Amnesty skora á forstjóra Shell
Amnesty International krefst þess að olíufyrirtækið Shell geri hreint fyrir sínum dyrum
Í tilefni af nýútkominni skýrslu Amnesty International, Nigeria: Petroleum, Pollution and Poverty in the Niger Delta munÍslandsdeild samtakanna standa fyrir mótmælaaðgerðum á morgun gegn mannréttindabrotum og umhverfisspjöllum sem hlotist hafa af olíuvinnslu Shell á óseyrum Nígerfljóts í Nígeríu. Ekki er þó um skipulögð mótmæli að ræða.
Fram kemur í tilkynningu frá Amnesty að þennan dag taki Peter Voser við sem framkvæmdastjóri í höfuðstöðvum Shell í Hollandi. Samtökin skora á Voser að hefja nýjan kafla í starfsemi Shell, þar sem ábyrgð og gagnsæi eru sett á oddinn og mannréttindi virt.
Rétturinn til heilsusamlegs umhverfis eru mannréttindi og Amnesty International krefst þess að olíufyrirtækið Shell geri hreint fyrir sínum dyrum og viðurkenni áhrif olíumengunar á mannréttindi íbúa á óseyrum Nígerfljóts. Samtökin krefjast þess jafnframt að olíumenguð svæði verði hreinsuð að fullu, samfélög hljóti bætur fyrir skaða af völdum olíumengunar, lögboðið og reglubundið mat á áhrifum olíuvinnslu á mannréttindi íbúa verði tryggt, og að þeir hafi fullan aðgang að upplýsingum um áhrifin á umhverfi sitt og mannréttindi.
Í mótmælaskyni mun Íslandsdeildin standa fyrir farandljósmyndasýningu á morgun, 1. júlí. Ljósmyndirnar sýna þau miklu umhverfispjöll og mannréttindabrot sem hlotist hafa af olíuvinnslu Shell við óseyra Nígerfljóts. Myndirnar eru eftir ljósmyndarann Kadir van Lohuizen en þær voru allar teknar á svæðinu árið 2008.

Skrifa athugasemd