Snörp skoðanaskipti í Iðnó í gær
Best væri að fá nýjan samning segir doktor í Evrópurétti
Mikill hiti var á borgarafundi í Iðnó í gær sem bar yfirskriftina IceSave – getum við borgað? Skipuleggjandinn Gunnar Sigurðsson var himinlifandi með góða mætingu. „Það var alveg troðfullt þarna og menn ekki á eitt sáttir. Þarna voru breiðar skoðanir og mikið spurt og rökrætt.“ Hann segir vel koma til greina að halda fleiri slíka fundi þó að ekkert hafi verið ákveðið í þeim málum.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sat fyrir svörum og var um tíma fast skotið. Gunnar segir að hann hafi þó staðið það af sér með miklum ágætum. „Hann svaraði auðvitað bara eftir sinni bestu sannfæringu og stóð þetta vel af sér.“
Að mati Gunnars stóð Dr Elvira Méndez, dr. í Evrópurétti sem var í pallborðsumræðum á fundinum sig best. „Hún stendur náttúrulega utan við þetta og sér í öðru ljósi en við og segir Icesave ekki bara vera vandamál Íslands heldur Evrópska efnahagssvæðisins. Hún segir að eðlilegast sé að semja um greiðslurnar en best væri að fá nýjan og betri samning.“
Þessi skoðun Dr. Mendéz rímar við það sem talsmaður InDefence hópsins, Helgi Áss Grétarsson, sagði á fundinum í gær. Einar Már Guðmundsson rithöfundur talaði aftur á móti gegn samningnum og sagði fjárglæframenn eiga að borga sínar skuldir sjálfir. Steingrímur J. Sigfússon sagði hins vegar að allt færi í klessu myndi málið stranda.
Athugasemdir (1)
-
Jakob Þór Haraldsson skrifar:
Kæri Steingrímur, málið STRANDAR ekkert, heldur þurfa menn bara að setjast niður AFTUR og SEMJA..! Þá væri t.d. gáfulegt að velja okkar HÆFASTA fólk í samninganefndina og einnig á markmið nefndarinnar að vera það að ná GÓÐUM samning fyrir "land & þjóð" en frekar augljóst að eina markmið síðustu samninganefndar var að "KLÁRA MÁLIÐ sem fyrst..!" Það er ekki hægt að bjóða ÞJÓÐIN upp á svona fábjána vinnubrögð. Við viljum vissulega greiða, en það verður að vera "sanngjarnt & við verðum að geta ráðið við birgðarnar..!" Það þýðir ekki endarlaust fyrir þig & þína ráðgjafa að koma fram og reyna að selja okkur "myglað mjöll" - dönskum einokrunar verzlunarmönnum tókst það í "den" en slíkt gengur ekki upp í upplýstu þjóðfélagi.
Steingrímur hefur samt mína samúð því ég gef mér að SAMSPILLINGIN hafi náð að "rugla hann í ríminu" eins og þeim einum er lagið! Þetta KLÚÐUR mun örugglega kosta það að dagar Steingríms í stjórnmálum eru taldir! Við höfnum þessum "arfalélega samning", þannig höfum við sýnt UK & Hollendingum fram á tvennt: "A) Við viljum greiða tilbaka upphæðir; B) En í staðinn förum við fram á EÐLILEGAN samning - ekki nauðungarsamning! Þetta er ekki flókin speki, þetta skilja okkar viðsemjendur og eins og sænskur embættismaður ÍTREKAÐ bendir á þá skilja ALLAR þjóðir okkar sjónarmið og við munum fá bakað upp okkar skoðun. Ótrúlegt að horfa upp á það að SteinRÍKUR skuli láta hræða sig svona, hreint óskiljanlegt..!
kv. Heilbrigð skynsemi


Skrifa athugasemd