Elías Jón Guðjónsson
Bless Davíð
Fyrir einni og hálfri viku var Davíð Oddssyni boðið á borgarafund í Háskólabíó ásamt ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Hann mætti ekki og gaf engar skýringar. Nokkrum dögum fyrr hafði blaðamaður DV óskað eftir viðtali við hann. Hann vildi frekar tala við norskan skógarkött. Síðastliðinn mánudag fóru tvö hundruð manns í Seðlabankann og óskuðu eftir áheyrn hans. Því fólki var hótað ofbeldi ef það kæmi sér ekki út.
Davíð vildi ekki tala beint við þjóðina á borgarafundi sem var í beinni útsendingu í sjónvarpi allra landsmanna. Hann vildi ekki tala við íslenskan blaðamann. Hann hótaði fólki frekar ofbeldi en að tala við það. Davíð vildi hins vegar tala við blaðamann dagblaðs á Fjóni í Danmörku.
Þar segist hann hafa varað við öllu saman. Hann segir að skortur á frjálsum fjölmiðlum hafi riðið baggamuninn. Hann heldur samt áfram að hóta. – ekki beinu ofbeldi heldur því að hann muni snúa aftur í stjórnmálin verði honum sparkað út úr Seðlabankanum.
Fyrirgefðu Davíð, en ertu virkilega svona skyni skroppinn? Þessi hótun þín er sorglegri en tárum taki. Öllum er sama þótt þú snúir aftur í stjórnmálin. Ég held reyndar að sumum þætti það jafnvel skemmtilegt, aðallega þó hlægilegt.
Ég er hins vegar löngu orðinn þreyttur á því að íslensk stjórnmál snúist um þig. Þannig að þú skalt bara halda þig í erlendum fjölmiðlum, helst einhverjum sem berast seint eða ekki til Íslands svo við getum endanlega verið laus við þig.
Bless Davíð. Við nennum ekki að hlusta á þig og við viljum ekki tala við þig.


Skrifa athugasemd