Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Kirkjuráð biður fyrirgefningar

Harmar máttleysi og skort á skilningi

19.6.2009

kirkjugluggi

Fréttatilkynning frá Biskupsstofu:



Á fundi Kirkjuráðs þann 19. júní var eftirfarandi bókun gerð:

„Á fund Kirkjuráðs mætti Sigrún Pálína Ingvarsdóttir ásamt með eiginmanni, börnum sínum og vinahjónum, og sr. Sigfinni Þorleifssyni, sjúkrahúspresti sem hefur haft milligöngu um ósk hennar um að koma á fund Kirkjuráðs.

Sigrún Pálína taldi mikilvægt að hún fengi áheyrn hjá Kirkjuráði til að greina frá sárri reynslu er varðar meint alvarlegt siðferðisbrot sem hún kveðst hafa orðið fyrir af hálfu sr. Ólafs Skúlasonar er hún leitaði til hans sem sóknarprests. Jafnframt vildi hún lýsa vonbrigðum með viðbrögð og tómlæti af hálfu kirkjunnar á sínum tíma. Lagði hún fram bréf dags. 19. júní 2009 orðum sínum til áréttingar og önnur gögn.

Kirkjuráð harmar sársauka og vonbrigði sem fram komu í frásögn hennar á fundinum og skort á skilningi og máttleysi í viðbrögðum kirkjunnar á sínum tíma. Kirkjuráð hefur ekki vald til að leggja mat á eða úrskurða um framangreindar sakargiftir. Ákæra var ekki gefin út á sínum tíma og sr. Ólafur er nú látinn.

Kirkjuráð tekur undir orð biskups Íslands á prestastefnu 2009 og biður þær konur og börn sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar á þeirri þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið.

Kirkjuráð vísar jafnframt til orða biskups á prestastefnu 2009 þar sem hann rekur það sem kirkjan hefur gert á umliðnum árum til að takast betur á við siðferðis- og kynferðisbrotamál.

Kirkjuráð samþykkti
- að vinna að siðareglum fyrir presta og djákna og allt starfsfólk kirkjunnar sem byggi á núverandi siðareglum presta og öðrum siðareglum sem settar hafa verið í kirkjulegu starfi
- að beita sér fyrir endurskoðun starfsreglna kirkjunnar um meðferð kynferðisbrotamála
- að enginn geti verið í þjónustu Þjóðkirkjunnar sem gerst hafi sekur um kynferðisbrot
- að leita allra annarra leiða til að kirkjan geti tekið á slíkum málum af festu með faglegum vinnubrögðum og fyrirbyggjandi aðgerðum svo og aukinni aðstoð við þau sem líða vegna slíkra mála og þau samtök sem starfa í þeirra þágu.“

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica