Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Katrín Rut Bessadóttir

Byrjað upp á nýtt

Smugan lætur í sér heyra á ný 

1.10.2009 Katrín Rut Bessadóttir

katrin_rut_bessadottir

Í dag var Alþingi sett að nýju. Enginn sletti skyri og fáir munduðu búsáhöld. Þó er alltaf sami kjarninn mættur á Austurvöll, þrautseigur og fullur af heift og réttlátri reiði með pönnur og potta að vopni - og kindablóð samkvæmt nýjustu fregnum þó að það hafi verið gert upptækt áður en spariklæddur þingheimur fékk að finna fyrir því. Lögreglan hafði augljóslega miklar áhyggjur af mögulegum skyr- og blóðslettum og bjó sér til virki í kringum Alþingishúsið með reipi og borða. Stærstu lögreglumönnunum var stillt upp í fremstu víglínu, þar var örugglega engin lögga undir tveimur metrum.

Það er vandræðalegt að málið sem segja má að hafi eyðilegt sumarið fyrir mörgum, í það minnsta varpað á það skugga, sé komið á byrjunarreit. IceSave – sagan endalausa. Peningurinn sem við eigum ekki að borga en verðum samt að borga en enginn getur verið sammála um hvernig á að borga og flestir vilja eðlilega bara sleppa við að borga. Heilbrigðisráðherra búinn að segja af sér vegna málsins. Einn af fáum sem virkilega er trúr sannfæringu sinni. Segir af sér ráðherramennsku af prinsippástæðum. Ögmundur fær hrós fyrir það. Hrós sem reyndar er háð því að uppsögnin hafi ekkert með heilbrigðisráðuneytið og niðurskurð að gera eins og illar tungur vilja meina - að Ögmundur hafi hræðst viðbrögð fólks við niðurskurðinum sem er yfirvofandi í heilbrigðiskerfinu. Ögmundur er annálaður fyrir heilindi þannig að slíkar fullyrðingar koma líklega úr hörðustu átt andstæðinga sem trúa því ekki að hugsjónamenn eins og Ögmundur séu í raun og veru til. Álfheiður Ingadóttir tekur nú við keflinu og er ekki í öfundsverðum sporum. Heilbrigðiskerfið er eitt það allra heilagasta sem við eigum og núna þarf að kroppa í það. Það verður að gera með mikilli varkárni en niðurskurður er eðli sínu samkvæmt þannig að hann bitnar alltaf á einhverjum. Sem er skítt.

Fjárlagafrumvarpið var kynnt í dag eftir þingsetningu. Skattahækkanir og niðurskurður. Orð sem fá hárin til þess að rísa. Hér verður ekki farið út í réttmæti hverrar aðgerðar fyrir sig sem eflaust má gagnrýna en engu að síður skal hafa í huga hvaða aðstæður skópu þörfina fyrir þær. Skammtímaminni Íslendinga er brigðult og þeir gleyma því að það var frjálshyggjuæðið sem var allsráðandi síðustu 17 árin fyrir hrun sem gerði það að verkum að við vöðum skít upp á herðablöð í dag.

Smugan er mætt á nýjan leik og ætlar blanda sér í þjóðfélagsumræðunni af krafti. Hún tekur fús við aðsendu efni á ritstjorn@smugan.is.

Senda grein

Athugasemdir (2)

  1. Jakob Þór Haraldsson skrifar:

    Kæra Katrín, rétt hjá þér að verkstjórn núverandi & fráfarandi ríkisstjórnar er ekki að ganga upp. Svo er auðvitað gríðarleg eftirsjá eftir félaga Ögmundi. Klækjastjórnmál XS ganga ekki upp og eru að valda okkar samfélagi ítrekað miklum skaða. Svona getur þetta ekki haldið áfram, samfélaginu er að blæða út og engin von um gáfulegar efnahags ákvarðanir í framtíðinni, alaveganna næ ég ekki að sjá ljósið í myrkinu. Hvernig væri að fara gera hlutina öðruvísi - gefa okkur sem þjóð VON og FRAMTÍÐARSÝN án EB....lol....!

    kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

    3.10.2009, kl. 13:29 | #

  2. Borgþór S Kjærnested skrifar:

    Áhugavert að fylgjast stöðugt með þessari naflaskoðunarumræðu. Ekkert kemst annað en "ég sjálf/ég sjálfur" . Er staddur á erlendri grund þar sem lítt heyrist af íslenskum málum, en bendi á umfjöllun á málefni Letta í Tyrklandi þessa dagana. Þar er hart í ári. Ævintýramenn sænskra banka, sem komu undir sig fótunum í lettneska hagkerfinu, höguðu sér með svipuðu sniði og íslenskir útrásarvíkingar. Lánuðu peninga til hægri, vinstri, húsnæðisverð rauk upp úr öllu valdi og svo kom hrunið. Nú er verið að bera út fólk úr lúxusíbúðunum, kreppa ríkir í heilbrigðis- og skólakerfi og AGS fulltrúarnir mættir á svæðið með útréttar hjálparhendur. "Nú verðið þið að skera niður, setja upp áætlun um greiðslu erlendra skulda og koa ykkur útúr skuldasúpunni" er boðskapur AGS-manna. Á fundinum í Tyrklandi leitaði forsætisráðherra Lettlands til fulltrúa Norðurlanda og ESB og bað um aðstoð. Ekki málið, sagði sænski forsætisráðherrann Reinfeldt - en fyrst verðið þið að fara eftir AGS-planinu! Sama sögðu allir hinir. Við skulum lána ykkur fjármuni, en bara með því skilyrði að farið sé eftir leikreglum og áætlunum AGS! Sennilega hljómar þetta kunnuglega!? Ekki orð um málið í íslenskum fjölmiðlum að því ég best get séð. Hvers vegna ekki? Ættum við að vera sérstakir vinir Letta vi þessar aðstæður? Eiga þjóðir einhverja sérstaka vini. Hverra vinir erum við? Ég hef ekki fundið þá þjóð á heimskortinu sem Ísland hefur opinberlega lýst yfir sérstakri vináttu við nema ef vera skyldi BNA á árum áður.
    Aðvitað verða menn að greiða þær skuldir sem ALLIR ábyrgir forustumenn þjóðarinnar lofuðu að ábyrgjast fyrir hrunið. Þar ber Sjálfstæðisflokkurinn mikla ábyrgð umfram aðra með fjármálaráðherrann á sínum snærum sl. 18 ár.
    Það eru mýmörg dæmi um það hvernig fer fyrir ríkjum sem ekki standa við gefin fyrirheit - nema þær búi yfir sterkum herafla. Ætla menn að fara að pússa upp fallbyssur Landhelgisgæslunnar fyrir jólin? Þrær ku draga heldur skammt.

    11.10.2009, kl. 15:10 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls skoðavetvangur. Allir geta sína skoðun á því efni sem birtist á Smugunni. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica