Skuldugir bændur
Egill Sigurðsson á Berustöðum, stjórnarformaður Auðhumlu, segir að það sé grafalvarlegt mál að nærri fjórðungur íslenskra bænda sé í alvarlegum greiðsluerfiðleikum. Þarna séu bæði heimilin og atvinna fólks undir og bændur leggist ekki auðveldlega í kennitöluflakk. Hann segir óvissuna leggjast verst í skulduga bændur og tafir í bankakerfinu séu óviðunandi.
Egill segir marga skulduga bændur óttast að fá ekki fyrirgreiðslu í bönkunum vor
þegar þeir þurfi að kaupa áburð.
Þá sé í raun búið að loka búunum og sjálfhætt.
Ásmundur Einar Daðason þingmaður VG segir að matvælaö
ryggi sé í raun í hættu vegna þess hversu skuldastaða margra búa sé slæm.
Hann segir sögusagnir uppi um að fulltrúar bankanna hafi farið um sveitirnar, þeir vilji ráðast í uppstokkun og ætli að loka skuldugustu búunum. Hann segist ekki hafa fengið þetta staðfest en þetta sýni að það sé mikill ótti meðal bænda. Stærsta hagsmunamálið fyrir bændur sé að slík uppstokkun verði ekki bara gerð með hagsmuni fjármagnseigenda í huga. Það skipti gríðarlegu máli að hagsmunir bænda og bændasamfélagsins verði hafðir að leiðarljósi. Það þurfi að hraða vinnu starfshóps sem sé að endurskoða jarðar og ábúðarlög eins og kostur er. Það þurfi að koma í veg fyrir að jarðirnar lendi aðallega í eigu frístundafólks og jafnvel útlendinga. Sveitir landsins séu samfélög og fækkun búa hafi líka mikil áhrif á þá sem eftir verði.

