Vefrit um pólitík og mannlíf

9. september 2010
Fréttir

Engir plastpokar í boði lengur

10 milljarðar plastpoka notaðir á ári hverju

29.6.2009 10:53 Fréttir

Carrefour.ai

Franska verslunarkeðjan Carrefour hefur ákveðið að hætta að bjóða upp á plastpoka undir vörur í verslunum sínum á Spáni. Carrefour er fyrsta stóra fyrirtækið á Spáni sem tekur þessa ákvörðun. Hægt verður að fá margnota poka, kassa og aðra umhverfisvæna kosti undir vörur í stað plastpokanna. Keðjan ætlar að gefa margnota poka fyrst um sinn meðan viðskiptavinir venjast þessu nýja fyrirkomulagi.

Spænska ríkisstjórnin ákvað í byrjun 2008 að hefja átak gegn notkun plastpoka. Þá voru notaðir um 10 milljarðar plastpoka á degi hverjum á Spáni. Það þýðir að hver íbúi notaði um 250 poka á ári eða um 18.000 poka á lífsleiðinni. Aðeins 10% af plastpokunum eru endurunnin. Það tekur plast  400 ár að eyðast í náttúrunni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Frá ritstjórn

thora-kristin

Jóhanna og Jenis av Rana - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Lítil frétt um að bókstafstrúaður stjórnmálamaður, Jenis av Rana formaður Miðflokksins í Færeyjum vilji ekki sitja til borðs með Jóhönnu Sigurðardóttur og Jónínu Leósdóttur eiginkonu hennar af því að nærvera þeirra er honum ögrun, er stór frétt því hún vekur upp hugsanir um alla þá sem hafa verið settir hjá í færeysku samfélagi fyrir tilverknað karla eins og hans.

Lesa meira
 



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica