Smugan óskar öllum nær og fjær gleðilegra jóla og gæfu, hamingju og friðar á nýju ári. Að því sögðu ætlar hún að bregða sér í jólafrí en mun snúa aftur eftir áramót.
Lesa meira
Hin árlega blysför gegn stríði fer fram á Akureyri á Þorláksmessu. Eins og áður eru kröfurnar skýrar: Frið í Írak og Afganistan! Burt með árásar og hernámsöflin! Enga aðild Íslands að stríði og hernámi!
Um það bil hundrað vinnuvélum hefur verið ekið saman um borgina þvera og endilanga nú eftir hádegið. Þar er á ferðinni Verktakalestin - mótmælaaðgerð verktaka.
Lesa meira
Íranskur háskólastúdent var handtekinn eftir friðsamleg mótmæli þann 7. desember. Hann var síðan myndaður með slæðu um höfuðið og myndin birt í írönsku dagblaði í þeim tilgangi að gera lítið úr honum. Fjölmargir hafa sýnt honum samstöðu á Facebook.
Samfylkingin á Seltjarnarnesi efnir til forvals vegna sveitarstjórnarkosninganna 29. maí. Forvalið verður haldið þann 30. janúar og eiga allir Samfylkingafélagar búsettir á Nesinu sem hafa náð átján ára aldri þann dag rétt til framboðs.
Lesa meiraÆðstu leiðtogar fjölda landa létu ekki sjá sig á COP15 í Kaupmannahöfn. Reuters hefur tekið saman lista yfir þau lönd sem ekki sendu sinn leiðtoga til þess að taka þátt í loftslagsumræðum.
Lesa meiraNánast er að verða útilokað að viðunandi niðurstaða náist á COP15 ráðstefnunni í Kaupmannahöfn. Líklegt þykir að alþjóðlegum samningi verði ekki náð fyrr en á COP16 ráðstefnunni í Mexíkó á næsta ári.
Lesa meira
Skúlagötu fyrir ofan Snorrabraut verður breytt í Bríetartún, Höfðatúni í Katrínartún, Sætúni í Guðrúnartún og Skúlatúni í Þórunnartún. Þetta var samþykkt í skipulagsráði í gær.
Lesa meira
Súrnun hafanna er dulinn vandi innan loftslagsvandans og hún ógnar lífi í höfunum og afkomu ríkja sem byggja á lífríki hafsins. Þetta sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra á COP15 í gær.
Lesa meiraHin árlega blysför í þágu friðar verður farin á Þorláksmessu líkt og undanfarna þrjá áratugi. Allir eru hvattir til að taka sér frí frá jólastressinu og styðja kröfuna um frið í heiminum.
Lesa meiraLögregla hefur beitt táragasi á mörg hundruð mótmælendur á COP15 í dag. Talið er að rúmlega hundrað þeirra hafi verið færðir í mótmælendafangelsið í Valby sem var sett upp fyrir ráðstefnuna.
Lesa meira
Gylfi Arnbjörnsson hefur sent Svandísi Svavarsdótturbréf þar sem hann hvetur stjórnvöld til þess að styðja tillögur ASÍ í tengslum við COP15. Svandís sem nú er stödd í Kaupmannahöfn, fagnar orðum Gylfa.
Lesa meira
Fjárhagsaðstoð í Reykjavík mun hækka um tíu þúsund krónur, úr rúmum 115.000 krónur í rúmar 125.000 krónur verði tillaga meirihluta borgarstjórnar samþykkt. Tillaga VG um 18.000 króna hækkun var hafnað í nóvember.
Lesa meira
Kjörstjórn VG í Reykavík lýsir eftir framboðum í forval Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Forvalið verður haldið 6. febrúar.
Á vefnum svartsokka.org má sjá upptökur af mótmælum á COP15 í Kaupmannahöfn.
Lesa meira
Andrés Ingi Jónsson hefur verið ráðinn til afleysingar sem upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytisins. Hann tekur við af Guðmundi Herði Guðmundssyni sem verður í fæðingarorlofi þar til í febrúar.
Lesa meiraUm helgina voru tæplega tólfhundruð mótmælendur handteknir í Kaupmannahöfn. Allir voru þeir að mótmæla COP15, loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn sem hefur nú staðið í viku. Þrír gætu átt von á ákæru.
Lesa meira
Fulltrúi þróunarlanda (G-77) á COP15 rauk í gærkvöldi í bræði af fundi með fulltrúum Sameinuðu þjóðanna. Hann sagði eftir fundinn að allt gengi mjög illa á ráðstefnunni.
Kaupsýslumennirnir David Hold og David Sullivan sem hafa gert tilboð í West Ham hafa hagnast gegnum tíðina ótæpilega á klámiðnaði.
Róttækir aðgerðasinnar hafa boðað til mótmæla gegn COP15 ráðstefnunni á laugardaginn. Aðgerðasinnarnir segja ráðstefnuna einungis yfirklór til þess að kapítalísk öfl geti haldið áfram að menga og græða.
Lesa meira
Kaupmannahöfn hefur tekið við Tiger Woods sem vinsælasta leitarorðið á Google. Tiger Woods hefur í nokkurn tíma átt metið vegna vandræða í einkalífinu sem varla nokkur maður hefur farið varhuga af.
„Meirihluti borgarráðs heldur áfram vegferð fulltrúa sinna í velferðarráði þar sem ráðherra er hvattur til að heimila alvarlega aðför að þeim sem verst standa,“ segir fulltrúi VG í borgarráði.
Svíar ætla að láta 800 milljónir evra af hendi rakna til þess að hjálpa þróunarlöndum að berjast gegn loftslagsbreytingum.
Útrýma á notkun á jarðefnaeldsneyti á næstu 30 árum og árið 2025 ætti losun á koltvísýringi að vera komin niður fyrir eitt tonn á mann í öllum löndum heims.
Lesa meiraNú hefur verið gefið upp að COP17, árið 2011, mun verða haldi í Suður-Afríku. Einnig hefur verið ákveðið að COP18 verður haldin í Asíu. Ekki hefur þó verið ákveðið hvar.
Lesa meira
Einstaklingur, hjón eða sambúðarfólk sem fá fulla fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg í desember fá aukalega 6000 krónur með hverju barni sem á lögheimili hjá viðkomandi. Þetta var samþykkt á fundi velferðarráðs í dag.
Lesa meiraÁ morgun, 10. desember, er alþjóðlegi mannréttindadagurinn. Mannréttindaskrifstofa Íslands og Íslandsdeild Amnesty International efna af því tilefni til sameiginlegrar dagskrár.
Lesa meiraTillaga vinstri grænna um að fjölgað verði í Barnavernd Reykjavíkur var samþykkt samhljóða í dag. Þorleifur Gunnlaugsson lagði tillöguna fyrst fram í borgarráði en henni var vísað við velferðarráðs.
Lesa meira
Nú hefur Velferðarvaktin bæst í hóp þeirra sem harðlega gagnrýna Árna Pál Árnason félags- og tryggingamálaráðherra vegna fyrirhugaðrar skerðingar á fæðinar- og foreldraorlofinu.
Lesa meiraÞrátt fyrir að sumir gestir COP15 kjósi að ferðast um á eðalvögnum eru aðrir sem nýta sér mun umhverfisvænni ferðamáta; nefnilega reiðhjól.
Lesa meira
Fjöldi þeirra sem verður fyrir áhrifum af náttúruhamförum hefur meira en tvöfaldast síðustu ár. Ný rannsókn sýnir þó fram á að mun færri en áætlað hefur verið munu flytja til ríkari landa til að forðast afleiðingar hlýnunar jarðar.
Lesa meiraBreska veðurstofan hefur nú sýnt fram á með yfirgripsmiklum og áreiðanlegum gögnum sem ná 150 ár aftur í tímann að jörðin fer hratt hlýnandi.
Lesa meiraÁn lausna verður ráðstefnan í Kaupmannahöfn lítið annað en stórkostleg niðurlæging stjórnmálanna segir í sameiginlegum leiðara 56 tímarita í 45 löndum.
Lesa meira
Alþjóðlegt bréfamaraþon Amnesty International hefur nú hafið göngu sína þetta árið. Nú er öllum fært að skrifa undir kort í þágu þolenda mannréttindabrota á aðventunni.
Lesa meiraNanna Rögnvaldardóttir matarbloggari – konan sem kyndir ofninnn sinn - hefur verið tilnefnd til alþjóðlegu verðlaunanna Gourmand World Cookbook Awards fyrir árið 2009.
Lesa meira
Fjallabræður munu á eftir syngja lagið All you need is love ásamt listamönnum alls staðar af úr heiminum í þágu baráttu gegn alnæmi. Hérna er hægt að fylgjast með viðburðinum sem hefst eftir nokkrar mínútur.
Mikið fleiri leita aðstoðar hjá Mæðrastyrksnefnd en í fyrra. Mikið fleiri öryrkjar og eldri borgarar leita aðstoðar sem og hópar sem áður hafa ekki leitað á náðir Mæðrastyrksnefndar.
Lesa meira
Formaður Velferðarráðs Reykjavíkurborgar varð orðlaus þegar hún var spurð að því hvers vegna Reykjavíkurborg veitir ekki barnafólki sams konar fjárhagsaðstoð fyrir jólin og mörg sveitarfélög.
Dómsmála – og mannréttindaráðuneytið hefur ekki fylgst með reglubundnum hætti með framhaldi mála eða afdrifum þeirra einstaklinga sem sendir eru til samstarfsríkja á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.
Lesa meira
Óbreyttum borgurum sem hefur verið haldið nauðugum í flóttamannabúðum í Sri Lanka við hræðilegar aðstæður síðan borgarastríðinu lauk fyrir hálfu ári hefur nú verið sleppt. Mörgum hefur þó verið gert að snúa aftur í búðirnar.
Lesa meiraÖll börn í Suður-Afríku undir eins árs aldri munu frá læknismeðferð ef þau greinast með HIV sýkingu. Forseti landsins, Jacob Zuma, hét þessu í dag í tilefni Alþjóðlega alnæmisdagsins.
Lesa meira
Hjálpaðu indverskum býflugnabónda, gerðu barnshafandi konu í Kongó kleyft að fæða á sjúkrahúsi eða gefðu fjölskyldu í Úganda geit.
Í dag, 1. desember, er Alþjóðlegi alnæmisdagurinn – dagur rauða borðans. Af því tilefni verður opið hús að Hverfisgötu 69 frá kl 16:00 til 19:00.
Lesa meira
Meira en fimmþúsund blaða- og fréttamenn ásamt fylgdarliði alls staðar af úr heiminum hafa boðað komu sína á loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn sem hefsteftir viku.
Lesa meira
Barnaheill hvetja stjórnvöld til að hafa hagsmuni barnsins að leiðarljósi þegar kemur að málefnum sem snerta þau og hvetja ríkisstjórnina til að falla frá fyrirhugaðri skerðingu og styttingu á fæðingarorlofi foreldra í hvaða mynd sem er.
Vörður Leví Traustason sagði í Kastljósi í kvöld að samkynhneigðir væru velkomnir í Fíladelfíusöfnuðinn væru þeir tilbúnir að leita sér hjálpar. Það væri ekki kynhneigðin sem skipti máli, heldur lífernið.
Borgarráðsfulltrúi VG lagði til á fundi borgarráðs í dag að kvörtun borgarlögmanns vegna forstjóra Barnaverndarstofu verði dregin til baka. Einnig lagði hann til fjölgað verði í Barnavernd Reykjavíkur.
Lesa meira
Fulltrúar VG í íþrótta- og tómstundaráði og leikskólaráði gagnrýna þær forsendur sem gefnar hafa verið við gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 og fylgja þannig eftir gagnrýni fultrúa VG í velferðarráði og menntaráði.
Í tæpan klukkutíma var rætt um það á Alþingi hvort funda ætti fram eftir kvöldi og fram á nótt um Icesave-samkomulagið.
Lesa meira
Fulltrúi VG í menntaráði segir óhugsandi að skera niður um milljarð á Menntasviði. Niðurskurðurinn sé á kostnað barna eða velferðar og muni reynast kostnaðarsamur til framtíðar.
Lesa meira
Formaður Ungra jafnaðarmanna segir hugmyndir félagsmálaráðherra um skerðingu á fæðingarorlofi varhugaverðar. „Í fljótu bragði verður maður áhyggjufullur yfir þessu eins og reyndar með allt annað sem er verið að skera niður í félagsmálaráðuneytinu.“
Háar upphæðir sem ríkar þjóðir lofuðu að veita þróunarríkjum ár hvert með Bonn sáttmálanum árið 2001 finnast ekki. Óljóst er hvort peningurinn hefur yfir höfuð verið greiddur.
Mikilvægt er að tryggja barni tengsl og samveru við báða foreldra og gera báðum foreldrum mögulegt að samræma fjölskyldu – og atvinnulíf. Þetta segir í ályktun Félagsráðgjafafélags Íslands sem fordæmir fyrirhugaða skerðingu fæðingarorlofs.
Lesa meira
Þörf fyrir Neyðarmóttöku vegna nauðgunar fer síst minnkandi þar sem ein af afleiðingum efnahagslegra þrenginga er aukið kynbundið ofbeldi. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn um Neyðarmóttökuna.
Lesa meira
Í kvöld verður opinn fundur um mansal að Hallveigarstíg 1. Ungir jafnaðarmenn boða til fundarins þar sem meðal annars höfundur skýrslunnar Líka á Íslandi: Rannsókn á eðli og umfangi mansals verður gestur.
Lesa meiraNý rannsókn sýnir fram á að loftslag spilar stóra rullu í vopnuðum átökum í Afríku og frekari hlýnun jarðar mun auka mannfall í átökum í nánustu framtíð.
Lesa meira
Talsmenn frumbyggjahópa, þar á meðal inúíta, indjána og Sama ætla að mæta á loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn sem hefst innan tveggja vikna og krefjast róttækra breytinga í stefnu stórveldanna í loftslagsmálum.
Lesa meira
Af tilefni alþjóðlegs baráttudags gegn ofbeldi gegn konum sem er á morgun hefst 16 daga átak gegn kynbundu ofbeldi. Tilgangur átaksins er að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot.
Lesa meira
Drífa Snædal, fulltrúi vinstri grænna í velferðarráði Reykjavíkurborgar telur forsendur sem gefnar hafa verið fyrir gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 óásættanlegar.
Lesa meiraFlóttamaðurinn Henry Turay fór í felur fyrir helgi þegar átti að vísa honum úr landi. Hann hefur lýst því yfir að hann kemur ekki úr felum fyrr en yfirvöld hafi lofað að veita honum hæli. Í dag birti hann myndband þar sem hann skýrir aðstæður sínar.
Lesa meira
„Það er óásættanlegt að stjórn KSÍ víki ekki eftir að upp komst um vítavert framferði fjármálastjóra sambandsins og máttleysisleg viðbrögð stjórnarinnar í kjölfarið,“ segir í yfirlýsingu frá Femínistafélaginu, Kvennaathvarfinu og Stígamótum.
Hlustið á börnin! Börn eru líka fólk! Enginn má slá mig eða stríða mér! Þetta er meðal þess sem fjöldi barna af þremur frístundaheimilum borgarinnar hrópaði í mómælagöngu sinni í miðbænum nú fyrir stundu.
Lesa meira
Stjórn KSÍ fundar innan stundar um mál fjármálastjóra sambandsins, Pálma Jónssonar, sem notaði kreditkort KSÍ á strípistað í ferð á vegum sambandins í Sviss árið 2005.
Lesa meira
Norrænu löndin eru ekki lengur „jöfnust“ í heimi þegar kemur að því að tryggja báðum kynjum völd. Rúanda skipar fyrsta sætið yfir kvenkyns fulltrúa í þjóðþingum og er eina landið í heiminum þar sem konur hafa skriðið yfir 50% kjörinna fulltrúa.
Lesa meira
Fulltrúi VG í velferðarráði getur ekki samþykkt tillögu meirihlutans um að sveitarfélög fái leyfi til þess að skilyrða fjárhagsaðstoð þar sem það sé vandséð að slíkt muni ekki koma niður á möguleika íbúa til þess að sjá fyrir sér.
Lesa meira
Írönskum flóttamanni var vísað úr landi í morgun. Hann kærði úrskurðinn um brottvísunina en mátti ekki dvelja hér á landi meðan unnið var í kærunni. Flogið var með hann til Svíþjóðar.
Lesa meira
Konur í þróunarlöndum eru mun berskjaldaðari en karlmenn fyrir loftslagsbreytingum þar sem þær sjá nánast alfarið um alla jarðrækt og hafa færri bjargráð en karlmenn.
Lesa meira
Ung vinstri græn skora á sjávarútvegsráðherra að hefja að fullu vinnu við framkvæmd fyrirningarleiðarinnar til að afnema kvótakerfið í núverandi mynd.
Þuríður Bachman mælti fyrir þingsályktunartillögu í kvöld þar sem lögð er til friðlýsing Skjálfandafljóts. Með friðlýsingunni er meðal annars tryggð varðveiting Þingeyjar sem er forn þingstaður á Skjálfanda.
Í harðorðum pistli á Aftöku sem Smugan mælir með er farið um víðan völl; allt frá fyrirhuguðum mótmælum á Loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn til afleiðinga tækniþróunar á sjálfstæða hugsun.
Lesa meira
Nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar hefur nú verið dreift á Alþingi og mun frumvarpið væntanlega koma til umræðu í þinginu á fimmtudaginn.
Lesa meira
Umhverfis- og náttúruverndarsamtök á Íslandi hafa sent út yfirlýsingu þar sem þau lýsa vanþóknun á ómálefnalegri auglýsingaherferð fyrirtækja á Suðurnesjum gegn ákvörðun umhverfisráðherra um Suðvesturlínur.
Lesa meiraKlukkan níu í morgun að staðartíma hófust sveitastjórnarkosningar í Danmörku. Smugan hvetur að sjálfsögðu alla Íslendinga í Danmörku sem hafa kosningarétt að finna sinn kjörstað og nýta atkvæðaréttinn.
Lesa meiraAnna Pála Sverrisdóttir situr nú á Alþingi fyrir Skúla Helgason sem er í fæðingarorlofi. Hún segir augljóst hvar hjarta hennar liggur miðað við þau mál sem hún hefur tekið upp hjá sér frá því hún settist á þing.
Ekki verður undan því vikist að huga að varanlegri lausn í fangelsismálum hér á landi segir Ragna Árnadóttir dómsmálráðherra. Hún er sammála fangelsismálastjóra um að ástandið sé óviðunandi.
240 manns bíða eftir afplánun í fangelsi hér á landi, sá sem lengst hefur beðið fékk dóm árið 2005. Aðstæður kvenfanga eru óviðunandi og réttindi eru brotin með lélegri aðstöðu. „Hrikalegt ástand,“ segir Páll Winkel.
„Ég ákvað bara að prófa að fara í framboð, hef alltaf haft áhuga á pólitík og borginni minni,“ segir hin 26 ára gamla Iðunn Haraldsdóttir.
Lesa meira
Borgarráð áréttar það ákvæði í mannréttindastefnu Reykjavíkur, sem skuldbindur borgaryfirvöld til að vinna gegn klámvæðingu og vændi. Þetta kemur fram í bókun ráðsins sem var gerð í kjölfar stóra KSÍ málsins.
Lesa meiraIðunn Haraldsdóttir, 26 ára íslensk stúlka sem er búsett á Vesterbro, býður sig fram til borgarstjórnarkosninga í Kaupmannahöfn sem fara fram 17. nóvember.
Lesa meira
Aðgerðasinnar úr Greenpeace-samtökunum beita núna miklum þrýstingi á Barack Obama Bandaríkjaforseta í fyrstu heimsókn hans til Asíu frá því að hann sór embættiseið.
Lesa meira
Aðgerðasinnar úr Greenpeace-samtökunum beita núna miklum þrýstingi á Barack Obama Bandaríkjaforseta í fyrstu heimsókn hans til Asíu frá því að hann sór embættiseið.
Lesa meiraGeislavarnarstofnanir Finnlands, Svíþjóðar, Íslands og Noregs hafa nú lagt til að banna notkun, sölu eða leigu ljósabekkja til barna eða unglinga undir 18 ára aldri.
Þórunn Sveinbjarnardóttir mæltist til þess á Alþingi í gær að dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, beitti sér fyrir því að notkun rafbyssa hjá lögreglunni yrði ekki að veruleika hér á landi.
Ungliðahreyfing Hjálparstofnunar kirkjunnar krefst þess að að Íslendingar taki sér stöðu meðal leiðandi þjóða í loftslagsmálum í Kaupmannahöfn í desember.
Amnesty International hvetur almenning til þess að grípa til aðgerða og senda bréf til yfirvalda í Ísrael þar sem því er mótmælt að Ísraelar meini Palestínumönnum um aðgang að nauðsynlegu drykkjarvatni.
Lesa meira
Myndir af fyrirsætum sem hafa verið mjókkaðar og fríkkaðar í tölvu geta valdið lélegri sjálfsmynd hjá fólki, sérstaklega ungu fólki. Frjálslyndir demókratar í Bretlandi vilja banna slíkar myndir
Þinghópur Hreyfingarinnar ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni framsóknarmanni mælir fyrir þeim breytingum á sveitarstjórnarlögum að borgarfulltrúum fjölgi úr 15 í 42-61 hið minnsta.
Lesa meira
Gríðarleg auking hefur verið í lopasölu hjá Álafossi undanfarin misseri og nú er svo komið að aðra hverja viku selst upp einhver litur á lopa.
Einstæðar mæður sem fara í tæknifrjóvgun, einhleypir sem ættleiða barn eða taka í varanlegt fóstur fá rétt til níu mánaða fæðingarorlofs verði frumvarp þess efnis samþykkt.
Þorleifur Gunnlaugsson segir fullyrðingar stjórnarformanns OR um að Orkuveitan sjái fram á hundruð milljóna króna kostnaðarauka vegna tafa á Helguvíkurverkefninu vera úr lausu lofti gripnar.
Nýju teymi um mansalsmál er ætlað að tryggja yfirsýn og þekkingu á mansalsmálum á Íslandi, fylgja eftir vísbendingum um mansal, bera kennsl á möguleg fórnarlömb þess og tryggja þeim vernd og aðstoð.
Lesa meiraChacaltaya-jökull í Bólivíu sem var þar til fyrir fáum árum síðan þekktur fyrir að vera hæsta skíðasvæði í heimi er nú orðinn að engu. Því hefur nú verið formlega lýst yfir að jökullinn sé ekki lengur til.
Lesa meira
Stjórn VG í Reykjavík átelur að meirihluti í borgarstjórn stingi undir stól athugasemdum um möguleg áhrif Suðvesturlína á vatnsverndarsvæði borgarinnar.
Ekki er rétt það sem heimildir Smugunnar hermdu að senda eigi Wali Safi burt úr landi í fyrramálið. Hið rétta er að flóttamaður að nafni Ali verður sendur til Svíþjóðar á morgun.
Lesa meira
Mótmæli eiga sér nú stað fyrir framan heimili Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra vegna brottflutnings hælisleitandans Wali Safi sem verður vísað úr landi í fyrramálið.
Fulltrúi VG í stjórn OR hefur ítrekað lagt fram tillögu þess efnis að Orkuveitan hætti að taka frá sjö daga hvert sumar í Elliðaánum fyrir kjörna fulltrúa og embættismenn. Tillagan hefur fallið í grýttan jarðveg.
Ríkisendurskoðun hefur nú birt yfirlit um skil frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjöri vegna síðustu alþingiskosninga á kostnaðarupplýsingum til stofnunarinnar. Árni Johnsen er eini þingmaðurinn sem ekki skilaði uppgjöri.
Lesa meiraRúmlega helmingi innflytjenda finnst stjórnmálaflokkar kynna málefni sín illa fyrir fólki sem skilur litla íslensku. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri viðhorfskönnun meðal innflytjenda á Íslandi.
Íslenska leiguflugfélagið Primera Air, áður JetX, flaug í morgun með um 15 íraska flóttamenn frá Danmörku til Bagdad fyrir dönsku lögregluna.
Lesa meira
Bergur Sigurðsson sem skipaði 4. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi fyrir síðustu kosningar hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna.
Ný rannsókn sýnir fram á að almenningur á Íslandi kýs félagslega fjarlægð frá eintaklingum með geðræn vandamál. 20% svarenda kærði sig til dæmis ekki um að búa nálægt manneskju með geðklofa.
Matsáætlun Landsnets vegna Suðvesturlínu er röng þegar kemur að orkuþörf álversins í Helguvík. Álverið þarf 190MW meira en Landsnet áætlar.
Í umsögn stjórnar VG um frumvarp um persónukjör kemur fram að stjórnin telji frumvarpið ófullkomið í marga staði og ýti meðal annars undir að efnameiri frambjóðendur nái forskoti fram yfir aðra.
Íslandsdeild Amnesty International hefur sent Rögnu Árnadóttur bréf þar sem notkun rafbyssa er mótmælt vegna hættu á misnotkun, fjölda dauðsfalla og þess sársauka sem þær valda.
Barátta milli ólíkra hópa í Bandaríkjunum hefur margoft dregið langan dilk á eftir sér. Eins ólíklegt og það hljómar þá snýst ein slík barátta um þvottasnúrur.
Lesa meira
Sameinuðu þjóðirnar hafa loks fengið meirihluta þjóða til þess að samþykkja að lögleiddur verði vopnaviðskiptasamningur sem mun hjálpa til við að hindra að vopn endi í röngum höndum.
Lesa meiraFemínistafélagið fagnar myndbirtingu með frétt á vísi.is sem sýndi geranda í hópnauðgun. Félagið skorar um leið á fjölmiðla að taka myndbirtingar með fréttum af kynferðisofbeldi til alvarlegrar endurskoðunar.
Vinstri grænir flokkar á Norðurlöndum vilja að spákaupmennska med gjaldeyri verði skattlögð, til þess að draga úr henni.
Lesa meira
Stígamótakonur hafa barist fyrir því í mörg ár að austurríska leiðin verði farin hér á landi. Þær fagna því fregnum af því að sá áfangi sé á næstu grösum.
Lesa meira
Skortur á munntóbaki er óvenjulegt dæmi um norræna landamærahindrun sem getur haft mjög neikvæð áhrif á samskipti þjóðanna ef marka má orð formanns vinstriflokksins í Finnlandi á Norðurlandaráðsþingi.
Lesa meira
Félagsmálaráðherra brást vel við fyrirspurn formanns flokkahóps Vinstri sósíalista á Norðurlöndum um afstöðu ráðherranefndarinnartil vændislausra hótela.
Lesa meira
Frumvarp til laga um austurrísku leiðina verður að öllum líkindum lagt fyrir Alþingi á yfirstandandi þingi. Að mörgu er að hyggja við lagasmíðina og er horft til reynslu nágrannalandanna.
Lesa meira
Um 90 frambjóðendur til síðustu Alþingiskosninga skiluðu ekki inn fjárhagslegu uppgjöri áður en frestur til þess rann út. Ekki var hægt að fá upplýsingar um það hverjir þeir aðilar eru.
Lesa meira
Fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar verður hækkuð að lágmarki um 18.000 krónur nái tillaga fulltrúa VG í velferðarráði fram að ganga. Eðlilegt sé í ljósi hækkana á almennum launum að fjárhagsaðstoð hækki í takt.
Lesa meiraÁ föstudaginn verður haldinn opinn morgunverðarfundur um hina alþjóðlegu baráttu gegn mansali. Fundurinn fer fram á ensku, er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Lesa meira
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa sagði í Morgunblaðinu í gær að beinar skattgreiðslur Alcoa væru 4 milljarðar. Hið rétta er að beinar og óbeinar greiðslur, þ.m.t. skattur starfsfólks nema 4 milljörðum.
Undanfarin tvö ár hafa árlegar skattgreiðslur allra álfyrirtækjanna verið undir tveimur milljörðum króna, samt segir forstjóri Alcoa fyrirtækið hafa greitt fjóra milljarða í skatta bara í fyrra.
Lesa meira
Fyrrverandi formannsframbjóðandi Sjálfstæðisflokksins sagði á bloggsíðu að fara ætti með forsætisráðherra eins og Benito Mussolini. Ástæðan: Icesave-samningarnir og aðildarviðræður við ESB.
Í ályktun aðalfunds ÖBÍ þar sem Guðmundur Magnússon var kjörinn formaður skorar bandalagið á ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar að bæta öryrkjum þær skerðingar sem þeir hafa orðið fyrir sem fyrst.
Í grein á aftaka.org í dag er sá misskilningur leiðréttur sem hægri menn á amx.is., frelsi.is auk Björns Bjarnasonar halda fram; að Álfheiður Ingadóttir sé ábyrg fyrir þeim mótmælum sem áttu sér stað eftir bankahrunið.
Lesa meiraBaldur Guðlaugsson mun láta af störfum í menntamálaráðuneytinu um áramótin. Þetta tjáði hann samstarfsfólki sínu í tölvupósti í dag.
Lesa meira
Ennþá er ábyrgð á kynferðisofbeldi varpað á þolendur í stað þess að hegðun og atferli gerenda sé skoðað til hlítar.
Lesa meira
Þrátt fyrir hrakspár þess efnis að norsku lögin um kynjajafnrétti myndu koma niður á samkeppnishæfni fyrirtækja hefur menntun stjórnarmanna til að mynda aukist til muna og fyrirtæki leiðrétt kynjamisrétti í stjórnum sínum.
Linus Orri Gunnarsson Cederborg fékk sjokk þegar hann heyrði af brunanum á Skólavörðustíg í gær. Hann og félagar hans höfðu haldið úti alls kyns starfsemi í húsinu frá því í sumar.
Lesa meira
Ungir jafnaðarmenn hafa sent frá sér ályktun þar sem þeir harma að stjórnvöld hafi sent fjóra hælisleitendur aftur til Grikklands fyrir helgi.
Lesa meira
Samtök hernaðarandstæðinga hafa lýst yfir miklum vonbrigðum sínum vegna frétta af hugmyndum um stofnun hergagnageymslu og æfingaaðstöðu fyrir NATO-heri á Keflavíkurflugvelli.
Lesa meira
„Ef allar þjóðir væru eins og Ísland væri hér ekkert loftslagsvandamál," sagði Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður á Alþingi dag. „Þekkingarleysi,“ segir Árni Finnsson.
Lesa meira
Gagnaöflun vegna rannsóknar á hruni bankanna hefur reynst tímafrekari og yfirgripsmeiri en reiknað var með í fyrstu og verður ekki lokið fyrr en 1. febrúar á næsta ári. Upphaflega var ætlað að birta skýrsluna 1. nóvember.
Íslandsdeild Amnesty International og Iceland Airwaves ætla í ár að hefja samstarf og tefla þannig saman mannréttindabaráttu og tónlistarhátíð.
Lesa meira
Landvernd hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem kemur fram að samtökin telji nauðsynlegt að raddir skynseminnar fái að hljóma í þeirri umræðu sem nú á sér stað á Íslandi varðandi álver í Helguvík.
Lesa meira
Stéttarfélagið Drífandi er nú með dómsmál í undirbúningi þar sem þess verður freistað að fá kjarasamning sem skrifað var undir í febrúar 2008 dæmdan gildan.
Lesa meira
Almenningi gefst nú tækifæri til þess að kynna sér drög að siðareglum ráðherra og starfsmanna Stjórnarráðsins og skila inn athugasemdum.
Lesa meira
Almenningi gefst nú tækifæri til þess að kynna sér drög að siðareglum ráðherra og starfsmanna Stjórnarráðsins og skila inn athugasemdum.
Lesa meira
Svandís Svavarsdóttir ætlar ekki að sækja um undanþágur fyrir Ísland vegna losunar á gróðurhúsalofttegundum þegar Kyoto bókunin verður endurskoðuð á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember.
Lesa meira
Á laugardaginn mun Íslandsdeild Amnesty International standa fyrir táknrænni aðgerð í Smáralind til stuðnings fólki sem sætir þvinguðum brottflutningi víða í Afríku.
Lesa meira
Á laugardaginn mun Íslandsdeild Amnesty International standa fyrir táknrænni aðgerð í Smáralind til stuðnings fólki sem sætir þvinguðum brottflutningi víða í Afríku.
Lesa meira
Gyða Margrét Pétursdóttir ver doktorsritgerð sína í kynjafræði á morgun. Í ritgerðinni koma fram athyglisverðir hlutir um verkaskiptingu á heimilinu, t.d. er þátttaka karla í heimilishaldi og barnauppeldi mun minni en orðræðan gefur til kynna.
Lesa meira
Sú mynd er birtist af körlum og konum í fjölmiðlum er úrelt og stafar af því að karllægu valdakerfinu hefur ekki verið bylt. Þetta segir Gunnar Hersveinn í viðtali á ynja.net sem Smugan mælir með.
Lesa meira
Þingflokkur VG fundar klukkan 21 í kvöld. Björn Valur Gíslason segir að stemmningin hafi oft verið betri innan flokksins og að núna þurfi að taka ákvarðanir. „Þjóðin á ekki skilið að við séum að ströggla í þessari vitleysu.“
Lesa meiraÁsta Arnardóttir og Ósk Vilhjálmsdóttir hafa verið tilnefndar til Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs fyrir að hafa staðið fyrir ferðum með fjölda fólks inn á svæði sem ógnað er með virkjanaáformum.
Lesa meira
Á vefnum aftaka.org er í dag birt athyglisverð grein í tilefni af því að ár er síðan Geir Haarde bað „Guðsa um að blessa Ísland“. Í greininni er farið yfir hlutverk anarkista sem settu sterkan svip á mótmælin eftir hrun.
Lesa meiraSöfnunarátak Krabbameinsfélags Íslands fer gríðarvel af stað í ár og er bleika slaufan nú þegar uppurin af lager. Þetta er í 10. sinn sem farið er í slíkt árveknisátak hér á landi.
Lesa meira
Amnesty International fordæma stjórnvöld víða í Afríku sem standa fyrir því að árlega missa hundruð þúsunda húsaskjól sitt vegna þvingaðra brottflutninga.
Lesa meira
Bein útsending frá stefnuræðu forsætisráðherra hefst núna klukkan 19:50 á RÚV. Vafalaust bíða margir þess að heyra línur ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu lagðar fyrir veturinn.
Lesa meira
Nýtt morgunblað hefur hafið göngu sína. Útgefandinn segir ástandið í íslenskum fjölmiðlum óeðlilegt og óhugnanlegt. Hann segir sitt framlag vera ákall á nýjan fjölmiðil.
Lesa meira
Ákveðið hefur verið að að setja saman nýja áætlun fyrir íslensk stjórnvöld um breytingar á velferðarkerfinu í átt til sjálfstæðs lífs fatlaðra utan stofnana.
Lesa meira
Boðað hefur verið til fundar í Saltfisksetrinu í Grindavík á morgun, þriðjudaginn 25. ágúst, kl. 18:00 vegna þeirrar hættu sem blasir við að jarðhitaauðlindum í landi Grindavíkur verði á næstu dögum ráðstafað til erlends einkaaðila.
Lesa meira
Vinstri stjórnarandstöðuflokkurinn Enhedslisten hefur beint fyrirspurn til danska forsætisráðherrans um það hvort Ísland eigi að fá stuðning frá alþjóðasamfélaginu til þess að komast í gegnum kreppuna.
Lesa meira
Aðgerðasinnar úr Saving Iceland hlekkjuðu sig við vinnuvélar í Helguvík í morgun. Fleiri aðgerðasinnar létu til skarar skríða í nótt þegar rauðu lakki var skvett á Hummer bifreið Björgólfs Thors Guðmundssonar.
Lesa meiraVinstri græn héldu opinn fund í Grindavík í gærkveldi um málefni Hitaveitu Suðurnesja þar sem ályktað var um varanlegt framsal á jarðvarmaauðlindum á Reykjanesi til Magma Energy.
Lesa meira
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps verður að hefja umsagnaferli um skipulag vegna Þjórsárvirkjana upp á nýtt, að mati Atla Gíslasonar, sem hefur ritað umhverfisráðherra bréf vegna málsmeðferðar hreppsins. Sveitarstjórnin hélt ekki kynningarfund í upphafi eins og ber að lögum, en ákvað að rétta sinn hlut með kynningarfundi eftirá.
Lesa meira
Sjálfstæðisflokkurinn gagnrýnir Icesave-samninginn og afgreiðslu málsins alls, þrátt fyrir sátt um afgreiðslu úr fjárlaganefnd. Kristján Þór Júlíusson, sem mælti fyrir áliti Sjálfstæðisflokksins á Alþingi, segir ekki liggja fyrir hvernig Sjálfstæðismenn greiða atkvæði um ríkisábyrgðina.
Fulltrúar ríkisstjórnarinnar, borgaryfirvalda og Orkuveitu Reykjavíkur hittust á fundi nú í kvöld til að ræða fyrirhugaða sölu Orkuveitunnar á hlutum hennar í HS-orku, til kanadíska fjárfestingafélagsins Magma Energy.
Lesa meira
Brotaferill Anders-Fogh Rasmussens, aðalritara Nató, sem studdi innrásarstríð í Írak, væri næg ástæða til þess að snúa honum við í Leifsstöð.
Lesa meira
Norskur viðskiptasérfræðingur sagði við norska útvarpið NRK í kvöld að fjármálaráðherrann, Kristin Halvorsen, ætti nú að hafa samband við bresk og hollensk stjórnvöld og hvetja þau til að koma fram við Íslendinga af sanngirni og samþykkja eðlilega fyrirvara við Icesave samningana.
Mikil umfjöllun er um Ísland í erlendum fjölmiðlum, rætt er um Icesave, fólksflótta og sérstöðu íslensku kreppunnar miðað við birtingarmyndir kreppunnar í öðrum löndum.
Samkvæmt nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar um árangur grunnskólanemenda í norrænu ríkjunum fimm hefur fjárhagsstaða foreldra, búseta og félagslegar aðstæður vaxandi áhrif á árangur í grunnskóla.
Lesa meira
Þráinn Bertelsson hefur sagt sig úr þingflokki Borgarahreyfingarinnar og hyggst nú starfa sem óháður þingmaður. Í bréfi sem lesið var upp í upphafi þingfundar í dag lýsti Þráinn þessu yfir og sagðist ekki vilja starfa með flokki sem teldi orðheldni til marks um alvarlega heilabilun.
Lesa meira
Öllum akstursamningum við starfsmenn ríkisins verður sagt upp og aðeins verður greitt fyrir akstur samkvæmt akstursbók. Þetta kemur fram í tillögum fjármálaráðuneytisins um niðurskurð í ráðuneytum og stofnunum.
Lesa meira
Samkomuleg hefur náðst um fyrirvara sem gerir voru á Icesave-samkomulagið. Frumvarpið hefur því verið afgreitt úr nefndinni og mun önnur umræða um málið væntanlega hefjast eftir helgi á Alþingi.
Lesa meira
Framsókn neitar því að hafa lekið drögum að fyrirvörum við ríkisábyrgð á Icesave-samkomulagi ríkisstjórnarinnar til fjölmiðla og segir það ekki samræmast stefnu flokksins.
Norski fjölmiðillinn ABC segir frá því í dag að Kristín Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs hafi hringt í Steingrím J. Sigfússon, til að svara gagnrýni á skilmála norskra stjórnvalda fyrir lánveitingum til Íslands. Halvorsen neitaði að ræða við ABC-nyheter en verður í norska sjónvarpinu í kvöld.
Lesa meira
Síst færri eru mættir á Austurvöll nú en þegar mest lét vegna mótmæla við ríkisstjórnina í vetur. Verið er að sýna samstöðu Íslendinga um að Icesave skuldabyrðin sé og þung og ekki réttlát.
500 ungmenni frá 41 landi komu saman í Sønderborg í Danmörku um síðustu helgi og héldu þar fjögurra daga loftslagsráðstefnu. Hraðahindrun sem framleiðir orku og ný tækni sem breytir hávaðamengun í orku er meðal þeirra hugmynda sem voru kynntar á ráðstefnunni.
Hörður Arnarson hefur verið ráðinn forstjóri Landsvirkjunar. Hann tekur við af Friðriki Sophussyni sem lætur af störfum þann 1. október.
Lesa meiraSigrún Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar. Hún tók við tímabundið við starfinu í vor þegar Skúli Helgason, sem hafði verið framkvæmdastjóri frá árinu 2006, fór í framboð fyrir flokkinn.
Lesa meira
Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa krafist þess að stjórnvöld á Sri Lanka sleppi 285.000 saklausum Tamílum sem haldið er nauðugum í herbúðum í norðurhluta Sri Lanka. Þar af eru um 50.000 börn.
Lesa meira
Áhyggjulaust og algjörlega afslappað fólk lifir skemur en þeir sem búa við lítilsháttar streitueinkenni, ótta og áhyggjur. Þetta sýnir ný alþjóðleg rannsókn. Vísindamenn draga ýmsar ályktanir af niðurstöðunum.
Lesa meira
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í umhverfisnefnd mótmælti því harðlega á Alþingi í dag að náttúruverndaráætlun skyldi hafa verið afgreidd út úr nefnd. Án afgreiðslu málsins yrði engin náttúruverndaráætlun í gildi, eins og skylt er samkvæmt lögum.
Megináhersla fundar norrænna bænda sem hófst í Reykjavík í dag er áhrif efnahagskreppunnar í heiminum á bændur og landbúnaðarstefnu.
Fulltrúar Alþingis í nýja Þingvallanefnd voru kosnir á Alþingi í dag. Nefndin er mikið breytt frá því sem áður var.
Öryrkjabandalagið vekur athygli skjólstæðinga sinna á því að vistmenn dvalar- og hjúkrunarheimila eiga ekki að greiða útvarpsgjald. Jafnframt tilgreinir bandalagið á heimasíðu sinni að samt hafi komið fyrir að einstaklingur á stofnun var rukkaður um gjaldið.
Lesa meira
Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi hafa ákveðið að fresta mótmælastöðu við Akureyrarflugvöll sem átti að fara fram klukkan 14:30 á morgun. „Bandaríska herveldið virðist hafa hörfað undan friðarvilja Norðlendinga,“ segir í tilkynningu.
Lesa meira
Fjárfestingarsamningur vegna Álvers í Helguvík verður undirritaður í dag. Enn er óljóst hvaðan orkan sem knýja þarf álverið mun koma.
Lesa meira
Sveitarfélagið Ölfus hefur gert athugasemdir við frummatsskýrslu Landnets um nýbyggingu raflína sem eiga að ná frá Hellisheiði að Reykjanesi. Búast má við áhrifum á náttúruna með framkvæmdinni eins og til dæmis óafturkræfu sári í hrauninu á Hellisheiði.
Lesa meira
Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi efna til mótmælastöðu við Akureyrarflugvöll laugardaginn 8. ágúst klukkan 14.30 til að mótmæla aðflugsæfingum bandarískra orrustuflugvéla og vörslu hergagna á flugvellinum.
Rauðri málningu var slett á hús Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í nótt. Undanfarna mánuði hafa aðgerðasinnar reglulega slett málningu á hús einstaklinga sem tengjast útrásinni, fjármálafyrirtækjum og ál- og orkuiðnaði.
Lesa meira
Grænni málningu var skvett á einbýlishús Rannveigar Rist, forstjóra Alcan, í nótt. „Hér býr illvirki“ var auk þess skrifað utan á húsið. Lögreglan segir fleiri atvik hafa komið á hennar borð undanfarið en enginn hefur ennþá verið handtekinn vegna verkanna.
Bjarni Benediktsson fordæmir ráðamenn sem fagna því að upplýsingum hafi verið lekið úr Kaupþingi með ólögmætum hætti. Hann segir það ekki koma málinu við að Umtak, fasteignafélagið sem leigir N1 húsnæði, hafi fengið 133 milljónir evra lán frá Kaupþingi.
Von er á að minnsta kosti 30.000 róttækum aðgerðasinnum á Kaupmannahafnarráðstefnuna í desember. Þeir ætla að opna fund heimsleiðtoganna fyrir alþýðunni og loka verksmiðjum, flugvellinum og höfnum.
Nefndardagar verða alla þessa viku á Alþingi þannig að ekkert verður úr þingfundum sem áttu að hefjast á ný í þessari viku. Samantekt Hagfræðistofnunar HÍ á Icesave-málinu verður kynnt á fundi fjárlaganefndar í dag.
Lesa meiraSkilanefnd Kaupþings og bankastjóri Nýja Kaupþings banka hafa ákveðið að höfða ekki staðfestingarmál vegna umfjöllunar RÚV um lánabækur sem birtar voru á vefnum wikileaks. Nokkuð ljóst er að utanaðkomandi þrýstingur hefur haft mikið að segja við þá ákvarðanatöku.
Lesa meira
Kristinn Hrafnsson undrast hversu hratt það gekk fyrir sig að fá lögbann á frétt hans um lánabók Kaupþings. Hann segir viðbrögðin við þessum fréttum og ekki síst lögbanni sýslumanns vera þvílík og öll í eina áttina að við þetta mun fólk ekki sætta sig.
Lesa meira
Heilbrigðisráðherra segir að best sé að fara í sameiginlegt átak þar sem skaðsemi ljósabekkja sé haldið til haga. Mikil ábyrgð hvíli á herðum þeirra sem reka slíka þjónustu.
Lesa meira
Aðgerðahópurinn Pot í bumbu skvetti málningu á húsnæði Útlendingastofnunar í fyrrinótt. Hópurinn segist gera sér grein fyrir að aðgerðin hafi verið lítilvægleg, smá pot í bumbu tröllvaxinnar stofnunar en vonar að hún verði fordæmi.
Lesa meira
Í dag birtist í blöðunum íslensku auglýsing þar sem þrotabú Reykjalundar er auglýst til sölu. Áhugasamir kaupendur fá verslunarmannahelgina og tvo daga betur til þess að undirbúa tilboð í Reykjalund-Plastiðju.
Lesa meira
Ekki er útlit fyrir að Icesave-málið verði afgreitt úr nefnd fyrr en í fyrsta lagi í lok næstu viku að sögn formanns fjárlaganefndar. Hann hefur gert afdráttarlausa kröfu um að hliðarsamningurinn svokallaði sem bundinn er trúnaði verði birtur almenningi.
Lesa meira
Árleg kertafleyting íslenskra friðarhreyfinga í minningu fórnarlamba kjarnorkueldanna í Hírósíma og Nagasakí verður haldin 6. ágúst. Friðarsinnar leggja áherslu á kröfuna: Aldrei aftur Hírósíma! Aldrei aftur Nagasakí!
Lesa meira
Árni Finnsson fagnar áfangaskýrslu sem sýnir fram á litla arðsemi íslenskra orkufyrirtækja. Hann segir að hingað til hafi vantað mat á verðmæti þeirra svæða sem raskast eða eyðileggjast vegna virkjanaframkvæmda og uppistöðulóna.
Lesa meira
Fyrsta áfangaskýrsla um mat á arðsemi orkusölu til stóriðju var birt í morgun. Þar kemur fram að arðsemi íslenskra orkufyrirtækja sé talsvert lakari en í Bandaríkjunum og Evrópu og að þar standist orkufyrirtæki arðsemiskröfu betur en aðrar atvinnugreinar en á Íslandi gera þau það þriðjungi verr.
Lesa meira
Umhverfisráðherra segir að virkjanir í Þjórsá séu ekki ein af forsendum stöðugleikasáttmálans eins og Vilhjálmur Egilsson hefur haldið fram. Það gefi augaleið að VG muni ekki standa fyrir slíkum ákvörðunum.
Lesa meiraAðgerðarhópurinn Saving Iceland tók sig til í nótt og lokaði nokkrum skrifstofum fyrirtækja og stofnana sem hann telur hafa gerst meðsek um stórfelld náttúruspjöll.
Lesa meira
Fjárfestar í Evrópu og Asíu segja að loftlagsbreytingar séu ógn og vilja að stjórnvöld grípi til aðgerða. Meirihluti þeirra segir þó að slíkt muni skaða ágóða fyrirtækjanna.
Lesa meira
Í The Daily Telegraph í dag er íslenska krónan sögð vera á ótrúlegum batavegi. Fjármálaráðherra segist finna fyrir virkni í hagkerfinu vegna hagstæðra gjaldeyrisskipta. „Það hefur ekkert breyst,“ segir Andri Snær Magnason.
Lesa meira
Allnokkrir hafa nú komið saman fyrir framan Alþingi til þess að mótmæla Icesave-samkomulaginu. Mótmælin eru friðsamleg þó að nokkuð sé um hressandi hróp á þá sem inni sitja.
Lesa meira
Sérstakur samningur er til um endanlega uppgjör vegna úthlutunar eigna Landsbankans og hann er slæmur. Þetta sagði Ragnar L. Hall í gær. Árni Þór Sigurðsson segir þetta vera hliðarsamning sem tryggir að breski tryggingasjóðurinn og sá íslenski eigi jafna kröfu í eignir.
Lesa meiraYfirlýsing Birgittu Jónsdóttur í gær um einelti á Alþingi hefur vakið mikla athygli og eru skiptar skoðanir um það hvort þörf sé fyrir eineltisáætlunina Olweus á Alþingi. „Falskur vandlætingarsöngur,“ segir Ólína Þorvarðardóttir.
Lesa meira
Þingfundur hefst í dag klukkan 10:30 og verður það síðasti þingfundurinn þar til eftir verslunarmannahelgi. Þingmenn hafa nú skráð sig í sögubækur fyrir lengsta sumarþing frá upphafi.
Lesa meira
Í kjöfar ótrúlegrar fréttar af 13 ára stúlku sem keyrði í svefni frá Húsafelli til Keflavíkur tók Smugan sig til og fann ótrúlegar sögur af mishættulegum svefngenglum.
Lesa meiraHópur sem kallar sig Börn Íslands stendur fyrir mótmælum gegn Icesave samkomulaginu um allt land á morgun. Mótmælt verður á Austurvelli og fyrir framan skrifstofur sýslumanna um land allt.
Lesa meira
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir frestaði þingfundi í fimm mínútur og óskaði eftir fundi með þingflokksformönnum. Hún var ósátt við að þingmenn ræddu allt annað en málið sem var á dagskrá; fundarstjórn forseta.
Lesa meira
Icesave samkomulagið mun ekki verða tekið fyrir á þingfundi fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku. Auknar líkur eru taldar á því að málið muni muni verða frestað fram á haust.
Lesa meira
Neytendasamtökin hafa birt lista yfir lánveitendur sem ekki innheimta uppgreiðslugjald og þeirra sem slíkt gera. Uppgreiðslugjöld eru þau gjöld sem lántakandi er rukkaður um ef hann borgar inn á lán eða greiðir þau að fullu.
Lesa meira
Össur Skarphéðinsson hefur nú formlega afhent utanríkisráðherra Svíþjóðar umsókn að Evrópusambandinu. Össur fór út til Svíþjóðar í gær og munu þeir Bildt ræða á fundi sínum umsóknarferlið og næstu skref.
Lesa meira
Björn Valur Gíslason vísar orðum Kristjáns Þórs um frí frá þingstörfum til föðurhúsanna. Segir Kristján hafa þegið milljónir í biðlaun og laun meðan hann sinnti öðru starfi. „Kleifabergið er ekki skemmtiferðaskip.“
Lesa meira
13 ára stúlka gekk í svefni, stal bíl og keyrði frá Húsafelli til Keflavíkur í nótt. Lögreglan segir ekki vera til athugunar hvort einhver annar hafi ekið bílnum enda séu til upptökur úr Hvalfjarðargöngunum þar sem hún sést ein á ferð.
Lesa meira
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafnar því að ekki sé stætt á því að hann sitji við samningaborð í Brussel í aðildarviðræðum við ESB. Hann segir mesta fullveldisafsalið vera í sjávarútvegi og landbúnaði ef Ísland gengur í ESB.
Lesa meira
Ragnar H. Hall og Eiríkur Tómasson sem gagnrýnt hafa Icesave samninginn verða gestir fjárlaganefndar á morgun. Ástráður Haraldsson verður einnig gestur nefndarinnar en hann hefur aftur á móti gagnrýnt þá Ragnar og Eirík fyrir að færa ófullnægjandi rök fyrir máli sínu.
Lesa meira
Á fimmtudaginn mun lagadeild Háskóla Íslands halda málstofu um nokkur lagaleg álitaefni hvað varða Icesave-samkomulagið.
Lesa meira
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á Alþingi að samþykkja ekki lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar um uppgjör vegna Icesave skuldbindinga Landsbankans.
Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon fagnar samkomulagi því sem náðst hefur milli skilanefnda og stjórnvalda umum uppgjör vegna skiptingar eigna milli gömlu og nýju bankanna. Hann segir margt vinnast með niðurstöðunni.
Lesa meira
Stjórnvöld og skilanefndir gömlu bankanna komust að niðurstöðu í viðræðum sínum um uppgjör vegna skiptingar eigna milli gömlu og nýju bankanna á föstudaginn.
Lesa meira
Lilja Rafney Magnúsdóttir segir harða andstæðinga ESB innan VG telja samþykkt að aðildarviðræðum sorgleg tímamót. Óásættanlegt sé að beita þingmönnum þrýstingi til þess að breyta gegn sannfæringu sinni.
Lesa meira
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði á Alþingi í gær að ríkisstjórnarflokkarnir nauðguðu lýðræðinu með því að styðja ekki tillögu um tvöfalda atkvæðagreiðslu.
Lesa meira
Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fagna því að Alþingi hafi samþykkt að sækja um aðild að Evrópusambandinu.
Lesa meira
Ísland mun leggja inn aðildarumsókn að Evrópusambandinu áður en langt um líður. Líklegt þykir að utanríkisráðherra muni leggja umsóknina inn á fundi aðildarríkja sambandsins í Brussel þann 27. júlí nk.
Lesa meira
Þingsályktunartillaga meirihluta utanríkismálanefndar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu verður samþykkt. Breytingartillögurnar þrjár voru felldar. Næst á dagskrá ríkisstjórnarinnar verður því að undirbúa aðildarviðræður við ESB.
Lesa meira
Fyrri breytingartillaga Bjarna Benediktssonar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur var felld með 32 atkvæðum. Allir þingmenn Samfylkingarinnar sögðu nei við tillögunni en allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sögðu já.
Lesa meira
Atkvæðagreiðsla um ESB aðildarviðræður hófst á Alþingi nú klukkan 12. Nokkrir þingmenn kváðu sér hljóðs áður en atkvæðagreiðslan hófst.
Lesa meira
Umræðu á Alþingi um aðildarviðræður að ESB var nú að ljúka. Fundi hefur verið frestað en hefst að nýju klukkan 12 og þá verða greidd atkvæði um tillögurnar sem liggja fyrir.
Lesa meira
Í kjölfar viljayfirlýsingar framkvæmdastjóra stjórnmálaflokkanna hefur verið lagt fram frumvarp til breytingar á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og upplýsingaskyldu þeirra.
Lesa meira
Hópur sem kallar sig Verkalýðsfélag útrásarvíkinga hefur að eigin frumkvæði þjóðnýtt jörðina Veiðilæk í Norðurárdal sem áður var í eigu Sigurðar Einarssonar í Kaupþingi.
Lesa meira
Atkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið mun fara fram í hádeginu á morgun. Þingfundur stendur yfir til tíu í kvöld, hefst aftur tíu í fyrramálið og atkvæðagreiðslan verður svo klukkan 12 gangi allt eftir.
Lesa meira
Bændasamtök Íslands fagna að fengist hefur að birta skýrslu sem er tilraun til úttektar á áhrifum ESB-aðildar á íslenskan landbúnað.
Lesa meira
Utanríkisráðherra ætlar að fá umtalaða landbúnaðarskýrslu birta á heimasíðu utanríkisráðuneytisins á næsta klukkutímanum.
Seðlabankinn hefur birt umsögn sína um Icesave-samningana. Þar kemur fram að æskilegt hefði verið ef þjóðréttarleg staða íslenska ríkisins hefði betur verið tryggð og að ákvæði um meðferð á kröfuhöfum Landsbankans hefði þurft að vera skýrara
Lesa meiraÍ dag tóku Svíar við formennsku Evrópusambandsins. Forsætisráðherra Svíþjóðar sagði við það tilefni að stærsta áskorun ESB væri að finna lausn á vaxandi loftslagskrýsu í heiminum og að hann vildi skattleggja losun á koltvísýringi.
Lesa meira
Um fjörtíu félagar í VG hafa sent frá sér áskorun til þingmanna VG um að hafna tillögu til þingsályktunar um aðildarumsókn að ESB.
Lesa meira
Samkomulag hefur náðst á Alþingi um að klára umræðu um aðildarviðræður við Evrópusambandið á morgun. Gert er ráð fyrir atkvæðagreiðslu seinni partinn.
Lesa meira
Eftir ár verður kominn miði á allar neysluvörur í verslunum Walmart þar sem hægt verður að sjá hvaðan varan kemur. Tilgangurinn með því að er að fólk geti tekið upplýsta ákvörðun um hvað það kaupir með tilliti til áhrifa á umhverfisþætti í framleiðslu vörunnar.
Gagnrýni Seðlabankans á Icesave samningana sem kom fram á fundi með utanríkismálanefnd var ekki skoðun stofnunarinnar heldur persónulegt álit yfirlögfræðingsins. Formaður nefndarinnar veltir fyrir sér hvort lögfræðingurinn héldi sig enn vinna fyrir Davíð Oddsson.
Fjórir hjúkrunarfræðingar á Landspítala fengu viðurkenningu alþjóðlegs tímarits um hjúkrun fyrir framlag sitt til verkefnisins: Innleiðing á Calgary fjölskylduhjúkrun á Landspítala.
Í kvöld verður fréttaskýringarþáttur um Icesave á Skjáeinum. Davíð Oddsson verður gestur þáttarins og verður rætt við hann einan. Síðan verður rætt við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, Steingrím J. Sigfússon og að öllum líkindum Bjarna Benediktsson.
Lesa meira
Forseti Alþingis vonast til þess að ESB málið verði klárað í vikunni. Áfram verður rætt um breytingartillögur þar sem gert er ráð fyrir tvöfaldri þjóðaratkvæðagreiðslu.
Í júní minnkaði atvinnuleysi á landsbyggðinni um 13,7% en stóð nokkurn veginn í stað á höfuðborgarsvæðinu. Heldur dregur saman með atvinnulausum körlum og konum.
Lesa meira
Leiðtogar G8 hafa heitið 20 milljörðum dollara til þess að styðja við bændur í þróunarlöndum. Obama lagði áherslu á að þessi málaflokkur stæði honum nærri þar sem faðir hans kæmi frá Kenýa.
Lesa meira
Nú hefur verið tilkynnt um þau undur sem standa til boða fyrir forval til enn nýrra 7 undra veraldar. Amazon regskógarnir, Miklagljúfur, Svartiskógur í Þýskalandi, Kilimanjaro, Olympusfjall og Galapagoseyjar eru meðal þeirra náttúruperla sem á listanum eru.
Lesa meira
Dómsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi tvö frumvörp um persónukjör, annars vegar í alþingiskosningum og hins vegar í sveitarstjórnarkosningum. Stefnt er að því að persónukjör verði fyrst viðhaft í sveitarstjórnarkosningum sem haldnar verða næsta vor.
Lesa meira
Ásmundur Einar Daðason hvatti þingmenn á Alþingi rétt í þessu til þess að fylgja samvisku sinni og styðja tvöfalda atkvæðagreiðslu varðandi aðildarumsókn að ESB. Hann sagðist ekki myndu kveða sér hljóðs aftur í dag en var ómyrkur í sinni afstöðu.
Lesa meira
Þrír þingmenn stjórnarandstöðunnar og Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, hafa unnið að breytingartillögu sem gerir ráð fyrir tvöfaldri atkvæðagreiðslu um aðild að ESB. Ásmundur er ekki flutningsmaður að tillögunni en segist styðja hana heilshugar.
Lesa meira
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, gagnrýndi G8 fyrir að leggja sig ekki nægilega fram til þess að ná lendingu í loftslagsmálum á leiðtogafundinum sem nú stendur yfir. Þróunarlönd hafa neitað að sætta sig við að þúrfa að lúta sömu niðurstöðu og iðnríkin.
Lesa meira
Verðlagsnefnd búvara sendi frá sér tilkynningu rétt í þess um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum muni hækka að meðaltali um 3,47%. Breytingin tekur gildi 1. ágúst.
Lesa meira
Erlendum gestum í Leifsstöð fækkaði um þrjú prósent í júní í ár miðað við júní í fyrra. Á sama tíma í fyrra höfðu hins vegar 228.000 Íslendingar farið frá Leifsstöð en í ár aðeins 125 þúsund.
Lesa meira
Margrét Tryggvadóttir spurði Svandísi Svavarsdóttur hvort hún teldi sig hæfa til þess að greiða atkvæði um Icesave þar sem faðir hennar stýrði samningaviðræðum fyrir hönd Íslands.
Allir nefndarmenn í utanríkismálanefnd voru sammála um að taka álit um ESB aðildarumsókn út úr nefndinni. Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn munu þó skila séráliti. Í tillögunni kemur fram að ríkisstjórnin skuli fylgja þeirri leiðsögn sem kemur fram í nefndarálitinu.
Stjórn svæðisfélags VG í Borgarbyggð hefur sent frá sér ályktun þar sem hún minnir forystu og þingmenn flokksins á landsfundarályktun VG um ESB frá því í mars síðastliðnum.
Lesa meira
Maðurinn sem dæmdur var í átta ára fangelsi í gær neyddi sambýliskonu sína til að hafa mök við 11 menn. Tveir voru með stöðu sakborninga í málsmeðferðinni. Starfskona hjá Stígamótum segir það vel þekkt að nauðgarar gangi um frjálsir ferða sinna.
Lesa meira
Fréttabloggari hjá New York Times, Kate Galbraith, skrifar í dag um deilur um jarðvarmaorku Íslendinga og birtir af því tilefni viðtal við Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra.
Lesa meira
Sala á sígarettum hefur dregist saman verulega saman í Danmörku síðastliðin ár. Danir keyptu í fyrra hálfum milljarði færri sígarettur en árið 2003. Þrátt fyrir það reykja ekki færri Danir.
Lesa meira
Leiðtogafundur G8 hófst í dag í bænum L´Aquila á Ítalíu. Bærinn komst í heimsfréttirnar í apríl þegar öflugur jarðskjálfi skók svæðið og kostaði 260 íbúa lífið. Svo virðist sem deilur um loftslagsmál muni setja mark sitt á fundinn.
Lesa meira
„Þetta er hæg en jákvæð breyting,“ segir starfskona Stígamóta um dóminn sem féll í gær yfir manni sem beitt hafði sambýliskonu sínu hrottalegu kynferðislegu ofbeldi í tvö ár. Maðurinn var dæmdur í átta ára fangelsi sem er þyngsti dómur sem fallið hefur í nauðgunarmáli á Íslandi.
Lesa meira
Mikil umræða hefur farið fram undanfarið um það hvort ráðist verður í tvöföldun Suðurlandsvegar eða gerð Vaðlaheiðarganga. Formaður samgöngunefndar segir mikilvægt að forgangsraða og að horfa verði til öryggisþátta og umferðarþunga.
Lesa meira
Í gærkvöldi var undirritaður kjarasamningur milli Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Í samningnum er áhersla lögð á að hækka lægstu laun félagsmanna.
Lesa meira
Drög að nefndaráliti um ESB verða kynnt á fundi í utanríkismálanefnd í dag. Búist er við ákaflega umfangsmiklu áliti upp á 50-60 síður þar sem tekið er á helstu hagsmunum gagnvart ESB í þeirri stöðu sem Ísland er.
Lesa meira
Aðgerðahópur háttvirtra öryrkja standa nú fyrir mótmælum á Austurvelli. Snúra hefur verið strengd milli ljósastaura fyrir framan Alþingi og á hana verið hengdar ýmsar orðsendingar, flíkur og fleira
Lesa meira
Barack Obama Bandaríkjaforseti og Dmitry Medvedev Rússlandsforseti komust að samkomulagi um að fækka kjarnorkuvopnum í eigu landanna á fundi sínum í Moskvu í dag.
Lesa meiraBjörgunarsveitir verða með gæslu á hálendinu í sumar, fjórða sumarið í röð. Markmið verkefnisins er að gera björgunarsveitir aðgengilegri, stytta viðbragðstíma og ráðleggja fólki til að það lendi síður í vandræðum.
Lesa meira
Hagsmunasamtök heimilanna lýsa yfir áhyggjum af versnandi stöðu heimilanna. Samtökin segja 61% félagsmanna ekki ná endum saman. Kallað er eftir hagspá fyrir heimilin til þess að sjá hver raunveruleg staða heimilanna er.
Lesa meira
Aðgerðarhópur háttvirtra öryrkja ætlar að standa fyrir mótmælum á Austurvelli í dag. Ætlunin er að hengja upp á snúru ályktun sem ÖBÍ sendi frá sér þar sem kemur fram að það sé siðlaust með öllu að skerða lífeyri með nokkurra daga fyrirvara.
Stærstu þjóðir heims munu í næstu viku lýsa yfir miklum vilja til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 50% fyrir árið 2050. Þetta kemur fram í uppkasti af yfirlýsingu sem verður birt á fundi heimsleiðtoga, G8, sem hefst á miðvikudaginn á Ítalíu.
Lesa meira
Fyrstu umræðu um Icesave samninginn er lokið. Nefndadagar verða á mánudag og þriðjudag og þingfundur verður ekki aftur fyrr en á miðvikudag. Ekki er búist við að önnur umræða hefjist fyrr en í lok næstu viku.
Lesa meira
Vantrú harmar að þeir sem standa utan trúfélaga skuli niðurgreiða starfsemi þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga. Félagið segir stjórnvöld mismuna þeim sem ekki eru skráðir í trúfélög og vilja að lífsskoðunarfélög fái sömu viðurkenningu og trúfélög.
Friðrik Sophusson hefur ákveðið að hætta sem forstjóri Landsvirkjunar í haust. Hann hefur gegnt starfinu síðan 1. janúar 1999.
Lesa meira
Icesave samningurinn hefur verið til umræðu í allan dag á Alþingi. Ýmsar meiningar hafa komið fram, með eða á móti samningunum með ýmsum rökum. Margrét Tryggvadóttir las úr bréfi frá hollenskum innistæðueiganda sem er á móti samningnum.
Tugir kínverskra stúlkna hafa verið teknar af heimilum sínum í Kína og seldar til ættleiðingar. Stúlkurnar voru teknar þegar foreldrar þeirra hafa ekki getað greitt sekt sem fæst ef lög um barnafjölda eru brotin.
Lesa meira
Mér langar, mér hlakkar og mér kvíður er nánast eins oft notað á internetinu eins og mig langar, ég hlakka og ég kvíði. Íslenskufræðingurinn Mörður Árnason segir málfræðisamfélagið líta á þetta sem þróun í málinu og hefur meiri áhyggjur af enskuslettum og öðrum villum sem skaða málkerfið.
Þórður Már Jónsson bloggar um mögulegt vanhæfi Ásbjarnar Óttarssonar sem talar fyrir því að kvótakerfið haldist óbreytt en er sjálfur í kvótabraski. Þingmaðurinn vísar þessu á bug og segist sjálfur hafa barist í þessu kerfi.
Dómstóll í Dehli, höfuðborg Indlands, hefur nú aflétt 148 ára gömlum lögum sem banna samkynhneigð. Sá sem varð uppvís af kynlífi með manneskju af sama kyni gat átt yfir höfði sér 10 ára fangelsi.
Lesa meiraHafís hefur ekki mælst í eins litlu magni í 800 ár. Vísindamenn hafa komist að þessu með því að skoða sögulegar heimildir úr skipsbókum og lýsingar frá höfnum við Ísland.
Lesa meiraHafís hefur ekki mælst í eins litlu magni í 800 ár. Vísindamenn hafa komist að þessu með því að skoða sögulegar heimildir úr skipsbókum og lýsingar frá höfnum við Ísland.
Lesa meira
Afbrigðilega lagaðir ávextir og grænmeti eru ekki lengur á bannlista Evrópusambandsins. Banninu var aflétt í dag til þess að hætta að ýta undir sóun á matvælum. Samræmt útlit er ekki lengur skylda.
Lesa meira
Félagið Vantrú hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fordæmd er breyting á sóknargjöldum til trúfélaga.
Lesa meiraUndanfarna daga hafa hafa vefnaðarverkamenn í Bangladesh mótmælt lágum launum, slæmum aðbúnaði og kúgun. Mótmælendur segja lögreglumenn hafa myrt tvo verkamannanna í mótmælum um helgina.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp forsætisráðherra um ráðgefandi stjórnlagaþing til samræmis við 100 daga áætlun stjórnarinnar.
Lesa meira
Mikill hiti var á borgarafundi í Iðnó í gær sem bar yfirskriftina IceSave – getum við borgað? Troðfullt var útúr dyrum og menn ekki á eitt sáttir.
Lesa meiramótmælaaðgerðum á morgun gegn mannréttindabrotum og umhverfisspjöllum sem hlotist hafa af olíuvinnslu Shell á óseyrum Nígerfljóts í Nígeríu.
Í Kastljósi kvöldsins var greint frá rannsókn tveggja lögfræðinema á Bifröst sem sýnir fram á að tilteknar fisktegundir séu vannýttar og notaðar til þess að braska með í leigu.
Lesa meira
Svandís Svavarsdóttir átti á dögunum fund með umhverfisráðherra Svíðþjóðar. Þau ræddu um fyrirliggjandi beiðni ríkisstjórnar Íslands um formlegar viðræður við ESB um að Ísland verði þátttakandi í heildarfyrirkomulagi um losun gróðurhúslofttegunda.
Lesa meiraOpinn borgarafundur um Icasave samninginn verður haldinn í Iðnó í kvöld. Einn af skipuleggjendum segir samninginn koma okkur í klípu en að eitthvað verði að gera. Hann á von á góðum fundi.
Lesa meira
Opnaður hefur verið nýr vefur, vinn.is, sem er til þess gerður að auðvelda fólki að gera innkaup sín vistvæn. Á vefnum er hægt að nálgast fræðsluefni og upplýsingar af ýmsum toga.
Samtök ríkja sem háð eru innflutnigi á olíu spá minnkandi eftirspurn. Samtökin telja Alþjóðagjaldeyrissjóðinn gera ráð fyrir meiri hagvexti en raunhæft sé á næstu árum.
Lesa meira
Ungir jafnaðarmenn fordæma grimmd íranskra stjórnvalda í garð almennings.
Lesa meira
Franska verslunarkeðjan Carrefour hefur ákveðið að hætta að bjóða upp á plastpoka undir vörur í verslunum sínum á Spáni. Hver íbúi á Spáni notar um 250 plastpoka á ári.
Lesa meira
Í morgun var undirritaður samningur milli Barnaheilla og ríkislögreglustjóra þess efnis að tilkynningar um óviðeigandi myndbirtingar fari beint til ríkislögreglustjóra. Framkvæmdastjóri Barnaheilla fagnar þessum áfanga og segir hann stórt skref í því að uppræta og útrýma slíku efni.
Lesa meira
Stöðugleikasáttmáli var undirritaður nú fyrir stundu. Mikil sátt virtist ríkja milli aðila samningsins við undirritunina sem fór fram í Þjóðmenningarhúsinu. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra þakkaði öllum sem komu að gerð sáttmálans. Hann má í heild lesa á vefnum island.is
Lesa meiraSkrifað verður undir stöðugleikasáttmála í Þjóðmenningarhúsinu nú klukkan hálftvö. Varaformaður BSRB segir niðurstöðu þar sem margir aðilar koma að alltaf verða málamiðlun.
Lesa meira
Ályktun sem miðar að því að gripið verði til aðgerða til þess að sporna við gróðurhúsaáhrifum var samþykkt á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins. Ályktunin kom frá Bandaríkjamönnum sem sætir tíðindum að mati formanns Nattúruverndarsamtakanna.
Lesa meira
Mikill uggur er í fólki vegna þess fjölda sem hefur sótt um framhaldsskóla fyrir næsta vetur og ekki fengið inn í óskaskólann. Menntamálaráðherra segist vel meðvitaður um vandann og að farið verði vel yfir málin í sumar og reynt að leita úrlausna.
Lesa meira
Stöðugleikasáttmáli verður undirritaður klukkan 13 í dag. Mikið hefur verið deilt um hvort eigi að einblína á niðurskurð eða hækka skatta. BSRB vilja hækka skatta en Samtök atvinnulífsins og ASÍ eru sammála um að skera þurfi niður.
Lesa meira
Stjórn VG í Kópavogi fordæmir áframhaldandi samstarf Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Kópavogi og telur það sýna vilja til að viðhalda þeirri spillingu og eiginhagsmunapoti sem hefur fengið að viðgangast í bæjarpólitíkinni undanfarin ár og að hagsmunir bæjarbúa séu virtir að vettugi.
Jón F. Thoroddsen, verðbréfamiðlari, hagfræðingur og höfundur bókarinnar Íslenska efnahagsundrið nafngreindi þrjá núverandi og fyrrverandi starfsmenn 365 í viðtali við Spegilinn á mánudaginn og sagði þá hafa boðað fagnaðarerindið fyrir hönd útrásarvíkinga í aðdraganda bankahrunsins.
Lesa meiraOlís hefur ákveðið að lækka bensínlítrann um 12,5 krónur. Í gær var lítrinn hækkaður um þá upphæð vegna þess að birgðir félagsins síðan fyrir skattabreytingu væru á þrotum. Á heimasíðu Olís kemur fram að félagið ætli að taka á sig hækkunina tímabundið.
Lesa meira
Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi segist gríðarlega sáttur við ákvörðun um áframhaldandi meirihlutastarf með Sjálfstæðisflokknum. Hann vill ekki tjá sig um það hvort hann hefði persónulega viljað fara í meirihluta með VG og Samfylkingunni eins og margir spáðu að myndi gerast.
Hvalaskoðun aflar hærri tekna en hvalveiðar samkvæmt skýrslu sem var birt á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins á Madeira í gær. Dýraverndunarsjóðurinn segir að hvalveiðiþjóðir myndu græða á því að snúa sér algerlega að hvalaskoðun.
Lesa meira
Í dag hækkaði bensínverð hjá Olíuverslun Íslands, Olís, um 12,5 krónur á lítrann. Verð á bensínlítra í sjálfsafgreiðslu er í dag 192,3 krónur.
Lesa meira
Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar er nú farinn í tveggja vikna leyfi frá Alþingi af persónulegum ástæðum. Varaþingmaðurinn Valgeir Skagfjörð sem er leikari, leikstjóri og tónlistarmaður hefur nú tekið sæti hans.
Lesa meira
Grænlendingar vilja veiða hnúfubak á ný en það hafa þeir ekki gert í nokkru skyni síðan 1986. Danir munu leggja fram þessa tillögu fyrir hönd Grænlands á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem hófst í morgun á portúgölsku eyjunni Madeira.
Lesa meira
Aðgerðarhópur háttvirtra öryrkja stendur fyrir straujun fyrir framan Alþingi í dag. Ætlun hópsins er að standa fyrir framan Alþingi fyrir boðaðan þingfund klukkan 15 og strauja fjárlagafrumvarpið sem kynnt var fyrir helgi. Hann segir það siðleysi að lækka mánaðartekjur lífeyrisþega með 10 daga fyrirvara.
Lesa meira
Bæjarfulltrúi VG segir að í hans huga sé meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Kópavogi dautt. Hann segir meintar ólöglegar lánveitingar úr lífeyrissjóði Kópavogsbæjar vera óásættanlegar og skelfilegt að menn skuli ganga svo langt.
Gunnar Birgisson ætlar að víkja úr sæti bæjarstjóra og bæjarfulltrúa meðan lögreglurannsókn fer fram á málefnum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Lögregla rannsakar nú meintar ólöglegar lánveitingar sjóðsins til bæjarins. Gunnar hefur gegnt stjórnarformennsku í sjóðnum.
Skýringar á Icesave samningnum hafa verið birtar á vefnum island.is. Þar er einnig að finna spurningar og svör um Icesave auk almennra upplýsinga um aðdraganda málsins.
Hér eru skýringarnar.
Í fréttatilkynningu frá Biskupsstofu kemur fram að kirkjuráð harmar sársauka og vonbrigði sem fram komu í frásögn Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur. Hún greindi kirkjuráði í dag frá meintum alvarlegum siðferðisbrotum sem hún kveðst hafa orðið fyrir af hálfu sr. Ólafs Skúlasonar er hún leitaði til hans sem sóknarprests.
Fyrstu langreyðar hvalveiðitímabilsins voru dregnar í land uppúr fjögur í nótt. Forstjóri Hvals segist ánægður með afreksturinn sem voru tvö dýr, kýr og tarfur. Kýrin var 61 fet en tarfurinn 68. Hann segist kominn með leið á spurningum blaðamanna sem hann segir allar tengjast því hvort markaður sé fyrir kjötið.
Lesa meira
Björn Mikkaelsson, maðurinn sem reif niður hús sem átti áður á þjóðhátíðardaginn, segist alls ekki sjá eftir gjörningnum. Honum þykir hins vegar leitt að hafa svikið fólk en segir það hluta af keðjuverkun sem fer í gang þegar honum er ekki borgað fyrir sína vinnu.
Lesa meira
Boðuð hafa verið mótmæli á morgun gegn Icesave samningnum. Annars vegar hafa Raddir fólksins boðað mótmæli á morgun á Austurvelli. Hins vegar hafa verið boðuð mótmæli á Akureyri þar sem gengið verður frá Samkomuhúsinu niður á Ráðhústorg.
Bleiku steinarnir verða afhentir í dag, á kvenréttindadeginum. Þeir voru fyrst afhentir þann 19. júní 2003. Undanfarin ár hefur afhendingin farið fram við styttuna af Jóni Sigurðssyni en í ár fer hún fram í Bríetarbrekku.
Í frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum er lagt til að hámarksgreiðslur úr fæðingarorlofssjóði verði 350.000 en tíminn til að nýta orlofið verður tvöfaldaður. Aldurstengdar örorkubætur verða tekjutengdar og frítekjumark ellilífeyrisþega lækkar í 480.000.
Icesavesamingar íslenskra stjórnvalda við Breta og Hollendinga eru nú aðgengilegir á vef stjórnvalda, island.is. Skýringar og greinargerð vegna saminganna eru í vinnslu og verða birt á næstu dögum að sögn forsætisráðuneytisins.
Mikið stuð var fyrir stundu á Alþingi er óundirbúinn fyrirspurnartími og atkvæðagreiðsla fóru fram. Mikið var um frammíköll og hlátrasköll þegar þingmaður framsóknarflokksins gagnrýndi forseta Alþingis fyrir miður góða fundarstjórn.
Lesa meira
Eftir fund forseta Alþingis með þingflokksformönnum um upplýsingar um Icesave varð niðurstaðan að umræðan mun frestast eitthvað fram eftir degi. Í ljós kemur síðar klukkan hvað hún hefst.
Lesa meira
Þingfundi hefur nú verið frestað á meðan forseti Alþingis ræðir við þingflokksformenn. Að þeim fundi loknum kemur í ljós hvort utandagskrárumræða um Icesave muni fara fram í dag eins og upphaflega var áætlað.
Lesa meira
Ekki er ljóst hvort verði úr umræðu í þinginu í dag um Icesave samningana. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, greindi frá þessu í upphafi þingfundar fyrir nokkrum mínútum.
Lesa meira
Aðeins örfáir en gallharðir mótmælendur standa nú Icesave-vaktina við Alþingi. Mikið er flautað og barið á trommur, bong og búsáhöld. Þrír lögregluþjónar standa vörð við Alþingishúsið og hefur allt farið friðsamlega fram í dag.
Lesa meira
Þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar meirihluta borgarstjórnar um sumarstörf á vegum borgarinnar er nú ljóst að frá árinu 2001 hafa aldrei verið færri störf í boði fyrir ungmenni á aldrinum 17-25 ára segir borgarfulltrúi VG.
Ríkisstjórnin stefnir á að kynna aðgerðir í efnahagsmálum fyrir Alþingi á fimmtudaginn. Varaformaður ÖBÍ segir öryrkja kvíða tillögunum og ekki skilja hvers vegna á að skera niður þar sem enga fitu er að fá.
Bæjarfulltrúi Samfylkingar segir í raun enga lausn vera komna í mál Gunnars Birgissonar. Málið sé óþolandi, ekki síst fyrir íbúa og starfsmenn Kópavogs sem vita ekkert hvernig málin standa.
Gunnar Birgisson ætlar að hætta sem bæjarstjóri í Kópavogi að kröfu framsóknarmanna. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi. Ekki náðist í formann Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsson. Hann hefur ekki enn tjáð sig um mál Gunnars í fjölmiðlum.
Lesa meira
Icesave samkomulaginu var mótmælt fyrir framan Alþingi í dag með tilheyrandi pottaglamri og pönnuslætti líkt og undanfarið. Nokkuð öflug tívolíbomba var sprengd fyrir utan flokksskrifstofu VG á sama tíma og mótmælin voru í hámarki.
Lesa meiraUngir jafnaðarmenn hafa sent frá sér ályktun þar sem skorað er á menntamálaráðherra að hækka námslán fyrir næsta skólaár. Í ályktuninni kemur fram að kjör stúdenta séu orðin það slæm að atvinnuleysisbætur séu skárri kostur en námslán.
Gunnar Birgisson ætlar að stíga úr stóli bæjarstjóra og Gunnsteinn Sigurðsson, annar maður á lista sjálfstæðismanna segist tilbúinn að setjast í sæti Gunnars. Oddviti VG í bæjarstjórn segir það ekki skipta höfuðmáli hver sé með völdin en bendir á að þessi meirihluti beri ábyrgð á Gunnari.
Lesa meiraLosun Íslands á gróðurhúslofttegundum getur orðið 34% minni en hún var árið 1990 ef gripið er til allra mögulegra mótvægisaðgerða. Verði álverið i Straumsvík stækkað og annað byggt í Helguvík verður útstreymið 3% þrátt fyrir allar mótvægisaðgerðir.
Lesa meiraÍ dag verður lokið við að tyrfa Lækjartorg í Reykjavík. Á sama tíma hafnaði framkvæmdaráð Akureyrarbæjar því að tyrfa Ráðhústorg bæjarins þrátt mikinn þrýsting frá bæjarbúum.
Lesa meira
Gunnar Birgisson hefur boðist til þess að hætta sem bæjarstjóri Kópavogs til þess að Sjálfstæðisflokkurinn haldi meirihluta. Mál Gunnars og Kópavogsbæjar hafa verið í brennidepli undanfarið vegna viðskipta bæjarins við fyrirtæki dóttur Gunnars, Frjálsa miðlun, sem þykja óeðlileg.
Lesa meira
Atvinnuleysi minnkaði lítillega í maí. Að meðaltali voru 14.595, 8,7% vinnufærra, skráðir atvinnulausir í maí sem eru 219 færri en í apríl. Atvinnuleysi dróst því saman um 1,5% á milli mánuða.
Fyrstu fjóra mánuði ársins hefur verið skorið niður um 176 milljónir í ferðakostnaði ráðuneytanna miðað við sama tíma í fyrra. Dagpeningar lækkuðu 1. mars og hafa nú þegar sparast 30 milljónir vegna þess. Farnar eru mun færri ferðir og gæðin hafa færst skör neðar.
Tillögum að lögum um persónukjör er að vænta innan viku að sögn Þorkells Helgasona sem leiðir starfshóp um málið. Hann segir góðan anda vera í hópnum sem skipaður er fulltrúum allra flokka, auk Sambands íslenskra sveitafélaga.
Lesa meira
Öryrkjabandalag Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu öryrkja hér á landi.
Alls lýstu 54 fyrirtæki yfir áhuga á því við Seðlabanka Íslands að taka lán í íslenskum krónum sem endurgreidd yrðu í erlendum gjaldeyri. Landsvirkjun auk annarra orkufyrirtækja munu vera þar á meðal. Bankinn býður nú nánari upplýsinga frá fyrirtækjunum.
Lesa meira
Ekki verður gengið að öðru en veði vegna fasteignaveðlána vegna íbúðarhúsnæðis – fasteigninni sjálfri – verði lagafrumvarp Lilju Mósesdóttur, þingkonu Vinstri grænna, og fleiri samþykkt á Alþingi.
Lesa meira
Baldur Guðlaugsson segir Fjármálaeftirlitið hafa komist að þeirri niðurstöðu að hann hafi ekki búið yfir innherjaupplýsingum þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum. Fullnægjandi skýringar og gögn hafi leitt það í ljós. Hann segist ekki hafa verið beðinn að hætta störfum í stjórnarráðinu.
Baldur Guðlaugsson segir Fjármálaeftirlitið hafa komist að þeirri niðurstöðu að hann hafi ekki búið yfir innherjaupplýsingum þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum. Fullnægjandi skýringar og gögn hafi leitt það í ljós. Hann segist ekki hafa verið beðinn að hætta störfum í stjórnarráðinu.
Alþingismenn fá ekki lengur að ferðast á fyrsta farrými á kostnað Alþingis, þeir skulu ávallt sitja á meðal almennings í ferðum á vegum þingsins. Ferðakostnaður alþingismanna hefur verið lækkaður um fjórðung á þessu ári.
Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, mun starfa sem ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu fram að áramótum og láta þá af störfum. Óskað var eftir því að hann hætti strax, en hann hafnaði því.
Lesa meira
Áskorun til forseta Íslands þar sem hann er hvattur til að skrifa ekki undir Icesave lögin verði þau samþykkt á Alþingi gengur nú um netheima.
Lesa meiraFólk á Íslandi telur almennt að einstaklingum sé síður mismunað vegna félagslegrar stöðu sinnar á Íslandi en í Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar á viðhorfum Íslendinga til mismununar sem kynnt var í gær.
Viðskipti Kópavogsbæjar við Frjálsa miðlun ehf. hugsanlega brot á lögum samkvæmt skýrslu Deloitte um viðskipti bæjarins við fyrirtækið sem er í eigu dóttur bæjarstjórans, Gunnars Birgissonar. Vinstri græn segja að lög og reglur hafi verið brotnar og vilja að Gunnar víki.
Lesa meira
Bandormur um niðurskurð í ríkisfjármálum verður kynntur á föstudag, en málefnahópar vinnumarkaðar og ríkis eru langt komnir með störf sín og skila nú áfangaskýrslum. Ekki er verið að ræða launalið samninga.
Snemma á ellefta tímanum í kvöld gekk fólk sem komið hafði sér fyrir í húsinu við Fríkirkjuveg 11 sjálfviljugt út. Lögregla var á staðnum og bað fólk að yfirgefa húsið en gerði lítið annað til þess að rýma það.
Húsið við Fríkirkjuveg 11, Templarahöllin, sem stendur í Hallargarðinum í Reykjavík, hefur fengið íbúa. Hópur fólkls flutti inn í húsið í kvöld. Skráður eigandi hússin er Novator, fyrirtæki Björgólfs Thors Björgólfssonar.
Lesa meira
Olíufélögin þrjú, N1, Olís og Skeljungur hafa nú öll lækkað bensínverð og viðurkennt að þau höfðu ekki forsendur til að hækka verð samtímis því að bensíngjald var hækkað á Alþingi.
Fjármálaráðherra segir það samkomulag um iceseve-reikninganna við Breta og Hollendinga sem bíður samþykki Alþingis þeir bestu sem hægt væri að ná. Hann flutti skýrslu um málið á Alþingi í dag. Tekist er á um málið á Alþingi.
Um 500 manns eru nú samankomnir á Austurvelli til þess að mótmæla samningum ríkisstjórnarinnar vegn icesave-málsins. Enn er fólk að tínast að. Fjármálaráðherra mun innan skamms flytja skýrslu um málið inni á Alþingi.
Lesa meira
Fjármálaráðherra mun flytja skýrslu um Icesave-samninganna á Alþingi klukkan 15. Boðað hefur verið til mótmæla á sama tíma gegn því að þingið staðfesti samkomulag við Breta og Hollendinga. Eitthvað af fólki er byrjað að safnast saman á Austurvelli.
Lesa meira
Tilkynnt hefur verið um myndun nýrrar þriggja flokka stjórnar á Grænlandi. Það er stærsti flokkurinn, Inúítaflokkurinn, sem mun leiða stjórn með Demókrötum og Katusseqatigiit. Gömlu flokkarnir Síumút og Atasut verða því utan stjórnar.
Boðun greiðsluverkfall er meðal þess sem stjórn Hagsmunasamtök heimilanna munu leggja fyrir félagsfund á næstunni. Stjórnin segir ríkisstjórnina hafa rift gildandi samfélagssáttmála.
Lesa meira
Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, segir Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa sagt Alþingi ósatt og eigi þess vegna að skoða stöðu sína. Þetta koma fram í ræðu hennar á Alþingi.
Lesa meira
Þingmenn minnihlutaflokkanna á Alþingi krefjast þess að þingfundi verði frestað þar til niðurstaða IceSave-samninganna verði tekin þar á dagksrá. Þau átelja ríkisstjórnina fyrir að tjá sig um málið í fjölmiðlum eftir að hafa kynnt það fyrir minnihlutanum í trúnaði.
Lesa meira
Gerð stöðuleikasáttmála mun halda áfram þrátt fyrir að vaxtalækkun Seðlabankans hafi verið langt undir væntingum í gær. Atvinnurekendur tóku þá ákvörðun í morgun að halda áfram í viðræðunum að gefnum ákveðnum forsendum.
Lesa meira
Heilbrigðisráðherra segir vinnu hafna, í víðtæku samráði, við að leita leiða til þess að bæta tannheilsu barna í landinu. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn í óundirbúnum fyrispurnartíma á Alþingi í dag.
Lesa meira
Formaður Fjölskylduhjálpar Íslands kallar eftir stuðningi við starfsemi samtakanna. Hún segir skjólstæðinga samtakanna þrefallt fleiri en síðasta haust. Samtökin standa nú fyrir söfnun í matarsjóð.
Hvítbók, er ný upplýsingasíða sem halda á utan um upplýsingar um helstu gerendur í aðdraganda efnahagshrunsins. Vefsíðan er vistuð á Bresku Jómfrúreyjum.
Lesa meira
Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi harðlega tillögu Framsóknarmanna um 20% niðurfellingu skulda á Alþingi í dag. Hann sagði hana kosta tvö- til þrjúhundruð milljarða króna og þeim fjármunum væri betur varið í að ráða fólk í vinnu.
Lesa meira
Jóhanna Sigurðardóttir segir að ef tillögur Framsóknarmanna um 20% niðurfellingu yrðu framkvæmdar þá færi Íbúðalánasjóður á hausinn. Hún segir mat Seðlabankans á tillögunum sýna að leið Framsóknar fæli í sér aðra kollsteypu.
Lesa meira
Lilja Mósesdóttir, þingkona Vinstri grænna, hefur skorað á forsætisráðherra að skipa nefnd allra hagsmunaaðila til þess finna leiðir til þess að bæta úr því óréttlæti sem verðtryggingin hefur haftför með sér fyrir íslensk heimili.
Lesa meira
Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, segir að í íslensku samfélagi hafi orðið siðrof í boð ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna.Utandagksrárumræður um stöðu heimilanna fóru fram á Alþingi í dag.
Karlar einoka nánast öll eftirsóttustu embættin í borgarkerfinu. Konur kjörnar í lítt eftirsótt embætti. Einokun karla á þessum embættum mun vera umtöluð meðal kvenna í borgarstjórn, einkum úr Sjálfstæðisflokki.
Tímamót urðu í kosningum á Grænlandi í gær. Þriggja áratuga valdatíma jafnaðarmanna í Síumút flokki er lokið. Sigurvegari var Inúítaflokkurinn sem er lengst til vinstri í grænlenskum stjórnmálum.
Lesa meira
Rúmlega níu af hverjum tíu vilja að ríkisstjórnin leggi mikla áherslu á að leysa vanda heimila og fyrirtækja.Fjórir af hverjum tíu vilja mikila áhersla á aðildarviðræður við ESB. Niðustöður könnunar Capacent Gallup leiða þetta í ljós.
Lesa meira
Formlegar samningaviðræður hefjast á milli fulltrúa nýju bankanna og skilanefnda gömlu bankanna nú í vikunni. Viðræðurnar munu miða að því að ná samkomulagi um greiðslu til gömlu bankanna fyrir yfirteknar eignir og endurfjármögnun nýju bankanna.
Lesa meira
Dalai Lama er nú í heimsókn hjá Alþing og fundar hann þar með Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, og utanríkismálanefnd þingsins. Fundaði með tveimur ráðherrum í dag.
Lesa meira
Fyrir Alþingi liggur nú lagafrumvarp sem miðar að því að aukna möguleika almennings á gjafsókn óháð fjárhagsstöðu. Mælt var fyrir málinu á síðasta þingi, en þá náði það ekki fram að ganga.
Lesa meira
Utanríkissmálanefnd Alþingis mun fjalla sameiginlega um þær tvær tillögur sem komnar eru fram um aðildarumsókn og „mögulega“ aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Nefndin fundaði um tillögurnar í fyrsta sinn í morgun.
Lesa meira
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, segir þau markmið um samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda til ársins 2020, sem ríkisstjórnin samþykkti á föstudag, í raun vera 25%. Hún segir markmiðin mögulega verða enn metnaðarfyllri.
Lesa meira
Landlæknir vísar á bug orðrómi um fjölgun sjálfsvíga í kreppunni. Í skrám embættisins kemur einnig fram að innlögnum á geðdeildir hefur fækkað en ekki fjölgað og notkun geðlyfja hefur heldur ekki aukist.
Danska ríkisstjórnin fer gegn tilmælum Sameinuðuþjóðanna með því að senda 282 Íraka til hættulegra svæða í heimalandi sínu, segja stjórnmálamenn úr flokkahópi vinstri grænna í Norðurlandaráði, sem hafa skrifað dönsku ríkisstjórninni og mótmælt ákvörðuninni.
Deilt er á ferðir og kjör starfsmanna Lífeyrissjóðsins Stapa og sátu talsmenn sjóðsins fyrir svörum fundarmann á ársfundi fyrir helgi. Fyrirspyrjanda finnst svörin rýr.
Íslensk stjórnvöld lýsa yfir vilja til þess að draga úr losun gróðurhúslofttegunda um að minnsta kosti 15% til ársins 2020, miðað við árið 1990.Á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Balí árið 2007 lýsti Ísland yfir stuðningi að þessi samdráttur yrði 25 til 40%.
Lesa meira
Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknar, segir ríkisstjórnina vera hættulega þjóðarhagsmunum, hún hiki ekki við að vanvirða stjórnarskrána og segir tillögu utanríkisráðherra um aðildarumsókn að Evrópusambandinu vera stjórnskipulagt slys.
Lesa meira
Þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa þráspurt Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, um afstöðu til þingsályktunartillögur um Evrópumál. Hann segir að það komi í ljós i atkvæðagreiðslu eftir þinglega meðferð.
Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sér ekki meginmun á þingsályktunartillögum utanríkisráðherra annars vegar og Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hins vegar um – þær miði báðar að því að undirbúa aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Borgarahreyfingingin hefur lesið upp ófrávíkjanleg skilyrði sín fyrir stuðningi við þingsályktunartillögu um aðldarumsókn að Evrópusambandinu. Flokkurinn vill málið strax til nefndar og ætlar ekki að halda fleiri ræður í fyrstu umræðu málsins.
Borgarahreyfingin ætlar ekki að styðja þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að sótt verði um aðild að Evrópusambandinu, að óbreyttu. Þór Saari, þingmaður segir hreyfinguna setja ákveðin skilyrði og þau sé ekki að finna í tillögunni.
Álfheiður Ingadóttir formaður viðskiptanefndar telur bankakerfið rúlla á sjálfstýringu viku eftir viku. Móta verði eigendastefnu gagnvart bönkunum og auglýsa stöður stjórnenda.
Kosningar til landsþings á Grænlandi, fara fram 2. júní. Allt bendir til þess að Ínútaflokkurinn (IA) sem er lengst til vinstri í grænlenskum stjórnmálum verði sigurvegari kosninganna. Formaður flokksins hefur útilokað samstarf við Síumút flokkinn sem hefur verið við völd frá
Lesa meira
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra hefur nú flutt þingsályktunartillögu um aðildarumsóikn að Evrópusambandinu. Stærsta mál sumarþings er því komið á dagskrá og eru 24 þingmenn komnir á mælendaskrá.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að þingflokkar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar ætli að leggja fram sameiginlega tillögu sem varðar Evrópusambandið, gegn þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að sótt verði um aðild.
Þingflokkum Samfylkingar og Vinstri grænna verður kynnt staða ríkisfjármálanna á sameiginlegum fundi í Þjóðminjasafninu klukkan 18 í kvöld. Heimildir Smugunnar segja tilgang fundarins einkum að gera þinmönnum grein fyrir því sem við er að etja í ríkisfjármálum.
Lesa meira
Mikil fundatörn stendur yfir hjá viðskiptanefnd Alþingis í dag og á morgun. Þingmenn stjórnarandstöðunar ganrýndu formann nefndarinnar fyrir fáa fundi í gær, en í dag verða þeir þrír.
Lesa meira
Nú er ljóst að engar framkvæmdir verða vegna Búðarhálsvirkjunar í sumar, þótt öll leyfi liggi fyrir og orkusölusamningur líka. Landsvirkjun hefur ekki aðgang að fjármagni til framkvæmda.
Heimsmarkaðsverð á áli er komið niður 1.400 bandaríkjadali tonnið eftir að hafa hækkað framan af mánuðinum og farið yfir 1.500 dali. Verðið hefur hrunið undanfarið árið eftir að hafa náð sögulegu hámarki, í rúmlega 3.200 dölum, í byrjun júlí í fyrra.
Samtök atvinnnurekenda á Grænlandi leggja til að Alcoa standi straum af kostnaði við hafnir og önnur mannvirki sem þarf í tengslum við nýtt álver á Grænlandi. Þeir efast um að grænlenskt þjóðfélag hagnist á álframleiðslu.
Himinn og haf aðskilur arðsemisútreikninga Landsvirkjunar eftir því út frá hverju er reiknað. Hagfræðingur við Háskóla Íslands segir kostnað við Kárahnjúkavirkjun hafa farið 45% fram úr áætlun, en Landsvirkjun hafibreytt aðferðafræðini í uppfærðu arðsemismati.
Lesa meiraFulltrúar Samstöðu, grasrótarhópa, hittu fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í dag og sendu frá sér lýsingu á samskiptunum síðdegis, sem Samstaða segir mjög góð.
Karlmaður tekur nú sæti í aðalstjórn Kvenréttindafélags Íslands í fyrsta sinn. Andrés Ingi Jónsson var valinn fulltrúi Vinstri grænna í stjórnina í stað Silju Báru Ómarsdóttur.
Fulltrúi Framsóknar í viðskiptanefnd Alþingis lýsti eftir starfi nefndarinnar í umræðum á þinginu nú áðan, þar sem varaformaður nefndarinnar hafði sagt á Bylgjunni í morgun að annríki væri í nefndinni en sjálf hafði hún ekki verið boðuð til fundar.
Vísitala neysluverðs hækkar um 0,4 prósent í maí, samkvæmt spá Íslandsbanka. Sé það rétt fer verðbólga úr 11,9 prósentum í 10,8. Verðbólgan var 18,6 prósent í ársbyrjun.
Þverpólitísk samtök sem hyggjast beita sér fyrir því að Íslendingar skili láni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verða að öllum líkindum stofnuð í vikunni. Aðstandendur samtakanna telja útilokað að fylgja kröfum sjóðsins og viðhalda velferð.
Lesa meira
Hátt í þúsund manns voru samankomin á Austurvelli í dag til þess að kalla eftir kröftugri aðgerðum ríkisstjórnarinnar til bjargar heimilinum í landinu.
Lesa meira
Verkalýðsfélag Akraness skorar á fólk að mæta á Austurvöll á morgun og sýna samstöðu með Hagsmunasamtökum heimilanna. Félagið Framsýn í Þingeyjarsýslum tekur undir með Hagsmunasamtökunum og krefst aðgerða strax í þágu heimilanna.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, ætla að greiða atkvæði gegn þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram á vef Bændablaðsins í dag.
Lesa meira
Spáð er að Seðlabankinn lækki vexti umtalsvert á næsta vaxtaákvörðunardegi í júní, en hægar eftir það. Hluti peningamálastefnunefndar vildi meiri vaxtalækkun síðast en raun varð. Seðlabankastjóri segist ekki lúta stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur stærsta þingflokksherbergið í Alþingishúsinu til umráða en þingflokkur Sjálfstæðisflokks það næst stærsta. Herbergin voru mæld á dögunum eftir að Samfylkingin óskaði eftir því að fá herbergi Sjálfstæðisflokksins.
Lesa meira
Efnahags- skattanefnd heldur fund í dag, en ekki er þingfundur. Alþingismenn mæta næst í þingsal á mánudag klukkan þrjú í óundirbúinn fyrirspurnartíma.
Þingflokkur Vinstri grænna mun funda í fundarherbergi forsætisnefndar Alþingis þar til deila Framsóknarmanna við skrifstofu Alþingis vegna úthlutunar á þingflokksherbergjum hefur verið leyst.
Lesa meira
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent umhverfisráðherra stjórnsýslukæru vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að ekki þurfi að meta Suðvesturlínu, styrkingu raforkuflutningskerfinu á Suðvesturlandi með tengdum framkvæmdum.
38 frumvörp eru á málaskrá ríkisstjórnarinnar á sumarþingi sem hófst síðastliðin föstudag og enginn veit hvað stendur lengi. Flest málin varða viðskipti og fjárhag og koma úr viðskiptaráðuneytinu.
Guðmundur Steingrímsson er eini þingmaður Framsóknarflokksins sem ekki styður þingsályktunartillögu Sivjar Friðleifsdóttur og fleiri um hagsmuni Íslands í loftslagsmálum. Hann telur nóg komið af álverum.
Lesa meira
Þingmenn og varaþingmenn Vinstri grænna fengu minnisblað inn um bréfalúguna hjá sér í gær. Það hafði að geyma einn minnispunkt: „NEI VIÐ ESB“.
Skýrslan sem sýnir að Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum verði gjaldþrota á sex árum verði fyrningarleið ríkisstjórnarinnar að veruleika er frá árinu 2003 og miðar við allt aðrar forsendur en endurúthlutunarleið ríkisstjórnarinnar.
Lesa meira
Íbúðaverð lækkaði um 2,6% frá mars til apríl, en samtals nemur verðlækkun síðustu níu mánaða 10%. Verðið lækkar því hraðar nú en fyrst eftir hrunið og spáð er 20 prósenta lækkun nafnverðs á þessu ári. Í lok næsta árs er því spáð að íbúðir verði nær helmingi ódýrari en þegar þær voru dýrastar.
Fjölskylduhjálpin hefur tekið við 3000 pakkningum af lyfi fyrir fólk sem vill hætta að reykja. Gefandinn er framleiðandi samheitalyfja og telur að 1000 manns geti hætt að reykja með úthlutun Fjölskylduhjálparinnar.
Borgarfulltrúar Vinstri grænna lýstu yfir áhyggjum af framtíð hússins við Fríkirkjuveg 11 á fundi borgarstjórnar gær. Novator keypti húsið fyrir ári ári síðan með fyrirheitum um að varðveita húsið og skapa líf í því, en ekkert hefur gerst í húsinu síðan þá.
Lesa meira
Aðeins 15% landsmanna bera mikið traust til fjölmiðla, en það gerðu 23% þjóðarinnar í desember. Enn treysta flestir Ríkisútvarpinu eða sjö af hverjum tíu, en helmingur aðspurðra treystir Mogganum sem nýtur mest trausts dagblaða.
Ritstjórn DV og blaðamaðurinn Ingi F. Vilhjálmsson brutu ekki siðareglur blaðamanna með umfjöllun um bjórsmygl í Bykogámum og ólögmæt viðskipti Bykostarfsmann með góssið. Jóh Helgi Guðmundsson og Sigurður E. Ragnarsson í Byko kærðu umfjöllunina.
Einar Sveinsson og Karl Wernersson voru formaður og varaformaður stjórnar Glitnis þegar bankinn lánaði þeim fyrir kaupum á hlutabréfum í Icelandair gegn með verðum í hlutabréfunum. Íslandsbanki leysti þessi veð til sín í gær. DV greinir frá þessu í dag.
Lesa meira
Útgerðarmenn sem selt hafa frá sér kvóta, og ávaxtað fé sitt vel, bíða nú eftir því að komast inn í greinina aftur, sagði Ásbjörn Óttarsson, þingmaður frá Rifi, sem telur siðlaus áform uppi hjá kvótasölum sem hafa makað krókinn.
Birgitta Jónsdóttir, þingkona Borgarahreyfingarinnar, hótaði annarri byltingu ef enginn yrði látinn sæta ábyrgð á efnahagshruninu og skuldastaða heimilanna leiðrétt með heildrænum aðgerðum.
Lesa meira
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, gagnrýndi trú Samfylkingarinnar á ESB sem heildarlausn og bað forsætisráðherra um að tala fyrir sinn flokk en ekki ríkisstjórnina, þegar Evrópusambandið væri rætt.
Mikið vantar á að boðaðar aðgerðir ríkisstjórnar dugi til að bjarga heimilunum, að mati Þórs Saari, fyrsta ræðumanns Borgarahreyfingarinnar, sem segir fólki nú ljóst hve alvarlegt ástandið er í íslensku þjóðfélagi.
Lesa meira
Formaður Framsóknarflokksins sagði í ræðu sinni á Alþingi í kvöld að mati margra væri skaðinn nú þegar skeður. Skilja mátti að skaðinn sem hann vísaði til sé sá að Framsókn kom ekki í ríkisstjórn.
Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði skapa þurfi andrúmsloft samstöðu og baráttuvilja svo hægt verði að leysa þau óumflýjanlegu verkefni, sem hann sagði þau erfiðistu sem nokkur ríkisstjórn hefði tekið við, sem við blasa í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.
Lesa meira
Fyrningarleið í sjávarútvegi er þjóðnýting sem skapar óvissu í sjávarútvegi, að mati Bjarna Benediktssonar, sem segir engin svör eða lausnir að finna í stjórnarsáttmála og ekki heldur í stefnuræðu forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í stefnuræðu sinni að ekki mætti láta hagsmuni fárra víkja fyrir hagmunum margra og boðaði víðtækara samráð í íslenskum stjórnmálum en áður hefur þekktst í stefnuræðu sinni í kvöld.
Lesa meira
Stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og umræðum um hana verður útvarpað og sjónvarpað beint frá Alþingi í kvöld. Þar taka margir þingmenn til máls í fyrsta sinn.
Tvö norsk fyrirtæki sóttu um leyfi til rannsókna og vinnslu á olíu á „Drekasvæðinu“ svokallaða. Úboðinu lokaði síðastliðinn föstudag og voru þau opnuð í dag að viðstaddri Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra.
Lesa meira
Norskir, finnskir og danskir sérsveitarmenn þáðu boð Ríkislögreglustóra um að koma á námskeið með íslensku sérsveitinni að æfa sig í klettaklifri og fleiru. Þeir héldu til á öryggissvæðinu á Miðnesheiði meðan æft var.
Stjórnarformaður Strætó bs, segist telja það alveg ljóst að verkefninu „frítt í strætó fyrir námsmenn“ verði ekki haldið áfram á næsta skólaári. Farþegum Strætó hefur fjölgað mikið vegna verkefnisins.
Lesa meira
Samdráttur í evrulöndum var 2,5 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, sem er met. Frá því á fyrsta ársfjórðungi í 2008 nemur samdrátturinn alls 4,6 prósentum.
Lesa meira
Alþingi vísaði frá kæru þess efnis að niðustaða nýafsstaðinna yrði ógild vegna þess að með visvægi atkvæða á milli kjördæma væri brotið gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Vísað var sérákvæðis í stjórnarskránni sem heimilaði ákveðið misvægi.
Lesa meira
Þrír þingmenn Borgarahreyfingar og einn frá Vinstri grænum slepptu guðsþjónustu í Dómkirkjunni vegna þingsetningar og stóðu með almenningi á Austurvelli þegar gengið var til kirkju.
Færeyski Þjóðveldisflokkurinn hvetur Færeyinga til þess að hunsa þjóðaratkvæðagreiðslu Dana um breytingar á lögum um ríkiserfðir, þar sem hvorki Færeyingar né Grænlendingar voru með í ráðum þegar atkvæðagreiðslan var ákveðin.
Neytendasamtökin taka undir gagnrýni Samtaka iðnaðarins og mótmæla hugmyndum heilbrigðisráðherra um að lagður verði á sykurskattur til að hamla gegn tannskemmdum með neyslustýringu.
Útboðsferli vegna sérleyfa til rannsókna- og vinnslu kolvetnis á Drekasvæði rennur út í dag, en það hefur staðið frá 22. janúar síðastliðnum. Áætlað er að niðurstaða liggi fyrir í október.
Lesa meira
Drög að þingsályktunartillögu sem kynnt var forystu stjórnarandstöðunnar í gær hafa verið birt. Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar gagnrýndu að trúnaður gilti um plaggið eftir fund með oddvitum stjórnarflokkanna í gær.
Alþingi verður sett á morgun. Að venju hefst þingsetningarathöfnin með guðsþjónustu í Dómkirkjunni, en húmanistar bjóða nú þingmönnum að hlýða á siðferðilega hugvekju hjá sér á Hótel Borg í stað þess að fara í kirkju.
Lesa meira
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra neitar að staðfesta breytingar á skipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Réttur íbúa er virtur og stjórnsýsla efld, segir formaður Náttúruverndarsamtakanna.
Lesa meira
Niðurstaða Alþingiskosninganna hefur verið kærð og þess krafist að hún verði ógild með þeim rökum að misjafnt atkvæðavægi á milli kjördæma stangist á við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Verði kæran tekin gild þarf að kjósa aftur.
Lesa meira
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins og þinghópur Borgarahreyfingar verða í sambúð á nýju Alþingi. Þau munudeila ritara, kaffiaðstöðu og fundaaðstöðu á kjörtímabilinu.
Lesa meira
Danski forsætisráðherra boðar þjóðaratkvæðagreiðslu á kjörtímabilinu um hvort Danmörk eigi að taka upp evru. Evrópuandstæðingar lýsa furðu á því að ráðherrann sendi skilaboðin gegnum Brussel í stað þess að taka málið upp í þinginu.
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda hefur ekki fengið svör stjórnvalda við tillögu sinni um almennar aðgerðir til lækkunar skulda heimilanna. Málið er í skoðun hjá Seðlabanka en talsmaðurinn kynnir nú tillögurnar.
Forysta stjórnarandstöðunnar fékk í dag að líta drög að þingsályktunartillögu þess efnis að sótt verði um aðild að Evrópusambandinu.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir er þingflokksformaður Vinstri grænna og Álfheiður Ingadóttir var valin varaþingflokksformaður á fundi þingflokksins í dag.
Íslendingar vilja styrkja samstarf við granna sína í vestri ekki síst um nýsköpun og loftslagsmál. Þetta kom fram á ráðstefnu um nýsköpun í norrænum sjávarútvegi í Reykjavík í gær.
Kolefnisjóðurinn Kolviður mun leita til erlendra ferðamanna í sumar. Sjóðurinn mun í samstarfi við flugfélög og bílaleigur bjóða ferðamönnum upp á að kolefnisjafna ferðir sínar.
Lesa meira
Krafa um bindi karla á Alþingi var úrelt hefð og tímana tákn að afnema, segir Hlynur Hallsson, fyrrverandi varaþingmaður VG, sem varð að fá lánað bindi var inni á þingi.
Lesa meira
Menntamálaráðherra telur það umdeilanlegt að fyrirtæki taki að sér kennslu í háskólum.
Lesa meira
Á fundi ríkisstjórnarinnar í dag var ákveðið að Katrín Jakobsdóttir yrði samstarfsráðherra Norðurlandanna samhliða því að vera menntamálaráðherra.
Lesa meira
Launalækkun hálaunaforstjóra hjá ríkinu gæti í sumum tilvikum numið þreföldum verkamannslaunum á mánuði. Bankastjórar ríkisbankanna og forstjóri Landsvirkjunar eru með nærri tvöföld ráðherralaun.
Lesa meira
Færri eru atvinnulausir nú en fyrir mánuði, enda hefur árstíðabundnum störfum fjölgað og ýmiskonar sumarvinna er hafin. Nærri átjánþúsund voru skráðir þegar verst lét, en í dag voru 17.380 á skrá Vinnumálastofnunar.
Lesa meira
Fjörug umræða er á póstlista starfsmanna Háskóla Íslands um aðkomu fyrirtækja að kennslu.
Lesa meira
Spáð er 2,6% hagvexti á árunum 2012-2014, verðbólgu nálægt 2,5% og að atvinnuleysi verði 4,1% af vinnuafli að meðaltali, í endurskoðaðri þjóðhagsspá.
Lesa meira
Engar ákvarðanir um virkjanir í neðri hluta Þjórsár verða teknar fyrr en rammaáætlun liggur fyrir, segir í sáttmála ríkisstjórnarinnar. Stefnt er að því að leggja rammaáætlun fram á Alþingi næsta vetur.
Lesa meira
Ákvarðanir frá gólfinu og upp er aðferðin sem heilbrigðisráðherra kynnti þegar hann hitti forstöðumenn heilbrigðisstofnana á fundi í dag til að lýsa áformum ríkisstjórnarinnar um sparnað og niðurskurð.
Þrír þingmenn vilja verða formenn þingflokks Samfylkingarinnar, samkvæmt frétt Vísis og er málið tekið fyrir á þingflokksfundi sem nú stendur. Vinstri græn velja þingflokksformann á miðvikudag.
Stefnt er að því að hluti breytinga á stjórnaráðinu gangi eftir fyrir mitt kjörtimabil, en óvíst er um aðrar. Atvinnuvegaráðuneyti á að verða til fyrir mitt kjörtímabil. Tímasetning á nýju velferðarráðuneyti fer eftir því hvenær sveitarfélögin taka við málefnum aldraðra.
Ólíkt hljóð var í leiðtogum stjórnarandstöðu gagnvart nýrri ríkisstjórn. Formaður Framsóknar sér sýndarmennsku í ríkisstjórninni, formanni Sjálfstæðisflokks leist ekki á stjórn efnahagsmála en talsmaður Borgarahreyfingarinnar fagnar vinstri stjórn.
Svandís Svavarsdóttir, nýr umhverfisráðherra boðar afnám leyndar á orkuverði til stóriðju. Þetta gerði hún í viðtali við Rúv áður en nýja ríkisstjórnin var kynnt í dag.
Stjórnarsáttmáli vinstri stjórnar undir forystu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra var kynntur í Norræna húsinu í dag. Ríkisstjórnir kveðja og heilsa á Bessastöðum nú síðdegis
Lesa meira
Fjórir nýir ráðherrar verða í nýrri ríkisstjórn vinstri flokkanna, tveimur fleiri en áður. Árni Páll Árnason, Katrín Júlíusdóttir og Svandís Svavarsdóttir og Jón Bjarnason eru ný inn.
Ný ríkisstjórn Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og Samfylkingarinnar kynnir stjórnarsáttmála í Norræna húsinu. Ríkisráðsfundur er á Bessastöðum klukkan fimm og klukkan sex.
Fulltrúar mótmælenda funda nú með forsætisráðherra fjármálaráðherra inni í Stjórnarráðinu. Hátt í eitt hundrað mótmælendur standa fyrir utan og mótmæla „aðgerðarleysi íslenskra stjórnvalda gagnvart stöðu heimilanna í landinu.“
Lesa meira
Ráðgjafastofa um fjármál heimilanna verður efld samkvæmt tillögu félagsmálaráðherra sem samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í morgun. Fjórfallt fleiri munu starfa þar en fyrir hrun.
Lesa meira
Almennir raforkunotendur í Vestur Virginíufylki í Bandaríkjunum gætu þurft að taka á sig verulega hækkun raforkuverðs í kjölfar þess að Century Aluminum lokaði álveri sínu í fylkinu.
Lesa meira
Landsvirkjun mun leggja Háskóla Íslands til, að kostnaðarlausu, kennara í tveggja eininga námskeið um orku- og umhverfismál í sumar.
Lesa meira
Vinstri græn munu halda flokksráðsfund klukkan 9 sunnudaginn. Á fundinum verður lnýr stjórnarsáttmáli við Samfylkinguna lagður fram til samþykkis. Fokksstjórn Samfylkingarinnar mun að öllum líkindum funda í sama tilgangi á sunnudag.
Lesa meira
Fríbúðin á Vatnsstíg hefur verið opnuð aftur, en lögregla lokaði henni í gær, og verður opin eins lengi færi gefst.
Lesa meira
Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra, sagði á fundi um jarðvarmaorku í dag að Evrópusambandið hefði látið í ljós efasemdir um að Íslendingar gætu talið raforku úr jarðvarmavirkjunum til endurnýjanlegrar orku(e. renewable energy).
Lesa meira
Borgarahreyfingin telur að þingmenn fjarlægist þjóðina með gamaldags yfirstéttarfrösum eins og hæstvirtur og háttvirtur. Þinghópi samtakanna finnst krafa um hálstau jafngamaldags og hárkollur breskra dómara.
Nýting jarðavarma til raforkuframleiðslu er ekki sjálfbær samkvæmt Stefáni Arnórssyni prófessor við jarðvísindadeild Háskóla Íslands. Þá hefur brennisteinsvetnismengun fjórfaldast á undanförnum tveim áratugum sem er öfug þróun í öðrum Evrópulöndum.
Lesa meira
Kreppan er skollin á af fullum þunga ef marka má beiðnir um aðstoð til Hjálparstarfs kirkjunnar. Í apríl var fjölgaði hjálparbeiðnum um nærri úr 183 í 804.
Lesa meira
Iníúítar í Kanada bregðast hart við sölubanni ESB á selaafurðum sem Evrópuþingið samþykkti í gær. Undanþágur eru þó til frumbyggja en samtökin vilja samt að Kanadastjórn kæri bannið til Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
Hústökufólkið á Vatnsstíg hefur opnað fríbúð sína á nýjan leik og sýna þar samstöðu með tökuhúsi í Póllandi. Fulltrúar eigenda hússins við tilkynntu fólkinu áðan að því yrði komið út fyrir kvöldið.
Þinghópur Borgarahreyfingarinnar setur þrjú skilyrði til þess að þingmenn hópsins geti stutt þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Össur Skarphéðinsson leit við hjá hreyfingunni í morgun.
Bæjarsjóður Reykjanesbæjar tapaði 8.1 milljarði króna á síðasta ári, en í fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir tapi upp á 32 milljónir.
Lesa meira
Borgarahreyfingin ræður nú ráðum sínum um afstöðu til aðildarumsóknar að Evrópusambandinu. Í stefnuskrá flokksins fyrir kosningar kom fram stuðningur við að sótt yrði um. En ljóst er að sá stuðningur er skilyrtur og ólíklegt að þingmenn hreyfingarinnar styðji tillögu um umsókn á sumarþingi.
Seðlabankinn auglýsti í dag eftir lögaðilum sem vilja taka erlend lán sem tekin yrðu í krónum en endurgreidd í erlendum gjaldeyri. Nokkur áhugi mun vera fyrir þessu samkvæmt heimildum Smugunnar.
Lesa meira
Borgarahreyfingin hefur sent beiðni til Orkustofnunar um að raforkuverð til álbræðslu verði gert opinbert. Hreyfingin hefur líka kvartað til ESA vegna skorts á gagnsæi. Almenningur og smærri fyrirtæki eigi að sitja við sama auðlindaborð og stórfyrirtækin.
Viðskiptaráðherra vonar að Seðlabankinn lækki vexti djarflega og forsætisráðherra segist jafnvel búast við því að þeir verði komnir niður í 2-3 prósent í árslok.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna ræða í dag við aðila vinnumarkaðarins til að freista þess að ná sáttagjörð um hagræðingaraðgerðir næstu þrjú árin.
Eftir fimm ár í Evrópusambandinu, 10 ára sjálfstæði og 50 ár undir sovéskri stjórn stríða Eystrasaltslöndin við kreppu sem óvíða er harðari og mun verri en spár gerðu ráð fyrir.
Forstöðmaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna segir mikið af fólki sem íhugar greiðsluverkfall hafa haft samband. Hún segir slíkt ekki vera neina launs og segir fjölda úrræða vera til staðar sem þau vísi fólki á.
Lesa meira
Fjármálaráðherra hefur ákveðið að starfsmenn ríkisins fái orlofsuppbót í júní, eins og aðrir, þótt kjarasamningar þeirra séu lausir. Sú staða hefði að óbreyttu hindrað að þeir fengju uppbótina.
Reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað er enn í smíðum. Greiðslurnar miðast við gildistöku laganna í byrjun mars og ná bæði til íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir viðtökurnar sem hann fékk á Austurvelli 1. maí ekki hafa verið áfall. Hann ekki ofhaldinn í launum og ekki ótrúverðugur vegna virkni í pólitík, enda hafi hann oft gagnrýnt Samfylkinguna.
Það skiptist á með skini og skúrum hjá þeim mikla fjölda sem tók þátt í kröfugöngu alþýðunnar í Reykjavík í dag. Gengið var frá Hlemmi og niður á Austurvöll þar sem flutt voru ávörp.
Lesa meira
Hópur fundargesta á baráttufundi verkalýðsins á Austurvelli í dag púuðu og börðu búsáhöld allan tíman sem Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, hélt ræðu. Lítil stemmning var fyrir ræðu Gylfa á meðal annarra fundargesta.
Lesa meira
Verkalýðshreyfingin undirbýr nú baráttudag verkalýðsins um allt land. Í Reykjavík verður haldið upp á daginn á Austurvelli í fyrsta skipti frá því Ingólfstorg varð fullbúið í núverandi mynd. Margir fagna staðarvalinu.
Sjávarútvegsráðherra hefur gefið út reglugerð um afmörkuð svæði til hvalaskoðunar, þar sem óheimilt verður að veiða hvali. Þau eru tvö, annað á Faxaflóa og hitt Norður af Tjörnesi.
Jóhanna Sigurðardótir og Steingrímur J. Sigfússon settust að samningsborði ásamt sínu fólki í Norræna húsinu klukkan tvö. Viðræður eru alltaf sagðar í rétta átt og að bjartsýni ríki, um að flokkarnir nái saman, án Framsóknar.
Lántakendur hjá gömlu bönkunum vilja stefna þeim til samningsrofs, þar sem forsendur fyrir lánunum hafi brostið. Á fjórða hundrað manns hafa skráð sig til þáttöku í hópmálssókn, en lög um slíka málsókn skortir. Í Bítinu á Bylgjunni var rætt við lögmann hópsins.
Fólk sem vill stofna innlánsreikning í banka sem það hefur ekki áður haft viðskipti við, þarf nú að gefa nákvæmar upplýsingar um fjárhag sinn. Mörgum þykir þetta skjóta skökku við, nær væri að bankarnir gerðu grein fyrir sinni stöðu.
Lesa meira
Nokkrir starfshópar vinna nú að málum tengdum stjórnarmyndun, sem ekki sér fyrir endan á. Ríkisstjórnin vinnur áfram eins og fyrir kosningar, en nú með þingmeirihluta á bak við sig.
Þingflokksfundir eru í nú síðdegis í báðum ríkisstjórnarflokkunum þar sem rætt er um helstu verkefni ríkisstjórnarinnar og ganginn í stjórnarmyndunarviðræðum.
Lesa meira
Samtök Iðnaðarins fá á baukinn fyrir auglýsingu sem birt var í Fréttablaðinu, en hefur verið stöðvuð. Nú krefjast fæðingar og kvensjúkdómalæknar þess að samtökin biðji íslenskar konur og lækna afsökunar á ruddaskapnum.
Samtök iðnaðarins hafa ákveðið að hætta birtingu blaðaauglýsingar með fyrirsögninni: „Velur þú fagmann eða fúskara?“ og segjast hafa orðið á mistök. Auglýsingin hefur vakið hörð viðbrögð, meðal annars frá Femínistafélagi Íslands.
Lesa meira
Ólíkum sögum fer af stefnu og vilja Íslendinga í Evrópumálum í umfjöllun norrænna fjölmiðla. Nei-hreyfingar telja sterkan meirihluta andsnúinn aðild, hvað sem viðræðum líði.
Ungir Jafnaðarmenn fagna því tækifæri sem úrslit Alþingiskosninganna gefa til þess að mynda raunverulega félagshyggju- og velferðarstjórn, en setja það skilyrði fyrir þáttöku Samfylkinginarinnar í slíkri stjórn að sótt verði um aðild að Evrópusambandinu sem fyrst.
Lesa meira
Þau Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir munu hittast í Alþingishúsinu klukkan 17 til þess að ræða áframhaldandi stjórnarsamstarf Vinstri grænna og Samfylkingarinnar.
Lesa meira
Lausum störfum fjölgar, krónan styrkist og dregur úr svartsýni. Væntingavísitalan er hækkar í annað mánuðinn í röð, en áður hafði svartsýni aukist samfellt frá bankahruninu í allan vetur.
Starfshópur stjórnarflokkanna um breytingar á stjórnarráðinu veltir öllum steinum og stefnir að breytingum. Óvíst er hvort þær taka gildi strax eða um áramót. Ráðuneytum verður ekki fjölgað.
Prestastefna hefst með messu í Kópavogskirkju í dag. Meginefni hennar eru staða samfélags og kirkju út frá umræðu í þjóðfélaginu um endurmat og nýja sýn á öllum sviðum.
Lesa meira
Starfshópur ríkisstjórnarflokkanna um stefnu í Evrópusambandsmálum tók til starfa strax seinnipartinn í gær og gengur vinnan vel. Nú standa yfir þingflokksfundir og í kjölfar þeirra hefst ríkisstjórnarfundur.
Lesa meira
Formlegar viðræður um áframhaldandi stjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og Vinstri grænna eru hafnar í Norræna húsinu. Þingflokkar beggja flokka veittu forystufólki sínu fullt umboð til verksins í dag.
Lesa meira
Mikið hefur hægt á fjölguninni á atvinnuleysiskrá. Tæplega 18 þúsund eru nú á skrá og hefur fjöldinn haldist svipaður síðustu vikur. Skráð atvinnuleysi í mars var 8.9% að meðaltali eða um 14.546 manns.
Lesa meira
Allar líkur eru á því að tveggja flokka ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna verði mynduð hratt og örugglega. Lítil löngun er til að hafa Framsókn með í för.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna hefja viðræður um áframhaldandi vinstri stjórn í dag. Samfylkingin og vinstri græn hafa fimm manna meirihluta á Alþingi. Aldrei hafa fleiri konur komist inn á þing.
Century Aluminum tapaði 114,6 milljónum dala á fyrsta árfjórðungi árins, sem er meira tapa en greiningaraðilar höfðu búist við. Fyrirtækið býst við að draga frekar úr framleiðslu sinni en það hefur nú þegar gert og hefur hægt á framkvæmdum í Helguvík.
Lesa meira
Tvö hvalaskoðunarfyrirtæki hafa kvartað til Umboðsmanns Alþingis yfir því að Steingrímur J. Sigfússon, hafi ekki endurskoðað ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar um hvalveiðar. Kvörtunin beinist að báðum ráðherrunum, en fyrst og fremst að niðurstöðu sem nú liggur fyrir.
Þrír stjórnmálamenn úr þremur flokkum fengu 2 milljónir frá Baugi á árinu 2006 samkvæmt dv.is. Þetta voru Björn Ingi Hrafnsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Steinunn Valdís Óskarsdóttir. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra fékk 200 þúsund krónur.
Lesa meira
Þeir Sigurður Hjaltested og Bendikt Guðmundsson tilkynntu í dag að þeir væru í forsvari fyrir „Áhugafólk um endurreisn Íslands“. Hópurinn hefur birt nafnlausar auglýsingar sem Vinstri græn og Samfylkingin segja innihalda lygar og rangfærslur um stefnu sína.
Lesa meiraDv.is boðar birtingu styrkja til þingmanna þriggja flokka vegna prófkjara fyrir síðustu Alþingiskosningar. Blaðið ætlar að grafast fyrir um það áfram hvort enn fleiri hafi fengið Baugsfé, en dv nefnir þó strax Jóhönnu Sigurðardóttur og Guðna Ágústsson.
Vinstri græn gera enga athugasemd við að Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi fái frest fram yfir kosningar til að svara fyrir um myndbirtingu af Steingrími J. Sigfússyni í heimildarleysi. VG kærði líka mynd frá Vefþjóðviljanum sem birt er sem auglýsing í blöðum í dag.
Þingmenn þáðu milljónir frá stórfyrirtækjum í prófkjörsbaráttu fyrir síðustu kosningar. Borgarstjórn vísaði ósk um birtingu prófkjörsstyrkja borgarfulltrúa í nefnd og Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki endurgreitt 55 milljóna króna styrkina frá FL Group og Landsbanka.
Borgarstjórn Reykjavíkur vísaði í dag tillögu um að innri endurskoðun borgarinnar færi yfir og birti upplýsingar um fjárstyrki sem kjörnir fulltrúar þáðu vegna prófkjara fyrir síðustu borgarstjórnarkosninga til forsætisnefndar borgarinnar.
Lesa meira
„Áhugafólk um endurreisn Íslands“ hefur enn ekki komið fram í dagsljósið. Þór Jónsson, milligöngumaður hópsins, taldi um miðjan dag í gær að þau væru að fara að gera það.
Í kosningaauglýsingum Sjálfstæðisflokksins er lofað 6000 störfum vegna tveggja nýrra álvera. Náttúruverndarsamtök Íslands hafa ekki séð jafn háar tölur fyrr, en þau fara fram á að Sjálfstæðisflokkurinn upplýsi hvaðan orkan eigi að koma.
Tillaga um að innri endurskoðun Reykjavíkurborgar yfirfari og birti upplýsingar um fjárstyrki sem kjörnir fulltrúar þáðu vegna prófkjara fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar verður lögð fram á borgarstjórnarfundi í dag.
Femínstafélag Íslands, Jafnréttisstofa, Zontakonur og fleiri samtök kvenna hafa lýst yfir eindreginni ánægju með að kaup á vændi hafi verið gerð refsiverð. Fyrrverandi dómsmálaráðherra er ekki sáttur og segir frumvarpinu hafa verið nauðgað gegnum Alþingi
Framkvæmdastjóri og stýra Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hafa sent Fréttablaðinu og Morgunblaðinu bréf vegna nafnlausrar heilsíðuauglýsingar þar sem varað er við vinstri stefnu. Þau vilja vita hver borgaði auglýsinguna.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir nafnlausa auglýsingu gegn stefnu vinstri flokkanna, til marks um örvæntingu hinna. Hann er hugsi yfir siðferði ritstjórna sem vilji taka ábyrgð á nafnlausum óhróðri.
Lesa meira
Báðir formenn ríkisstjórnarflokkanna vilja að farið verði yfir alla styrki til stjórnmálaflokka frá aldamótum og Ríkisendurskoðandi meti hvort hagsmunatengsl við fyrirtæki tengist styrkjunum.
Finnur Dellsén, kosningastjóri Vinstri grænna, segir auglýsingu „Áhugafólks um endurreisn Íslands“ um skattastefnu vinstriflokkanna innihalda beina lygi og mjög villandi framsetningu og greinilega ætlað að villa um fyrir kjósendum.
Lesa meira
Þór Jónsson, almannatengill, hafði milligöngu um kaup á nafnlausri auglýsingu þar sem varað er við skattahækkunum vinstri stjórnar sem setja muni almenning á vonarvöl. Þór býst við að aðstandendur auglýsingarinnar stígi fram í dag.
Norðmenn hafa ekki lýst sig fylgjandi aðild að Evrópusambandinu í skoðanakönnunum síðan í 2005. Meirihlutinn hefur lýst andstöðu við aðild fimmtíu sinnum í röð.
Landsfundur Zontasambands Íslands fagnar nýjum lögum sem gera refsivert að kaupa vændi. Lögin gefi mikilvæg skilaboð um að ekki sé hægt að sætta sig við kaup á líkama fólks og að menn nýti sér neyð annarra í kynferðislegum tilgangi.
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna sagði á Alþingi í dag að þjóðinn hefði tapað. Lýðræðið hefði tapað þegar Sjálfstæðisflokkurinn stöðvaði stjórnarskrárfrumvarpið.
Starfsmenn franskra fyrirtækja hafa síðustu vikurnar mótmælt órökstuddum uppsögnum með því að læsa forstjórana inni. Hætt hefur verið við uppsagnir í nokkrum tilvikum vegna þessa.
Alþjóðagjaldeyrisjóðurinn veitir Íslandi næsta skammt af láni, þegar hann hefur farið yfir endurskoðunarskýrslu um stöðu efnahagsmála. Seðlabankinn hefur gjaldeyrismál og jöklabréf í hæsta forgangi, en fjármálaráðherra segir sjóðinn ánægðan með vinnu íslenskra stjórnvalda.
Sjálfstæðisflokkurinn missir nær þriðjungs fylgi og missir einn þingsæti í Norðausturkjördæmi ef marka má niðurstöðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup og er nú fjórði flokkurinn í kjördæminu. Vinstri græn eru stærst.
Lesa meira
Lögreglan hefur nú brotið sér leið upp á aðra hæð hússins við Vatnsstíg 4 og að hústökufólkinu sem þar hafði komið sér fyrir. Fólkið hefur nú verið handtekið og er nú flutt eitt af öðru út í lögreglubíl.
Lesa meira
Borgarahreyfingin er nálægt því að fá kjödæmakjörinn þingmann í Reykjavík norður samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist aðeins 22%.
Lesa meira
Hústökufókið við Vatnsstíg 4 hefur nú byrgt sig inni í húsinu, en eigendur hússins hafa hótað því að lögreglan muni rýma húsið klukkan 16 í dag. Hátt í eitt hundrað manns eru nú samankomin fyrir utan húsið til þess að sýna hústökufólkinu stuðning.
Eigendur hússins við Vatnsstíg 4, þar sem hústökufólk hefur haldið uppi róttækri félagsstarfsemi síðan á fimmtudag, vilja fólkið hafi sig á brott fyrir klukkan 16 í dag, ella muni lögreglan bera það út. Hústökufólkið ætlar ekki að yfirgefa.
Lesa meira
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra að eigið fél Lánasjóðs íslenskra námsmanna verði eflt til þess að veita námslán vegna sumaranna. Hún mun nú ganga til viðræðna við háskólana um hvernig námframboði verði hagað í sumar.
Lesa meira
Hópur fólks fór síðastliðinn fimmtudag inn í yfirgefið hús við Vatnsstíg 4 opnaði þar félagsrými fyrir „róttæka starfsemi andspyrnuhópa, listamanna, hugsuða og bara allra sem áhuga hafa á slíku“.
Lesa meira
Búsáhaldabyltingin var mætt með trommur, flautur, potta og pönnur til að mótmæla spillingu, málþófi Sjálfstæðismanna, sjálftöku og stjórnmálum. Fólkið vill nýja stjórnarskrá og stjórnlagaþing.
Moody‘s lækkaði í gær lánshæfismat Century Aluminum vegna neikvæðra framtíðarhorfa í rekstri fyrirtækisins.
Lesa meira
Þingflokksformenn náðu samkomulagi um að ræða tímabundna hækkun vaxtabóta og greiðsluaðlögunarfrumvarp á undan stjórnarskrármáli. Áform eru um að ræða stjórnarskrána áfram í kvöld.
Smugan hefur sent framkvæmdastjórum stjórnmálaflokkanna sem eiga fulltrúa á Alþingi fyrirspurn um það hvort þeir séu tilbúnir að upplýsa um alla styrki frá lögaðilum sem eru hærri en 300 þúsund krónur.
Lesa meiraEngin svör eða skýringar hafa komið frá Sjálfstæðisflokknum vegna 30 milljóna styrkst sem flokkurinn fékk frá FL-Group í árslok 2006, nokkrum dögum áður en ný lög um stjórnmálaflokka tóku gildi.
Lesa meira
Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur fjölmiðla hafa brugðist í umfjöllun um stjórnarskrármálið. Hann vill að Ríkisútvarpið geri vandaðan fréttaskýringaþátt um stjórnarskrármálið sem hann kallar krabbamein á samfélaginu.
Samþykktum Reykjavíkurborgar var í gær þannig að aðrir en borgarfulltrúar geta tekið sæti í borgarráði. Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingar segja þetta stangast á við lög og að verið sé að sníða reglur að Framsóknarflokknum.
Fjöldi einstaklinga sendir nú tölvupóst til þingmanna og fjölmiðla, þar sem þess er krafist að upplýst verði um skilyrðin sem liggja til grundvallar láninu frá Alþjóðagjaldeyrissjónum og hvað gerist geti Íslendingar ekki staðið við skuldbindingarnar.
Ungir jafnaðarmenn vilja að stjórnvöld tryggi sumarannir fyrir háskólanema til þess að mæta atvinnuleysi þeirra í sumar.
Lesa meira
Stýrivextir Seðlabanka Íslands eru nú komnir niður í 15,5%. Lækkunin er í samræmi við væntingar og jafnvel örlítið meiri, en greiningar gerðu ráð fyrir. Næsti vaxtaákvörðunardagur er í júní.
Forsætisráðherra kynnti verkefnalista Samfylkingar og Vinstri grænna fyrir fréttamönnum í dag og bætti við að reynt yrði að semja við Sjálfstæðismenn um stjórnarskrárfrumvarpið
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, segja Sjálfstæðismenn ekki hafa skýrt á nokkurn hátt hvað þeir hafa á móti stjórnarskrárfrumvarpinu, þótt umræða um það hafi staðið í 44 klukkustundir.
Nefnd á vegum sjávarútvegsráðherra hefur gert tillögu um endurskoðun laga um hvalveiðar. Tillagan liggur frammi til kynningar, en ekki verða lögð fram fleiri frumvörp á Alþingi fyrir kosningnar.
Nítján þingmenn, auk flutningsmanns, studdu varaformann Sjálfstæðisflokksins sem flutti tillögu um að stjórnarskrárfrumvarp yrði flutt aftur fyrir mikilvægari mál á dagskrá þingsins. Tillagan var felld og greiddi 31 þingmaður atkvæði gegn henni.
Greining Íslandsbanka spáir því að Seðlabanki Íslands lækki vexti um eitt prósent á miðvikudag, aukavaxtaákvörðunardegi. Peningastefnunefnd ræður ráðum sínum í dag og á morgun.
21 þingmaður er nú á mælendaskrá á Alþingi, í umræðu um stjórnarskrárfrumvarpsið, sem Sjálfstæðismenn, einir fulltrúa flokkanna berjast nú gegn af hörku.
Væringar í Frjálslynda flokknum eru ekki á enda. Guðrún María Óskarsdóttir, sem bauð sig fram til forystu í flokknum, ásamt Ásgerði Jónu Flosadóttur, en hætti við, er farin úr flokknum.
Almenningur í Strassborg varð fyrir verulegum óþægindum vegna gífurlegrar öryggisgæslu vegna Nató-fundar. Heilum hverfum var lokað. Átök urðu milli lögreglu og stjórnleysingja sem friðsælir mótmælendur segja að hafi eyðilegt mótmælin.
Loftslagsmál, líffræðileg fjölbreytni, sjálfbær neysla og framleiðsla, eru meginþættir í stefnumótun norrænu ráðherranefndarinnar í umhverfismálum til þriggja ára.
Fimm manna stjórn Landsvirkjunar var kosin á aðalfundi í dag. Þrír af fimm stjórnarmönnum sitja áfram. Bryndís Hlöðversdóttir er nýr stjórnarformaður. .
Lesa meira
Barak Obama, Bandaríkjaforseti, kom til Strassborgar í morgun, þjóðarleiðtogar koma nú hver af öðrum til borgarinnar. Össur Skarphéðinsson sækir fundinn af hálfu Íslands. Friðarráðstefna er samtímis í Strassborg, fulltrúar Íslendinga sækja hana líka.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks telur óheppilegt að Jóhanna Sigurðardóttir, sitji heima, en í stað þess að sækja Nató-fund í Strassborg . Utanríkisráðherra fer á fundinn, en forsætisráðherra forgangsraðar verkefnum á Íslandi.
Lesa meira
Fjárveitingar til samgönguframkvæmda eru skornar niður um sex milljarða, en engu að síður er árið 2009 næstmesta framkvæmdaár sögunnar í samgöngumálum. Mörgum verkefnum er samt frestað.
„Nú er búið að boða Alþingi götunnar til mótmæla á Austurvelli, “ sagði Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi og vísaði í Smuguna. Hann telur nú ljóst hverjir stýri Alþingi götunnar.
Lesa meira
Samningar um upplýsingar úr skattaskjólum Cayman-eyja var undirritaður í Stokkhólmi í gær 1. apríl. Norðurlönd sömdu í sameinginu um upplýsingaskipti um skattamál, en samningar þessir hafa verið í undirbúningi síðustu mánuði.
Sjálfstæðismenn ræða nú fundarstjórn forseta, sem neitað ósk þeirra um að skjóta umræðum um Stjórnarskrárfrumvarp aftur fyrir mál sem ekki væri ágreiningur um.
Forsætisráðherra hafnaði nú áðan áskorun formanns Sjálfstæðisflokksins um að hætta við þrjár af fjórum fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskrá. Jóhanna Sigurðardóttir segir Sjálfstæðisflokkinn tefja mikilvæg mál. Bjarni Ben. segir slíkt hið sama um ríkisstjórnina.
Stjórnarskrárfrumvarp er á dagskrá Alþingis í dag. Á blaðamannafundi Sjálfstæðisforystunnar í morgun kom fram að hún telur skyldu sína og hlutverk að verjast málinu. Utanríkisráðherra telur formann Sjálfstæðisflokksins pólitískt áttavilltan í áherslum sínum.
Skráð atvinnuleysi í febrúar var 8,2% eða 13.276 manns, en í morgun voru nærri 17.900 á atvinnuleysiskrá. Vinnumálastofnun telur líklegt að atvinnuleysi í mars muni mælist á bilinu 9,1 - 9,6%.
Stúdentar í Háskóla Íslands sitja nú í verkfalli fyrir utan skrifstofu rektors og hafa setið þar frá í morgun. Á Háskólaráðsfundi í dag hyggjast stúdentar krefjast skjótra svara um hvernig menntamálaráðuneyti og Háskólinn svara kallinu um sumarnám.
Breytendur, ungliðahreyfing Hjálparstarfs kirkjunnar, vilja ekki íslenskt sérákvæði í loftslagsmálum, nema því fylgi lagafrumvarp sem skyldi íslensku þjóðina til að bæta skaða sem aukin losun gróðurhúsalofttegunda veldur í þróunarlöndum.
Lesa meira
Samkvæmt nýrri reglugerð fjármálaráðherra verður seldur kaldur bjór í öllum Vínbúðum ÁTVR og opið til 22 í einni búð alla daga vikunnar. Vínbúðin í Austurstræti er opin til 22 í kvöld.
Vændisfrumvarpið, sem bannar kaup á vændi, var afgreitt út úr allsherjarnefnd á Alþingi í dag, gegn atkvæðum Sjálfstæðismanna, sem eru harðir á móti og segjast vilja rannsaka málið betur.
Landsvirkjun getur ekki staðið við skuldbindingar sínar nema út næsta ár, þótt ekkert verði fjárfest. Erlendis spyrja menn hvort ríkissjóður geti ábyrgst skuldir fyrirtækisins. Ríkisútvarpið greindi frá þessu í gær. Landsvirkjun lýsir stöðunni sem góðri, miðað við aðra.
Borgarahreyfingin - þjóðin á þing hefur aflað sér lögfræðiálits, vegna frumvarps um persónukjör, þar sem fram kemur að einfaldur meirihluti nægi til að lögfesta málið. Hreyfingin skorar á Samfylkingu, Framsókn og Vinstri græn að standa við fyrirheit um persónukjör
Formaður stjórnarskárnefndar býst við málþófi Sjálfstæðismanna vegna stjórnarskrárfrumvarpsins. Björn Bjarnason fulltrúi Sjálfstæðismanna telur fáheyrt að stjórnarskrárbreytingar séu afgreiddar í ágreiningi.
Gengi krónu gagnvart helstu gjaldmiðlum hefur hækkað rúm tvö prósent, eftir að neyðarlög voru sett í gærkvöld. Íslandsbanki telur að með lögunum sé barið í augljóstasta brest gjaldeyrishaftanna.
Kostnaður við prófkjörsbaráttu hefur verið til umræðu síðustu vikunnar, að hann sé uppi á borðinu og ekki úr hófi mikill. Björn Valur Gíslason, náði hinsvegar 3. sætinu í prófkjöri, með óvenjulegum aðferðum.
Varaformaður Framsóknar segist ekki hafa upplifað á sex ára þingferli sínum, að reynt væri að stöðva brýn hagsmunamál þjóðarinnar, vegna annarra óskyldra mála. Með ólíkindum, segir Birkir Jón Jónsson.
Bjarni Benediktsson lýsti óánægju með ríkisstjórnina í annarri umræðu um neyðarlög um gjaldeyrishöft á Alþingi nú áðan, en sagði lögin svosem geta þétt í einhver göt í haftaumhverfi gjaldeyris.
Sjálfstæðisflokkurinn reyndi að koma í veg fyrir afgreiðslu á neyðarlögum um gjaldeyri í dag til þess að ná fram vilja sínum í stjórnarskrármálinu. Þingfundi var ítrekað frestað síðdegis meðan reynt var að ná samkomulagi við Sjálfstæðismenn.
Lesa meira
Fyrsta áfangaskýrsla Velferðarvaktarinnar, stýrihóps sem ríkisstjórnin setti á fót í byrjun febrúar til þess að greina félagslegar og fjárhagslegar afleiðingar efnahagshrunsins á fjölskyldur og einstaklinga í landinu.
Lesa meira
Niðurstaða fundar utanríkisráðherra Íslands og Bretlands í Lundúnum í dag var vilji beggja til að ljúka viðræðum vegna IceSave, með öðrum hluteigandi aðilum, á ásættanlegan hátt fyrir báðar þjóðir, eins fljótt og kostur er.
Lesa meira
Utanríkisráðherrar Bretlands og Íslands ræddust við í London í morgun um lausn Icesave deilunnar. Samninganefnd um Icesave er stödd í London og viðræður um vandann eru líka pólitísku plani í Hollandi.
Varaformanni Sjálfstæðisflokksins finnst ástæðulaust að Alþingi verji tíma í að ræða kynjaða hagstjórn og vændisfrumvarp. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vill frekar ræða alvörumál á Alþingi.
Stjórnlagaþing stendur í Sjálfstæðisflokknum og nú er ljóst orðið að þingstörfum lýkur ekki fyrr en í næstu viku. Nokkur önnur mál eru enn óafgreidd, en það er stjórnlagaþingið sem tefur.
Björgólfur Thor Björgólfsson og Björgólfur Guðmundsson, bera af sér skýrslu þrotabússtjóra Samson, sem sagt hefur verið frá í fjölmiðlum. Skiptastjóri átti erfitt með að hafa uppi á fjármunum sem hann taldi hafa verið flutta milli félaga í eigu feðganna og í skjól meðal annars á Tortola.
Davíð Oddsson komst tímabundið á lista yfir menn sem hafa sagst vera Jesús Kristur á vefsíðunni Wikipedia eftir ræðu sína á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um helgina.
Lesa meira
Hlutabréf í álframleiðslufyrirtækjum tóku dýfu í gær eftir að Barack Obaba, forseti Bandaríkjanna, sagðist ekki ætla að skera bandarísku bílaframleiðendurna General Motors og Chrysler úr snörunni til lengri tíma með opinberu fé.
Lesa meira
Margt fólk sem farið hefur í fararbroddi fyrir andstöðunni gegn hernaðarbandalaginu árum og áratugum saman mætti á útifund Samtaka hernaðarandstæðinga á Austurvelli nú síðdegis.
Lesa meira
Óvissa skuldugra heimila, með gengislán, er bráðavandi sem enn er óleystur, segja Hagsmunasamtök heimilanna og skora á ríkisstjórnina og heimilin í landinu að láta ekki blekkjast af bráðabirgðalausnum og gylliboðum fjármálastofnana.
Friðarsinnar ætla að slá botninn úr hernaðarbandalaginu NATO á Austurvelli klukkan 17 í dag. 60 ár eru liðin frá því að Ísland gekk í bandalagið. Inngöngunni var þá mótmælt á Austurvelli af miklum mannfjölda.
Geira á Goldfinger og Drífu Snædal ber ekki saman um hvort súlukóngurinn hafi styrkt Vinstri græna fyrir síðustu kosningar. Drífa segir að þá eigi í hlut eitthvert fyrirtæki sem flokkurinn hafi ekki getað tengdt við Geira.
Jóhanna Sigurðardóttir segir formennsku sína í Samfylkingunni ekki vera skammtímalausn. Hún minnti á að Jóhanna Egilsdóttir amma hennar varð hundrað ára.
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara fullyrðir að rannsókn á íslenska efnahagshruninu muni skila árangri. Hún telur að fjármálamenn hrunda kerfisins hafi ekki átt hægt um vik með að fela slóð sína. Hægt sé að fylgja slóð peninganna þótt heillangur tími sé liðinn.
Umhverfisráðherra og fjármálaráðherra, undirrituðu í dag stefnu um vistvæn innkaup hjá ríkinu. Getur dregið úr losun gróðurhúsaloftegunda um allt að 60 til 70 prósent að sögn umhverfisráðherra.
Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra hefur boðið starfssystur sinni í Noregi að ísland haldi fund strandríkja um makrílveiðar í lögsögum strandríkjanna. Samsvarandi boð verður sent til Færeyja og ESB eftir helgi.
Bæjarráð Árborgar vill að orka sem framleidd er á Suðurlandi sé nýtt á Suðurlandi. Bæði orkuöflun og orkunýting sé sjálfbær og styðji atvinnuþróun á svæðinu.
Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur áhyggjur af því að Evrópusambandsaðild komi í veg fyrir yfirráð Sjálfstæðisflokksins yfir sjávarútvegsauðlindinni.
Lesa meira
Umboðsmaður Alþingis telur að samgönguráðuneytið hafi brugðist við rannsókn ábúenda í Skálmholts í Flóa, sem kærði samkomulag Flóahrepps og Landsvirkjunar vegna Urriðafossvirkjunar. Taka þurfi afstöðu til þess hvort Landsvirkjun hafi keypt skipulagið.
Lesa meira
Brottvikningu fimm hælisleitenda sem flytja átti úr landi í morgun til Grikklands í gegnum Kaupmannahöfn var frestað samkvæmt fyrirskipun dómsmálaráðherra.
Lesa meiraVinstri græn, Framsókn og Borgarahreyfingin bæta við sig í vikulegri fylgiskönnun Gallup fyrir Morgunblaðið og RÚV. Vinstri græn fara á einni viku úr 24,6% í 26,2% og eru nú næststærsti flokkurinn.
Lesa meiraSamtök um réttlæti, þar sem Sævar Ciesielski er talsmaður hefur listabókstafinn N og Lýðræðishreyfingin Ástþórs Magnússonar hefur fengið úthlutað listabókstafnum P vegna Alþingiskosninganna í vor.
Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa nú gert grein fyrir fjárhagslegum hagsmunum sínum og trúnaðarstörfum sem þeir gegna, auk ráðherrastarfa. Ríkisstjórnin ákvað 17. mars að ráðherrar skyldu gera grein fyrir þessum tengslum.
Norski álframleiðandinn Hydro tilkynnti í dag um tímabundna lokun á einum kerskál í álveri sínu í Sunndal í Noregi. 160 starfsmenn munu missa vinnunaog framleiðsal dragast saman um 100 þúsund tonn á ári.
Lesa meira
Iðnaðarráðuneytið áætlar að ríkið tapi að lágmarki 16,2 milljónum dala á fjárfestingasamningi í Helguvík.
Lesa meira
Atvinnuleysi vex áfram hratt, en í venjulegu árferði eru yfirleitt litlar breytingar á atvinnuleysistölum frá febrúar til mars. 17.535 eru nú skráðir án vinnu, en voru að meðaltali 13.276 í febrúar.
Lesa meira
Atvinnuleysi vex áfram hratt, en í venjulegu árferði eru yfirleitt litlar breytingar á atvinnuleysistölum frá febrúar til mars. 17.535 eru nú skráðir án vinnu, en voru að meðaltali 13.276 í febrúar.
Lesa meiraSamstarf stofnana og lækkun launa lækna skilar sparnaði, en hætt hefur verið við lokanir skurðstofa og fæðingardeilda. Heilbrigðisráðherra kynnti niðurskurð í dag.
Rússar hyggjast reisa tíu kjarnorkuver á heimskautasvæðum vegna námuvinnslu og uppbyggingu í nyrstu héruðum landsins. Kjarnorkuverin verða fyrstu fljótandi kjarnorkuver heims. Náttúruverndarsinnar óttast umhverfisslys.
Borgarahreyfingin á ferð um landið og leitar að frambjóðendum. Gunnar Sigurðsson, forvígismaður borgarafundanna leiðir lista borgarahreyfingarinnar
Fæðingardeildir verða áfram reknar á Selfossi og í Keflavík. Skurðstofum verður heldur ekki lokað samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra. Skorað var á ráðherrann með undirskriftum á fimmta þúsund Sunnlendinga að afturkalla ákvörðun fyrirrennara síns.
Glerísetningarmaður skipti í morgun út rúðu fyrir ofan inngang Alþingishússins, en rúðan var eitt síðasta minnismerkið um uppþotin á Austurvelli í búsáhaldabyltingunni fyrr í vetur.
Stjórnarskrárnefnd Alþingis hefur nú lokið við að taka á móti öllum gestum sem áttu að koma fyrir nefndina nema einum. Þór Saari kemur fyrir nefndina á morgun, fyrir Lýðræðishreyfinguna. Frumvarpið getur fallið á andstöðu Sjálfstæðisflokksins.
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra tekur heilshugar undir orð Atla Gíslasonar þingmanns um að loftbóluáætlanir íslensku bankanna. Ráðherra var spurður um hvort módelið líktist Enron. "Margt er líkt með skyldum," svaraði ráðherrann.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að efla embætti sérstaks ríkissaksóknara, sem fái allt að 16 föst stöðugildi og fjóra erlenda sérfræðinga til viðbótar. Fyrri áætlanir kváðu á um 8-9 starfsmenn.
Álfheiður Ingadóttir, varformaður iðnaðarnefndar Alþingis, segir enn vera mikla vinnu eftir áður en hægt verður að afgreiða frumvarp um heimild til gerðar fjárfestingasamnings við Century Norðurál vegna álvers í Helguvík.
Lesa meira
Efnahags- og skattanefnd Alþingis afgreiddi í morgun lagafrumvarp sem meðal annars er ætlað að „koma í veg fyrir að hægt verði að fela eignarhald í félögum með skráningum í lágskattaríkjum og þar með skjóta tekjum undan réttmætri íslenskri skattlagningu.“
Lesa meira
Lækkun vísitölu neysluverðs kom greiningu Íslandsbanka nokkuð á óvart og segir greiningadeildin að ljóst að verðlækkun á íbúðamarkaði er nú farin að segja verulega til sín í vísitölunni.
Lesa meira
Formaður blaðamannafélags Íslands fagnar því að menntamála- og dómsmálaráðherra undirbúi nú lagabreytingu í kjölfar dóms Hæstaréttar, þar sem blaðamaður var dæmdur til ábyrgðar vegna ummæla viðmælanda.
Heimild til Iðnaðarráðherra um að gera fjárfestingasamning við Century Norðurál vegna álvers í Helguvík er nú ræddur í tveimur fastanefndum Alþingis, iðnaðarnefnd og efnahags- og skattanefnd.
Lesa meira
Hagstofan hefur reiknað út að verðbólgan sé nú 15,2 prósent. Verðbólgan var 18,6 prósent í janúar og 17,6 í febrúar. Spáð er að verðbólgan lækki hratt til loka árs.
Alþýðusamband Íslands hefur boðað til aukaársfundar á morgun, til að ræða framtíðarsýn ASÍ um endurreisn íslensk atvinnu- og efnahagslífs.
Hávær mótmæli eru meðal frumbyggja í Núnavút vegna áforma kanadískra stjórnvalda um úranvinnslu. Fyrir skemmstu kom í ljós að mikið er af vinnanlegu úrani í Kivalliq við vestanverðan Hudsonflóa.
Lesa meira
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra vill að tekið verði upp tilvísanakerfi í heilbrigðiskerfinu að danskri fyrirmynd eða svonefnt valfrjálst stýrikerfi. Áður hefur verið reynt að koma á tilvísanakerfi á Íslandi.
Lesa meira
Fjármálaráðherra tekur undir ályktun landsfundar Vinstri grænna um þriggja þrepa tekjuskatt. Fyrsta þrepahækkun verði við 500 milljóna mörkin, en hæsti tekjuskatturinn leggist á mánaðartekjur yfir 700 þúsundum.
Stofnandi verðlaunaverkefnis úr sænsku kreppunni á níunda áratugnum segir sögu úrræðis sem skapaði fjölda starfa fyrir iðnaðarmenn, við varðveislu húsa. Úrræði á vinnumarkaði verða rædd á námsstefnu í byrjun apríl.
Vinstri græn telja brýnt að endurskoða lagaumhverfi Ríkisútvarpsins til að tryggja sjálfstæði þess. Einnig þurfi heildstæða fjölmiðlalöggjöf sem tryggi sjálfstæði blaðamanna og aðhald að stjórnvöldum.
Norskir Evrópusinnar ættu að leggja samtök sín niður, því málið er útkljáð. Norðmenn vilji einfaldlega ekki ganga í Evrópusambandið. Þetta er mat formanns Nei-hreyfingarinnar
Lesa meira
Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi boðaði í dag formannslag við Bjarna Benediktsson. Einar K. Guðfinnsson, tapaði oddvitasætinu í Norðvesturkjördæmi í dag.
Vinstri græn vilja koma á fót nýju umhverfis- og auðlindaráðuneyti og tryggja sameign þjóðarinnar á auðlindum með stjórnarskrárbindingu. Atvinnusköpun verði á forsendum sjálfbærrar þróunar sem dæmi mengandi orkufreka stóriðju eins og álver úr leik.
Vinstri græn ganga ekki óbundin til kosninga, heldur lofar hreyfingin kjósendum því að hún hafi að markmiði að áfram starfi félagshyggju stjórn eftir kosningar í vor.
Ein af tillögum sem liggur landsfundi vinstri grænna, fjallar um að öll stór mál skuli afgreidd í þjóðaratkvæðagreiðslu. Verði tillagan samþykkt, fellur ákvörðun um hvort sótt skuli um aðild að Evrópusambandinu, undir hana.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna óttast að menn halli sér afturábak og haldi að vandi íslensku þjóðarinnar leysist með ESB. Hann telur stærstu verkefnin vera heima, þau séu uppgjör við hrunið og endurreisn efnahagslífsins.
Umhverfi- loftslagsmál og grænar fjárfestingar voru stór þáttur í ræðu formanns Vinstri Sósíalista á 18. landsfundi flokksins sem haldinn er í Bergen í Noregi nú um helgina.
Lesa meira
Starfsemi Sparisjóðabankans og SPRON verður lögð niður í núverandi mynd og flutt til Seðlabankans og Nýja Kaupþings. Sparisjóðir sem þurfa ríkisaðstoð fá hana svo rekstur þeirra verði tryggður.
Lesa meira
Forysta Vinstri grænna var kosin á landsfundi hreyfingarinnar í morgun. Engir buðu sig fram á móti sitjandi stjórnarmönnum.
Formaður vinstri grænna boðar hófstillta kosningabaráttu, vilja til að axla ábyrgð, vilja til sjálfbærra lausna og öðruvísi atvinnutækifæra en stóriðju í boði erlendra fyrirtækja.
Lesa meira
Fjármálaráðherra, segir ársreikning Landsvirkjunar sýn hversu mikil áhætta það er binda hátt hlutfall orkusölu fyrirtækisins við áliðnað.
Lesa meira
Landsvirkjun tapaði 344,5 milljónum bandaríkjadala á síðasta ári samanborið við 460 milljóna hagnað árið á udan. Lækkun álverðs og gengistap skýrir tapið að mestu. Ársreikningur var fyrirtækissins var samþykktur á stjórnarfundi í dag.
Lesa meira
Landsfundur Vinstri grænna hefst á Hótel Nordica síðdegis. Þetta er stærsti fundur frá stofnun hreyfingarinnar sem varð tíu ára í vetur.
Lesa meira
Landssamtök sláturleyfishafa telja að íslenskur landbúnaður líði undir lok á fáum árum, gangi Ísland í Evrópusambandið. Samtökin vara við hugmyndum um inngöngu og segja þúsundir starfa muni tapast.
Tekjur fólks ná hámarki um fertugt, en byrja að lækka eftir það. Hlutfallsleg hækkun launa var mest meðal ungs fólks árið 2007. Þeir sem voru rétt innan við þrítugt hækkuðu um 20 prósent í launum, á sama tíma og meðaltekjur hækkuðuum átta og hálft prósent.
Ósk Íslandshreyfingarinnar um inngöngu í Samfylkingu verður tekin fyrir á landsfundi flokksins eftir rúma viku. Allir sem greiddu atkvæði á aðalfundi Íslandshreyfingarinnar vildu óska eftir því að sótt yrði aðild að Samfylkingunni.
Samkvæmt könnun Capacent Gallup fyrir Morgunblaðið og RÚV hefur hafa ríkisstjórnarflokkarnir í minnihlutastjórninni öruggt meirihlutafylgi almennings.
Steingrímur J. Sigfússon hefur skipað stjórn Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisns og breytt reglugerð um ÁTVR um álagningu á áfengi og tóbaki. Starfshópur verður skipaður til aoð endurskoða áfengislöggjöfina í heild.
Umhverfisráðherra hefur skipað starfshóp til að kanna rekstrargrundvöll félagasamtaka á sviði umhverfismála og leggja fram tillögur um hvernig efla megi starfsemi þeirra og fjárhag við breyttar efnahagsaðstæður og til frambúðar.
Lesa meira
Tap Straums í fyrra var 105 milljarðar. Starfsfólki verður sagt upp í tveimur hollum í vor. Ríkið tók bankann í mars, en í febrúar voru greiddur út háir bónusar til lykilstarfsmanna.
Talsmenn atvinnulífsins telja vaxtalækkun Seðlabankans lága. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir lækkunina hænuskref.
Ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um lækkun stýrivaxta um eitt prósentustig, úr 18 í 17, var kynnt í morgun. Bankinn mun lækka aðra vexti sína í sama mæli.
Lesa meira
Kristín Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs vill afnema launaleynd forstjóra í bankaheiminum. Fólk eigi að geta valið sér banka eftir því hvort þeir reka ábyrga launastefnu, sem gangi upp í þjóðfélaginu.
Lesa meira
Möguleikar eru nú kannaðir á að endurskipa í umdeildar pólitískar karlanefndir. Ríkur vilji mun vera til þess í stjórnmálaflokkum.
Borgin gæti keypt hlutinn í Hitaveitu Suðurnesja sem Orkuveita Reykjavíkur verður að kaupa, þótt hún megi ekki eiga hann. Meirihluti stjórnar hefur lengi íhugað sölu, jafnvel til erlendra fyrirtækja, en Vinstri græn vilja halda OR í opinberri eigu.
Héraðsdómur hefur dæmt Orkuveitu Reykjavíkur til að kaupa Hafnarfjarðarhlutinn í Hitaveitu Suðurnesja. Orkuveitan þarf því að standa við kaupsamning við Hafnarfjarðarbæ.
Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 8% að meðaltali í fyrra, verkafólk fékk mesta hækkun en stjórnendur minnsta. Laun hafa hinsvegar víða lækkað á þessu ári og umsömdum kauphækkunum verið frestað.
ÁTVR hefur gert breytingar á reglum hjá sér sem munu dragar úr dreifingarkostnaði hjá framleiðendum á landsbyggðinni. Þeir munu í framtíðinni geta skilað af sér vörum sínum í næstu verslun ÁTVR í stað þess að aka þeim til Reykjavíkur.
Lesa meira
Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur kynnt aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn mansali sem ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi í morgun.
Lesa meira
Mælt hefur verið fyrir frumvarpi á Alþingi sem felur í sér bann við kaupum á vændi. Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, mælti fyrir frumvarpinu sem margoft hefur verið lagt fram af flokkssystur hans Kolbrúnu Halldórsdóttur sem nú er Umhverfisráðherra.
Lesa meira
Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, segir ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra um að hefja undirbúning að kynjaðri hagstjórn boða nýja tíma í jafnréttismálum
Lesa meira
Samþykkt var í tíð fyrri ríkisstjórnar að lækka veiðigjald útgerða fyrir aflaheimildir vegna minnkandi þorskvóta. Arðgreiðslur í kjölfar launalækkana og slíkra ívilnana leggjast illa í Kristinn H. Gunnarsson, alþingismann.
Lesa meira
Fjármálaráðherra hefur sett umsjónarmenn yfir nokkra lífeyrissjóði, vegna rannsóknar Fjármálaeftirlitsins á því hvort sjóðirnir hafi brotið lög með starfsemi sinni á árinu 2008.
Forstjórar í sænska sænska tryggingjafélaginu Skandia Liv, sem áttu að fá samtals fjórar milljónir sænskra króna í bónus fyrir árið 2008 afþakka. Jafnaðarmenn vilja öll spil á borðið.
Forystumenn beggja ríkisstjórnarflokkanna telja ákvörðun stjórnar HB Granda um arðgreiðslur á sama tíma og laun starfsfólks eru skert siðlausa. Svör um ánægju starfsfólks marklaus.
Silja Bára Ómarsdóttir er hneyksluð á nefndaskipan stjórnvalda sem hún segir ekki kunna að skammast sín.
Formaður Íslandshreyfingarinnar, hefði viljað sjá betri útkomu grænna þingmanna í prófkjörum Samfylkingarinnar.
Viðskiptaráðherra vill að FME aðstoði sérstakan saksóknara og segir vilja til þess hjá nýrri stjórn. Árni Þór Sigurðsson telur augljóst að fyrri ábyrgðarmenn FME mæti fyrir rannsóknarnefnd þingsins og skýri hvað þeir töldu hlutverk eftirlitsins.
Álag í grunnskólum hefur aukist vegna ástandsins í þjóðfélaginu og af fleiri ástæðum síðustu árin. Fækkun kennara þýddi skerta þjónustu, þótt nemendum hafi fækkað, að mati formanns félags grunnskólakennara.
Samband íslenskra sveitarfélaga birtir tölur um fækkun nemenda og fjölgun starfsfólks í grunnskólum síðusta áratug. 9,3 nemendur voru bak við hvert stöðugildi kennara í fyrra.
Deilur um eftirlaunaréttindi norskra þingmanna enda nú á sömu leið og hér. Gömlu sérréttindin verða afnumin, en ekki afturvirkt, því það væri brot á norsku stjórnarskránni.
Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram átján tillögur til bjargar íslenskum heimilum og atvinnulífi. Áfram er lýst vilja til að afskrifa skuldir, en ekki er lengur talað um 20 prósenta flatar afskriftir.
Breyta þarf nokkrum lögum til þess að hægt verði að fullgilda Árósasamninginn, um réttláta málsmeðferð og aðgengi almennings við ákvarðanir í umhverfismálum. Starfshópur hefur verið skipaður.
Raddir fólksins mæta enn einu sinni á útifundi á Austurvelli í dag, 14 mars. Þetta er 23 vika útifundanna, en 29 fundurinn á Austurvelli.
Sérstakan ríkissaksóknara skortir reynslu af alþjóðlegum efnahagsbrotarannsóknum. Enn vantar aðgengi að gögnum fyrir íslensku rannsóknina, sagði EVa Joly í NRK í gær.
Þessi helgi er eins og sú síðasta mikil prófkjörshelgi fyrir Alþingiskosningar. Raðað er á marga lista, sem sumum kjósendum gefst svo tækifæri til að endurraða í kosningum verði frumvarp um persónukjör samþykkt á Alþingi.
Útibú lögfræðistofunnar LOGOS í London vann fyrir Baug Group á árinu 2007. Einn af eigendum lögfræðistofunnar var skipaður skiptastjóri yfir fyrirtækinu í morgun. Faglegur framkvæmdastjóri hennar sagði við Vísi að stofan hefði aldrei starfað fyrir Baug.
Erlendir fjölmiðlar greina nú frá stöðumati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og vægum batamerkjum í íslensku efnahagslífi. Líklega fyrstu jákvæðu fréttirnar sem sagðar í erlendum fjölmiðlum eftir hrunið.
Lesa meira
Tilmæli jafnréttisráðherra til þings og ríkisstjórnar um að gætt yrði jafnréttis við skipan í nefndir hafa ekki haft tilætluð áhrif. Ráðherrann ætlar að koma skilaboðum um óánægju sína með skipan í stjórnarskrárnefnd til þingflokks Samfylkingarinnar.
Kristján Möller, samgönguráðherra vill skoða nýjar leiðir til að ná fram sameiningu sveitarfélaga. Til greina komi að sameining verði ákveðin með lögum á Alþingi í stað þess að kosið verði um þær.
Atvinnuleysi hefur aukist hraðar frá hruni efnahagslífsins í október síðastliðnium en nokkur dæmi eru um í íslenskri atvinnusögu.
Af 32 frambjóðendum í forvali Vinstri grænna tólf nú þegar skilað inn uppgjöri vegna kostnaðar við þáttöku í forvalinu að sögn Drífu Snædal, framkvæmdastýru Vinstri grænna. Hæsti kostnaður einstaks frambjóðanda var 10.200 krónur.
Lesa meira
Átta af níu þingmönnum sem kjörnir voru á Alþingi í sérnefnd um sem fjalla á um stjórnarskrármál eru karlar.
Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, lýsir efasemdum um mat á endurheimt eigna Landsbankans í Bretlandi. Skilanefnd er bjartsýnni en margir aðrir.
Lesa meira
Álheiður Ingadóttir, varformaður Iðnaðarnefndar Alþingis, segir mikla vinnu eftir áður en hægt verður að afgreiða fjárfestingasamning iðnaðarráðherra til annarrar umræðu í þinginu. Hún segir að efnahags- og skattanefnd og umhverfisnefnd þurfi einnig að fjalla um málið.
Lesa meira
Virkja þarf kraftinn í stærsta kjördæminu til að skapa hreyfingu, frjálsra þingmanna gegn aðild að Evrópusambandinu, að mati Bjarna Harðarsonar sem býður sig fram fyrir L-lista í Reykjavík.
Atli Gíslason, lögmaður og þingmaður Vinstri grænna óskar eftir því að rannsóknarnefnd og sérstakur saksóknari rannsaki málefni sparisjóða, þar með úttekt Byrs sparisjóðs um 13,5 milljónir þar sem gengið var á stofnfé og varasjóð Byrs.
Lesa meira
Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Framsóknar segir að umræða um Helguvík á Alþingi í kvöld, hafi verið halelúja umræða sem sé til marks um vaxandi stuðning þings og þjóðar við stóriðju.
Lesa meira
Á milli átta og níu þúsund störf skapast við byggingu álvers í Helguvík, sagði Össur Skarphéðinsson, iðnaðaráðherra, á Alþingi, og mælti fyrir fjárfestingasamningi. Störfin koma í kreppunni að mati ráðherrans.
Hversu sjálfstætt er sembætti sérstaks saksóknara efnahagsbrota sem stofnað var í tíð síðustu ríkisstjórnar? Spurningunni var varpað fram í þinginu í kvöld með vísan til orða Evu Joly.
Núverandi ríkisstjórn vinnur ekki að heildarendurskoðun sjúkratrygginga. Nefnd undir forystu Péturs Blöndal hætti við stjórnarskiptin. Ásta R. Jóhannesdóttir, varaformaður nefndarinnar vonar að starfið nýtist, en meiri félagshyggjublær verði á niðurstöðunni.
Hljóðkerfi sem meðlimir ÖSKRU! - hreyfingar byltingasinnaðra háskólanema notuðu til að magna upp lestur sinn úr verkum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar á Háskólatorgi Háskóla Íslands var tekið úr sambandi í tvígang.
Lesa meira
Þingflokksformenn og forseti Alþingis hafa samið um ræðutíma vegna stjórnarskrármála. Málinu verður svo vísað til annarrar umræðu og sérnefndar um stjórnarskrármál.
DV segir frá því í dag að tveir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins hafi starfað við markaðsrannsóknir fyrir Icesave fyrir hrun bankanna. Markmiðið var að bjóða upp á Icesave reikninga í fleiri löndum.
Borgarahreyfingin - þjóðin á þing, heldur opinn kynningarfund í Iðnó í kvöld. Þar sitja fyrir svörum talsmenn og frambjóðandi hreyfingarinnar og halda erindi líka.
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu dómsmálaráðherra um að óska eftir því við Evu Joly, fyrrverandi rannsóknardómara að hún verði ráðgjafi ríkisstjórnar vegna hrunsins.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur talað langmest á þingfundum Alþingis að undanförnu. Þingmenn flokksins tala einnig mest að meðaltali.
Stjórn kvennahreyfing Samfylkingarinnar þakkar fráfarandi leiðtoga störf í þágu kvenna og benda á að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kvaddi stjórnmálin á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna.
Hlutabréfaverð í Century Aluminum er nú komið niður í rétt rúman bandaríkjadal á hlut. Um um síðastliðin áramót var verðið um 11 dalir á hlut og er verðið því minna en einn tíundi af því sem það var þá.
Lesa meira
Bæjarstjórn sveitafélagsins Ölfus leggst gegn lagningu raflínu sem ætlað er að flytja raforku frá virkjunum á Hellisheiði til álversins í Helguvík. Bæjarstjórinn segir að verði línan að veruleika sé það banabiti atvinnuuppbyggingar á Suðurlandi.
Lesa meira
Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri samtaka fjárfesta fagnar ráðgjöf Evu Joly og komu hennar hér til lands. Hann er bjartsýnn á að hægt sé að ná tilbaka peningum úr skattaskjólum með réttum aðferðum.
Lesa meira
Fjármálaráðherra segir einboðið að óska eftir ráðgjöf frá Evu Joly, norska rannsóknardómaranum sem rætt var við í Silfri Egils í gær.
Frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga, er á dagskrá Alþingis í dag, ásamt heimild til samninga um álver í Helguvík og fleiri stórum málum. Líklegt er að stjórnarskrárumræðan taki allan daginn.
Lesa meira
Þrír karlar hafa náð forystu á listum Samfylkingarinnar í prófkjörum og fleiri vilja. Björgvin G. Sigurðsson, Guðbjartur Hannesson og Kristján Möller.
Norrænir fjölmiðlar telja fall Straums hafa verið fyrirsjáanlegt. Íslenskir bankar eru búið spil, segja álitsgjafar í norrænum fjölmiðlum.
Lesa meira
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir
Alþingiskosningar hófst í morgun og stendur til laugardags.
Fjármálaeftirltið hefur tekið yfir fjárfestingabankanna Straum-Burðarás. Stjórninni hefur verið vikið og skilanefnd tekið við. Björgólfur Thor var stjórnarformaður Straums.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tilkynnti óvænt í dag að hú væri hætt í stjórnmálum, af heilsufarsástæðum. DV hefur eftir henni að hún sé ekki að axla neina ábyrgð með ákvörðun sinni.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar er hætt í stjórnmálum. Flokksmenn voru látnir vita í símtölum í dag, en síðan var boðaður blaðamannafundur með stuttum fyrirvara á heimili formannsins.
Femínistafélag Íslands fordæmir nýfallinn dóm Hæstaréttar, þar sem Ásgeir Þór Davíðsson eigandi nektarbúllunnar, Goldfinger, vann mál gegn blaðamanni vegna hljóðritaðra ummæla viðmælanda.
Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra segir umræður um undanþáguákvæði í loftslagsmálum furðulega flugeldasýningu. Tillaga Sivjar Friðleifsdóttir sé markleysa.
Tíu þingmenn hafa lagt fram frumvarp um hópmálsókn, sem gerir fólki kleift að höfða saman skaðabótamál fyrir dómstólum um sömu kröfur, í stað þess að fólk þurfi eitt að fara í mál. Álfheiður Ingadóttir fluttu málið á Alþingi í gær.
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, ætlar að greiða atkvæði gegn fjárfestingasamningi iðnaðarráðherra við Century Norðurál vegna álversuppbyggingar í Helguvík. Hann er þriðji þingmaður flokksins sem lýsir þessu yfir.
Lesa meira
Eygló Harðardóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins í umhverfisnefnd Alþingis, vill ekki afgreiða náttúruverndaráætlun úr nefndinni. Hún segir málið illa unnið og er ósátt við tillögur um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum.
Atli Gíslason, þingmaður, Vinstri grænna segist ætla að greiða atkvæði gegn fjárfestingasamningi iðnaðarráðherra við Century Aluminum vegna álversuppbygginar í Helguvík.
Lesa meira
Forstjóri Hydro-samsteypunnar spáir enn verri tímum í áliðnaði á næstu árum. 70 - 80 prósent af öllum álframleiðendum í heiminum eru rekin með daglegu tapi.
Lesa meira
Þrír ráðherrar kynntu í dag tillögur Stýrihóps ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í atvinnumálum. Þau segja tillögurnar geta skapað ríflega 4000 ársverk á næstu misserum.
Lesa meira
Skrifstofustjóri Alþingis sendi nýverið út bréf til allra þingmanna um að eftir 3. mars myndi Alþingi ekki senda út fjölpóst fyrir þingmenn. Bréfið kom þingmönnum í opna skjöldu.
Lesa meira
Áætluður kostnaður eða tekjutap ríkisins vegna skattaívilnana til Century Aluminum, Norðuráls í Helguvík, er ekki gefinn upp í frumvarpi iðnaðaráðherra um fjárfestingasamning vegna álversins.
Lesa meira
Frumvörp um greiðsluaðlögun, gengistryggð húsnæðislán, virðisaukaskatt og skattalega meðferð vegna niðurfellingu skulda eru enn í vinnslu á Alþingi.
Þingsalur var rúmlega hálfur þegar eftirlaunalög þingmanna, ráðherra og æðstu embættismanna voru afnumin í atkvæðagreiðslu á Alþingi eftir hádegi. Allir viðstaddir studdu málið.
Ný lög heimila íslenskum ríkisborgurum, sem búið hafa erlendis í meira en átta ár og kræðu sig ekki inn á kjörskrá fyrir 1. desember að kjósa í vor. Borgarahreyfingin hvetur þá til að nýta rétt sinn.
Indirið H. Þorláksson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu og Stefán Ólafsson prófessor og formaður stjórnar Tryggingastofnunar tala á ræða skattaskjól og velferð á Hótel Borg í kvöld.
Samtök bíliðnaðarins í Evrópu telja að framleiðsla og sala á bílum verði enn minni á þessu ári, en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Milljónir starfa eru í hættu og iðnaðurinn hrópar á hjálp.
Lesa meira
Prófkjörsbarátta setur mark sitt á þingstörfin og er illa mætt í nefndir, að sögn þingmanna sjálfra. Fleiri skýringar eru þó á fjarvistum en prófkjörsbarátta. Jón Magnússon segir mætinguna til Alþingi til skammar.
Kristinn H. Gunnarsson, nýr þingmaður Framsóknarflokksins situr ekki þingflokksfundi og hefur ekki óskað eftir þátttöku í þingflokki Framsóknar. Þingmenn telja ekkert liggja á að hann snúi aftur í þingflokkinn.
Bændur leggjast eindregið gegn aðild að ESB, taka undir tillögur stjórnar Bændasamtakanna um breytingar á matvælafrumvaripnu, vilja styrk til áburðarkaupa í vor og úttekt á matvælaöryggi.
Aðstandendur borgarahreyfingarinnar koma úr öllum áttum og allsstaðar úr litrófi stjórnmálanna. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa fengið nóg af fjórflokknum sem þeir kalla, en hafa þó áður tekið þátt í stjórnmálum á vegum gömlu flokkanna.
Borgarahreyfingin - þjóðin á þing, vill færa völdin frá flokksræði til lýðræðis. Stjórn framboðsins kynnti fyriætlanir sínar á fundi í Iðnó í dag.
Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra, ætlar að greiða atkvæði gegn fjárfestingasamningi iðnaðarráðherra við Norðurá(Century Aluminum) vegna álversuppbygginar í Helguvík. Þetta kemur fram í svari hennar við fyrirspurn Smugunnar.
Lesa meira
Century Aluminum, móðurfyritæki Norðuráls, tilkynnti í morgun um lokun á einum kerskála af fimm í álveri sem það á í Kentucky í Bandaríkujunum. Álverið hefur hingað til framleitt 250 þúsund tonn árlega. 120 starfsmönnum verður sagt upp vegna þessa.
Atvinnulausir útlendingar verða að yfirgefa Ísland ef þeir uppfylla ekki kröfur útlendingalaga um framfærsluskyldu. Prestur innflytjenda biður um sanngirni og réttlæti.
Lesa meira
TD Securities, stærsti miðlari jöklabréfa, fer jákvæðum orðum um breytingar á stjórn Seðlabanka Íslands. Nýir stjórnendur Seðlabanka og ný peningastefnunefnd séu skref í þá átt að byggja upp traust á bankanum á nýjan leik.
Félagsmálaráðherra og formaður ASÍ eru meðal frummælenda á fundi Öryrkjabandalag Íslands og Landssamtakanna Þroskahjálp um félags- og tryggingamál í nánustu framtíð.
Lesa meira
L-listinn, bandalag frjálsra frambjóðenda kynnti framboð til Alþingis fyrr í dag. Framboðið tekur afdráttarlausa afstöðu gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu, vill berjast gegn flokksræði og öfgum í stjórnmálum.
Lesa meira
Um fimmhundruð einstaklingar komu inn á atvinnuleysiskrá eftir nýliðin mánaðamót, en ellefu hundruð skráðu sig án vinnu eftir hópuppsagnir fyrir mánuði og sami fjöldi fyrir tveimur mánuðum.
"Það er margt vitlausara en að ganga bundinn til kosninga í rauðgrænu bandalagi. " Þannig svaraði forsætisráðherra spurningu blaðamanna á fundi í Þjóðmenningarhúsinu nú áðan.
Smugan hefur sent þeim þingmönnum sem lýstu sig „græna“ fyrir síðustu Alþingiskosningar fyrirspurn um það hvernig þeir muni haga atkvæði sínu við afgreiðslu fjárfestingasamnings iðnaðarráðherra við Norðurál þegar hann kemur fyrir Alþingi.
Lesa meiraFrjálsir þingmenn kynna framboðið L-lista á kaffihúsi í miðborginni ídag. Þeir segjast aðeins bundnir af samvisku sinni, en eru samt miðjumenn andvígir Evrópusambandinu.
Össur Skarphéðinsson vill að Ísland og Noregur setjist saman að samningaborði um aðild að Evrópusambandinu. Hann vill setjast að því borði ásamt Jónasi Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs.
Lesa meira
Frumvarp um breytingar á kosningalögum sem veitir kjósendum í Alþingiskosningum aukin áhrif uppröðun framboðslista er komið fram á Alþingi. Málið er lagt fram af öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokki.
Lesa meira
Lögfræðingur BSRB hefur tekið saman upplýsingar um réttindi starfsmanna á niðurskurðartímum. Hvað mega yfirmenn í kreppu.
Svein Harald Öygaard, settur Seðlabankastjóri, er á sömu kjörum og fyrirrennarar hans í starfi, samkvæmt upplýsingum fjármálaráðherra á Alþingi í dag.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir ljóst að Alþingi mun þurfa að starfa lengur en til 12. mars. Hún segir ekkert standa í vegi fyrir því að eftir að þing starfi eftir að það hefur verið rofið og boðað til kosninga.
Lesa meira
Þeim fjölgar sem telja óhjákvæmilegt að bylta íbúðalánakerfinu eigi að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot heimilanna og fólksflótta af landinu næstu árin.
7.900 voru án atvinnu í desember, rúmlega tíu þúsund í janúar, rúm þrettán þúsund í febrúar. Nú eru 16.400 á atvinnuleysiskrá og enn vofa uppsagnir yfir í flestum atvinnugreinum.
Seðlabanki Íslands metur stöðuna svo að gjaldeyrishöft þurfi að vera áfram í gildi og að ekki séu neinar líkur á því að það breytist í bráð. Staðan verði endurskoðuð fyrir 1. september.
Andófi landsmanna er ekki lokið. Í dag verður gengið kröfuganga til þess að kefjast þess að landsmönnum verði kynnt öll skilyrði AGS-lánsins á mannmáli. Á Austurvelli verður reglubundinn fundur Radda fólksins.
Lesa meira
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðhera, verður forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar í komandi kosningum og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir áfram formaður nái vilji þeirra fram að ganga á landsfundi flokksins.
Lesa meira
Unnið er að því fjármálaráðuneytinu að tryggja jafnan og sanngjarnan aðgang framleiðenda að dreifingarkerfi ÁTVR óháð því hvar þeir eru staðsettir á landinu að sögn Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra.
Fjárfestingasamningur iðnaðarráðherra við Century Aluminum vegna álvers í Helguvík var afgreiddur úr ríkisstjórn í morgun. Formaður Vinstri grænna stöðvaði hann ekki við ríkisstjórnarborðið en segir flokkinn ekki styðja hann þegar hann kemur fyrir Alþingi.
Sól á Suðurlandi skorar á nýja ríkisstjórn að beita sér fyrir því að stjórn Landsvirkjunar verði endurnýjuð í heild á næsta aðalfundi. Samtökin hvetja forstjóra Landsvirkjunar til að hætta störfum, eins og hann hafði ætlað sér.
Skuldir vegna húsnæðiskaupa, gjaldþrot og allt sem snertir stöðuna í húsnæðismálum verður rætt á fundi borgarstjórnarflokks vinstri grænna í næstu viku. Fjármálaráðherra svarar spurningum.
Lesa meira
Auglýsingaferli vegna ráðningar nýs Seðlabankastjóra fer nú af stað eins og lög gera ráð fyrir. Ekki er gert ráð fyrir því að Svein Harald Höygaard stýri Seðlabankanum lengur en þann tíma sem tekur að auglýsa og ráða nýjan Seðlabankastjóra.
Ráðherrar íslensku ríkisstjórnarinnar vildu ekki blanda sér í kynningu hjá nýja Seðlabankastjóranum. Seðlabankinn sé sjálfstæð stofnun og ánægjulegt að nýi norski Seðlabankastjórinn fái norska forsætisráðherrann í heimsókn.
Lesendum allra norskra dagblaða nema eins fækkaði í fyrra. Vefmiðlar taka við sem frétta- og auglýsingamiðlar. Sama þróun er á öllum Norðurlöndum.
Lesa meira
Íslandshreyfingin vill ganga til liðs við Samfylkinguna til að minnka hættuna á því að atkvæði falli dauð í komandi Alþingiskosningum. Kristinn H. Gunnarsson leitar að nýjum flokki. Fundi um nýtt framboð var frestað í dag og Davíð Odsson vill ekki í framboð.
Svein Harald Öygaard settur Seðlabankastjóri og Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs ræddu efnahagsástandið a Íslandi á stuttum fundi í Seðlabankanum í morgun. Enginn íslenskur ráðherra var viðstaddur fundinn.
Svein Harald Öygard, nýsettur seðlabankastjóri, ætlar ekki að tjá sig um störf forvera síns, Davíðs Oddssonar. Hann segist vilja horfa til framtíðar og segir mikilvægt að styrkja krónuna og undirstöðu efnahagskerfisins.
Lesa meira
Svein Harald Öygard, nýsettur seðlabankastjóri, ætlar ekki að tjá sig um störf forvera síns, Davíðs Oddssonar. Hann segist vilja horfa til framtíðar og segir mikilvægt að styrkja krónuna og undirstöðu efnahagskerfisins.
Lesa meira
Jóhanna Sigurðardóttir hefur sett, tímabundið, þá Svein Harald Öygard, tímabundið í embætti seðlabankastjóra og Arnór Sighvatsson í embætti aðstoðarseðlabankastjóra og hafa þeir þegar hafið störf.
Lesa meira
Um tveir tugir aðgerðasinna komu saman við Seðlabankann í hádeginu í tilefni af því að fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru hér á landi. Mótmæltu þeir veru sjóðsins á Íslandi og spurðu spurninga.
Hörð orð féllu um stjórn Alþingis í umræðum um breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknar sakar forseta Alþingis um eina grófustu misbeitingu valds á lýðveldistímanum.
Hitaveita Suðurnesja mun gera nýjan raforkusölusamning á næstunni við Norðurál vegna álversins í Helguvík í stað samnings sem til stóð að gera bindandi um síðustu áramót.
Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra er hættur í stjórnmálum. Hann vísar til vilja kjósenda til breytinga, sem skýrt hafi komið fram í ferðum hans um Suðurkjördæmi.
Enn fækkar í Frjálslynda flokknum, eftir að Kristinn H. Gunnarsson sagði sig úr flokknum. Hann fetar þar í fótspor Jóns Magnússonar. Tveir þingmenn eru nú eftir á Alþingi fyrir Frjálslynda.
Tilboð í véla- og rafbúnað Búðarhálsvirkjunar verða opnuð í maí að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar. Til stóð að þau yrðu opnuð þann 9. mars eftir að opnun þeirra var frestað í nóvember.
Lesa meira
Nýtt framboð andvígt aðild að Evrópusambandinu býður fram til Alþingiskosninga. Framboðið hyggst einnig berjast fyrir frelsi þingmanna gegn flokksræði.
Fatlaðir sem búa einir fá ekki styrk til bílakaupa. Félagsmálaráðherra hefur hækkað bílastyrk hreyfihamlaðra um 20 prósent. Formaður Öryrkjabandalagsins fagnar hækkuninni en hafði vonast til þess að þessi mismunun yrði aflögð.
Lesa meira
Viðskiptanefnd Alþingis kemur saman eftir klukkan sex í kvöld og er ætlunin að taka Seðlabankafrumvarpið út úr nefndinni, til þess að það getið orðið að lögum á morgun.
Félagsmálaráðherra kynnti í gær 20 prósenta hækkun á styrkjum til bílakaupa fatlaðra. Styrkir til bílakaupa hreyfihamlaðra hafa ekki hækkað í níu ár.
Á annað hundrað leigufélög sem byggt hafa íbúðir með fjármögnun frá Íbúðalánasjóði víða um land til að leigja út eru starfandi á Íslandi. Mörg eru í vandræðum og Íbúðalánasjóður leysir til sín íbúðir.
Lesa meira
Íbúðalánasjóður færi á hausinn, ef skuldir vegna íbúðalána yrðu færðar niður um 20 prósent. Þetta staðfestir lögfræðingur sjóðsins, sem segir að eigið fé Íbúðalánasjóðs þyrfti þá að vera 100 milljarðar, en því fari fjarri.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að engum sé greiði gerður með því að ýta undir væntingar sem ekki er hægt að standa við. Afskriftir skulda fyrirtækja og heimila um 20 prósent sé þannig tillaga.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa tilkynnt um tvær samninganefndir, eina sem á að semja um Icesave og aðra sem semja á um lán frá vinaþjóðum. Ein kona situr í annari nefndinni og engin í hinni.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna kynntu nokkur frumvörp um fjármál, stjórnskipan og persónukjör á reglulegum fundi í morgun. Lög um hlutabætur sem renna út í vor verða framlengd til næstu áramóta.
Höskuldur Þórhallsson var ekki á fundi viðskiptanefndar Alþingis í morgun, þar sem frumvarp um Seðlabanka var ekki rætt. Þingmaðurinn misskildi fundarboð en hefði annars mætt á fundinn.
Lítið varð úr þingstörfum í dag. Þingfundi var frestað hvað eftir annað, vegna andstöðu Framsóknar við Seðlabankafrumvarpið. Framsókn kynnti eigin tillögur um efnahagsumbætur.
Framsóknarflokkurinn stöðvaði Seðlabankafrumvarp ríkisstjórnarinnar í viðskiptanefnd Alþingis í morgun. Álfheiður Ingadóttir formaður nefndarinnar vill annan fund í dag. Framsókn vill bíða.
32 skiluðu inn framboði í forvali Vinstri grænna í Reykjavík sem fram fer laugardaginn 7. mars.
Lesa meira
Nýr stjórnmálaflokkur, Borgarahreyfingin, var stofnaður í gærkvöldi og stefnir hann á að bjóða fram til Alþingis. Herbert Sveinbjörnsson var kjörinn formaður.
Drög að frumvarpi um breytingar á kosningalögum, sem heimilar framboðum að bjóða fram óraðaða lista í kosningum til Alþingis, sem kynnt var fyrir þingflokkum á Alþingi í síðustu viku nýtur misjafns stuðnings.
Lesa meira
Ríkisstjórnarfrumvörp um breytingar á stjórnskipan landsins og á kosningalögum komast ekki í gegn á Alþingi í vor, ef marka má orð formanns Sjálfstæðisflokksins á fundi í Valhöll.
Ljóst er að tveir ólíkir hópar að minnsta kosti stefna að því að bjóða fram til Alþingiskosninga í vor. Einstaklingar í tengslum við séra Þórhall Heimisson eru sér á báti, en grasrótarsamtök og Íslandshreyfing stilla saman strengi.
Engir nýjir samningar verða gerðir og engin ný verkefni sett af stað í tengslum við uppbygginu álvers í Helguvík fyrr en búið er að tryggja fjármögnun. Þetta segir talsmaður Norðuráls. Century Aluminum, móðurfélag Norðuráls, tilkynnti í gær um tæplega 900 milljóna bandaríkjadala rekstrartap á síðasta ári.
Lesa meira
Atvinnuráð sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur kynnt hugmynd að stofnun Heilsufélags Reykjaness, þar sem sveitarfélögum er boðið til samstarfs gegn 100-300 þúsund króna framlagi.
Atvinnulausum á Íslandi fjölgar enn hratt. Í janúar var skráð atvinnuleysi hið mesta í 14 ár. Þá voru rúmlega 10 þúsund á skrá en eru nú nærri 16 þúsund.
Logan W. Kruger, stjórnarformaður Century Aluminum, segir að uppbygging álvers í Helguvík á vegum fyrirtækissins sé í endurskoðun og frekari framkvæmdum sé því frestað í bili. Fyrirtækið tilkynni í gær um tap upp á 700 milljón bandaríkjadali á síðasta árfjórðungi nýliðins ár.
Lesa meira
Borgartúnshópur, borgarafundafólk, Íslandshreyfing og fleiri stefna á að sameinast um framboð. Gunnar Sigurðsson, Ómar Ragnarsson og Herbert Sveinbjörnsson eru líklegir frambjóðendur
Forysta Íslandshreyfingarinnar og grasrótarsamtaka íhuga alvarlega að bjóða sameiginlega fram til Alþingiskosninga. Stöðug fundahöld standa yfir og er stefnt að niðurstöðu fyrir helgi.
Forysta Íslandshreyfingarinnar og grasrótarhreyfingar reyna nú að komast til botns í því hvort möguleiki sé á sameiginlegu framboði til Alþingiskosninga til að dreifa ekki kröftunum.
Lesa meira
Samstaða og grasrótarhópar í framboðsundirbúningi krefjast þess að fá að leggja fram óraðaða lista fyrir alþingiskosningarnar í apríl. Grasrótin ætlar ekki að taka því þegjandi verði þessu hafnað.
Lesa meira
Ögmundur Jónasson segist aldrei hafa hvatt til þess að tekið yrði lán hjá Rússum, hvað þá átt hugmyndina að slíku láni, eins og Tryggvi Þór Herbertsson hefur haldið fram.
Atli Gíslason segir það blasa við að stórfelldir fjármagnsflutningar íslenskra auðmanna úr íslenskum bönkum í Bretlandi séu ástæða þess að Bretar beittu hryðjuverkalögum á Íslands. Hann spyr hvers vegna ekkert hafi verið aðhafst í þessu máli.
Lesa meiraÖgmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra ætlar að bjóða læknum á St. Jósepspítala sömu kjör og læknum á Landsspítala. Þeir hafa verið verktakar.
Skilanefndir gamla Kaupþings, gamla Landsbanka og gamla Glitnis innheimtu alls 150 milljónir fyrir störf sín frá hruni bankanna í október og fram til áramóta.
Lesa meira
Sérstök svæði verða afmörkuð til hvalaskoðunar og þar verða hvalveiðar með öllu óheimilar. Hafrannsóknarstofnun afmarkar svæðin.
Hagsmunasamtök heimilanna fagna frumvarpi um greiðsluaðlögun, en leggja til breytingar á því þar sem það leysi ekki allan vanda í núverandi mynd.
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, telur sig ekki hafa lagastoð til þess að fella úr gildi reglugerð forvera síns um hvalveiðar. Kvótaúthlutun fyrir næstu fjögur ár verður endurskoðuð.
Lesa meira
Stefna vinstri grænna er skýr um að betra sé að vera utan Evrópusambands en innan, þótt þjóðin eigi að ráða, segja þingmenn flokksins. Þingmaður Samfylkingar telur Sjálfstæðisflokkinn mesta íhaldið sem standi gegn framförum.
Sigrún Jónsdóttir, tekur í dag við störfum Skúla Helgasonar, framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar sem hefur tilkynnt um framboð. Sigrún er ráðin tímabundið fram að kosningum.
Lesa meira
Félagsmálaráðherra skorar á formenn stjórnmálaflokka að leita leiða til að tryggja jafnræði kynjanna á framboðslistum fyrir komandi kosnignar. Átök milli kynja hafa brotist út í flokki ráðherrans síðustu daga.
Lesa meira
Á hnattvæðingarþingi norrænna forsætisráðherra er reynt að svara því hvort fjármálakreppan marki endalok eða upphaf framsækinnar loftslagsstefnu.
Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknums skorar á kjördæmafélag flokksins í Norðvesturkjördæmi að velja Ragnheiði Ólafsdóttur, varaþingmann Guðjóns Arnars Kristjánssonar í annað sætið í Norðvesturkjördæmi.
Frumvarp forsætisráðherra til að rýmka fyrir persónukjöri kemur fram á miðvikudag. Flokkunum verður í sjálfsvald sett hvort þeir fylgja ákvæðum nýs frumvarps, ef það verður þá samþykkt.
Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna í Reykjavík, ætlar að bjóða sig fram í fyrsta sæti í forvali á framboðslista Vinstri grænna í öðru Reykjavíkurkjördæmanna í komandi Alþingiskosningum.
Lesa meira
Geir Haarde ætti að biðjast Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra afsökunar á því að hafa sakað hana um að fara með ósannindi í þinginu í gær. Þetta er mat þingflokksformenn stjórnarflokkanna.
Lesa meira
Frumvarp um stjórnlagaþing er á dagskrá Alþingis í dag. Þingið hefur það eina hlutverk að semja nýja stjórnarskrá. Tvisvar áður tillögur um stjórnlagaþing verið lagðar fram á Alþingi, í annað skiptið af Jóhönnu Sigurðardóttur 1995
Lesa meira
Elding/Hvalaskoðun Reykjavík ehf og Hvalalíf ehf biðja um stuðningsyfirlýsingu Reykjavíkurborgar við að ekki verði veiddar hrefnur úr Faxaflóa.
Lesa meira
Ólíklegt er að Alþingi samþykki stjórnlagaþing fyrir kosningar í vor. Slíkt væri erfitt á svona stuttum tíma og svona erfiðum tíma, að mati Sjálfstæðismanna sem vilja fara rólega í málið.
Lesa meira
Forsætisráðuneytið segir að Geir H. Haarda, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, hafi misskilið tölvupóst frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum (AGS). Á Alþingi í gær Geir sakaði Jóhönnu Sigurðuardóttir, forsætisráðherra, um að segja Alþingi ósatt.
Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, vill afnema verðtrygginguna. Þessu lýsti hann yfir á vel sóttum borgarfundi í Háskóalbíói í kvöld.
Lesa meira
Tölvupóstsamskipti forsætisráðuneytissins og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins(AGS) vegna Seðlabankafrumvarpsins hafa verið opinberuð. Þar kemur fram að Geir Haarde bar forsætisráðherra röngum sökum á Alþingi í dag þegar hann sagði hana segja ósatt um að AGS hefði óskað trúnaðar í tölvupóstunum.
Lesa meira
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent sjávarútvegsráðherra bréf þar sem spurt hverju töluvert misræmi í máli hans og forvera hans um útflutningsverðmæti hvalaafurða sæti.
Nýtt fólk hefur tekið sæti í starfshópi um fjölmiðla sem fyrrverandi menntamálaráðherra skipaði. Sigtryggur Magnason er formaður hópsins og fundur verður á næstu dögum.
Lesa meira
„Ómannlegt er að meina fólki að stíga fæti á botn stærsta hellis í heimi," segir Árni Johnsen í greinargerð með þingmáli um að gera Þríhnjúkagíg að sýningarhelli.
Verðbólgan er að ná hámarki, sem ekki kemur til af góðu. Samdráttur er svo mikill að hún hefur ekki meira fóður og hér gæti jafnvel orðið verðhjöðnun á næstu mánuðum.
Aðgerðasinnar hýddu skuldaþræla með táknrænum gjörningi á Lækjartorgi í hádeginu. Hýðingin var í tilefni af komu fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til landsins.
Ungir Jafnaðarmenn lýsa yfir óskoruðum stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu Gíslaódttur sem formann Samfylkingar. Tilefni yfirlýsingarinnar eru ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar.
Lesa meira
Þórunn Sveinbjarnardóttir vill leiða lista Samfylkingarinnar´i Suðvesturkjördæmi og leggur allt undir. Hún býður sig aðeins fram í fyrsta sætið.
Vetrarhátið er hafin í Reykjavík. Lúðrasveitin Svanur dró að áhorfendur í kvöld í mildu og góðu veðri á Skúlatorgi.
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra tekur slaginn um baráttusætið í Suðvesturkjördæmi, en Guðfríður Lilja Grétarsdóttir stefnir að því að leiða listann.
Lesa meira
Fyrrum framkvæmdastjóri Framtíðarlandsins býður sig fram í forystusæti fyrir Vinstri græn á Norðvesturlandi. Umhverfistalsmaður og Varaborgarfulltrúi Samfylkingar og býður sig fram í Reykjavík.
Lesa meira
Kaupsýslumaðurinn Beresovskí sem segir Rússa hafa þvegið peninga á Íslandi er ekki sá eini sem heldur þessu fram. Ráðherrar telja fullvíst að hið sanna komi í ljós en lofa ekki sérstakri rannsókn.
Lesa meira
Málefni Breiðavíkudrengja eru nú tekin upp aftur í ríkisstjórn, því ekki var sátt um lausn sem fyrrverandi forsætisráðherra lagði til fyrir jól.
Lesa meira
Eftirlaunafrumvarp var rætt í ríkisstjórn í morgun. Samkvæmt því verða eftirlaunalög æðstu ráðamanna frá desember 2003 afnumin. Afnám laganna er ekki afturvirkt.
Lesa meira
Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Kolbrúnar Halldórsdóttur umhverfisráðherra um að Árósasamningurinn verði fullgiltur hér á landi. Samningurinn fjallar um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum.
Átökum um hvalveiðar er ekki lokið þótt skýr meirihluti Alþingismanna sé veiðunum hlynntur. Nú hillir undir ákvörðun sjávarútvegsráðuneytis, en samtímis er þingmál um að breyta ekki fyrri ákvörðun komið fram á Alþingi.
Samkeppniseftirlitið hefur enn ekki úrskurðað um áður fyrirhugaðan samruna hluta af starfsemi Fréttablaðsins og Morgunblaðsins. Frestir líða mánaðamót.
Lesa meira
Sjávarútvegsráðherra segir þingsályktunartillögu meirihlutans á Alþingi ekki breyta vinnu við endurskoðun hvalareglugerðar Einars K. Guðfinnssonar.
Forseti Íslands ætti ekki að ræða við fjölmiðla upp á sitt einsdæmi, að mati fyrrverandi dómsmálaráðherra. Utanríkisráðuneytið ætti að stýra aðgangi og sitja fundi forseta með fjölmiðlum
Lesa meira
36 Alþingismenn hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, um hvalveiðar og kvóta til fimm ára standi óhögguð.
Varaformaður Frjálslynda flokksins segir firru að formaður flokksins íhugi vistaskipti og aðild að Samfylkingu. Innanmein hrjái nú alla flokka og ástandið í stjórnmálum sé skelfilegt.
Umhverfisráðherra segir allt mæla með annarskonar uppbyggingu starfa en í álverum. Kolbrún telur reynsluna hræða. Framsóknar mótmælir og Björgvin G. Sigurðsson segir Helguvík himnasendingu.
Þingmenn allra flokka nema Vinstri grænna vilja skapa ný stóriðjustörf. Fyrrverandi formaður Framsóknar fagnar því að Samfylkingin sé orðin ekta stóriðjuflokkur.
Ólöf Nordal þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Norðausturlandi vill að ríkið styrki rannsóknir vegna orku til álvers á Bakka. Álfyrirtækin sjálf hafi ekki efni á því. Umhverfisráðherra tekur því ólíklega.
Lesa meira
Næstsíðasti Seðlabankastjórinn hafði sagt starfi sínu lausu þegar "Þjóðkórinn" svonefndi framdi sýndarútför yfir stjórnendum Seðlabankans í hádeginu. Davíð Oddsson er einn eftir.
Lesa meira
Húseigendafélagið telur líklegt að meira verði um viðhaldsvinnu á næstunni en síðustu ár. Viðhorfsbreyting hafi orðið síðustu vikur og stjórnvöld ýti undir hana.
Lesa meira
Forseti Íslands ræddi við nokkra þýska fjölmiðla í dag og sendi frá sér yfirlýsingu á ensku til að eyða misskilningi um að Íslendingar muni ekki greiða skuldir innistæðueigenda hjá Kaupþingi í Þýskalandi.
Lesa meiraGunnar Baldvinsson framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins segir frumvarp Sjálfstæðisflokksins um að heimila fólki að taka út séreignarlífeyrissparnað sinn vera „óraunhæft og afar óvandað“.
Lesa meiraMagnús Gunnarsson og Valur Valsson hafa sagt sig úr bankastjórnum Nýja Kaupþings og Nýja Glitnis. Með þessu vilja þeir skapa svigrúm til mannabreytinga svo hægt verði að tryggja stjórnunum óskorað traust og umboð.
Lesa meira
Velferðarvakt mun afla upplýsinga um félagslegar og fjárhagslegar afleiðingar bankahrunsins á einstaklinga og fjölskyldur, sem geta verið frá verri heilsu til ofbeldis og vanrækslu barna.
Lesa meiraEinar Sigurðsson lætur af störfum sem forstjóri Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins. Hann hefur boðað fund með starfsmönnum í hádeginu þar sem breytingar hjá fyrirtækinu verða ræddar.
Lesa meira
Meira en fjórtánþúsund manns eru á atvinnuleysiskrá. Talið er að framboð vinnuafls á árinu verði að meðaltali 167.800, en svartar spár telja að um 30 þúsund manns geti orðið atvinnulausir.
Lesa meira
Century Aluminum, móðurfélag Norðuráls á Grundatanga, hefur ákveðið að loka álveri sínu í Ravenswood í Vestur-Virginíufylki í Bandaríkjunum. Ástæðan er lágt heimsmarkaðsverð á áli.
Lesa meira
Náttúruverndarsamtök Íslands krefjast röksemda í fimmtán liðum fyrir áframhaldandi hvalveiðar. Þingmenn ræða hvalveiðar utandagskrár í dag.
Jóhanna Sigurðardóttir lýsir vonbrigðum með þá afstöðu Seðlabankastjóra að ekki sé þörf á mannabreytingum í bankanum. Ábyrgði sé hans. Mótmælum við Seðlabanka lauk um hádegi.
Lesa meira
Nokkrir tugir mótmælenda tóku sér stöðu við aðalinngang og bílageymslu Seðlabankann. Þar berja þeir enn trommur og potta. Þeir ætla að standa fyrir Seðlabankastjórum á leið í vinnu.
Hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta gagnrýnir Háskóla Íslands harðlega fyrir að taka á móti hernaðarbandalaginu NATO og fyrir að hleypa markaðsvæðingunni óheft inn í skólann. Þau segja Stúdentaráð Háskóla Íslands leyfa stórfyrirtækjum að vaða gagnrýnislaust uppí skólanum.
Lesa meira
Árlegur fundur forystu vinstri grænu stjórnmálaflokka á Norðurlöndum fór fram í dag. Málefni Íslands bar sérstaklega á góma og var mikið rætt um það hvernig Norðurlöndin geti staðið saman í gegnum fjármálakreppuna.
Lesa meira
Raddir fólksins munu halda mótmælafund á Austurvelli í dag klukkan 15 eins og síðustu 17 laugardaga og er yfirskrift fundarins sem fyrr „Breiðfylking gegn ástandinu.“ Ræðumenn verða Laufey Ólafsdóttirog Andrés Magnússon.
Lesa meira
Jón Magnússon ætlar ekki að bjóða sig fram til Alþingis fyrir flokkinn. Hann telur breytinga þörf eigi flokkurinn að lifa af þegar krafist er breytinga og uppstokkunar allstaðar
Lesa meira
Norski fjármálaráðherrann leggur áherslu á vinarhug Norðmanna í garð Íslendinga. Kristín Halvorsen sagðist stundum fá tölvupóst frá Ísland með ósk um að Norðmenn yfirtaki Ísland.
Kristín Halvorsen, fjármálaráðherra Norgs segir Norðmenn hafa mikinn áhuga á Íslendingum. Pólitískur skyldleiki ríkisstjórna landanna styrki tengslin. Hún situr nú fund með Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra.
Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon hefur ráðið Jóhann Guðmundsson fyrrverandi skrifstofustjóra í samgönguráðuneytinu aðstoðarmann sinn í Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu.
Lesa meira
Ríkissaksóknara hafa ekki borist neinar kærur tengdar þeim mótmælum sem hafa verið í samfélaginu síðustu mánuði, hvorki á hendur lögreglu né mótmælendum.
Lesa meira
Sjávarútvegsráðherra tekur sér tíma til að endurskoða reglugerð forvera síns um úthlutun hvalakvóta til fimm ára. Starfsgreinasambandið átelur vinnubrögð fyrrum ráðherra við kvótaúthlutun.
Lesa meira
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins bregðast ókvæða við frumvarpi Jóhönnu Sigurðardóttur um nýja stefnu Seðlabankans.
Jóhanna Sigurðardóttir hefur mælt fyrir frumvarpi um breytt Seðlabankalög, þar sem Seðlabankastjórnin verði lögð niður. Beðið er svara frá bankastjórunum um hvort þeir vilji hætta.
Lesa meira
Indriði H. Þorláksson er settur ráðuneytisstjóri framyfir kosningar í vor. Baldur Guðlaugsson er farinn í leyfi um óákveðinn tíma. Frestur Seðlabankastjóra til svara hvort þeir vilji fara er að renna út.
Íslenskt vinnuafl er orðið með því ódýrasta sem gerist í Vestur-Evrópu vegna mikillar gengislækkana íslensku krónunnar og fleiri þátta.
Lesa meira
Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar lögðufram fyrirspurn um framkvæmd kjaramála hjá Reykjavíkurborg á fundi borgarráðs í morgun. Í henni koma fram áhyggjur þeirra af skorti á samráði og samvinnu við starfsmenn og stéttafélög við niðurskurð á launakostnaði.
Lesa meira
Nýr dómsmálaráðherra mælti fyrir frumvarpi til laga um greiðsluaðlögun. Gamli dómsmálaráðherrann flutti sama mál og telur ríkisstjórnina skreyta sig með stolnum fjöðrum.
Lesa meiraRáðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins fær leyfi frá störfum í ráðuneytinu um óvissan tíma. Verið er að ganga frá því hvernig lausn hans verður háttað.
Lesa meira
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, segist finna víðtækan stuðning við þá kröfu að eignir auðmanna verði kyrrsettar, eins og hægt er, til að lágmarka skaða almennings af efnahagshruninu.
Lesa meira
Guðjón Arnar Kristjánsson rakti upphaf bankahrunsins til innbyggðs ranglætis í kvótakerfinu. Hann lýsti mikilli ánægju með hvalveiðikvóta fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.
Lesa meiraÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í ræðu sinni á Alþingi í kvöld að Sjálfstæðisflokkurin vildir frekar skera niður en að hækka skatta.
Varaformaður Framsóknarflokksins segir að ráðherraræði síðustu margra ára hefði verið til lítils sóma þeim sem hefðu stutt við það.
Steingrímur J. Sigfússon er bjartsýnn á að semja megi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um skilmála vegna láns til Íslands, þannig að við verði unað.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vék að góðum kveðjum sem hún hafði fengið frá útlöndum eftir að hún tók við. Hún sagðist leggja áherslu á samtal við þjóðina.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur vikið stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna og ætlar að hitta námsmenn í ráðuneytinu í fyrramálið.
Ung vinstri græn fagna því að Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra
skuli beita sér gegn álveri á Bakka og skora á hana að gera slíkt hið sama
varðandi álver í Helguvík.
Sturla Böðvarsson, fráfarandi forseti Alþingis, kvaddi þingheim og gömlu ríkisstjórnina á Alþingi áðan og lýsti um leið áhyggjum af mótmælum og árásum á Alþingi.
Meirihlutinn á Alþingi óskaði eftir því áðan að kosinn yrði nýr þingforseti, Guðbjartur Hannesson í stað Sturlu Böðvarssonar. Sjálfstæðismenn telja gengið á virðingu þingsins í boði Framsóknar.
Alma, áhugasamtök um mannréttindi gagnrýna lögregluyfirvöld fyrir að ófrægja mótmælendur við unglinga í Félagsmíðstöðvujm. Samtök segja að lögreglan sé í áróðurs- og rógsherferð gegn tjáningafrelsinsu.
Lesa meira
Guðbjartur Hannesson Samfylkingu er undrandi á ummælum Geirs H. Haarde, um að það sýni takmarkalausa valdagræðgi að skipta um forseta Alþingis.
Lesa meira
Guðbjartur Hannesson Samfylkingu er undrandi á ummælum Geirs H. Haarde, um að það sýni takmarkalausa valdagræðgi að skipta um forseta Alþingis.
Lesa meira
Sigtryggur Magnason aðstoðar menntamálaráðherra á vorþingi, en aðstoðarmaður formanns vinstri grænna fylgir honum væntanlega í fjármálaráðuneytið.
Jón Bjarnason hefur tekið við starfi þingflokksformanns vinstri grænna, eftir að Ögmundur Jónasson tók við starfi heilbirgðisráðherra.
Árni Páll Árnason, alþingismaður, sækist eftir kjöri til varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem haldinn verður í næsta mánuði.
Lesa meira
Áherslur ríkisstjórnarinnar í lýðræðisátt snúast um sameign þjóðarinnar á auðlindum, ný kosningalög sem gera persónukjör mögulegt í næstu kosningum og breyting á lögum um dómaraskipan.
Nýr sjávarútvegsráðherra hefur varað veiðiréttarhafa hvalveiðikvóta við því að nýleg reglugerð fyrrverandi sjávarútvegsráðherra verði endurskoðuð.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar sem nú stendur yfir að hún hafi rætt við Davíð Oddsson, formann bankastjórnar Seðlabankans, í morgun. Davíð sagðist þurfa meiri tíma til þess að bregðast við ósk hennar um starfslok hans.
Lesa meira
Áform eru uppi um að leggja niður störf aðstoðarmanna þingmanna í sparnaðarskyni. Alþingi og ríkisstjórn leitar ýmissa leiða til sparnaðar við æðstu stjórn ríkisins.
Kristín Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs frá Sosialistisk er væntanleg til Ísland um næstu helgi, í afmæli systurflokksins VG. Þar verður rætt um gjaldeyrissamstarf og íslensk/norska krónu.
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, mun afnema komugjöld á sjúkrahúsum með reglugerð á morgun. Hann segir að nýboðaðar skipulagsbreytingar í heilbrigðiskerfinu verði endurskoðaðar.
Ýmis grasrótarsamtök héldu í gær fyrrihluta stofnfundar með framboð til Alþingiskosninga í huga. Fundurinn tók ekki formlega afstöðu en búast má við frekari fréttum um næstu helgi.
Ný ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tekur nú við stjórn landsins og ætlar að leggja áherslu á björgun heimilanna í landinu. Ragna Árnadóttir, verður dómsmálaráðherra.
Fundur nýrrar ríkisstjórnar með fjölmiðlum hófst um 20 mínútum á eftir áætlun og er hann í beinni útsendingu frá Hótel Borg.
Mótmæli héldu áfram á Austurvelli í dag og virtist baráttuhugur fólksins síst hafa minnkað. Frummælendurnir þrír uppskáru lófatak og húrrahróp og áfram er krafist lýðræðis.
Stíft er fundað í þingflokkum flokkanna þriggja, Framsóknar og Samfylkingar og Vinstri grænna, svo mynda megi ríkisstjórn þeirra síðarefndu áður en helgin líður.
Lesa meira
Ekki lítur út fyrir að ný ríkisstjórn verði til fyrr en eftir helgi. Framsókn hefur boðað miðstjórnarfund síðdegis á morgun.
Lesa meira
Konur úr Neyðarstjórn kvenna hafa ákveðið að stefna að kvennaframboði fyrir næstu Alþingiskosningar. Þetta var ákveðið í gærkvöld með miklum stuðningi.
Lesa meira
Raddir fólksins hafa ekki hljóðnað og á morgun verður 17. útifundurinn á Austurvelli, klukkan þrjú eins og venjulega. Raddirnar minna á að Seðlabankastjóri situr enn.
Eftir tæplega 18 ára ríkistjórnarsetu ætlar Sjálfstæðisflokkurinn nú að „snúa vörn í sókn“. Flokkurinn hélt sinn sinn fyrsta opna stjórnmálafund eftir stjórnarslitin fyrir fullu húsi á Hótel Grand í dag. Geir Haarde segir hatur Samfylkingarinnar á einum manni helstu skýringu slitana.
Lesa meira
Engar viðræður hafa farið fram milli leiðtoga nýju ríkisstjórnarflokkanna og Seðlabankastjóra, enn sem komið er. Davíð Oddsson, Seðlabankastjóri hefur ekki gefið neitt út opinberlega.
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon fara hvort um sig með tvöföld viðamikil ráðuneyti í nýju ríkisstjórninni sem er að taka við völdum.
Unnið var fram á nótt að ríkisstjórnarmyndun. Gylfi Magnússon, hagfræðingur í HÍ tekur sæti sem viðskiptaráðherra. Samkomulag ríkisstjórnar kynnt í dag.
Lesa meira
Verðandi ríkisstjórnarflokkar samþykkja kröfu Framsóknar um stjórnlagaþing, en útfærslan á því er öll eftir. Málefnasamningur ríkisstjórnar er svo gott sem í höfn.
Neikvæð áhrif af reglugerð Einars K. Guðfinnssonar eiga eftir að spilla fyrir ferðaþjónustu í langan tíma, nema ný ríkisstjórn taki af skarið meðan athygli er á Íslandi, að mati talsmanns í ferðaþjónustu.
Lesa meira
Háskóli Íslands brást vel við boðaðri „stofutöku“ Öskru! hreyfingar byltingarsinnaðra háskólanema og útvegaði þeim stóra kennslustofu á Háskólatorgi til þess að halda málfund sinn. Fundurinn hófst nú klukkan 15.
Lesa meira
Efirlaunalögin verða afnumin þegar ný ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar tekur við samkvæmt heimildum Smugunnar. Þetta var ein af kröfum Vinstri grænna við upphaf stjórnarmyndunarviðræðna við Samfylkinguna. Þá verður einnig leitað leiða til að koma á stjórnlagaþingi.
Lesa meira
Öskra! ætlar að leggja undir sig kennslustofu í Háskóla Íslands til þess að halda opinn fund. Þau eru að mótmæla því skólin skuli krefjast leigugjalds frá stúdentum sem vilja halda málfundi eða stunda uppbyggilega starfsemi í húsakynnum skólans.
Gestir í kokteilboði NATÓ á Hótel Hilton fengu óblíðar viðtökur frá hernaðarandstæðingum í kvöld. Eftir að gestirnir höfðu gengið inn beitti lögreglan mótmælendur valdi og handtók fimm, þar af einn fyrir að brenna svartan fána.
Lögregla hefur mikinn viðbúnað við Hilton Hótel Nordica við Laugaveg, en þar hefur staðið Nató-kokkteill síðdegis.
Neyðarstjórn kvenna telur sig þurfa um tvo mánuði til að undirbúa framboð sitt til Alþingis. Raddir fólksins vilja að þjóðin ákveði kjördag með milligöngu forseta.
Lesa meira
Lögreglan rannsakar nú blogghótun undir fölsku nafni sem Hlédís Guðmundsdóttir, læknir og mótmælandi fékk á bloggsíðu sína í gær.
Lesa meira
Íslenskir mótmælendur hafa nú grafið upp að Atlantshafsbandalagið (NATO) mun halda kokteilboð sitt á Hótel Hilton Nordica klukkan 18:30 í dag.
Hvatning flokkahóps í Norðurlandaráð til fjármálaráðherra Norðurlanda um að leita sameiginlegra norrænna lausna á efnahagsógninni og byrji á Íslandi.
Ráðherra sýni þríþætt virðingarleysi með ákvörðun um hvalveiðar. Hann óvirði lýðræði, náttúru og stjórnsýslu .
Öskra! hreyfing byltingarsinnaðra stúdetna býður öllum upp á ókeypis mat á Háskólatorgi Háskóla Íslands klukkan 12 í dag. Maturinn er í boði offramleiðslu kapítalismans.
Lesa meira
Svo virðist sem hernaðarbandalagið NATO hafi hlaupið í felur með fyrirhugað kokteilboð sitt í Þjóðmenningarhúsinu dag vegna boðaðra mótmæla þar fyrir utan.
Formlegur fundur formanna Vinstri grænna og Samfylkingar um myndun nýrrar ríkisstjórnar var að hefjast. Flokksmenn Vg lýsa eindregnum stuðningi við stjórnarmyndun.
Flokksráðsfundur Vinstri grænna samþykkti einróma að lýsa yfirstuðningi við þátttöku þingflokks flokksins í yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræðum við Samfylkinguna í gærkvöldi. Á fundinum kynnti Steingrímur J. Sigfússon formaður flokksins þau verkefni sem liggja munu fyrir nýrri ríkisstjórn.
Lesa meira
Bæjarráð Sandgerðis íhugar að leita réttar sína gangvart heilbrigðisyfirvöldum eftir að hætt var við að opna heilsugæslustöð í húsnæði í ráðhúsi bæjarins sem bærinn hefur lagt mikinn kostnað í að innrétta.
Lesa meira
Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir útgáfa reglugerðar um hvalveiðar til loka árs 2013, stappi nærri geggjun og sé spilling af verstu sort.
Lesa meira
Margar konur í neyðarstjórn kvenna eru félagar í öðrum flokkum og jafnvel starfandi fyrir aðra flokka. 2300 konur eru í neyðarstjórninni, til dæmis úr röðum borgarfulltrúa að minnsta kosti tveggja flokka.
Lesa meira
Tekist verður á um kjördag. Samfylkingin vill kjósa í lok maí, en Vinstri græn vilja að kjördagur verði 4. apríl.
Formenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ræða nú við þinglokka væntanlegra ríkisstjórnar um helstu atriði í nýju samstarfi.
Vinstri grænir hafa boðað til flokksráðsfundar í Reykjavík í kvöld. Þar á að ræða stöðu og framtíðarhorfur í landsstjórninni. Samfylkingin hefur ekki boðað til fundar.
ngibjörg Sólrún Gísladóttir og Steingrímur J. Sigfússon ganga til viðræðna um nýja ríkisstjórn og stjórnarsáttmála eftir fund sem nú stendur með forseta á Bessastöðum.
Lesa meira
Neyðarstjórn kvenna hefur boðað stofnun nýrrar stjórnmálahreyfingar kvenna á fimmtudagskvöld. Á stofnfundinum verður kosin stjórn og lagður fram samfélagssáttmáli.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar hafa verið boðuð til Bessastaða á fund forseta Íslands. Ný minnihlutastjórn verður mynduð.
Neyðarstjórn kvenna vill að ráðamenn þjóðarinnar axli ábyrgð „á því efnahagslega hruni sem hér hefur orðið með því að setja stjórn ríkisins í hendurnar á færustu sérfræðingum sem völ er á fram að kosningum.“
Lesa meira
Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur forsetinn hafi í ávarpi sínu á Bessastöðum að loknum fundi með Geir H. Haarde farið út fyrir hlutverk sitt. Hann segir þjóðstjórn lang eðlilegasta kostinn og að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki skilyrt þáttöku í slíkri stjórn.
Lesa meiraÞingrofsréttur verður ekki nýttur. Geir hefur ekki óskað eftir umboði til stjórnarmyndunar, en hann er tilboð um þjóðstjórn stendur.
Geir H. Haarde forsætisráðherra gekk rétt í þessu á fund Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands til þess að biðjast launsar fyrir sig og sitt ráðuneyti.
Lesa meira
Þau boð ganga nú um grasrótina að falli ríkisstjórnarinnar verði fagnað á Austurvelli á eftir klukkan 16.00. Krafa mótmælahreyfingarinnar í landinu hefur verið að ríkisstjórnin víkji undanfarnar 17 vikur.
Lesa meira
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir býður Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra fram sem forystumann í sinn stað, meðan hún sjálf safnar kröftum en verður áfram formaður.
Hópur fólks fagnaði á Austurvelli þegar fréttir af falli ríkisstjórnarinnar bárust út úr Alþingishúsinu. Það hefur verið krafa mótmælahreyfingarinnar í landinu allt frá því efnahagshruninu að ríkisstjónin myndi víkja og boðað yrði til kosninga.
Lesa meira
Ingibjörg Sólrún formaður Samfylkingarinnar segir að hún hafi lagt til að Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra tæki við forystu í fallinni ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar en því hafi Sjálfstæðisflokkurinn hafnað. Sjálf ætlaði hún að víkja.
Lesa meira
Geir H. Haarde forsætisráðherra tilkynnti nú rétt í þessu að ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar væri slitið. Hann telur þjóðstjórn vænlegasta kostinn við stjórn landsins fram að kosningum.
Lesa meira
Samfylkingin vill öfluga starfsstjórn sem nýtur trausts fram að kosningum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sækist ekki eftir forsætisráðherrastól.
Nú er að hefjast blaðamannafundur að loknum þingflokksfundum stjórnarflokkanna. Mikil spenna er um framhaldið.
Lesa meira
Tveir fjölmennir fundir sjúkraliða skoruðu fyrir helgi á heilbrigðisráðherra að standa vörð um velferðarkerfið og láta af aðför að því. Þeir segja að aldrei hafi verið brýnna að efla heilbrigðiskerfið en nú.
Lesa meira
Kristinn Örn Jóhannesson, formannsframbjóðandi í VR, vill að Gunnar Pál Pálsson, núverandi formaður, dragi formannsframboð sitt til baka og fylgi þar með fordæmi viðskiptaráðherra og axli ábyrgð á sínum hluta í bankahruninu.
Lesa meira
Nokkrir tugir mótmælenda hafa kveikt bál við Seðlabanka. Dansað er við bálið og hrópað óhæf bankastjórn.
Lesa meira
Ríkisstjórnin hefur ekki komist að niðurstöðu um breytingar sem geti gert henni kleift að starfa áfram. Rætt er um breytta verkstjórn.
Lesa meira
Ragnheiður Ríkarðsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir við RÚV að hún vænti þess að Sjálfstæðisflokkurinn víki Davíð Oddssyni úr Seðlabankanum.
Lesa meira
Möguleikar í stjórnun landsins fram til kosninga eru takmarkaðir. Formaður Vinstri grænna telur að kjósa þurfi sem allra fyrst.
Lesa meira
Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar segir kröfu um nýja yfirstjórn Seðlabankans hafa harðnað svo við afsögn viðskiptaráðherra að Sjálfstæðisflokkur eigi ekki annan kost en að svara því kalli.
Lesa meira
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir ekki sjálfgefið að Seðlabankastjóri hætti þótt forstjóri og stjórn Fjármálaeftirlits hverfi frá. Óvíst er hvort ríkisstjórnin lifir daginn.
Lesa meira
Viðskiptaráðherra kynnti afsögn sína á blaðamannafundi klukkan hálfellefu. Stjórnendur Fjármálaeftirlsins víkja líka. Formenn stjórnarflokkanna hittast í dag.
Lesa meira
Sífellt fjölgar í mótmælum við Hótel Hilton þar sem árshátíð Seðlabankans fer fram. Nú mótmæla um 100 manns með miklum hávaða og hrópa „vanhæf bankastjórn“. Hópurinn er nú kominn á bak við hótelið en ekki er vitað hvort Davíð Oddsson hafi nú þegar að lætt sér inn um bakdyrnar.
Um 20 mótmælendur eru nú staddir við Hótel Hilton þar sem árshátíð Seðlabanka Íslands fer fram. Þess er krafist að bankastjórn Seðlabankans víki. Davíð Oddsson formaður hennar er ekki kominn í hús en það er búist við honum á árshátíðina.
Lesa meira
Nokkur hundruð manns enn takt búsáhaldabyltingarinnar á Austurvelli. Fyrr í dag kom þar saman fjölmenni til að krefjast afsagnar ríkisstjórnarinnar og kosninga. Á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og í Mývatnssveit kom voru haldnir útifundir af sama tilefni.
Lesa meira
Vinstrihreyfingarin – grænt framboð mun halda landsfund sinn helgina 20. til 22. mars. Vinstri græn eru þriðji stjórnmálaflokkurinn sem flýtir landsfundi sínum í kjölfar efnahagshrunsins. Vinstri græn vilja að kosið verði 4. apríl.
Mótmælafundir verða haldnir um víðsvegar um land í dag og er krafa þeirra allra að ríkisstjórnin víki og boðað verði til kosninga. Þeir verða á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, í Mývatnssveit og Reykjavík.
Lesa meira
Landsfundi Sjálfstæðisflokksins verður frestað til marsloka. Geir H. Haarde greindi frá því í Valhöll áðan að hann hefði greinst með illkynja æxli í vélinda. Hann sækist ekki eftir endurkjöri.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar telur ekki skynsamlegt að slíta ríkisstjórnarsamstarfi nú. Óvissa í stjórnmálum er síst minnkandi.
Staða efnahagsmála og horfur á vinnumarkaði til umræðu á Alþingi. Forsætisráðherra flytur munnlega skýrslu.
Mótmæli gærkvöldsins enduðu með slysum og rúðubrotum. Gangstéttarhellu var hent í lögreglumann sem liggur á sjúkrashúsi. Mótmæli gegn ofbeldi í mótmælum eru boðuð.
Mótmælendur og félagar í Samfylkingu í Reykjavík reyndust sammála um að boða beri til kosninga og slíta ríkisstjórnarsamstarfinu hið fyrsta.
Lesa meira
Raddir fólksins sendu frá sér tilkynningu vegna mótmæla við Alþingishúsið þriðjudaginn 20. janúar og miðvikudaginn 21. janúar. Þar er allt ofbeldi harmað.
Lesa meira
Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að ríkisstjórnin boði til kosninga og mynduð verði vinstri stjórn á Íslandi. Nýr formaður Framsóknar lýsti í dag stuðningi við slíka stjórn.
Nokkrir ljósmyndarar saka lögreglu um að úðað piparúða sérstaklega á sig til þess að koma í veg fyrir að þeir gætu ljós- og kvikmyndað mótmælin við Alþingishúsið í gær. The British Journal of Photography fjallar meðal annars um málið á síðu sinni.
Mótmælendur fluttu sig af Austurvelli og að stjórnarráðinu nú áðan og reyndu að koma í veg fyrir ráðherrabíl Geirs H. Haarde forsætisráðherra kæmist út af bílastæðinu við stjórnarráðið. Svo virðist sem Geir hafi hraðað sér út í bílinn um leið og fréttist af því að mótmælendur væru á leiðinni að stjórnarráðinu.
Engin stórtíðindi urðu á klukkustundarlöngum fundi formanna stjórnmálaflokkanna sem fram fór nú eftir hádegi.
Lesa meira
Sturla Böðvarsson forseti Alþingis segir að þingfundi hafi verið frestað í dag vegna þess að verið sé að „gera við þinghúsið og hreinsa það að utan.“Hann segir að þingstörf muni halda áfram á morgun áháð öllum mótmælum.
Boðað hefur verið til mótmæla og borgarafundar á Akureyri í dag. Klukkan 17 verður mótmælt á Ráðhústorginu og er fólk hvatt til „að mæta með potta og sleifar eða hvaðeina sem framkvæmir hávaða svo að ríkisstjórnin vakni“. Klukkan 20 í kvöld verður svo haldinn borgarfundur um menntamál í Deiglunni.
Lesa meira
Enginn þingfundur verður á Alþingi í dag. Sturla Böðvarsson forseti Alþingis skýrði þingfloksformönnum frá þessu á fundi nú áðan. Ljóst er að mótmælin við Alþingishúsið í gær er ástæða þess að enginn þingfundur verður í dag.
Krafa er komin fram um að yfirstjórn lögreglu, talsmaður mótmæla og forseti þingsins og fleiri komi fyrir allsherjarnefnd til að ræða atburði gærdagsins
Lesa meira
Flestir þeir sem handteknir voru í mótmælunum í gær, virðast hafa undirgengist dómsátt, en einhverjir ætla að leita réttar síns. Foreldrar handtekinna unglinga eru slegnir.
Lesa meira
Mótmælendur rifu nú áðan laust Óslóartréð og hugðust nota það á eldinn við Alþingisdyrnar. Eldur hefur tvívegis blossað upp í trénu á leiðinni.
Meðfram mótmælum við Alþingishúsið skíðlogar enn í stórum bálkesti. Eldtungurnar teygja sig hátt upp í loft og glóð rignir yfir viðstadda.
Lesa meira
Á ellefta tímanum er enn mótmælt fyrir utan Alþingishúsið og nú hafa Akureyringar bæst í hóp mótmælenda. Á báðum stöðum logar bál mótmæla gegn stjórnvöldum.
Lesa meira
Á tíunda tímanum loga mótmælin enn fyrir utan Alþingishúsið. Ekki fást upplýsingar um fjölda særðra eða handtekinna á þessari stundu.
Lesa meira
Lögreglan hefur handtekið vel á annan tug mótmælenda í dag fyrir að hlíða ekki fyrirmælum sínum. Þeir eru nú í haldi í bílakjallara Alþingishússins. Samkvæmt heimildum Smugunnar var 11 ára drengur meðal þeirra sem lögreglan handtók, en honum hefur verið sleppt.
Lesa meira
Nokkuð hefur fækkað í hópi mótmælenda við Alþingishúsið. Þeir sem eftir eru skiptast í tvo um það bil 300 manna hópa fyrir framan og aftan húsið og sýna á sér lítið fararsnið og láta vel í sér heyra.
Lesa meira
Dagskrá þingsins var rofin áðan, líklega vegna ástandsins úti fyrir, eftir að tekist hafði verið á um fundarstjórn í allangan tíma.
Lögregla er að rýma Alþingisgarðinn. Þeir segjast beita gasi fari fólk ekki úr garðinum þegar í stað. Þetta sé ekki garður fólksins.
Lesa meira
Lögreglan gekk fram úðaði piparúða á fólk sem hafði komið sér fyrir á bak við Alþingishúsið og barði húsið að utan. . Þetta gerði hún til þess að rýma svæðið. Hún gekk fram í breiðfylkingu og ýmist úðaði með jöfnu millibili, eða steig fram og rýmdi svæðið. Lögreglusveitin hefur nú slegið skjaldborg um þetta svæði sem er í horninu þar sem Alþingishúsið og viðbygging þess mætast.
Þingmundur er nú hafinn á Alþingi en fyrir utan mótmælir fólk hástöfum, snýr hrossabrestum, lemur saman pottlokum og lemur húsið að utan með berum höndum. Mönnum er mjög heitt í hamsi inn eins og úti.
Lesa meira
Nú rétt í þessu ruddist óeyrðarlögreglan í gegnum mannþröngina á bak við Alþingishúsið, þar sem Alþingishúisið sjálf og viðbygging þess mætast. Sveitin, sem er vel búin, með hjálma skyldi og vopnuð kylfum. Hún er nú búin að rýma svæðið í horninu.
Lesa meira
Sífellt fjölgar mótmælendum á Austurvelli og nú rétt í þessu gengu tveir þingmenn vinstri grænna út úr Alþingishúsinu og inn í hóp mótmælenda.
Amnesty International hefur gefið út gátlista fyrir Barak Obama nýjan Bandaríkjaforseta, sem settur er í embætti í dag.
Lesa meira
„Stjórnarsáttmálinn er týndur, ríkisstjórn umboðslaus og stjórnað frá degi til dags, stundum þvert á stefnumál Jafnaðarmanna og hugmyndir þeirra um eðlileg vinnubrögð, “ segir Mörður Árnason frummælandi á fundi Samfylkingarinnar í Reykjavík annað kvöld.
Lesa meira
Öskra! hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta hvetur „stúdenta og alla þá sem neita að loka augunum fyrir spillingunni að sameinast“ til þess að fylkja liði og stöðva setning Alþingis á morgun. Safnast verður saman við Háskólatorg klukkan 12:30 á morgun, þriðjudag.
Lesa meira
Willem Buiter, prófessor, telur Evrópusambandsaðild útilokaða um ófyrirsjáanlega framtíð neiti Íslendingar að greiða IceSave reikninga.
Lesa meira
Læknaráð heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri segir í ályktun sem það sendi frá sér i dag að tillögur heilbrigðisráðherra um að sameina allar sjúkrahúsrekstur og heilsugæslu á Norðurlandi undir einn hatt vera vanvirðingu „við uppbyggingar- og þróunarstarf heilsugæslunnar á Íslandi á liðnum árum.“
Lesa meira
Samfylkingarfélagið í Reykjavík hefur boðar til fundar um um stjórnarsamstarfið á miðvikudagskvöld. Tilefni fundarins eru efasemdir um ríkisstjórnina.
Lesa meiraBreytingum í heilbrigðisþjónustu er harðlega mótmælt hjá VG í Reykjavík og vinnubrögð við undirbúning tillagna fordæmd.
Lesa meira
Hlutfall landsmanna sem skráðir skráðir eru í þjóðkirkjuna er nú komið undir 80 prósent – var 78,6 prósent þann 1. desember síðastliðinn. Hlutfallið hefur því lækkað um rúm tíu prósentustig á einum áratug, en það var 89,37 prósent árið 1998.
Lesa meira
Stofnfundur Hagsmunasamtaka heimilanna krefst lagabreytinga sem gera það að verkum að veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði. Þess er einnig krafist að fjárnámum og uppboðum á íbúðarhúsnæði einstaklinga verði stöðvuð tafarlaus.
Lesa meira
Hörður Torfason leiðtogi mótmæla á Austurvelli hvatti fólk til að mæta á Austurvöll á þriðjudag þegar Alþingi kemur úr jólaleyfi og vekja þingmenn með hrossabrestum.
Lesa meiraÍslensk ljóðskáld hvetja íslensk stjórnvöld til að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Með afskiptaleysi sínu sé ríkisstjórn Íslands að samþykkja framferði Ísraelsmanna.
Félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök gangast fyrir mótmælafundi í Háskólabíói á sunnudaginn undir kjörorðinu: ÞJÓÐARSAMSTAÐA GEGN FJÖLDMORÐUNUM Á GAZA.
Lesa meira
Fundarboðendur friðsamlegra mótmæla á Ráðhústorgi á Akureyri fengu ekki að hengja upp auglýsingu í Verkmenntaskóla Akureyrar. Fundur á morgun snýst um mentamál.
Þolinmæði er á þrotum í jafnréttisbaráttu og lagðar eru til nýjar leiðir. Jafnrétti er brýn nauðsyn en ekki gæluverkefni var sagt á Jafnréttisþingi í dag.
Lesa meira
Ráðherra lýsti því yfir í upphafi jafnréttisþings að hún hallist æ meira að því að taka um kynjakvóta í fyrirtækjum til að ná jafnrétti
Lesa meira
Ráðherra jafnréttismála vill breyta áherslum í verkefnavali til að framkvæmdaáætlun um jafnrétti skili árangri. Meta þurfi árangurinn þegar verkefnum lýkur.
Lesa meira
Hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta sem kallar sig Öskra er að rísa upp í Háskóla Íslands. Í yfirlýsingu sem Smugunni barst kemur fram að hreyfingin ætli að sniðganga „Við sniðgöngum hina hefðbundnu stúdentapólitík og beitum okkur af fullum krafti gegn því óréttlæti sem hefur fengið að ríkja í öllu samfélaginu.“
Lesa meira
Breytingar í heilbrigðisþjónustu er greinilegur undanfari meiri einkavæðingar í heilbrigðisþjónustu, að mati Vinstri grænna, en þingflokkurinn hefur sent frá sér ályktun um horfurnar.
Fundi starfsmanna og yfirstjórnar Landhelgisgæslunnar vegna fyrirhugaðra uppsagna lauk á fimmta tímanum. Óvissa er áfram um fjölda uppsagna.
Verkalýðshreyfingin í heiminum hefur miklar áhyggjur af vaxandi atvinnuleysi allsstaðar. Sendinefndir 80 verkalýðssambanda funda nú í Washington vegna kreppunnar.
Lesa meira
Búist er við að endurgreiðslur ofgreiddra bóta verði sumum þyngri baggi í ár en verið hefur. Örtröð er hjá Tryggingastofnun ríkisins vegna bótauppgjörs og reglugerðarbreytinga.
Lesa meira
Landspítalinn hefur gefið út leiðbeiningar um piparúða þann sem lögregla hefur beitt gegn mótmælendum að undanförnu.Í þeim kemur fram að piparúðinn hafi mjög fjölbreytt og mikil áhrif á þá sem fyrir honum verða.
Landhelgisgæslan tilkynnir um uppsagnir á morgun. Vegna trúnaðar við starfsmenn fást ekki nánari upplýsingar hjá stofnuninni nú. Formaður SFR harmar að störf séu ekki varin.
Lesa meira
Krafa um ógildingu á samþykkt skipulagstillögu sem gerir ráð fyrir virkjun Þjórsár í byggð var afhent umhverfisráðherra í dag.
Lesa meira
Dómsmálaráðherra sagð á opnum stjórnmálafundi Sjálfstæðisflokksins á Reyðarfirði í gærkvöldi að hann efaðist um að geta veitt ráðherrum ríkisstjórnarinnar nægilega vernd í mótmælum á Íslandi. Hann vísaði til þess að ráðherrar hefðu verið myrtir í Svíþjóð og menn gagnrýndir í kjölfarið fyrir að veita þeim ekki næga vernd.
Lesa meira
Skýr meirihluti Norðmanna telur að Noregur eigi ekki að sækja um aðild að Evrópusambandinu, þótt Ísland sækti um aðild innan skamms. 57% eru andvíg samkvæmt nýrri könnun.
Lesa meira
Þrír mótmælendur sem mættu til mótmæla við Hótel Borg á gamlársdag hafa boðist til að bæta það eignartjón sem forsvarsmenn Stöðvar 2 segja mótmælendur hafa valdið sér. Mótmælendurnir þrír sem segjast mæla fyrir hönd „ábyrgra mótmælenda“ hafa því óskað eftir uppýsingum um mat á skemmdum frá óháðum aðila.
Lesa meira
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var ráðherrann sem varaði stjórnsýslufræðinginn við því að "ganga ekki á starfsheiður sinn."
Skuldir ríkissjóðs verða á bilinu 1400 til 1600 milljarða króna af völdum bankahrunsins. Bara á árinu 2011 þarfríkissjóður aðgreiða til baka erlend lán upp á 220 milljarða miðað við núverandi gengi. Eru það endurgreiðslur á erlendum lánum sem hvorki tengjast Icesave né „björgunarpakka“ AGS.
Lesa meiraTryggingastofnun rukkar ofgreiddar bætur, símkerfið hrynur og þjónustumiðstöð sprengist af álagi. Lífeyrisþegar fá bakreikninga vegna ofgreiðslu bóta þessa dagana.
Lesa meira
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur, segir heilbrigðisráðherra hafa reynt að fara gegn ríkisstjórnarsáttmála með samþykktum Sjálfstæðisflokks, en verið stöðvaður af þingmönnum Samfylkingar.
Lesa meiraÁ þriðja tug mótmælenda varnaði Björgvin G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra inngöngu í Alþingishúsið, þegar hann kom þangað til ríkisstjórnarfundar í morgun.
Lesa meira
Bandaríski álframleiðandinn Alcoa, sem á og rekur álverið á Reyðarfirði, tapaði 929 milljónum bandaríkjadala á fjórða ársfjórðungi nýliðins árs. Tapið er rekið beint til algjörs verðfalls á heimsmarkaðsverði á áli, en fyrirtækið segir það hafa hrapað um 56 prósent frá júlí.
Lesa meira
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur, einn frummælenda á opnum borgarafundi í Háskólabíó í kvöld, sagði að ráðherra úr ríkisstjórn Íslands, sem hún vildi ekki nafngreina, hefði sagt henni að gæta orða sinna á fundinum starfsheiðurs og -frama sín vegna. Hún gagnrýni heilbrigðisráðherra harðlega í framsögu sinni.
IÍslendingar sitja áfram uppi með breskan hryðjuverkastimpil eftir að íslenska ríkisstjórnin gaf frá sér að málsókn á hendur Bretum
Lesa meira
Um fjórðungur launþega óttast nú um starf sitt, samkvæmt skoðanakönnun Alþýðusambandins. 85% atvinnulausra hafa misst vinnu eftir bankahrun og 14% hafa lækkað í launum.
Lesa meira
Aftur verður borgarafundur í Háskólabíói í kvöld. Sérfræðingar leita þar svara við því hvað gerðist á Íslandi í aðdraganda kreppunnar.
Lesa meiraHeilbrigðisráðherra hlaut neikvæðar undirtektir í Hafnarfirði þar sem hann lýsti framtíð St. Jósefsspítala. Starfsemi er í fullkominni óvissu, segir starfsfólk sem hefur uppfært heimasíðu spítalans.
Stjórn Vg í Reykjavík fordæmir grimmilegar og gegndarlausar árásir Ísraelshers á íbúa herteknu svæðanna á Gaza.
Þúsundir manna mótmæltu ríkisstjórninni, spillingu, niðurlagningu spítala, nauðungarflutningum aldraðra, hernaði í Palestínu á fundum víða um land í dag.
Lesa meiraMikil ólga er í Hafnarfirði vegna áforma um að loka St. Jósefsspítala. Bæjarstjórinn segir lokunina raska heilsugæslu í bænum og koma illa við Hafnfirðinga. Öllu samráði hafi verið hafnað.
Lesa meira
Heilbrigðisnefnd Alþingis fór yfir tillögur heilbrigðisráðherra að gjörbreyttu skipulagi heilbrigðisþjónustu. Ríkisstjórnarflokkarnir standa saman í hinu umdeilda máli.
Lesa meira
Sveitastjóri Þingeyjarsveitar vill að leitað annarra kaupenda en Alcoa að þeirri raforku sem hægt er að virkja á Norð-Austurlandi. Hann segist vita af áhuga nokkurra kísilflöguframleiðenda á að byggja upp verksmiðju svæðinu. Þetta kom fram í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær.
Lesa meira
Selfoss, Akureyri, Hafnarfjörður, nú blossa mótmælin upp allsstaðar á landinu, bylting í heilbrigðisþjónustu vekur mesta nú reiði.
Lesa meira
„Ég er stoltur glæpamaður“ sagði Eva Hauksdóttir aðgerðarsinni á opnum borgarfundi í Iðnó sem nú stendur yfir. Húsið nötraði að fögnuði þegar hún sagði „Réttlæti framar ólögum“. Troðfullt er út fyrir dyr og hefur fundurinn verið með fjörlegra móti. Einn jólasveinn lét meira að segja sjá sig.
Fundur verður haldinn í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki á morgun til að mótmæla. Íbúar Sauðárkróks eru mjög reiðir.
Lesa meiraHeilbrigðisráðherra hefur fundað með nokkrum læknum á St. Jósefsspítala og hittir almennt starfsfólk í kvöld. Fundað er utan dagvinnutíma til að trufla ekki starfsemina.
Lesa meira
Lögð var fram fyrirspurn um piparúðan sem lögregla hefur beitt á mótmælendur að undanförnu á síðast fundi heilbrigðisnefndar Reykjavíkurborgar. Í henni er vísað til frétta í erlendum fjölmiðlum um alvarlegt heilsutjón og jafnvel dauða af völdum piparúða.
Samkvæmt lögum ber ráðherra að hafa náið samráð fyrir breytingar eins og nú hafa verið kynntar á heilbrigðiskerfinu. Jón Bjarnason VG segir heilbrigðisráðherra brjóta lög.
Lesa meiraFélagið Ísland Palestína boðar mótmæli við sendiráð Bandaríkjanna vegna fjöldamorða á Gasa. Amnesty International biður Öryggisráð SÞ um að bregðast ekki óbreyttum borgurum .
Lesa meira
Frestur til þess að höfða mál fyrir breskum dómstólum vegna beytingu breska fjármálaráðuneytisins á hryðjuverkalögum til þess að frysta eigur Ísleninga í Bretlandi rann út klukkan 16 í dag. Þingflokkur Vinstri grænna segir í yfirlýsingu að ríkisstjórnina hafa brugðist skyldu sinni í málinu.
Lesa meiraStarfsfólk St. Jósepsspítala sem efndi til mótmæla fyrir utan blaðamannafund heilbrigðisráðherra telur boðaðar breytingar á starfseminni þar hagsmunapólitík af verstu gerð.
Lesa meira
Landinu verður skipt í sex heilbrigðisumdæmi og stofnanir sameinaðar. Sjúklingar, starfsfólk og verkefni færast milli landshluta. Breytingarnar valda umróti og er illa tekið af starfsfólki.
Lesa meiraTugir starfsfólks St. Jósepsspítala mótmæltu fyrirhugðum skipulagsbreytingum í heilbrigðisþjónstu og fjölmenntu á Hilton Hótel við Laugaveg þar sem áform stjórnvalda voru kynnt í dag.
Lesa meira
Boðaður samdráttur í rekstri Alcoa á heimsvísu mun ekki hafa áhrif á undirbúning að nýju álveri fyrirtækisins á Bakka við Húsavík. Samdrátturinn mun ekki heldur áhrif á rekstur álvers fyrirtækisins á Reyðarfirði.
Lesa meira
Um 50 manns mótmmælti við höfuðstöðvar Landsbankans á þriðja tímanum. Fólkið vildi Elínu Sigfúsdóttur bankastjóra frá störfum og „engar djöfulsins afskriftir“.
Lesa meiraPoul Thomsen, sem fer fyrir sendinefnd Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi, rekur ástæður efnahagshrunsins á Íslandi til einkavæðingar bankanna árið 2003 í viðtali um efnahagshrunið á Íslandi í nýjasta fréttabréfi AGS.
Lesa meira
Stjórn Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar fordæmir innrás Ísraelshers á Gazasvæðið. Formaður hreyfingarinnar segir utanríkisráðherra lýsa afstöðu Íslands, en ekki Sjálfstæðismenn.
Lesa meira
Lögreglustjóra, dómsmálaráðherra, aðgerðasinnum og nafnlausum anarkistum er boðið saman í pallborð á borgarafundi í Iðnó annað kvöld.
Lesa meira
Sól á Suðurlandi tekur undir með Græna Netinu og Náttúruverndarsamtökum Íslands sem átelja áform ríkisstjórnarinnar um ríkisstyrk til að greiða fyrir álveri í Helguvík
Bent er á að fleira frá Hellisheiðarvirkjun en gufa geti haft áhrif á hálkumyndun á veginum um heiðina. Og svo er það auðvitað veðrið og almennari skilyrði.
Bandaríska álfyrirtækið Alcoa tilkynnti í gær að fyrirtækið muni fresta öllum nema nauðsynlegustu fjárfestingum á árinu þessu ári. Þetta er liður viðtækum aðgerðum sem fyrirtækið kynnti í dag til þess að bregaðast við fjármálakreppunni í heiminum.
Lesa meira
Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri Norðurþings segist treysta á áframhaldandi stuðning ríkisstjórnarinnar við uppbyggingu álvers á Bakka við Húsavík. Hann segir að haldið verði ótrautt áfram og engar áætlanir hafi breyst.
Lesa meira
Ábendingar um hálku vegna gufustróka frá Hellisheiðarvirkjun bárust Vegagerðinni fyrst fyrir rúmu ári, en hún trúði þeim ekki þá frekar en nú. Engin rannsókn hefur farið fram og stendur ekki til.
Lesa meira
Landsvirkjun mun að öllu óbreyttu ekki afla þeirra 200 til 250 megavatta (MW) sem upp á vantar til álvers Norðuráls í Helguvík. Þetta segir Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar.
Lesa meira
Bilið milli atvinnuleysisbóta og lægstu bóta almannatrygginga hefur breikkað mikið. Bætur öryrkjans eru nú 30 þúsund kr. hærri en bætur eftir þrjá mánuði á atvinnuleysisskrá.
Líkur á að hvorki ríkið né Landsbankinn höfði mál á hendur Bretum vegna Icesave og hryðjuverkalaga.
Lesa meira
Formenn stjórnmálaflokkanna sem eiga eiga sæti á Alþingi munu hittast á fundi klukkan 19 í kvöld og ræða stöðu Icesave-málsins. Geir H. Haarde forsætisráðherra boðaði til fundarins að ósk Steingríms J. Sigfússonar formanns Vinstri grænna.
Lesa meira
Vinstri græn gagnrýna misvísandi skilaboð ríkisstjórnar vegna blóðbaðsins á Gaza.
Lesa meiraUngir jafnaðarmenn taka undir með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar og fordæma innrás Ísrahelshers á Gaza.
Hitaveita Suðurnesja getur ekki aflað allrar þeirrar viðbótarorku sem Norðurál gerir ráð fyrir í nýjum áætlunum um álver í Helguvík. Fullnustu á orkusölusamningi fyrirtækisins við Norðurál hefur verið frestað til loka febrúar, en hann átti að fullnusta um áramót.
Lesa meira
Útlit fyrir að menn liggi marflatir fyrir Bretum og Evrópusambandinu og vegna skulda sem þjóðin getur aldrei greitt, segir talsmaður hópsins.
Lesa meira
Stjórn Græna Netsins telja Helguvíkursamning óvirðingu og vonda stjórnsýslu og spyr hve langt Samfylkingin hyggist ganga fyrir stjórnarsamstarf í trausti rúinni ríkisstjórn.
Náttúruverndarsamtök Íslands vilja skýringar á fyrirgreiðslu stjórnvalda vegna álvers í Helguvík. Þá þurfi Alþingi að sannreyna fullyrðingar ráðherra um orkuöflun, útblástur og atvinnusköpun.
Lesa meira
Heilbrigðisstofnunin Siglufirði hefur sagt upp öllum fimmtán starfsmönnum sínum. Í uppsagnarbréfi til starfsmanna kemur fram að uppsagnirnar séu liður fyrirhuguðum róttælum breytingum á stofnuninni.
Rafmagnskostnaður getur hækkað um tugi prósenta á köldum svæðum, þar sem hús eru hituð með rafmagni, ef ný hækkun Rarik á dreifingarkostnaði raforku stendur óbreytt.
Rúður hafa verið brotnar í Nornabúð Evu Hauksdóttur mótmælenda tvær nætur í röð. Skilaboðin eru skýr og gefa fólki með aðrar skoðanir góða ástæðu til að hylja andlit sitt.
Lesa meira
Fréttablaðið sem prentað var í prentsmiðju Árvakurs nokkra daga fyrir jól var aftur prentað í Ísafoldarprentsmiðju í gær. Samningur er um prentun þar út febrúar.
Lesa meira