Vefrit um pólitík og mannlíf

9. september 2010
Fréttir

Ísland í loftslagskerfi ESB

Umhverfisráðherra í viðræðum við umhverfisráðherra Svíðþjóðar

29.6.2009 18:24 Fréttir

svandis-svavarsdottir-frett

Umhverfisráðuneytið greinir frá því í dag að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hafi átt fund með umhverfisráðherra Svíþjóðar, Andreas Carlgren. Þau ræddu um fyrirliggjandi beiðni ríkisstjórnar Íslands um formlegar viðræður við ESB um að Ísland verði þátttakandi í heildarfyrirkomulagi um losun gróðurhúslofttegunda.

Það fellur í hlut Svíþjóðar sem formennskulands ESB á síðara misseri ársins 2009 að taka málið til formlegrar afgreiðslu. Í tilkynningunni segir að sænski umhverfisráðherrann hafi tekið málaleitaninni vel og sagðist mundi gera allt sem í hans valdi stæði til að greiða fyrir samkomulagi milli ESB og Íslands.

Sjá tilkynninguna frá umhverfisráðuneytinu hér.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Frá ritstjórn

thora-kristin

Jóhanna og Jenis av Rana - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Lítil frétt um að bókstafstrúaður stjórnmálamaður, Jenis av Rana formaður Miðflokksins í Færeyjum vilji ekki sitja til borðs með Jóhönnu Sigurðardóttur og Jónínu Leósdóttur eiginkonu hennar af því að nærvera þeirra er honum ögrun, er stór frétt því hún vekur upp hugsanir um alla þá sem hafa verið settir hjá í færeysku samfélagi fyrir tilverknað karla eins og hans.

Lesa meira
 



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica