Amnesty og Airwaves í eina sæng
Mannréttindabarátta og tónlistarhátíð
Íslandsdeild Amnesty International og Iceland Airwaves ætla í ár að hefja samstarf og tefla þannig saman mannréttindabaráttu og tónlistarhátíð. Iceland Airwaves hefst formlega á morgun og stendur fram á sunnudag. Föstudagurinn verður tileinkaður mannréttindabaráttunni.
Listamenn hafa oftsinnis lagt mannréttindabaráttu Amnesty International lið. Núna síðast í sumar helgaði U2 tónleikaferðalag sitt nýrri baráttu sem ber yfirskriftina Krefjumst virðingar. Sú barátta beinir sjónum sínum að mannréttindabrotum sem ýta undir og viðhalda fátækt.
Íslandsdeild Amnesty International hefur þátttöku sína formlega í herferðinni Krefjumst virðingar á alþjóðlegum baráttudegi gegn fátækt, laugardaginn 17.október, með aðgerðinni Leysum fjötra fátæktar. Aðgerðin fer fram á Ingólfstorgi klukkan 16:00.
Athugasemdir (1)
-
Sigursteinn Másson skrifar:
Mjög gott framtak!
Tónlistin getur verið mikilvægur boðberi mannréttinda. Aldrei mikilvægara en á tímum sem þessum þegar ýmsir váboðar mannréttindabrota skjóta upp kollinum!
Áfram Amnesty!


Skrifa athugasemd