Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Harma aðgerðir stjórnvalda

Ekkert sem segir að þau verði að senda hælisleitendur úr landi

18.10.2009

uj-logo

Ungir jafnaðarmenn hafa sent frá sér ályktun þar sem þeir harma að stjórnvöld hafi sent fjóra hælisleitendur aftur til Grikklands fyrir helgi.

Ályktunin í heild: „Ungir jafnaðarmenn harma þá ákvörðun stjórnvalda að senda fjóra hælisleitendur, þar á meðal dreng fæddan árið 1990 og mann sem hefur verið undir læknishendi vegna mikils andlegs álags, aftur til Grikklands.

Samkvæmt Dyflinnar-reglugerðinni er íslenskum stjórnvöldum heimilt að senda hælisleitendur til þeirra ríkja sem þeir koma fyrst til, í þessum tilfellum Grikklands. Hins vegar er ekkert sem segir að þau verði að gera svo heldur geta stjórnvöld tekið málin fyrir efnislega hér á landi.

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sem og Rauði krossinn hafa lagst gegn því að hælisleitendur séu endursendir til Grikklands meðan aðstæðum þar og málsmeðferð er eins ábótavant og raun ber vitni. Ungir jafnaðarmenn harma þá ákvörðun stjórnvalda að ganga gegn tilmælum þessara aðila og senda hælisleitendurna af landi brott án nokkurs fyrirvara eða aðvörunar, án þess að þeir fengju að hitta lögmann sinn eða kveðja aðstandendur og vini.

Fram hefur komið að lögmaður þriggja mannanna hafði gert alvarlegar athugasemdir við afgreiðslu dómsmálaráðuneytisins á málum mannanna. Hann hafði þegar lagt drög að málsókn fyrir íslenskum dómstólum. Ætla íslensk stjórnvöld að meina þessum mönnum um þann grundvallarrétt sem aðgengi að dómstólum er?“

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica