Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Minnkandi olíunotkun í heiminum

Spár um samdrátt í eftirspurn

29.6.2009

bensinstod

Samtök ríkja sem flytja inn olíu spá minnkandi eftirspurn miðað við þróunina hingað til. Samtökin telja Alþjóðagjaldeyrissjóðinn spá meiri hagvexti en raunhæft sé að gera ráð fyrir á næstu árum.  

Sjóðurinn spáir því að hagvöxtur verði um fimm prósent í ríkjum heims á árunum 2012 til 2014. Samtök olíuinnflutningsríkja telja að sjóðurinn fari fram úr sér í þessum spám og hafa sjálf reiknað út að hagvöxturinn verði um þrjú prósent. Miðað við þær spár verður olíueftirspurnin mun minni en ella og fellur um 14.000 tunnur á dag.

Norska orkustofnunin reiknar út að olíueftirpurn muni aukast um 0,6 prósent á næstu sex árum, eða um 540.000 tunnur á dag, en í desember þegar síðasta spá stofnunarinnar birtist var gert ráð fyrir aukningu upp á milljón tunnur á dag. Nýja spáin er því verulega lægri en kreppuspáin frá í desember.

Hækkun olíuverðs upp á síðkastið er rakin til spádóma um að hugsanlega fari að sjást fyrir endann á efnahagskreppunni, en ekki eru allir jafn bjartsýnir á það. Forstjóri samtaka olíuinnflutningsríkja spáir stöðnun í eftirspurn eftir olíu, því þótt verð hækki tímabundið vegna væntinga um betri tíð,  hafi verðhækkunin jafnfram þau áhrif að eftirspurn minnki. Verð á Norðursjávarolíu lækkaði í morgun og eru ástæðurnar sagðar minnkandi eftirspurn og friðsamlegri aðstæður í Nígeríu þar sem síðustu daga hefur verið ráðist endurtekið á olíuleiðslur.

Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. Héðinn Björnsson skrifar:

    Í kreppunni frá 1929 og fram að seinni heimsstyrjöld voru líka nokkur bjarsýnisköst þar sem markaðurinn hélt að kreppan væri búin og fylgdu þeim nýtt hrun. Bendi fólki á greinar Jóhannesar Bjarnar á vald.org þar sem hann færir rök fyrir þeirri skoðun sinni að bankakreppan muni taka aðra dýfu.

    29.6.2009, kl. 13:54 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica