Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Elías Jón Guðjónsson

Í fréttum er þetta helst!

13.12.2008 Elías Jón Guðjónsson

elias_jon_gudjonsson2

Í gær samþykkti fjárlaganefd Alþingis breytingatillögur ríkisstjórnarinnar á fjárlagafrumvarpi næsta árs. Niðurstaðan er mesta niðurskurðarfrumvarp allra tíma sem bitnar illilega á þeim verst hafa það. En hvað er í fréttum?


Aðalfréttir dagsins voru tvær. Sú fyrri var um viðbrögð við ummælum Ingibjargar Sólrún Gísladóttur formanns Samfylkingarinnar í þættinum Í vikulokin á Rás 1 í dag. Þar sagði hún ríkisstjórnarsamstarfinu sjálfhætt ef landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkir ekki að sækja um aðild að Evrópusambandinu. (Ekki mjög hræðileg hótun) Sú seinni var um möguleg framboð til formanns og varaformanns á fyrrnefndum landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Ekki eitt orð um fjárlögin.

Afsakið mig.

Er þetta spuni eða eru þetta fréttir? Skipta þessi ummæli Ingibjargar einhverju máli? Hefur ofuráhersla Samfylkingarinnar á Evrópusambandsaðild ekki legið fyrir lengi? Og valdabarátta í Valhöll? Komm on! Hverjum er ekki sama um valdabaráttu í flokki sem enginn vill kjósa?

Væri það ekki betur við hæfi að þeir fjölmiðlar sem hafa til þess mannskap köfuðu ofan í fjárlagafrumvarpið og upplýstu fólkið í landinu hvað það þýddi. Hvað þýðir flöt tekjuskattshækkun samhliða hækkun komugjalda og niðurskurði í heilbrigðiskerfinu fyrir fjölskyldur sem eru undir meðaltekjum? Hvað þýðir allur niðurskurðurinn fyrir fjölskyldur þar sem önnur eða jafnvel báðar fyrirvinnurnar hafa mist vinnuna? Afhverju var ekki reynt að velta skattahækkunum frekar yfir á þá tekjuhærri? Af hverju er gera forsendur fjárlaga ráð fyrir aðeins 5% fjölgun námsmanna þegar framlög til Lánasjóðs íslenskra námsmanna eru ákvörðuð þegar fyrir liggur að þeim mun fjölga um 20 eða jafnvel 30 prósent? Af hverju er skorið niður um hátt í sjö milljarða króna í heilbrigðiskerfinu en áfram settur meira en milljarður króna í tilgangslausa Varnarmálastofnun? Hvar er yfir höfuð í þessu fjárlagafrumvarpi og hvað þýðir það fyrir fólkið í landinu?

Tölurnar segja sitt. Það er gert ráð fyrir 165 til 170 milljarða halla á fjárlögunum. Þarna má strax spyrja spurninga. Hin alræmdi Alþjóðagjaldeyrissjóður hefur varla gert þá kröfu til ríkisstjórnarinnar að hún myndi skera svona mikið niður því sjóðurinn hafði spáð því að hallinn yrði um 200 milljarðar.

Afhverju er þetta ekki í fréttum frekar en valdabrölt í deyjandi flokki og fyrirsjánlegar yfirlýsingar formanns Samfylkingarinnar.

Kvöldfréttum ríkis og valdmiðla er lokið. Í fréttum var ekki neitt.

Senda grein

Athugasemdir (5)

  1. Anna Ó. skrifar:

    Í fréttum var þó það helst að ríkisstjórnin hyggst sitja eins lengi og sætt er. Og að Ingibjörg Sólrún kýs samstarf við spillingarliðið áfram, bara ef það kemur með í ESB. Svo verður skipt út ráðherrum um áramót. Bjarni inn, Björgvin út, Árni út osfrv. en spillingin og stefnan gagnvart almenningi breytist ekkert og verðtryggðu lánin hækka og hækka og hækka!!!!!!!

    13.12.2008, kl. 20:33 | #

  2. Karl skrifar:

    Fjölmiðlar?
    Hvaða fjölmiðlar?
    Hvaða mannskapur?
    Með leyfi, áttar þú þig ekki á því hvernig auðmenn hafa leikið fjölmiðla hér á landi?
    Dagblöð hafa varla mannskap til að koma blaði dagsins út, hvað þá meira.
    Ransóknarblaðamennska?
    Kom onn.
    Hvernig dettur þér í hug að þessi gjaldþrota fyrirtæki sem búið er að eyðileggja með góðri hjálp forsetans geti gert það sem þú talar um?
    Kom onn. Greindu fyrst raunveruleikann.
    Skrifaðu svo.
    Takk og Kveðja
    Karl

    13.12.2008, kl. 23:21 | #

  3. Guðbjörg skrifar:

    Ég gæti ekki verið meira sammála þér. RUV flytur aðallega ráðherrafréttir, sömuleiðis allir hinir íslensku miðlarnir. Í erlendum miðlum heyrir maður fréttir af venjulegum Íslendingum í kreppunni. Hér virðast fréttamiðlar ENGAN áhuga hafa á högum venjulegs fólks. Eina fólkið sem heyrist í eru stjórnmálamenn og eitthvað fólk sem kallast álitsgjafar og virðist vera eina fólkið sem má hafa skoðanir fyrir utan stjórnmálamenn. Ef almenningur hefur sig eitthvað í frammi eins og í mótmælum er hann alloft hafður að háði og spotti í næsta fréttatíma RUV. Það er lítill vandi að halda völdum með svona þýlynda fjölmiðla!

    13.12.2008, kl. 23:26 | #

  4. Einar skrifar:

    Þú segir: "Komm on! Hverjum er ekki sama um valdabaráttu í flokki sem enginn vill kjósa?"
    Ertu að segja að enginn hafi kosið VG í síðustu kosningum?
    (miðað við kannanir þá myndi u.þ.b. 50% fleiri kjósa D núna en kusu VG í síðustu kosningum)

    13.12.2008, kl. 23:43 | #

  5. Jonki skrifar:

    Sammála Elíasi. Fréttir RUV eru spunahrat.

    14.12.2008, kl. 11:02 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls skoðavetvangur. Allir geta sína skoðun á því efni sem birtist á Smugunni. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica