Stjórnarstefnu stolið
Jafnaðarstefna milli vina
Borgarafundur í Háskólabíói á mánudagskvöldið var svo merkilegur að vonandi hefur þjóðin öll setið við þegar sjónvarpið sýndi hann í gærkvöld. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur, úr innsta hring ríkisstjórnarráðgjafa, varar við því að heilbrigðiskerfið fari sömu leið og fjármálakerfið.
Hvar er Jafnaðarmannaflokkur Íslands nú? Er þetta framtíðarsýn sem hann samþykkir?. Viðvörun formanns Samfylkingar til stjórnsýslufræðingsins ber keim af því. Utanríkisráðhera virðist hafa beðið Sigurbjörgu að gæta orða sinna til að kveikja ekki fleiri elda í stjórnarsamstarfinu. Og fara silkihönskum um Guðlaug Þór Þórðarson. Heilbrigðisráðherrrann sem Sigurbjörg færir skýr rök fyrir að sé að stela stefnu ríkisstjórnarinnar – og laga að flokkssamþykktum Sjálfstæðisflokksins:
Menn sem vilja eitthvað annað en ríkisstjórnin vill nákvæmlega, hreinlega yfirtaka stefnumótunina með því að endurskilgreina viðfangsefnið og laga svo skilgreininguna að uppáhaldslausnunum sínum.
Heilbrigðisráðherra vill klárlega annað en ríkisstjórnarsáttmálinn segir. Hann vill einkavæða heilbrigðiskerfið. Til þess er Sjúkratryggingastofnun, til þess var Heilsuverndarstöðin ehf, sem fór á hausinn. Samfylkingin hefur aldrei samþykkt slíkt í orði. Fagra Ísland má ekki endurtaka sig.Orðin tóm hjálpa engum.
Sigurbjörg segir vísbendingar um einkavinavæðingu hafa hrannast upp í kringum Sjúkratryggingastofnun. Arkitekt einkavæðingarstefnu Sjálfstæðisflokksins sé þar orðinn forstjóri. Hún er sannarlega ekki sú eina sem hefur tekið eftir því. Enda lá Sjálfstæðisflokknum svo mikið á koma starfseminni af stað að ekki var beðið eftir því að lög um stofnunina færu gegnum Alþingi.
Stóra spurningin er hvers vegna biður formaður Samfylkingarinnar vinkonu sína að tala varlega þegar heilbrigðisráðherra er að færa heilbrigðisþjónustuna til einkavina?
Vilja jafnaðarmenn horfa á eftir heilbrigðisþjónustu í hendurnar á Árna Sigfússyni sem stýrir Reykjanesbæ, með óvenju greiðum aðgangi að ríkissjóði, en er samt með allt á hælunum? Enn hafa vel tengdir Sjálfstæðismenn skefjalítinn aðgang að almannafé til að færa einkavinum. Nú síðast í heilbrigðisþjónustu.
Það er óskiljanlegt að þingmenn Samfylkingar sem Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir sagði að hefðu lagst á Guðlaug Þór til að reyna tryggja heilbrigðisþjónustu fyrir alla, komi ekki fram í hópum núna og segi sannleikann. Útskýri fyrir almenningi í smáatriðum hvernig þeir meti stöðuna og hvort þeir treysti Sjálfstæðisflokknum til að tryggja jafna þjónustu fyrir alla, eins og stjórnarsáttmálinn kveður á um.
Jafnaðarmenn eru engir jafnaðarmenn ef þeir samþykkja að heilbrigðisþjónustan fari sömu leið og fjármálakerfið. Jafnaðarmenn eru ójafnaðarmenn haldi þeir áfram að taka á klíkufrjálshyggjunni með silkihönskum og kreppa járnhnefann framan í almenning.

