Hvítþvottur og gagnaeyðing
Aðgerðarsinnar bjóða almenningi að hegða sér eins og yfirstéttin
Hvítþvottur og gagnaeyðing
Þeir sem eiga nú leið fram hjá Landsbankanum í Austurstræti býðst ókeypis hvíþvottur og gagnaeyðing.
Aðstandandi hvítþvottar- og gagnaeyðingarstöðvarinnar segir að allt venjullegt fólk geti komið og látið eyða reikningum sem þaðgetur ekki borgað. „Svo bjóðum við líka upp á hvítþvott fyrir þá sem þurfa nýtt mannorð,“ segir hann og bætir við: „Almenningur þarf að fá að hvítþvo sig og haga sér eins og yfirstéttin“
Aðgerðasinnarnir segja aðgerðina og staðarval hennar eiga að minna á að ekki séu allir jafnir fyrir lögunum, því meðan skuldir auðmanna og bankastjórnenda séu strikaðar út þurfi almenningur að borga.

