Hvalaskoðun meira virði en hvalveiðar
Hvalaskoðun aflar hærri tekna en hvalveiðar samkvæmt skýrslu sem var birt á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins á Madeira í gær. Þetta kemur fram í grein fréttaritara BBC á staðnum, Richard Black. Umboðsaðili skýrslunnar, Dýraverndunarsjóðurinn, Ifaw, segir að hvalveiðiþjóðir myndu græða á því að snúa sér algerlega yfir í hvalaskoðun.
Patrick Ramage hjá Ifaw segir hvali mun meira virði lifandi en dauðir og hvalaskoðun sé mun náttúruvænni og hagkvæmari en hvalveiðar. Ifaw hefur hvatt Íslendinga til þess að binda enda á hvalveiðar þar sem þær skaði hvalaskoðun.
Fram kemur í greininni að fulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, Tómas Heiðar, segi að á Íslandi séu þessar tvær greinar samrýmanlegar og geti vaxið saman. Ekkert hafi verið sannað í þeim efnum að hvalveiðar skaði hvalaskoðun. Ifaw hefur þó bent á möguleikann á því að greinarnar stangist á, til að mynda með dæmi frá Noregi þar sem fólk í hvalaskoðun varð vitni af því þegar hrefna var skutluð.
Í skýrslunni kemur fram að hagnaður vegna hvalaskoðunar hefur tvöfaldast síðastliðinn áratug með mestum vexti í Asíu. Árið 2008 fóru 13 milljón manns í hvalaskoðun í 119 löndum.
Athugasemdir (1)
-
Trausti skrifar:
Hvaða heilviamaður tekur mark á Alþjóðahvalveiðiráðinu, sem samanstendur að meirihluta af ríkjum sem liggja ekki að sjó.
Þetta eru áróðurssamtök sem lítið mark er takandi á.
Hvalveiðar og hvalaskoðun geta vel farið saman ef hvalasýningafólk vill, en er ekki með stanslausan áróður gegn hvalveiðum.
Þeir eiga að einbeita sér að sínu starfi og láta aðra í friði með sín störf.


Skrifa athugasemd