Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Katrín Rut Bessadóttir

Adriana er líka á Íslandi

Mansal þrífst þar sem eftirspurnin er

30.10.2009 Katrín Rut Bessadóttir

katrin_rut_bessadottir

Adriana ólst upp í fátækahverfi í Búkarest ásamt fimm yngri systkinum. Pabbi hennar vann tólf tíma á dag illa launaða verkamannavinnu og kom bara heim til þess að borða, sofa og beita Adriönu og mömmu hennar andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi.

Þegar Adriana var orðin 15 ára fór hún að reyna að forðast að vera heima eins og hún gat. Hún kynntist eldri krökkum sem hún hékk með á skuggabörum miðborgarinnar. Margir þeirra neyttu fíkniefna, þar á meðal Adriana. Eitt kvöldið gaf eldri maður sig á tal við Adriönu. Á meðan spjalli þeirra stóð laumaði hann ólyfjan í glasið hennar þannig að hún lognaðist fljótt útaf. Þegar hún rankaði við sér mörgum klukkutímum síðar áttaði hún sig á því að hún var í bílskotti í bíl á ferð.

Eftir langan tíma var hún dregin úr bílskottinu, afhent kerlingu sem fór með hana inn í stórt hús með mörgum herbergjum þar sem fyrir voru fleiri ungar stúlkur í hræðilegu ástandi. Henni var hent í kalda sturtu, látin hafa efnislítinn náttkjól og síðan sprautuð niður þannig að hún lyppaðist niður á skítugan bedda í litlu herbergi. Hún vissi ekki af sér fyrr en hún sá kerlinguna í dyrunum á gluggalausu herberginu benda eldri karlmanni á hana, segja eitthvað á ókunnu tungumáli. Maðurinn gekk síðan inn, lokaði dyrunum, afklæddi sig og nauðgaði Adriönu þrisvar sinnum næsta klukkutímann. Adriana var orðinn kynlífsþræll á Ítalíu.

Svona liðu vikurnar. Adriana fékk að borða rétt til þess að halda lífi, var sprautuð niður þess á milli. Aðgangur var seldur að líkama hennar oft á dag. Henni var nauðgað og misþyrmt.

Adriana varð ófrísk áður en langt um leið. Hún áttaði sig ekki á því sjálf því oftast var hún í móki og ekki í nokkrum tengslum við raunveruleikann. Kerlingin sem sá um þrælabúðirnar lét það þó ekki framhjá sér fara. Henni var því gefin tafla sem átti að losa líkamann við fóstrið. Hún leið útaf af sársauka þegar pillan fór að virka. Rankaði við sér nokkru síðar, alblóðug og sárkvalin. Hún kallaði á hjálp en enginn sinnti kallinu. Hún var orðin máttlaus og megnaði ekki að standa upp. Adriönu blæddi út þessa nótt. Hún var alein og yfirgefin, svívirt og smánuð.

Hræðilegt? Óhugsandi? Ef til vill - en saga Adriönu er sönn saga margra kvenna. Hún er ein af hundruðum þúsundum sem eru hnepptar í ánauð mansals á ári hverju. Forhertir og samviskulausir glæpamenn nýta sér aðstæður kvennanna og neyð til þess að hneppa þær í slíka ánauð. Yfirleitt eru þær búsettar í fátækari löndum og fluttar yfir í þau ríkari. Þær eru lokkaðar með gylliboðum um betra líf, ríkidæmi og veraldleg gæði sem þær hafa aldrei upplifað. Sumum er rænt af skemmtistöðum, aðrar eru lokkaðar með atvinnutilboðum sem þær geta ekki hafnað. Enn öðrum er bara rænt úti á götu. Glæpamennirnir finna sínar leiðir til þess að ræna konum sem þeir gera að söluvöru.

Þetta er blákaldur raunveruleikinn. Út um allan heim hefur fólk það að atvinnu að svipta annað fólk frelsi og gera það að þrælum. Þetta fólk selur aðgang að líkama ófrjálsra kvenna. Leyfir kaupandanum að gera sem honum sýnist – allt fyrir peningana. Þetta fólk er oftar en ekki orðið auðugt af peningum og lifir í lystisemdum milli þess sem það níðist á konum sem geta enga björg sér veitt.

Nýlega vorum við minnt á það að við búum í stórum heimi. Á þessu litla skeri eru starfandi glæpahringir sem stunda mansal – og það virtist koma mörgum á óvart, að hér skyldi þrífast svoleiðis viðbjóður. Við erum þrátt fyrir það löngu hætt að geta spilað út „við erum svo lítil og saklaus“ trompinu. Það er fyrir löngu síðan orðið ógilt, hvort sem fólki líkar það betur eða verr. Hér á landi eru líka til menn sem kaupa konur. Án eftirspurnar þrífst ekki mansal. Til þess að uppræta það þarf fjármagn, vilja og þekkingu.

Við verðum að sætta okkur við að við erum ekki lítil og saklaus. Hér þrífast viðurstyggileg kýli og við verðum að stinga á þau. Ólíkt því sem sumir virðast halda um þessar mundir þá eru kýlin okkar ekki bara í formi viðbjóðslegra og spilltra peningaviðskipta - hér er líka verslað með fólk og slík viðskipti eru af tvennu illu margfalt hroðalegri.

Senda grein

Athugasemdir (25)

  1. Lárus Viðar skrifar:

    Kröftug grein, ánægður með þetta. Við megum aldrei láta deigan síga í baráttunni gegn þrælahaldi og þá sérstaklega kynlífsþrælkun sem er viðbjóðslegasta útgáfan.

    30.10.2009, kl. 19:49 | #

  2. Sigurður Þórðarson skrifar:

    Þetta er hræðilegt en við getum mjög auðveldlega komið í veg fyrir þetta það er einfaldlega valfrjálst ástand. Við búum á eyju þar sem mjög auðvelt er að fylgjast með ferðum til og frá landinu. Þessu átta Bretar sig á og eru því ekki í Schengen.

    31.10.2009, kl. 9:27 | #

  3. Óðinn skrifar:

    Takk fyrir þetta innlegg í umræðuna

    Það ætti í raun að vera með myndina Lila 4ever sem skildu áhorf einhversstaðar í skólakerfinu og sýna síðan heimildarmyndina um Lilu

    Mjög áhrifa rík mynd um rúsneska unglingsstúlku sem er plötuð til Svíþjóðar og er þar gerð að kynlífstæki fyrir ógeðslega karla

    31.10.2009, kl. 9:55 | #

  4. Sigurdur #1 skrifar:

    Ég hef ekki hugmynd um hver löggjöfin um vændi er á Ítalíu.

    En ég ætla að gefa mér það að fyrst það er markaður fyrir mansal og kynlífsþrælkun eins og þarna í höndunum á einhverjum glæpasamtökum þá sé vændi ólöglegt og refsivert.

    Sennilega mætti slá töluvert mikið á þennan viðbjóð ef vændi væri leyft, og vændiskonum gert að njóta sömu réttinda og verndar og öðru fólki.

    Svona hús eins og þú lýsir þarna er bein afleiðing af foráttu heimskulegri löggjöf sem rekur vændið niður til undirheimanna þar sem svartasti viðbjóðurinn viðgengst.

    Mér finnst þetta alveg yfirgengilega vitlaus hugsunargangur að láta sér detta það í hug að mansal minnki við að gera vændi refsivert.

    Þvert á móti, ætti það alveg að gefa augaleið að mansal eykst við svona rugl.

    31.10.2009, kl. 20:10 | #

  5. Sóley Tómasdóttir skrifar:

    Sigurður#1.

    Ég er sammála því að sala á vændi eigi ekki að vera refsiverð - enda er hún það ekki. Vændi er ekki refsivert á Íslandi. Kaup á vændi eru refsiverð. Vændiskonur gera ekkert af sér, það eru manseljendur og kaupendur sem brjóta lög. Þannig er hagur vændiskvenna mun betri en áður, þegar þær áttu handtöku yfir höfði sér ef þær leituðu til lögreglu vegna kaupenda eða hórmangara.

    Mítan um að vændi færist neðanjarðar við hina nýju löggjöf er lífseig en tilhæfulaus. Vegna eðli starfseminnar, þá mun vændi alltaf vera á mörkum hins sýnilega. Það þarf að fara leynt, því kaupendur vilja halda kaupum sínum leyndum - en þó ekki svo leynt að kaupendur viti ekki hvert skuli leita. -Og viti kaupendur hvar leita skuli, þá getur lögreglan fundið út úr því líka.

    Mansal hefur minnkað í Svíþjóð eftir að kaup á vændi voru gerð refsiverð. Manseljendur óttast sænsk yfirvöld og fara heldur til Danmerkur með fórnarlömb sín, þar sem vændi er löglegt og vændiskonur "njóta réttinda".

    Lög sem banna kaup á vændi eru mikilvæg og skipta máli. Kaup á vændi eru ekkert annað en kaup á nauðgun. Kaupandinn getur ekki vitað hvort vændiskonan er hamingjusamur læknanemi eða óhamingjusamt fórnarlamb mansals og hann á ekki að fá leyfi til að ákveða það. -Á meðan mansal er þriðji stærsti glæpaiðnaður heims á eftir fíkniefna- og vopnasölu, þá verður lagaumgjörðin að beinast að eftirspurninni eftir því.

    1.11.2009, kl. 10:41 | #

  6. One skrifar:

    Raunveruleg dæmisaga fyrir Sóleyju og fleiri sem aðeins sjá eina hlið málsins: Fór að hitta konu ansi oft á förnum vegi á Laugaveginum. Hún er frá Nígeríu. Þegar ég var búinn að rekast á hana í nokkur skipti og eiga smáspjall við hana spurði hún hvort ég væri ekki til í að koma með sér heim í íbúð sem hún leigir á Snorrabraut, innan við 100 metra frá lögreglustöðinn,- og fá eitt blow fyrir 15 kall eða drátt fyrir 30. Hún gekk mjög hart fram í að reyna að fá mig með sér.
    Samkvæmt þessari stórkostlegu löggjöf er ég glæpamaður ef ég færi með henni en ekki hún!! Femínist þvæla eins og hún gerist best. Í augm femínista eru karlar skepnur og konur fórnarlömb - jafnvel þó tölfræðilegar staðreyndir frá Evrópu sýni að konur eiga 65% af vændishúsum í Hollandi og Þýskalandi. - jafnvel þó vændisskýrslan sem var látin hverfa hér fyrir nokkrum árum því hún hentaði ekki málstað femínista, sýndi að 2/3 unglinga sem seldu sig í Reykjavík voru karlkyns! Ég minnist þess ekki að hafa séð eitt orð frá Sóleyju um þá staðreynd í öll þessi ár sem hún hefur bullað og blaðrað um skild málefni.

    1.11.2009, kl. 11:54 | #

  7. Sigrun skrifar:

    One: nu ert thu ekkert skarri sjalfur ad vera ad draga thessa umraedu i einhverja personulega fylu uti Soleyju fyrir ad vera feministi, thegar thetta er mikilvaeg umraeda yfirhofud.

    Loggjofin sem raett er um, thar sem sala a vaendi er logleg, en kaup ologleg, a jafnt vid i tilfelli kvenna og karla. Thad er vel haegt, ju, ad gagnryna thad ad Soley talar um vaendiskonur frekar en karla, en thu gagnrynir hana sem feminista eins og thu vilt ad feminismi se til ad thu getir talad illa um hann, thvi thad virdist hentar ther og thinni fylu uti feminista yfirhofud.

    Thin thvaela er nefnilega anti-feminisk thvaela eins og hun gerist verst... thar sem thu gerir rad fyrir thvi ad Soley og feministar almennt telji karlmenn skepnur. Thad er hrein og klar heimska.

    Prosentutalan um fjolda kvenna sem reka vaendishus i Hollandi og Thyskalandi a ekki einu sinni vid i thessa umraedu, ekki eins og thu setur hana fram... i sogu Katrinar var raett um konu sem stulkan lenti i hondunum a. Enginn raeddi um ad karlmenn vaeru einu gerendurnir nema thu. Hvadan ertu ad koma? Ef ad thu hefur ahyggjur af unglingsstrakum hjerlendis sem selja sig, aettirdu tha ekki frekar ad vera med Soleyju i lidi, en benda henni godlatlega a rokfaersluvilluna i mali hennar? Thar vaerud thid baedi betur sett en ad vera ad rifast um eitthvad andskotans kjaftaedi. Eda ertu bara ad leita ad feminista til ad tuda i thvi thu ert ooruggur med karlmennsku thina? (Hah! Stereotypiskur feministahatari... er ekki gott ad vera gefinn sa titill?)

    Ps. Ogedslega stadreyndin er su ad tho konur seu dopadar nidur nanast ad daudamorkum, eru thaer enn "nothaefar" til kynlifs, thad er ogedslegt, en satt. Thar kemur fram munurinn a umraedu um vaendi thegar kemur ad konum vs. korlum og fornarlambs-status. Thad er erfidara ad neyda karlmann til vaendis en konu. Eg held thvi ekki fram ad thad se alls omogulegt, en thad thyrfti liklegast allt adrar adstaedur til en rum og nog af lyfjum.

    1.11.2009, kl. 14:04 | #

  8. booboo skrifar:

    SAga Adriönnu er vissulega sorgleg og mannsal er viðbjóður svo ekki sé meira sagt. En hvar eru málin um mannsal á íslandi? Jú öll málin eru getgátur einar - en vissulega er ákveðin maður í Kópavogi með nektarstað sem hefur (ef hægt er að treysta sögusögnum) þrýst mikið' á þessar konur að þær stundi vændi. Ég stórefast að þær hafi verið neyddar til þess. Myndin Lilja forever er hræðileg en það er ömurlegt að heyra stanslausa femininstakjaftæðið um að slíkt viðgengist hér. Þetta er bara fjölmiðlaklám.
    Einhver ein drukkin kona frá Litháen er plötuð hingað og þá er uppi fótur og fit um að hér séu meirháttar mannsal í gangi. Staðrreyndin er sú að langflest mannsalsmál sem hérlendis hafa verið af því taginu að karlmenn (og einhverjar konmur) hafa unnið hjá einhverjum verktökum og ekki fengið greidd launin. Það er ömurlegt en er ekki vændishringur eins og femionistaliðið vill meina.

    Konur komast mjög vel áfram ef að þær eru marksæknar, byggja á sínum styrkleikum og bæta sig þar sem þarf _ semsagt sama uppskrift og fyrir karla.
    Það er kominn tími til þess að fjölmiðlar fari að gefa þetta öfgalið minna pláss í fréttum.

    1.11.2009, kl. 15:30 | #

  9. Sóley Tómasdóttir skrifar:

    booboo.

    Hér á landi er verið að rannsaka umfangsmikið mansalsmál í kjölfar komu litháensku stúlkunnar hingað til lands og við skulum bara spyrja að leikslokum í því máli. Eins er nú fyrir dómi annað mansalsmál sem líklegt er að sýni fram á að vandinn er veruleiki hérlendis. "Femonistaliðið" hefur lítið með þessar rannsóknir að gera, heldur eru vísbendingar og sönnunargögn nægilega sterk til að lögregla, saksóknari og dómskerfi virðist taka á því mark.

    Ég á annars bágt með að skilja ásakanir um að femínistar ljúgi til um að hér þrífist mansal. Af hverju í ósköpunum ættu einhverjir að sjá sér hag í því að ljúga til um slíkt? -Ég skil vel að það sé erfitt fyrir fólk að horfast í augu við það, mansal er viðbjóður sem enginn vill að sé til og lífið væri náttúrulega miklu þægilegra og einfaldara ef við værum bara að ljúga.

    Ég vildi óska þess að ég vissi ekki það sem ég veit. Vildi óska þess að hér á landi - og í heiminum öllum - liði öllum vel og konur og karlar fengjust bara við það sem þeim þætti skemmtilegast. En það er bara ekki þannig. Veruleikinn er sá að hér á Íslandi þrífst mansal eins og annars staðar og hér á Íslandi eru konur neyddar í kynlífsþrælkun eins og annars staðar.

    Ég ætla ekki að áfellast þig fyrir að vilja loka augunum fyrir þessu - en verð að segja að ummæli þín um 19 ára gamla litháenska stúlku sem frástola af hræðslu leitaði hjálpar eru þér til mikillar minnkunar.

    1.11.2009, kl. 20:46 | #

  10. booboo skrifar:

    Sóley, ég er sammála þér að það ber að rannsaka þessi mál gaumgæfilega og réttast væri að sérteymi innan lögreglunnar sjæi um þessi mál og sé alltaf að störfum. Það er hinsvegar komin tími til þess að fjölmiðlar vakni og hætti að blása upp í sífellu allt þetta móðursjúka rugl sem vellur upp úr feministaliðinu. Betra væri að vælandi feministar sem eiga í rauninni í sálfræðilegum vanda leituðu sér hjálpar fagmanna (nóg er til af kvenkyns-sálfræðingum sé kyn vandamál þar líka) við að vinna úr persónulegum vandamálum í stað þess að gera úlfalda úr mýflugu.

    Ég endurtek hinsvegar að mannsal er viðbjóðslegur glæpur og á að taka hart á og koma í veg fyrir. En femínistar þurfa að taka út einhvern þroska og fjölmiðlar ættu að hætta að bögga þjóðina með gula æsifréttamennsku.

    2.11.2009, kl. 15:00 | #

  11. Sóley Tómasdóttir skrifar:

    Booboo.

    Það er sérstakt teymi sem sér um þessi mál og það er alltaf að störfum. Það teymi er til komið vegna áralangrar vinnu grasrótarsamtaka kvenna (sem ég geri ráð fyrir að þú lítir á sem vælandi femínista sem eigi í sálfræðilegum vanda).

    Femínísk barátta hefur nefnilega opnað augu samfélagsins og umheimsins fyrir alvarleika og umfangi mansals, þó enn sé langt í land á meðan sú barátta skilar viðbrögðum á borð við þau sem þú sýnir nú.

    Það er ekkert áhugamál femínista að gera úlfalda úr mýflugu, enda sé ég ekki hvers hagur það væri. Femínistar hafa gegnum tíðina barist gegn því að konur séu seldar í kynlífsþrælkun og munu halda því áfram sama hvort þér líkar betur eða verr.

    Að lokum verð ég að segja að ég bágt með að skilja hvernig þú ætlar að taka hart á mansali og koma í veg fyrir það ef umræða um eðli og orsakir mansals flokkast bara undir móðursjúkt rugl og fjölmiðlar mega ekki einu sinni fjalla um þau mál sem hér koma upp. Þá skal áréttað að femínistar hafa lítið sem ekkert fjallað um mansalsmálið sem nú er í rannsókn hér á landi, heldur hefur lögreglan látið fjölmiðlum í té allar þær upplýsingar sem komið hafa fram.

    2.11.2009, kl. 16:11 | #

  12. Héðinn Björnsson skrifar:

    Þetta mál snýst um skipulagða glæpastarfsemi og ekki kvennakúgun. Fórnarlömb skipulagðrar glæpastarfsemi eru að uppistöðu ungir karlmenn en þar sem ofbeldi gegn þeim hópi er enn nokkuð samfélagslega viðurkent hafa viðbrögðin við dauðsföllum þeirra verið hófstilltari en við harmsögu litháísku konunnar. Verði nú skorin upp herör gegn skipulagðri glæpastarfsemi mun sá hópur sem mun græða mest á því vera ungir íslenskir karlmenn.

    3.11.2009, kl. 11:05 | #

  13. booboo skrifar:

    Sóley

    Það er alger óþarfi fyrir þig að ýja að því að ég sé hlynntur því að konur séu seldar í kynlífsánauð. Ég hef heldur ekki sagt að fjölmiðlar megi ekki fjalla um mál eins og til dæmis hugsanlegt mannsal. Það er hinsvegar óþolandi að litlir þrýstihópar geta komið hvaða rugli sem þau vilja í fjölmiðla. Þú segir að það sé ekkert "áhugamál" fémínista að gera úlfalda úr mýflugu en það sem gert er kemur áhugmalum bara ekkert við.

    3.11.2009, kl. 14:02 | #

  14. Sóley Tómasdóttir skrifar:

    Héðinn.

    Glæpastarfsemin gengur að stórum hluta út á kvennakúgun. Ég er ekkert að gera lítið úr glæpum gagnvart ungum körlum, það er stórt vandamál - en gerir alls ekki minna úr kúgun klámvæðingarinnar á konum. Þetta eru tengd vandamál að hluta - en ekki öllu leyti.

    Booboo.

    Ég var að segja þér að ekkert af því sem hefur verið í fjölmiðlum um mál litháísku konunnar hafi komið frá þrýstihópum. Það er allt frá lögreglunni komið - en þú leyfir þér samt að gera lítið úr því. Ég spyr því aftur - hvernig viltu að komið sé í veg fyrir mansal og tekið hart á því ef ekki í gegnum þrýstihópa?

    3.11.2009, kl. 14:07 | #

  15. Snærós Sindradóttir skrifar:

    Mælist til þess að allir kynni sér þessa skýrslu http://www.hr.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=12713

    með bestu kveðju
    Snærós

    3.11.2009, kl. 17:40 | #

  16. booboo skrifar:

    Sóley,

    Þessi mál er vissulega tekin fastari tökum vegna hávaða frá þrýstihópum - þar hefur þú rétt fyrir þér. Þú og þínar systur hafa hinsvegar ekkert leyfi til þess að bera mér öðrum sem tala á einhvern hátt á móti ykkar hegðun að við séum hlynntir mannsali og þess háttar. Ég geri lítið úr máli Litháisku konunnar vegna þess að feminístar hafa verið að hrópa að hér séu vændishringir og ofboðslegt mannsal úti um allt og allir karlar eru viðbjóður og þess háttar. Þið þurfið semsagt að læra ákveðna mannasiði og rökfestu - ef þið gerðuð það mynduð þið fá margfalt fleiri karla á ykkar band.

    3.11.2009, kl. 22:00 | #

  17. Kristín Sig. skrifar:

    Heyrðu Booboo, þetta er nú alveg bara nákvæmlega það sem kemur slæmu orði á femínista án þess að þeir hafa unnið sér það inn - að þeir séu að segja að ALLIR karlar séu viðbjóður... Það hafa þeir aldrei sagt og munu aldrei segja - þú ættir kannski að temja þér þessa rökfestu sem þú biður femínista um.

    mansal - ekki mannsal!

    4.11.2009, kl. 0:37 | #

  18. Héðinn Björnsson skrifar:

    Skipulögð glæpastarfsemi er fyrst og fremst starfandi á sviði fíkniefna, vændi, fólksfluttningum og vopnum. Þúsundir láta lífið fyrir hendi þessarrar glæpastarfsemi á ári hverju og er meirihluti þeirra karlmenn. Á Íslandi hafa látist nokkrir tugir og aftur er meirihluti fórnarlamba þessarrar starfsemi verið karlar.

    Eigi að taka á þessum glæpahringjum verður það ekki gert nema að horfast í augu við að þessir heimar tengjast og það verður að takast á við vandan sameiginlega. Þetta er ekki sérstakt kvennavandamál, heldur samfélagsvandamál, enda kúga þessir hópar ekki færri karla en konur.

    Samfélagsleg vandamál tökum við á sameiginlega eða ekki. Verði reynt að berjast gegn kvennþrælkun óháð kúgun skipulagðrar glæpastarfsemi á öðrum hópum mun slíkt skila litlu.

    4.11.2009, kl. 8:44 | #

  19. Sóley Tómasdóttir skrifar:

    Booboo.

    Það væri fínt ef þú gætir bent mér á hvar ég hef sagt að þið séuð hlynntir mansali eða allir karlar séu viðbjóður. Ef þú getur það ekki, þá held ég að þú ættir að líta í eigin barm varðandi mannasiði og rökfestu.

    Héðinn.

    Eins og ég skrifaði hér að ofan, þá tengjast þessir heimar allir en ólíkir geirar snerta kynin með ólíkum hætti og því þarf að fást við þá með ólíkum hætti. Eg hef aldrei sagt að það eigi að skoða kvenþrælkun óháð kúgun gagnvart öðrum hópum - og geri mér fulla grein fyrir að þessum glæpasamtökum virðist fátt óviðkomandi. Auðvitað nálgumst við glæpagengin heildstætt - en fórnarlömbin þarf að vernda og veita viðeigandi aðstoð - og þá oft ólíka, m.a. vegna kynferðis viðkomandi.

    Ég ítreka að ofbeldi gagnvart körlum er nákvæmlega jafnalvarlegt og gagnvart konum, en ég er bara ekki eins fróð um hvernig hægt er að taka á því og ganvart konum. Aðstæður kynjanna og eðli glæpanna gagnvart þeim eru talsvert ólík og ekkert að því að grasrótarsamtök kunni ekki lausn á öllum vanda. Það gerir hann þó ekkert minni eða ómerkilegri.

    Þetta er bara spurning um hvaða slag á að taka. Ég hef t.d. talsvert tekið þátt í umræðum um álver í Helguvík og barist gegn því að það verði að veruleika. Ég hef mun minna rætt um álverið á Bakka. Ekki vegna þess að mér finnist það eitthvað spennandi kostur - heldur vegna þess að ég þekki ekki aðstæður þar nægilega vel til að geta tekið slaginn af fullri hörku.

    4.11.2009, kl. 10:23 | #

  20. Gissur skrifar:

    Eftir að hafa lesið allt þetta þá verð ég að vera mest sammála Héðni. Skipulögð glæpastarfsemi er samtvinnuð af vopnasölu, eiturlyfjasölu og þrælasölu af ýmsu tagi. Þessi starfsemi byggist á volæði sumra en græðgi annara.

    Héðinn bendir réttilega á að það verði að taka sameiginlega á þessari starfsemi því að berjast í einu horni en ekki öðru skilar engu.

    Satt best að segja þá þykir mér það forkastanlegt að ekki er orðin meiri vitudarvakning gagnvart heildarvandanum hjá þeim sem teljast til kyndilbera baráttunar gegn mansali en raun ber vitni. starfshópur sem ályktar og skrifar álit er allt gott og blessað en ég held að við séum löngu komin úr þeirri sandkassapóitík að þykjast vera að gera eitthvað til að líta vel út. Hvað gerir þessi hópur eða hefur hann gert hingað til sem negla má niður sem alvöru ávinning en ekki málamyndagjörning? Ég spyr vegna þess að ég hef því miður heyrt lítið um störf hans.

    Sannleikurinn er sá að við vitum hvaðan meiri parturinn af okkar eiturlyfja og kúgunarstarfsemi kemur. En af einhverjum orsökum lokum við augunum fyrir raunveruleikanum því um leið og við opnum augun og horfum á vandann þá blasir lausnin við okkur.

    imyndið ykkur hvað lögreglumennirnir á vestfjörðum hafa hugsað sig lengi um áður en þeir stungu upp á að við ættum að segja okkur úr sjengen. En þeir komu með þá hugmynd. Það myndi gera mikið að ganga úr því. En það eru líka mínusar við það. Og þar liggur hundurinn grafinn.

    Erum við tilbúin að gera það sem þarf? Er fjölþjóðasamfélagið okkar meira virði en útrýming skipulagðrar glæpastarfsemi? Er mikilvægara að andmæla ekki evrópureglum en að hefta verulega aðgengi austur evrópubúa til landsins þangað til lífsstandardinn hjá þeim batnar? Erum við virkilega tilbúin að taka á glæpum? Af hverju erum við þá að lækka fjármagn til lögreglunar?

    Það eru miklu fleirri hlutir sem hægt er að nefna en við vitum þá flesta. Af hverju er þá ekki meira gert? Jú. Kannski er betra að róa upp ánna frekar en að fá sér mótorbát.

    Eitt enn. Glæpastarfsemi gengur út á peninga Sóley. Kúgun er bara verkfæri.

    Og eitt enn.

    4.11.2009, kl. 14:32 | #

  21. Sóley Tómasdóttir skrifar:

    Gissur.

    Rétt hjá þér með peninga og kúgun. Sýnist við bæði vera mjög sammála Héðni, það er ferlegt hvernig glæpaklíkur komast upp með alvarlega glæpi sem bitna mest á þeim sem síst skyldi.

    4.11.2009, kl. 20:32 | #

  22. Generic Cialis skrifar:

    Hi I like your site and would like to propose a link exchange.
    Please copy paste the following code to your page:
    <a href=http://generic-cialis.socialgo.com/>Generic Cialis</a> - if you use HTML
    http://generic-cialis.socialgo.com/ - Generic Cialis - if you use BBCODE
    then please email me and I will happily add your link to my site.

    19.3.2010, kl. 13:06 | #

  23. Bulova Watch skrifar:


    <a href=http://www.feedagg.com/feed/458389/Cartier-Must-21-Watches>Cartier Must</a>
    <a href=http://www.feedagg.com/feed/458659/Cartier-Tank-Francaise-Chronograph>Cartier Francaise Tank</a>
    <a href=http://www.feedagg.com/feed/458359/Cartier-Gold-Watches>Cartier Gold Watch</a>
    <a href=http://www.feedagg.com/feed/458625/Cartier-Santos-Gold>Cartier Santos</a>
    <a href=http://www.feedagg.com/feed/631196/Bulova-Wrist-Watch>Bulova Watch</a>
    <a href=http://www.feedagg.com/feed/631405/Bulova-Watches-Bulova>Bulova Watches</a>
    <a href=http://www.feedagg.com/feed/631647/Bulova-Diamond-Bracelet-Watch>Bulova Diamond</a>
    <a href=http://www.feedagg.com/feed/631163/Bulova-Mens-Watches>Bulova Mens</a>
    <a href=http://www.feedagg.com/feed/631602/Bulova-Caravelle-Quartz-Watch>Bulova Caravelle</a>

    30.3.2010, kl. 15:26 | #

  24. VoloBiaffaf skrifar:

    &lt;a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1662174/&gt;inderal and broccoli&lt;/a&gt; , inderal use for public speaking

    7.6.2010, kl. 16:17 | #

  25. kictEntaica skrifar:

    &lt;a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669214/&gt;canada medicine inderal buy&lt;/a&gt; , inderal withdrawal symptoms
    &lt;a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669727/&gt;inderal half-life&lt;/a&gt; , inderal and heart rate
    &lt;a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669891/&gt;migraine inderal la research reidy carroll&lt;/a&gt; , inderal without a perscription

    8.6.2010, kl. 2:41 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls skoðavetvangur. Allir geta sína skoðun á því efni sem birtist á Smugunni. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica