Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Landsprent prentar Fréttablaðið án heimildar Samkeppniseftirlitsins

Landsprent prentar Fréttablaðið án leyfis frá Samkeppniseftirlitinu

22.12.2008

dagblod

Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir enga heimild hafa verið veitta fyrir prentun Fréttablaðsins í prentsmiðju Árvakurs, Landsprent. Samkvæmt heimildum Smugunnar hefur Fréttablaðið verið prentað þar síðan á föstudag. Samruni Árvakurs og Fréttablaðsins er nú til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.

„Við höfum litið á það sem hluta af fyrirhuguðum samruna að prentun Fréttablaðsins færist yfir til Landsprents. Við höfum ekki veitt neina sérstaka heimild fyrir breytingum þar á,“ segir Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Samruni Árvakurs og Fréttablaðsins er nú í flýtimeðferð hjá Samkeppniseftirlitinu. Páll Gunnar segir að Samkeppniseftirlitið bíði nú eftir upplýsingum frá fyrirtækjunum áður hægt halda áfram „Boltinn er hjá þeim segir hann,“ segir hann.

Páll Gunnar segist ekki geta staðfest hvort kvörtun hafi komið frá útgefanda DV vegna hækkunar Landsprents á prentkostnaði og breytingu á prenttíma. „Það hefur í það minnsta ekki verið tekin afstaða til slíkra kvartana.“

Tengdar fréttir

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica