VG í Kópavogi fordæmir meirihlutasamstarf
Undrast að meirihlutinn ætli að halda áfram
Stjórn VG í Kópavogi hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun:
Kópavogi, 24. júní 2009
Ályktun frá stjórn Vinstri grænna í Kópavogi.
Stjórn VG í Kópavogi fordæmir áframhaldandi samstarf Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Kópavogi og telur það sýna vilja til að viðhalda þeirri spillingu og eiginhagsmunapoti sem hefur fengið að viðgangast í bæjarpólitíkinni undanfarin ár og að hagsmunir bæjarbúa séu virtir að vettugi. Þá undrast stjórnin að meirihlutinn ætli að sitja áfram þrátt fyrir skýrar kröfur um breytingar innan beggja flokka. Vegna Lífeyrissjóðsmálsins(LSK) telur stjórn VG í Kópavogi réttast að allir þeir kjörnu fulltrúar er sátu í fráfarandi stjórn Lífeyrissjóðs Kópavogs víki úr sæti sínu í bæjarstjórn á meðan lögreglurannsókn fer fram.
Stjórn VG í Kópavogi


Skrifa athugasemd