Rannsókn tefst til 1. febrúar
Tímafrekari og yfirgripsmeiri en búist var við
Forsætisnefnd og formenn þingflokkanna áttu fund í morgun með rannsóknarnefndinni skipuð var til þess að rannsaka hrun bankanna. Á fundinum kom fram að gagnaöflun vegna rannsóknarinnar hefur reynst tímafrekari og yfirgripsmeiri en reiknað var með í fyrstu og ekki verðu því unnt að láta Aþingi fá fullunna skýrsluna fyrr en 1. febrúar á næsta ári. Upphaflega var ætlað að birta skýrsluna 1. nóvember nk.
Ætla má að Alþingi leggi fram á næstunni nýtt frumvarp um störf rannsóknarnefndarinnar þar sem skilafresturinn verður framlengdur. Þá verður bætt við lögin ákvæði sem fjalla um frágang, varðveislu og aðgang að þeim viðamiklu gagnagrunnum sem orðið hafa til í störfum nefndarinnar, svo og um önnur lagatæknileg atriði.
Athugasemdir (1)
-
Sigvaldi Ólafsson skrifar:
enn ein sönnun á hversu málefni sem tengjast efnahagshruninu ganga hægt það skild þá aldrei vera að ríkisstarfsmenn séu of nátengdir málinu


Skrifa athugasemd