Sérréttindi inni - mótmæli úti
Mótmæli á Austurvelli - eftirlaun á Alþingi
Talsverður hópur fólks mætti á Austurvöll í dag, klukkan 15:00 til að sýna samstöðu gegn ástandinu í þjóðfélaginu með ellefu mínútna þögn. Sem fyrr fór Hörður Torfason fyrir hópnum sem gegnur undir nafninu Raddir fólksins.
Kröfur Radda fólksins eru sem fyrr:
Núverandi stjórn Seðlabankans víki tafarlaust.
Núverandi stjórn Fjármáleftirlitsins víki tafarlaust.
Kosningar sem fyrst.
Mótmælendur létu ekki þar við sitja því aðstandendur þeirra hittast oftar nú um helgina til að legga á ráðin um mótmælin sem verið er að skipuleggja næstu daga og vikur. Eftir þöglu mótmælin létu viðstaddir í sér heyra og púuðu í átt að Alþingishúsinu. Eftir að hópurinn hafði dreift sér tóku nokkrir af sér skóna og grýttu þeim í húsið að bandarískum sið. Næstu mótmæli á Austurvelli verða á laugardeginum milli jóla og nýjars. Aðstandendur þeirra segja að þá verði gefið í, aukinn kraftur verði settur í hreyfinguna og þau mótmæli verði ekki þögul.
Á meðan ræddu ráðherrar og alþingismenn um eigin eftirlaunakjör
Umræður um eftirlaunafrumvarp æðstu ráðamanna hófust á Alþingi eftir hádegi og var þeim ekki lokið þegar mótmælin hófust á Austurvelli.
Sjálfstæðismenn voru fátalaðir í annarri umræðu um eftirlaunakjör ráðherra, þingmanna og annarra æðstu ráðamanna þjóðarinnar. Meðan fólkið var að koma sér í þöglum mótmælum voru þingmenn að þjarka um forsögu eftirlaunaréttindanna, hver samþykkti hvað og hvernær. Þá var farið yfir útreikninga á því hvort réttindi almennra þingmanna hefðu rýrnað við hina umdeildu breytingu árið 2003.
Atkvæði verða greidd um eftirlaunafrumvarpið á Alþingi á eftir. Farið hefur verið fram á nafnakall og mun Smugan greina frá atkvæðagreiðslunni síðar í dag.

