til þess að fjölmörg fyrirtæki kysu að skrá heimilisfesti erlendis.

Ekkert af þessu hefur gengið eftir. Þvert á móti hefur menntun stjórnarmanna aukist til muna og fyrirtæki sem heyra ekki undir lögin hafa einnig leiðrétt kynjamisrétti í stjórnum sínum. Þessar niðurstöður sem norska rannsóknarstofnunin Center for corporate diversity kynnti í gær hafa orðið til þess að kröfur um svipuð lög í Svíþjóð verða háværari. Hér á landi hefur ríkisstjórnin boðað frumvarp þessa efnis sem lagt verður fram í haust.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica