Bensínlítrinn daðrar við 200 krónurnar
Olís tekur af skarið og hækkar verðið
Í dag hækkaði bensínverð hjá Olíuverslun Íslands, Olís, um 12,5 krónur á lítrann. Hækkunin er tilkomin vegna breytinga á vörugjöldum sem tóku gildi þann 28. maí síðastliðinn. Áður höfðu olíufélögin hækkað bensínverð en tóku hækkunina til baka þegar í ljós kom að ekki þurfti að skila ríkissjóði hækkuðu bensíngjaldi af þeim birgðum sem félagið átti við lagabreytingu.
Ætla má að hin olíufélögin hækki bensínverð áður en langt um líður.


Skrifa athugasemd