Pappírstæting við Landsbankann
Reikningar almúgans í tætara
Mótmælendur segjast undirbúa friðsama og fjölskylduvæna aðgerð í Austurstræti í morgunsárið. Þar ætla þeir að bjóða venjulegu fólki upp á pappírstætingu á reikningum sem fólk getur ekki borgað. Staðarvalið segja aðgerðasinnar eiga að minna á að ekki séu allir jafnir fyrir lögunum, því meðan skuldir auðmanna og bankastjórnenda séu strikaðar út þurfi almenningur að borga. Engin ástæða sé til að sætta sig við slíkt. Aðgerðahópar sem ekki hyggjast una ástandinu í íslensku þjóðfélagi eru enn ekki farnir í jólafrí. Þeir leggja áherslu á að mótmæli dagsins séu friðsamleg og raski ekki ró venjulegs fólks. Pappírstætingin er önnur tveggja aðgerða dagsins, hin er heimsókn til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands á Bessastaði, þar sem forsetinn verður beðinn um að stöðva fjárlagafrumvarpið.
Ríkissjóður leggur nýju viðskiptabönkunum þremur til 385 milljarða í nýtt eigið fé á næsta ári og leggur allt að 14 milljarða í nýtt stofnfé eða hlutafé sparisjóða. Gagnrýnt er að á sama tímá og þetta gerist nemur niðurskurður til mennta- velferðarkerfisins háum fjárhæðum. Þá hækka ennfremur almennir skattar, ekki þó fjármagnstekjuskattar og hátekjuskattur verður ekki lagður á.

