Vinn.is: Vistvæn innkaup
Vistvæn innkaup á vinn.is
Opnaður hefur verið nýr vefur, vinn.is, sem er til þess gerður að auðvelda fólki að gera innkaup sín vistvæn. Vefurinn er á vegum verkefnisins Vistvæn innkaup, en í stýrihópi verkefnisins sitja fulltrúar frá Umhverfisráðuneyti, Ríkiskaupum, Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbæ.
Á vefnum má meðal annars sjá fimm atriði sem vert er að hafa í huga áður en hlutir eru keyptir og gátlista sem hægt er að hafa til hliðsjónar við innkaup. Auk þess er þar að finna ýmis konar fræðsluefni og upplýsingar.
Á vefnum eru vistvæn innkaup skilgreind með þessum hætti: Að velja þá vöru sem er síður skaðleg umhverfinu eða heilsu manna og ber sama eða lægri líftímakostnað samanborið við aðrar vörur og þjónustu sem uppfylla sömu þörf.
Athugasemdir (1)
-
Morten Lange skrifar:
Þetta er framtak sem gefur von. Bætist örugglega við meira af spennandi "kjöti" á beinunum í framhaldinu.
Ég reyndi að senda hamingjuóskir og athugasemd á netfanginu sem er gefið upp en fékk villu...
Og svo er spurning hvort þetta verði sýnilegt. Til dæmis í gegnum tenginga frá vefi eins og natturan.is og island.is
Mér finnst reyndar orðalagið varðandi einkabíllin fólksbíllinn á www.island.is segja heilmikið um hugsunarháttur ritsjórans. Þar heitir linkurinn um einkabíla / fólksbíla ekki neitt svona formlegt, heldur "Bíllinn". Svo heimilislegt og sjálfsagt einhvern veginn :-)
Þegar ég benti á að efni um hjólreiðar vantaði þá var greinilegt á svarinu að ekki væri búið að lesa skeytið almennilega. Ekkert var að segja um hjólreiðar því stígar væru á ábyrgð sveitarfélaga. Sem er reyndar ekki einusinni alskostar rétt lengur. Sem sagt bull svar, ekki síst vegna þess að upplýsingar um hjólreiðar snúast um svo mikið meira. Ég var meðal annars með tillögu að tenglum að upplýsinga hjá Lýðheilsustöð um hjólreiðar.
Þetta var reyndar fyrir hrun.... Kannski ætti að prófa aftur ?


Skrifa athugasemd