Barið á dyr forseta vegna fjárlaga
Heimsókn á Bessastaði
Ríkisstjórnin stefnir að því að afgreiða fjárlög næsta árs fyrir jól, með 153 milljarða króna halla. Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins reiknast nú til að heildartekjur ríkissjóðs verði rúmir 395,8 milljarðar króna, 65,3 milljörðum króna minna en á árinu 2008.
Stjórnarandstaðan telur fjárlagafrumvarpið óboðlegt, forsendur skorti auk þess sem áherslur í niðurskurði séu rangar.
Um 3000 manns höfðu svo skrifað undir áskorun um að forseti Íslands hafni afgreiðslu laganna. Fólk úr hópi mótmælenda hyggst fylgja málinu eftir á Bessastöðum eftir hádegi í dag.

