Einn var fluttur á slysadeild og tuttugu fengu á sig gasúða lögreglu í mótmælum við Hótel Borg í dag. Eldur var lagður að búnaði fyrir beina útsendingu og varð að hætta henni.
Lesa meira
Þingmenn úr tveimur stjórnarandstöðuflokkum telja að fjármálaráðherra beri að segja af sér. Atli Gíslason og Höskuldur Þórhallsson, báðir löglærðir, telja álit umboðsmanns staðfesta þetta.
Lesa meira
Umboðsmaður Alþingis segir í nýju áliti að Geir H. Haarde forsætisráðherra ekki hafa farið að lögum þegar hann skipaði Björn Rúnar Guðmundssonar hagfræðing skrifstofustjóra nýrrar efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu forsætisráðuneytisins án þess að auglýsa stöðuna til umsóknar.
Lesa meira
Hátt í eitt þúsund manns tóku þátt í útifundi á Lækjartorgi á fimmta tímanum. Fundurinn krafðist þess að blóðsúthellingar á Gaza-ströndinni yrðu stöðvaðar og að Ísland sliti stjórnmálasamstarfi við Ísrael þar til það yrði gert.
Lesa meira
Vinnumálastofnun áætlar að nærri 20.000 manns verði á atvinnuleysiskrá í apríl og maí, en um fjórðungur hópsins hafi þó vinnu að hluta til.
Lesa meiraUng vinstri græn vilja að ríkisstjórn Íslands beiti sér fyrir því að sett verði alþjóðlegt viðskiptabann á Ísralel því þannig „yrði með friðsamlegum hætti settur þrýstingur á Ísraelsríki um að virða mannréttindi palestínsku þjóðarinnar.“ Þau segja Ísralesríki reka grimma aðskilnaðarstefnu.
Þess verður krafist að blóðsúthellingum á Gaza verði stöðvaðar og að Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael á útifundi á Lækjartorgi klukkan 16 í dag. Meðal ræðumanna verða María S. Gunnarsdóttir, formaður Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna og Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur.
Lesa meira
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur töldu fyrir einu og hálfu ári „að betra væri til framtíðar að aflétta trúnaði af raforkuverði til stóriðju til þess að koma í veg fyrir ranghugmyndir og misskilning sem mjög hefur borið á í umræðunni.“
Lesa meiraFélagið Ísland-Palestína vill að öllum samskiptum milli Íslands og Ísrael verði slitið „þar til Ísrael lætur af árásarstefnu sinni.“ Þetta kemur fram tilkynningu sem samtökin sendu á fjölmiðla í dag. Félagið mun fylgja kröfu sinni eftir með útifundi á Lækjartorgi klukkan 16:00 á morgun.
Lesa meiraHækkun atvinnuleysisbóta sem áttu að hækka fyrsta mars næstkomandi hefur verið flýtt. Félagsmálaráðherra hefur ákveðið að hækka bæturnar strax fyrsta 1. janúar.
Nú um áramót breytist dreifing héraðsfréttablaðsins Gluggans úr því að vera
frítt fréttablað í áskriftarblað. Rekstrargrundvöllur fríblaðs var brostinn.
Borgarstjórn ætlar að leggja 35 milljónir króna í rekstur Unglingasmiðju í Keilufelli og Amtmannsstíg fyrri hluta ársins. Starfsemin heldur því áfram, en óvissa ríkti um úrræðin frá áramótum.
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir enga heimild hafa verið veitta fyrir prentun Fréttablaðsins í prentsmiðju Árvakurs, Landsprent. Samkvæmt heimildum Smugunnar hefur Fréttablaðið verið prentað þar síðan á föstudag. Samruni Árvakurs og Fréttablaðsins er nú til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Samkeppnisstofnun fer nú yfir hvort samkeppnislög hafa verið brotin á DV. Í nóvember hækkaði Árvakur prentgjöld DV, krafðist staðgreiðslu og flýtti skilatíma til prentsmiðju.
Lesa meira
Dregið verður úr eftirlaunasérréttindum æðstu ráðamanna með nýjum lögum 1. júlí. Tillaga stjórnarandstöðu um að afnema sérréttindin var kolfelld af stjórnarþingmönnum.
Lesa meira
Þeir sem eiga nú leið fram hjá Landsbankanum í Austurstræti býðst ókeypis hvíþvottur og gagnaeyðing. Aðstandendur segjast vera að bjóða almenningi að hegða sér eins og yfirstéttin.
Lesa meira
Fólki sem ekki getur eða vill borga reikningana sína verður boðið að koma með þá í pappírstætara fyrir utan Landsbankanna í Austurstræti klukkan tíu.
Lesa meira
Þriðja umræða um fjárlög fer fram á Alþingi í dag. Boðuð er heimsókn á Bessastaði eftir hádegi á morgun, en hópur fólks vill að forsetinn stöðvi fjárlagafrumvarpið.
Lesa meira
Ármann Kr. Ólafsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins lagði fram á Alþingi í gær þingsályktunartillögu um að ríkisstjórnin hefji heildarendurskoðun á samkeppnisumhverfi íslenskra fyrirtækja. Hann hefur áhyggjur af því að núverandi aðstæður í efnahagslífinu ýti undir samþjöppun.
Lesa meira
Að venju verður efnt til friðargöngu á nokkrum stöðum á landinu á Þorláksmessu. Gangan í Reykjavík hefst klukkan átján frá Hlemmi.
Hátt á þriðja þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun til forseta Íslands að hann hafni fjárlögum næsta árs. Umræðu um fjárlögin er hvergi nærri lokið á Alþingi.
Þingmenn fóru í gegnum aðra umræðu um breytingar á eftirlaunalögum þeirra sjálfra og æðstu ráðamanna þjóðarinnar, meðan þögul mótmæli stóðu yfir á Austurvelli.
Samdráttur í efnahagslífi kemur strax fram í Noregi í minni jólaverslun og sparnaði almennings. Sú virðist ekki vera raunin hér, ef marka má upplýsingar kaupmanna fyrir jólin.
Lesa meira
Stjórnarliðum og Kristni H. Gunnarssyni blöskra afskipti launþegasamtaka af lagafrumvörpum á Alþingi. Eftirlaunamál þingmanna voru rædd í upphafi þingfundar í morgun.
Lesa meira
Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, fordæma tillögur ríkisstjórnarinnar um niðurskurð til Háskóla Íslands og námsmanna. Þau skora á Alþingi að koma í veg fyrir að þær verði samþykktar.
Lesa meiraVandi íslenska hagkerfisins er heimatilbúinn. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins(AGS) um Ísland frá 8. desember síðastliðnum. Þetta er fyrsta skýrslan sem sjóðurinn gefur út um Ísland frá efnahagshruninu í byrjun október.
Lesa meira
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagðist á Alþingi í dag ætla að hitta forystu íslenskra námsmanna nú þegar fjárlagaramminn liggur fyrir. Forystuólk námsmanna fagnar þessu bíður spennt við símann eftir fundarboði.
Félagsmálaráðherra styrkir Einstök börn með 250 þúsund krónum, en sleppir því að senda jólakort með kveðjum úr ráðuneytinu.
Formaður VG leggur til að stofnun nýrrar Sjúkratryggingastofnunar verði frestað og peningarnir notaðir í spítala eða aðra velferð. Félagsmálaráðherra telur deilur leysast fljótt.
Lesa meira
Paul Thomsen fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur rætt við þingmenn og sérfræðinga hér á landi síðustu daga um áætlanir til bjargar íslenskum efnahag.
Hörður Torfason baráttujaxl fór nú fyrir hádegi í heimsókn til viðskiptaráðherra fyrir hönd Radda fólksins og krafðist afsagna í bönkunum.
50 til 70 mótmælendur fóru í Fjármálaeftirlitið nú á ellefta tímanum og ætluðu inn. Þar komu þeir að lokuðum dyrum. Eggjum og steinum var hent í húsið.
Tryggvi Jónsson hefur sagt upp störfum hjá Landsbankanum og er hættur. Mótmæli í bankanum fylltu mælinn. Frekari mótmæli eru fyrirhuguð í dag og næstu daga.
Lesa meira
Ekki þótti við hæfi að taka viðtal við andstæðing Evrópusambandsins, vegna kröfu um hlutleysi á fjölmiðli. „Stuðningsmenn aðildar eiga greiðari leið í fjölmiðla, “ segir formaður Bændasamtakanna.
Lesa meira
Umræða hefur verið meðal forystufólks Sólar í Straumi að bjóða samtökin fram í næstu sveitarstjórnarkosningum verði kosið að nýju um stækkun álvers Alcan RioTinto á þessu kjörtímabili. Sól í Straumi segir lýðræðislega niðurstöðu þegar fengna.
Námsmanna - og stúdentahreyfingar mótmæla skertum framlögum til Lánasjóðs íslenskra námsmanna, sem eru skert um 1.360 milljónir meðan umsóknum fjölgar um 5%.
Hópur óánægðra eigenda skulda Landsbankans heimsótti höfðustöðvar bankans í Austurstræti í morgunn. „Borgið ykkar skuldir sjálf“, var eitt þeim slagorðum sem hrópuð voru inni í bankanum. Smugan fylgist með í gegnum kvimyndavélina.
Lesa meira
- Borgið sjálf, borgið sjálf! var meðal slagorða sem mótmælendur hrópuðu inni í Landsbanka í Austurstræti í morgun.
Jafnréttisfulltrúar sem starfað hafa að jafnréttisáætlunum í öllum ráðuneytum síðustu árin verða skornir niður í sparnaðarskyni.
Lesa meira
Franska dagblaðið l´Express líkir íslensku stjórnarfari við ófriðsamlega stjórnarhætti á Balkanskaga í grein um fortíð og framtíð Evrópu nýlega.
Lesa meira
Öryrkjabandalag Íslands skorar á ríkisstjórnina að hverfa frá aðför að meginþorra öryrkja, með skerðingu á kjörum. Ríkisstjórnin gangi gegn lögum sem sérstaklega voru sett til að tryggja hag þeirra.
Lesa meiraKvikmyndatökumaður Smugunnar var á staðnum í morgun þegar stór hópur fólks gerði tilraun til þess að varna ráðherrum ríkisstjórnarinnar inngöngu á ríkisstjórnarfund í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.
Lesa meiraStarfsfólk DV kom saman til fundar í hádeginu í dag og ræddi um trúverðugleika Reynis Traustasonar ritstjóra eftir viðskipti hans við fyrrverandi blaðamann.
Verið er að undirbúa víðtæka stuðningsyfirlýsingu náttúruverndarfólks, við Þórunni Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra vegna orðróms um að hún verði látin víkja úr ríkisstjórninni.
Lesa meira
Á þriðja hundruð mótmælenda safnaðist saman við ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu í morgun, fyrir ríkisstjórnarfund. Vanhæf ríkisstjórn var hrópað meðan ráðherra fóru inn bakdyramegin.
Hópur fólks reynir nú að koma í veg fyrir að ráðherrar ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks komist inn á ríkisstjórnarfund í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu líkt og síðastliðinn þriðjudag. Lögreglan er nú með mun meiri viðbúnaði en fyrir viku.
Lesa meira
Dagblaðið Nei. segir frá því í dag að árið 2004 hafi Björgólfur Guðmundsson þáverandi formaður bankaráðs landsbankans og auðmaður stöðvað listrænan gjörning. Í kjölfarið stöðvaði hann svo fréttaflutning DV um málið.
Lesa meira
Jólasveinar hafa undanfarna daga elt uppi ráðherra til að gefa þeim kartöflur í skóinn. Þvörusleikir afhenti Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra kartöflu og þvöru eftir hádegi í dag í Alþingishúsinu.
Lesa meira
Prjónandi og saumandi mótmælendur sátu á tröppum stjórnarráðsins síðdegis. Þeir segjast ekki sitja aðgerðalausir undir spillingunni.
Lesa meira
Forsvarsmenn nokkurra lífeyrissjóða áttu í gær fund með Paul Hawken og John Picard, kunnum bandarískum sérfræðingum í umhverfisvernd og sjálfbærri þróun.
Tillögur stjórnvalda vegna fjárlaga næsta árs, eru byggðar á forsendum sem Alþingi þekkir ekki til. Formaður fjárlaganefndar segir að æskilegt hefði verið að hafa ítarlegri upplýsingar.
Lesa meira
Smugunni barst eftirfarandi yfirlýsing frá foreldrum stúlku sem notið hefur stuðnings unglingasmiðju í Reykjavík og birtir hana hér í heild sinni.
Lesa meira
Aðgerðahópar anarkist og marxista stóðu fyrir tveimur aðgerðum á laugardaginn. Önnur var til þess að gagnrýna lántöku ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum en sú seinni fólst í því að ganga á undan hinni árlegu „Jólakóklest“ niður Laugaveginn í jólasveinabúningum með borða sem á stóð „Kók er kúkur kapítalsins“
Lesa meiraVið sitjum ekki aðgerðalaus, segir hópur sem ætlar að safnast saman fyrir framan Stjórnarráðið í Lækjargötu klukkan fimm í dag. Fólkið tekur með sér handavinnuna sína.
Við sitjum ekki aðgerðalaus er yfirskrift táknrænna mótmæla gegn ástandinu í íslensku þjóðfélagi sem boðuð eru fyrir framan Stjórnarráðið í Lækjargötu klukkan fimm ðídag
Lesa meira
Á víkingaöld fyrir ellefuhundruð árum óttaðist Haraldur hárfagri landflótta frá Noregi til Íslands. Áhyggjur Haraldar Noregskonungs sem nú situr gætu orðið allt aðrar.
Lesa meira
Niðurgreiðslur á raforkuverði til húshitunar íbúðahúsnæðis á köldum svæðum mun lækka 200 milljónir frá því sem áður var ráðgert samkvæmt tillögum ríkisstjórnarinnar um breytingu á fjárlögum. Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ og formaður Samtaka sveitafélaga á köldum svæðum segir þetta mikið óréttlæti ef rétt reynist.
Stjórn Sambands íslenskra sveitafélaga ákvað á fundi sínum í dag að láta vinna fyrir sig athugun á því hvaða áhrif aðild Íslands að Evrópusambandinu hefði á íslensk sveitafélög. Formaður sambandsins útilokar ekki að það taki afstöðu til aðildar en á síður von á því.
Lesa meira
Stjórnarflokkarnir á Alþingi og sjávarútvegsráðherra telja of flókið að skylda útgerðir til að landa öllum óunnum afla á Íslandi.
Lesa meira
Ræstingar á Landspítala í Fossvogi verða boðnar út í janúar. Þetta kom fram á starfsmannafundi sem Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri sjúkrahússins hélt með starfsmönnum í gær.
Lesa meira
Mary Simons, talsmaður kanadískra inúíta og tveir ráðherrar í kanadísku ríkisstjórninni hafa krafist þess að hinn herskái umhverfissinni Paul Watson verði rekinn úr samtökunum Sea Shepherd.
Lesa meira
Stígamót afla fjár um helgina með töskumarkaði og hafa nú þegar borist yfir eitt þúsund töskur á markaðinn. Óhætt er að spá handagangi í öskjunni.
Lesa meira
Samkvæmt heimildum Smugunnar munu hámarksgreiðslur Fæðingarorlofssjóðs til foreldra lækka úr rúmum 535 þúsund krónum í 400 þúsund samkvæmt tillögum ríkisstjórnarinnar um breytingu á fjárlögum.
Lesa meira
Tillögur ríkisstjórnarinnar um breytingu á fjárlagafrumvarpi gera ráð fyrir miklum niðurskurði í heilbrigðiskerfinu. Meðal annars er lagt til að komugjöld á sjúkrahúsum hækki um hátt í 400 milljónir króna. Heilbrigðis- og öldrunarstofnunum er gert að spara um 3 prósent.
Hækkun tekjuskatts um eitt prósent eykur fátækt en boðuð hækkun bóta er dugar ekki til jöfnunar, að mati Lilju Mósesdóttur, hagfræðings.
Lesa meira
Árni Mattiesen fjármálaráðherra segir ekki hægt að fullyrða að enginn muni missa vinuna vegna niðurskurðar hjá ríkinu en segir ýmsa möguleika vera til þess að koma í veg fyrir það. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir stofnanir eigi að geta aðlagað sig sparnaðarkröfum án þess að segja upp fólki.
Formaður Öryrkjabandalagsins hrósar tillögum ríkisstjórnar í félags- og tryggingamálum til fjárlaga. Þar sé reynt að verja velferðarkerfið.
Lesa meira
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir að reynt verði að verja velferðarstofnanir með því að kefja þær um inni niðursskurð en aðrar. Hún segir að allar stofnanir verði að leita leiða til þess að draga úr kostnaði.
Lagt er til á Alþingi að öllum fiski verði landað heima í stað þess að skip sigli með óunninn afla til útflutnings. Í fyrra fóru 56 þúsund tonn óunnin út, mest til Bretlands.
Lesa meira
Tillögur ríkisstjórnarinnar um fjárlög næsta árs voru kynntar fjárlaganefnd í morgun á sama tíma og fjölmiðlum.
Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir 165 til 170 miljarða halla á fjárlögum næsta árs.Hlutfallslega mest verður skorið í rekstri utanríkissráðuneytisins og hjá æðstu stjórn ríkissins og reynt verður að láta niðurskurðinn koma sem minnst niður á velferðarkerfinu, menntakerfinu, heilbrigðiskerfinu og löggæslu að sögn ríkisstjórnarinnar.
Lesa meira
Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir 165 til 170 miljarða halla á fjárlögum næsta árs.Hlutfallslega mest verður skorið í rekstri utanríkissráðuneytisins og hjá æðstu stjórn ríkissins og reynt verður að láta niðurskurðinn koma sem minnst niður á velferðarkerfinu, menntakerfinu, heilbrigðiskerfinu og löggæslu að sögn ríkisstjórnarinnar.
Lesa meira
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varformaður Sjálfstæðisflokksins nýtur meira trausts en Geir H. Haarde formaður flokksins samkvæmt skoðanakönnun MMR. Mest trausts nýtur Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra.
Umsóknarfrestur starfsfólks Tryggingastofnunar fyrir störf hjá Sjúkratryggingastofnun rann út í gær. Fólki var ráðlagt að bíða með að sækja.
Lesa meira
Norrænu samstarfsráðherrarnir samþykktu í dag stuðningsaðgerðir fyrir fjárvana Ísland. Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri ráðherranefndarinnar vinnur tillögur um aðgerðir
Lesa meiraSiðareglur Félags löggiltra endurskoðenda munu ekki taka gildi fyrr en 1. Janúar næstkomandi. Siðanefnd félagsins hefur á þessu ári unnið að því að þýða alþjóðlegar siðareglur endurskoðenda.
Endurskoðunarfyrirtækið hefur óskað eftir því að verða leyst frá störfum fyrir skilanefnd Glitnis. Það telur að ekki muni ríkja vinnufriður um störf þess við núverandi aðstæður.
Lesa meira
Gengi krónunnar lækkaði í morgun í fyrsta skipti frá því krónan var sett á flot með öryggisráðstöfunum og gjaldeyrishöftum fyrir síðustu helgi.
Lesa meira
Tekist er á um niðurskurð á fjárlögum næsta árs innan ríkisstjórnarinnar. Deilt er um hvar skal skera og um skattahækkanir
Tvö lagafrumvörp um lækkun á launum og eftirlaunum þingmanna og æðstu manna ríkisins komust skyndilega á dagskrá þingsins nú síðdegis.
Menntamálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um RÚV sem takmarkar auglýsingaumsvif fyrirtækisins, en nefskattur á að tryggja tekjurnar.
Lesa meira
Ólíkt fólk bregður nú á sig hettum og sýnir borgaralega óhlýðni. Tvær stúlkur sem Smugan hitti eftir aðgerðir við ráðherrabústaðinn telja annað fullreynt, en mótmælin séu friðsöm en ekki ofbeldi.
Lesa meira
Hópur aðgerðasinna með svarta fána og hettur fyrir andlitinu truflaði aðgengi ráðherra ríkisstjórnarinnar að ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík í morgun.
Rúmur helmingur telur að mótmæla- og borgarafundir endurspegli viðhorf þjóðarinnar samkvæmt niðurstöðu nýrrar skoðanakönnunar MMR. Mikill munur á afstöðu á milli stuðningsmanna stjórnmálaflokka.
Lesa meira
Sjö aðgerðarsinnar voru handteknir vegna mótmælaaðgerða á þingpöllum Alþingishússins á fjórða tímanum í dag í kjölfar þess að tveir þeirra fóru fram á þingpalla og vísuðu þingheimi úr húsi. Með aðgerðinni vildi hópurinn minna á að Alþingi, eins og það er rekið í dag, er ónýt stofnun.
Lesa meira
Þremur kennurum og einum skólaliða í Hrafnagilsskóla hefur verið sagt upp störfum vegna fjárskorts. Skólastjóra grunar að hrina uppsagna blasi við í grunnskólum eins og annarsstaðar.
Forysta verkalýðshreyfingarinnar, fulltrúar lífeyrisjóða og ráðherrar félagsmála og viðskipta hafa fengið boð um að svara spurningum almennings um stöðu þjóðarinnar á borgarafundi í kvöld.
Lesa meira
Tímabundin gjaldeyrishöft með leyfi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru aðeins gálgafrestur verði skattlagningu á útstreymi fjármagns ekki beitt þegar þeim verður aflétt, segir Lilja Mósesdóttir.
Lesa meira
Vinstri græn vilja setja þak á hækkun höfuðstól verðtryggðra lána, hækka vaxtabætur og stöðva öll nauðungaruppboð næstu tvo til þrjá mánuði. Þá vill flokkurinn láta þjóðina ákveða hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið í tvöfaldri þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta kom fram á flokksráðfundi í gær.
Evrópusambandið telur að Norðmenn hafi hagnast um 40 til 70 norska milljarða á ári, vegna EES samningsins. Rætt er um að framlag Noregs vegna styrkja innan ESB verði hækkað.
Lögregla fylgdist nákvæmlega með um 30 manns sem safnaðist saman í við Arnarhól í snjónum og myrkrinu um sjöleytið í morgun og lagði á ráð um aðgerðir.
Tæp 8 prósent vilja kjósa aðra stjórnamálaflokka en þá sem buðu fram í síðustu Alþingiskosningum samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Markaðs- og miðlarannsókna (MMR) á fylgi stjórnmálaflokka.
Lesa meira
Eigið fé Orkuveitu Reykjavíkur hefur hækkað um 20 milljarða króna á tveim dögum í kjölfar styrkingar á gengi krónunnar að sögn Hjörleifs Kvaran forstjóra Orkuveitunnar.
Lesa meira
Arðgreiðslur Orkuveitu Reykjavíkur til eigenda sinna lækka um helming á milli ára, úr 1600 milljónum króna í 800. Þetta kemur fram í fjárhagsáætlun Orkuveitunnar fyrir árið 2009.
Lesa meira
Pétur Blöndal, skorar á þingmenn að samþykkja hvorki frumvar ríkisstjórnar, né önnur fyrirliggjandi eftirlaunafrumvörp. Áskorun Péturs er sögð hefnd Sjálfstæðisflokksins sem beinist að sjúkraliðum og öllum ríkisstarfsmönnum.
Þrátt fyrir boðað samkomulag er frumvarp um breytingu eftirlaunalaganna ekki komið fram á þingi. Þingflokksformaður VG minnir á slæma hefð væri fyrir því að þingið afgreiddi eigin sérréttindalög í andnauð í skjóli nætur.
Lesa meira
Þrátt fyrir boðað samkomulag er frumvarp um breytingu eftirlaunalaganna ekki komið fram á þingi. Þingflokksformaður VG minnir á slæma hefð væri fyrir því að þingið afgreiddi eigin sérréttindalög í andnauð í skjóli nætur.
Lesa meira
“Fátæktin er þannig núna að á Fjölskylduhjálpinni eru nú um 30 sjálfboðaliðar. Stór hluti þjóðarinnar er nú að komast niður á sama framfærslustig og öryrkjar og eldri borgarar og þeir sem minna hafa matt sín í gegnum árin."
Lesa meira
Norskir stórþingsmenn fengu launahækkun í vikunni og tillaga um að þeir deildu kreppukjörum með almenningi var felld. Fyrrum formaður Verkamannaflokksins lagði til að þeir þingmenn sem teldu laun of há afþökkuðu hækkunina persónulega.
Afnotagjöld allra heimila á Blönduósi og á Skagaströnd þarf til þess að standa undir launum og launatengdum gjöldum Páls Magnússonar útvarpsstjóra samkvæmt útreikningum vefmiðilsins Feykis.
Lesa meira
Femínistafélag Ísalnds fordæmir sýknudóm Héraðsdóms Suðurlands yfir séra Gunnari Björnssyni og segir að með dómnum séu mannréttindi virt af vettugi.
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur borist þrjár kærur inn á sitt borð vegna mála tengdum efnhagshruninu. Ein þeirra er frá opinberum aðila.
Lesa meiraMikill kostnaður fylgir fullkominni aðgreiningu Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar ríkisins. „Við hringjum bjöllum því við óttumst um starfsemi TR“, segir Stefán Ólafsson, formaður stjórnar.
Lesa meira
Umboðsmaður barna og talsmaður neytenda hafa nú lagt lokahönd á leiðbeiningar um neytendavernd barna. Lokadrög er nú lögð fram almenningi til umsagnar til aðfangadags.
Gísli Mateinn Baldursson er nú fjarverandi á sínum fjórða borgarstjórnarfundi síðan hann hélt til Skotlands í nám. Á sínum tíma sagði hann að það kæmi ekki niður á störfum hans í borgarstjórn að vera búsettur í Skotlandi.
Samkvæmt heimildum Smugunnar óskaði Páll Magnússon útvarpsstjóri eftir því að Félag fréttamanna breytti ályktun sinni frá því í gær á fundi með forsvarsmönnum félagsins. Páll mun að öllum líkindum halda áfram að lesa fréttir þrátt fyrir andstöðu starfsmanna.
Stéttarfélög starfsmanna og starfsmenn á Ríkisútvarpinu telja Pál Magnússon beita uppsögnum til að þagga niður gagnrýni og kröfur um jafnari launastefnu. Uppsögn trúnaðarmanns tekin aftur
Lagafrumvarp frá þingflokki Vinstri grænna um launalækkun æðstu embættismanna ríkissins hefur legið fyrir á Alþingi í mánuð en hefur ekki verið tekið á dagskrá. Kjararáð hefur hafnað tilmælum ríkisstjórnarinnar um að lækka laun þessa hóps um 5 til 15 prósent.
Lesa meira
Vinstrihreyfingin - grænt framboð er nú stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt niðurstöðum þjóðarpúls Capacent Gallup fyrir nóvember með 32 prósenta fylgi. Stuðningur við ríkisstjórnina er enn í frjálsu falli og er nú aðeins 32 prósent.
Lesa meiraRáðuneytisstjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu segir stefnt að því að leggja matvælafrumvarp ríkisstjórnarinnar fram á Alþingi fyrir jól. Bændasamtökin undrast skort á samráði. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Bændablaðsins.
Lesa meira
Allstór hópur mótmælenda fór frá Arnarhóli eftir að borgarafundi lauk þar áðan og krafðist inngöngu í Seðlabankann. Mótmælendum sem vildu Davíð Oddsson burt úr bankanum var áðan hótað táragasi.
Inngangstexti
Lesa meira
Menntaviti er risinn á Austurvelli. Íslensku námsmannahreyfingarnar afhjúpuðu hann nú á tólfta tímanum. Björg Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands varaði við flótta ungs fólks frá landinu ef ekkert yrði gert til þess að bregðast við erfiðri stöðu námsmanna.
Lesa meira
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG; segir alla sammála um að lýðræðislega málsmeðferð í Evrópumálum, því felist ekki stefnubreyting í útpili þingflokksformannsins.
Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segist vilja þjóðaratkvæðargreiðslu um Evrópusambandsaðild. Hsegist ekki treysta neinum betur en Vinstri grænum til að semja um þann samning sem lagður verður fyrir þjóðina.
Íslenskar stúdentahreyfingar munu í dag klukkan ellefu reysa menntavita á Austurvelli sem hefur það hlutverk að "að lýsa okkur leið út úr kröggunum og minna ríkjandi stjórnvöld á mikilvægi menntunar á tímum sem þessum"
Lesa meira
Tæp 21 prósent treysta Geir H. Haarde best til þess að leiða næstu ríkisstjórn, 19 prósent treysta Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur best til að leiða næstu ríkisstjórn og 18 prósent treysta Steingrími J. Sigfússyni best. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Smuguna.
Langflestir horfa til flokkanna vinstra megin við miðju þegar spurt er hvaða stjórnmálaflokka fólk vill sjá mynda næstu ríkisstjórn. Þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem Capacent Gallup gerði var fyrir Smuguna.
Lesa meira
Ekki er gert ráð fyrir raforkusölu til álvers í Helguvík í fjárhagsáætlun Orkuveitu Reykjavíkur fyri næsta ár. Guðlaugur Sverrisson segir fyrirtækið standa sterkt þrátt fyrir að ekki sé gert ráð fyrir nýjum framkvæmdum ár árinu og að áhersla verði á að reyna að halda öllum starfsmönnum.
Heilbrigðisráðherra segir útvistun verkefna frá hinu opinbera koma í veg fyrir að sjúklingar liggi spítalagöngum. Læknaritari á Landspítala segir þetta ekki rétt. Ögmundur Jónasson og Guðlaugur Þór Þórðarson báðir óvissir um framtíð íslensku krónunnar
Lesa meira
"Ég andvarpa yfir þessari könnun. Niðurstaðan er ömurleg og verri en ég átti von á," segir Kristín Ástgeirsdóttir, jafnréttisstýra um nýja könnun sem sýnir kynbundinn launamun upp á 19,5 prósent.
Lesa meira
Atvinnuleysi eykst ekki bara hröðum skrefum á Íslandi. Í liðnum mánuði misstu 20 þúsund Svíar vinnuna og auk þess hefur atvinnuleysi verið að aukast í Danmörku og í Noregi.
Færeyingar hafa nú verið varaðir við neyslu hvalkjöts vegna þess að í því hefur mælst of mikið af kvikasilfri og þrávirku PBC. Heilbrigðisyfirvöld telja kjötið geta verið heilsuspillandi
Heimspekistúdentar við Háskóla Íslands fengu í dag loforð frá forsvarsmönnum Hugvísindasviðs að ekkert yrði hreyft við Soffíubúð, félagsaðstöðu þeirra, fyrr en eftir áramót í fyrsta lagi. Heimspekistúdentar munu halda áfram að ræða málin við yfirvöld í Hásskólanum.
Lesa meira
Skopmyndasögur Henrýs Þórs Birgissonar sem hann hefur birt á bloggsíðu sinni (henrythor.blogspot.com) og vakið hafa verðaskuldaða altygli munu héðan í frá einnig birtast á Smugunni.
Lesa meira
Ung vinstri græn krefjast þess að Páll Magnússon útvarpsstjóri biðjist afsökunnar á "ritskoðun á fréttaefni sem kemur almenningi við" og "árás á málfrelsi fréttamanna".
Atvinnuleysi stefnir í sex prósent um áramótin. Það hefur tvöfaldast á einum mánuði og ljóst er að mörg hundruð launþegar missa vinnu um þessi mánaðamót.
Frumvarpi formanna allra stjórnmálaflokka á Alþingi um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða var dreift á Alþingi í kvöld.
Lesa meira
Sjálfstæði grænlensku þjóðarinnar var fagnað á Grænlandi í dag, eftir að mikill meirihluti þjóðarinnar samþykkti aukna sjálfsstjórn í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ný skipan mála breytir grundvallaratriðum í lífi og rétti þjóðarinnar.
Lesa meira
Íbúðalánasjóður hefur fengið heimild í reglugerð til að yfirtaka íbúðaveðlán fjármálafyrirtækja. Félagsmálaráðherra undirritaði reglugerð um þetta í dag.
Norsk Hydró dregur stórlega saman í áliðnaði og boðaði starfsmönnum í verksmiðju sinni á Karmöy fjöldauppsagnir í dag.
Lesa meira
Talsmaður neytenda undirbýr frekari spurningar til bankanna um hagsmuni eigenda peningabréfa í sjóðum. Gísli Tryggvason efast um að bankaleynd eigi við eftir bankahrunið. Vega verði hagsmuni almennings á móti bankaleyndinni.
Björn Richard Johanssen, norskur ráðgjafi forsætisráðherra, hefur síðustu vikurnar verið farandverkamaður á Íslandi til að gefa ríkisstjórn ráð um neyðarstjórnun. Norska Ríkisútvarpið heimsótti Johanson, í Reykjavík í dag, síðasta dag hans í starfi og bar undir hann gagnrýni á veru hans hér.
Lesa meira
Ekki verður frekar hróflað við Soffíubúð, félagsaðstöðu heimspeki- og guðfræðinema við Háskóla Íslands, fyrr en Ástráður Eysteinsson, sviðsstjóri Hugvísindasviðs kemur til landsins. Nemendur fóru í setuverkfall í morgun og mótmæltu því að breyta átti Soffíbúð í skrifstofu án samráðs og vísa þeim ofan í kjallara með aðstöðu sína.
Félags- og tryggingamálaráðherra veitti í gær 50 milljónum króna í atvinnustyrki til kvenna. Tíu konur fengu 2 milljónir hver. Verkefni styrkþega eru margvísleg, ýmiskonar þjónusta, framleiðsla, hönnun og félagsleg verkefni. Að jafnaði hafa um 15-20 milljónir króna verið til skiptanna í atvinnustyrki til kvenna en styrkfjárhæðin var hækkuð verulega nú í ár, og er meira en tvöfalt hærri en venja er til.
Lesa meira
Frumvarp um frystingu eigna auðmanna hefur verið lagt fram á Alþingi og er það flutt sem viðbót við neyðarlögin frá 6. október. Málið flytja þingmenn VG sem telja mikilvægt að ýtrustu hagsmuna almennings og ríkissjóðs sé gætt með víðtækari heimildum Fjármálaeftirlits til að kyrrsetja eignir manna. Flutningsmenn telja verulega hættu á að eignum verði skotið undan, þær rýrni eða glatist verði ekki hægt að grípa til kyrrsetningar án þess að lögreglurannsókn sé hafin eða sé að hefjast.
Heimspekistúdentar í Háskóla Íslandshófu klukkan átta í morgun setuverkfall til þess að varna því að félagsaðstaða þeirra, Soffíúbúð sem er á þriðju hæði í aðalbyggingu Háskólans, verði rýmd til þess að setja þar upp skrifstofu. Stúdentarnir segja ákvörðun háskólayfirvalda um að breyta aðstöðunni í skrifstofu hafa verið einshliða og samráðs við stúdenta.
Geir H. Haarde forsætisráðherra vildi ekki svara því á borgarafundinum í Háskólabíó í kvöld hvort hann bærii einhverja ábyrgð á efnahagshruninu. Hann sagði að það yrði rannsakað og að hann myndi ekki skorast undan ábyrgð þegar niðurstöður rannsóknarinnar lægju fyrir. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagðist eflaust bera einhverja ábyrgð.
Lesa meira
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagðist á borgarafundinum í Háskólabíó í kvöld skulda Richard Thomas hjá bandaríska bankanum sáluga Merril Lynch afsökunarbeiðni. Hún sagðist hafa verið algjörlega grunlaus um að svona ótrúlegir atburðir myndu eiga sér stað.
Lesa meira
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar tóku illa í tillögu Gunnars Karlssonar fundarstjóra á opnum borgarafundi í Háskólabíó í kvöld um að þjóðin fengi að kjósa tvo áheyrnarfulltrúa á ríkisstjórnarfundi. Þeir sögðust þó vilja allt upp á borðið.
Geir H. Haarde kallaði umræðu um norkan hernaðarsérfæðing, Bjorn Richard Johansen, sem hefur unnið fyrir hann í forsætisráðuneytinu frá bankahruninu "fjarstæðukennt bull" þegar hann svaraði spuringu eins fundargesta á borgarafundi í Háskólabíó í kvöld.
Lesa meira
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra sitja nú borgarafund í Háskólabíó ásamt sjö öðrum ráðherrum eftir að hafa varist vantrausti á Alþingi í dag. Davíð Oddsson formann bankastjórnar Seðlabankans er hvergi að sjá.
Vantrauststillaga stjórnarandstöðunnar á ríkisstjórn Íslands var felld með öllum greiddum atkvæðum viðstaddra stjórnarliða, en stjórnarandstöðuþingmenn greiddu allir atkvæði með tillögunni - nema einn. Kristinn H. Gunnarsson.
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra vísar því á bug að til standi að skera niður um tíu prósent í heilbrigðiskerfinu. Engar slíkar ákvarðanir hafi verið teknar.
Össuri Skarphéðinssyni var í ræðustól þegar hópur fólks stengdi borða með skilaboðunum: "Við treystum ykkur ekki" á þingpöllum á meðan ræðu hans stóð. Stöðva varð þingfundinn á með fólkið með skilaboðin var vísað út.
Tillaga formanna stjórnarandstöðunnar um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar verður rædd á Alþingi í dag. Umræðan hefst klukkan hálf tvö og lýkur um hálf sjö með atkvæðagreiðslu.
Lesa meira
Afstaða, félag fanga, segir að skýringar lögreglunar á handatöku Hauks Hilmarssonar á föstudagskvöld geti ekki verið neitt annað en fyrirsláttur þar sem fangelsin séu yfirfull og á þriðja hundrað manns á biðlista eftir afplánun. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið hefur sent frá sér.
Lesa meira"Út með Hauk - inn með Geir!" var krafa á milli fimm- og sexhundrað manns á öllum aldri sem safnaðist saman fyrir utan lögreglustöðina við Hverfisgötu í dag. Fólkið var að mótmæla handtöku á Hauki Hilmarssyni, sem flaggaði Bónusfána á Alþingsishúsinu fyrir tveim vikum. Til að byrja með voru mótmælin friðsöm og hávær en þegar engin viðbrögð komu frá lögreglu reyndi hópur fólk að komast inn í húsið. Þá komu fyrstu viðbrögð lögreglunnar í formi piparúða og síðar vopnaðri sveit.
Lesa meira
Skálað var í freyðivíni og norski þjóðsöngurinn sunginn fyrir utan sendríða Noregs í hádeginu í dag. Tilefnið var ekki lán frá Norðmönnum heldur að norska Stórþingið samþykkti lög um bann við kaupum á vændi í gærkvöldi.
Lesa meira
Uppsagnir og minni þjónusta eru sagðar óhjákvæmileg afleiðing tíu prósenta sparnaðar á heilbrigðisstofnunum. Mikill óróleiki er meðal heilbrigðisstétta vegna boðaðs niðurskurðar. Formaður sjúkraliðafélagsins efast um að forstöðumenn leggi fram tillögur sem hafa í för með sér að starfsemi stofnana þeirra verði lögð í rúst.
Þingsályktunartillaga um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar kemur fram á Alþingi í dag. Þar er lýst vilja til að þing verði rofið fyrir 31. desember og efnt til þingkosninga í framhaldi.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sér ekkert að því að Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra lýsi þeirri skoðun að rétt sé að kjósa í vor. Ástæðulaust sé að koma með tilraunir til skoðanakúgunar með því að fara fram á afsögn ráðherra fyrir að vilja kjósa.
Lesa meira
Samkvæmt heimildum Smugunnar hafa stjórnarandstöðuflokkarnir rætt saman undanfarna daga um möguleikann á því að flytja tillögu um vantraust á ríkisstjórnina, sem allra fyrst. Hugsanlegt er að vantrauststillaga komi fram á Alþingi strax á morgun.
Lesa meira
Stjórnmálakreppan getur hvenær sem er breyst í stjórnarkreppu, að mati Marðar Árnasonar varaþingmanns Samfylkingarinnar. Samfylkingarfélögum sem vilja slíta stjórnarsamstarfinu fjölgar og Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra hefur nú fyrst ráðherra lýst því yfir að hún vilji kosningar í vor.
Lesa meira
Öryrkjabandalag Íslands, BSRB, Landsamtökin Þroskahjálp og Félagi eldri borgara í Reykjavík boða útifund mánudaginn 24. nóvember á Ingólfstorgi, til varnar velferð á Íslandi.
Lesa meira
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur nú haldið fund um rúmlega 290 milljarða króna lán til Íslands. Sá fundur var haldinn í Washington. Gert er ráð fyrir því að í kjölfar ákvörðunar sjóðsins bætist við lán frá Norðurlöndum, Póllandi, Færeyjum og ef til vill Rússland líka. Samanlögð lán nemi jafnvirði 420 milljarða króna.
Lesa meira
Brotthvarf Guðna Ágústssonar af Alþingi og formannsstóli Framsóknarflokksin og Bjarna Harðarsonar af Alþingi hefur fleytt konum til aukinna áhrifa í flokknum. Nú eru konur í öllum helstu áhrifastöður í Framsóknarflokknum auk þess sem þingflokkurinn er nú að meirihluta skipaður konum.
Lesa meira
Félögum fjölgar í Samfylkingu sem vilja slíta ríkisstjórnarsamstarfinu og boða kosningar. Flokksstjórn kemur saman á laugardag og er búist við ákveðnum svörum um framhaldið ekki seinna en á þeim fundi. Fjögur félög hafa ályktað gegn ástandinu.
Lesa meira