Nafngreinir boðbera fagnaðarerindisins
Boðuðu Hafliði, Sindri og Björn Ingi fagnaðarerindið?
Jón F. Thoroddsen, verðbréfamiðlari og hagfræðingur nafngreindi þrjá núverandi og fyrrverandi starfsmenn 365 í viðtali við Spegilinn á mánudaginn og sagði þá hafa boðað fagnaðarerindið fyrir hönd útrásarvíkinga í aðdraganda bankahrunsins. Bók hans, Íslenska efnahagsundrið, Flugeldahagfræði fyrir byrjendur var til umtals í viðtalinu.
Jón sagði: „...maður las Fréttablaðið og horfði á fréttirnar og það má segja að það hafi vantað alla gagnrýni. Við vorum með einhverja boðbera, sérstaklega áberandi á miðlum 365, með Björn Inga Hrafnsson, Hafliða Helgason og Sindra Sindrason. Þetta eru menn sem boða fagnaðarerindið og voru að fljúga í boði útrásarvíkingana og voru í að telja í okkur kjarkinn sem lítil innistæða var fyrir.“
Hafliði sem lét af störfum hjá 365 um mitt ár 2007 segist ekki hafa áhuga á því að tjá sig um ummæli Jóns. Hann segist þó alls ekki hafa nálgast sín verk eins og Jón lýsir. Björn Ingi vildi heldur ekki tjá sig um málið, sagði öllum frjálst að hafa sína skoðun. Sindri sagðist aldrei hafa þegið neinar boðsferðir né annað í vinnu sinni hjá 365. Hann sagði það vera fróðlegt að sjá hvaða ferðir þetta væru sem honum er gert að hafa farið í.
Jón sagði sjálfur í viðtalinu hafa setið í besta stól á góðum launum fyir bankahrun og að allir hafi tekið þátt í veislunni.
Hann stendur keikur við orð sín. „Þó að ég hafi ekki verið með þeim í flugvél þá er þetta byggt á orðrómi sem hefur að hluta verið staðfestur. Ég stend að fullu við allt sem stendur í bókinni,“ segir hann.
Athugasemdir (2)
-
Guðrún skrifar:
Sindri segist aldrei hafa þegið neinar boðsferðir né annað í vinnu sinni hjá 365. Gott og vel kannski ekki á starfstíma sínum hjá fyrirtækinu. En hann var hvorki meira né minna en persónulegur aðstoðarmaður og blaðafulltrúi Jóns Ásgeirs eiganda 365 og ferðaðist með honum um allt.
-
Sigurður #1 skrifar:
Höfundur sem lætur hafa eftir sér að frásögn sé byggð á orðrómi, en hann standi við frásögnina.
Þetta þykja mér arfa slök vinnubrögð og höfundi ekki til sóma, sama hver málstaðurinn er.
Bókin er sjálfdæmd sem rusl, þegar höfundurinn lætur hafa eftir sér að það skipti ekki öllu máli hvort um staðreyndir, eða orðróm er að ræða.

Skrifa athugasemd